Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2001, Blaðsíða 6
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001
Fréttir
X>V
Einar K. Guðfinnsson, formaður sjávarútvegsnefndar Alþingis:
Islendingar geta
lært af Færeyingum
KS
nnij
- sem náð hafa athyglisverðum árangri
„í tengslum við FAO ráðstefnu
sem haldin var hér á landi fengum
við í sjávarútvegsnefnd Alþingis
sjávarútvegsráð-
herra Færeyja til
að flytja fyrir
okkur fyrirlestur
um þá fiskveiði-
stjórnunarstefnu
sem þeir starfa
meö í Færeyjum,
og það gerðum
við af þeirri
ástæðu að okkur
finnast athyglis-
verðar þær fréttir sem borist hafa af
árangri Færeyinga í uppbyggingu
sinna fiskistofna," segir Einar K.
Guðfinnsson, formaður sjávarút-
vegsnefndar Alþingis, um það sem
menn kalla „færeysku leiðina" í
fiskveiðistjómun sem mjög er til
umræðu þessa dagana.
Einar segir að margt bendi til
þess að Færeyingar séu að ná at-
hyglisverðum árangri í fiskveiði-
Einar Kr.
Guöfinnsson.
stjómun og sér finnst tvennt hafa
staðið upp úr í máli færeyska sjáv-
arútvegsráðherrans. „Annars vegar
var það að hér er um aö ræða í meg-
inatriðum kerfi með framseljanleg-
um sóknarrétti, þar sem dregið er
úr veiðunum á einstaka tegundum
með þvi að takmarka sóknina. í
öðru lagi vakti athygli mína að með
því að beita með beinskeyttum
hætti því sem ég hef kallað veiðar-
færastýringu, eru þeir að ná ár-
angri við uppbyggingu fiskistofn-
anna. Ég held að það sé ekki síst á
því sviði sem við íslendingar getum
lært af Færeyingum, að beita meiri
stýringu með veiðarfærunum og
það geta menn gert óháð því fisk-
veiðastjórnunarkerfi sem unnið er
með hverju sinni“.
- Heldur þú að það sé hægt að
taka það besta úr færeyska kerfinu
og kvótakerfinu okkar og sameina
það í enn betra kerfi en þessi tvö?
„Ég held aö það sem megi auð-
veldlega gera í þeim efnum sé að
beita veiðarfærastýringunni. Hinu
geri ég mér grein fyrir að er miklu
meira pólitískt deilumál hvort
Við horfum með
hryllingi til íslands/
Mtr.nsktuc Wt.«iw ______ M
Frétt DV í gær.
menn stjórni fiskveiðunum með
magntakmörkunum eða sóknartak-
mörkunum. Sjálfur hef ég verið
hallur undir sóknartakmarkanir en
hljómgrunnur fyrir slíku hefur ver-
ið frekar lítill framundir þetta. En
mér finnst að menn ættu a.m.k. að
geta sameinast um að beita með
áhrifaríkari hætti veiðarfærastýr-
ingu og veiðarfæratakmörkunum og
það finnst mér eiga beint erindi inn
í umræðuna. Mér finnst þær
upplýsingar sem komu fram
* á fyrirspurnaþingi sjávarút-
Jk vegsráðherra, þar sem kom
* fram það almenna sjónarmið
að sóknin í kvótakerfinu hafi
allt of mikið beinst í stærsta
fiskinn, styðji þessa skoðun
mina.“
Þú talar um frekar lítinn
hljómgrunn við sóknarstýr-
ingu, heldur þú að það kunni
að vera að breytast?
„Ég skal ekkert um það
segja. Stundum metur maður
það svo, en ég minni á að sú um-
ræða sem fram fór í sumar að
stjórna steinbítsveiði ekki með
beinum magntakmörkunum heldur
sóknartakmökunum og veiðarfæra-
stýringu, hún jók mér ekki bjart-
sýni í þessum efnum,“ segir Einar
K. Guðfinnsson. -gk
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LíÚ, um færeyska kerfið:
Hvolsvöllur
Veröi tillaga um sameiningu sex
sveitarfélaga í austanveröu Rangár-
þingi yröi Hvolsvöllur kjarnastaöur
þess.
Suðurland:
Tvennar
kosningar
Á tveimur stöðum á Suðurlandi
verður um helgina kosið um sam-
einingu sveitarfélaga. í Ámessýslu
verður kosið um sameiningu
Grímsness og Grafningshreppa,
Laugardals-, Þingvallasveitar og
Biskupstungna. Ef sameining
þessa sveitarfélags í eitt verður
samþykkt yrðu íbúar þess um 1.200
talsins. f austanverðri Rangár-
vallasýslu er svo kosiö um hvort
sameina beri Austur- og Vestur-
Eyjafjöll, Austur- og Vestur-Land-
eyjar, Fljótshlíð og Hvolhrepp.
Verði sameining samþykkt verða
íbúar í sveitarfélagi sem nær yfir
allt austanvert Rangárþing tæp-
lega 1.700.
„Stuðningurinn við sameiningu
er nokkuð almennur, það er helst
spurningin hvort þetta veröur sam-
þykkt í Grímsnesi og Grafningi,“
sagði Margeir Ingólfsson, formaður
hreppsráðs í Biskupstungum. Hann
telur sameiningu skynsamlegan
kost, nú þegar veriö sé að fela sveit-
arfélögum æ fleiri og kostnaðarsam-
ari verkefni
„Ég vil vera bjartsýnn á að þessi
tillaga verði samþykkt," sagði Elvar
Eyvindsson á Skíðbakka í Landeyj-
um sem situr í sameiningarnefnd í
Rangárvallasýslu. Hann sagði að
hins vegar væri reglan sem farið
væri eftir þannig að sameina mætti
sveitarfélögin ef tveir þriðju hlutar
íbúanna sem búa í fjórum af þeim
sex hreppum sem nú er stefnt að því
að sameina væru samþykkir. „Það
ætti því ekki að breyta heildar-
myndinni þótt tillagan yrði felld í
einum eða tveimur sveitahreppun-
um.“ -sbs
Okkar kerfi betra
- sóknarstýring leysir engan vanda
„Við höfum skoðað þetta fær-
eyska sóknarmarkskerfi og að öllu
virtu þá teljum við einfaldlega að
aflamarkskerfið sé betra, það er nú
ekki flóknara en það. Við vorum
með sóknarkerfi hér á árum áður
sem reyndist ekki vel,“ segir Frið-
rik J. Arngrímsson, framkvæmda-
stjóri LÍÚ, aðspurður hvort ekki
væri eðlilegt að líta til Færeyja eftir
fyrirmynd í fiskveiðistjórnun.
„Jafnvel þótt við ákvæðum að við
vildum skipta yfir í sóknarmarks-
kerfi þá værum það áfram við, þess-
ir sömu útgerðarmenn sem værum
að veiða fiskinn. Þetta yrði aldrei
þannig að mönnum yrði skipt út úr
þessu og aðrir kæmi inn þannig að
þetta er ekkert út í loftið sem við
erum að segja þetta. Við viljum fá
sem mest út úr
fiskistofnunum á
sem hagkvæmast-
an hátt og ef það
væri mat okkar
að sóknarmarkið
væri betra þá
myndum við að
sjálfsögðu óska
eftir að það yrði
tekið upp,“ segir
Friðrik. Hann seg-
•ir það mikinn misskilning ef menn
haldi að með því að taka upp sóknar-
markskerfi sé verið að opna greinina
fyrir nýliðun umfram það sem er í
aflamarkskerfinu. Hann segir að í
Færeyjum sé allt lokað og læst í kerf-
inu og veiðileyfin séu lykill að kerf-
inu þar. „Þú kemst ekkert inn í fær-
Friörik J.
Arngrímsson.
eyska kerfið nema kaupa leyfi af
þeim sem fyrir eru og sóknardaga,"
segir Friðrik. Hann minnir á að í
sóknarkerfi hljóti menn líka að setja
heildaraflamark og segir það því mið-
ur útbreiddan misskilning hjá and-
stæðingum núverandi kerfis að eitt-
hvert annað kerfi „búi til fisk“. Hann
segir að það séu ekki nema örfáir sem
fái að veiða í Færeyjum, reyndar oft
á tíðum nánast eins og þeim sýnist,
enda séu margir sem telji að þar séu
mjög haldlitlar sóknartakmarkanir.
Friðrik telur að með sóknarkerfi
verði mun erfiðara að stýra veiöum í
einstaka stofna, t.d. á blönduðum
veiðum, auk þess sem það hafi í fór
með sér ýmiss konar óhagræði, s.s.
varðandi skipulag sóknarinnar,
kostnað, slysahættu o.fl. -BG
Tillaga um að Akureyringar greiði 13,03% útsvar í stað 13,0%:
Annaðhvort hækkun eða
að draga úr þjónustu
- segir bæjarstjórinn - alfarið á móti, segir fulltrúi framsóknar
„Eg gerði grein fyrir því á fundi
bæjarráðs að ég gæti ekki staðið að
þessari hækkun. Forsendan er sú að í
kjarasamningunum í apríl á síðasta
ári kom fram loforð frá ríkisstjórninni
um lækkun á sköttum. Það fylgdi ekki
með í þeim pakka að sú lækkun yrði
notuð af sveitarfélögimum til að
hækka gjöld á íbúana. Ég er því alfar-
ið á móti þessu," segir Guðmundur
Ómar Guðmundsson, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins á Akureyri, en
hann greiddi atkvæði gegn tillögu bæj-
arstjóra í bæjarráði um að útsvarspró-
senta Akureyringa á næsta ári hækki
'og verði 13,03%. Þessi hækkun út-
svarsins mun þýða að einstaklingur
sem hefur eina milljón króna í tekjur
á ári greiðir 25 þúsund krónum hærra
útsvar en í ár.
„Miðað við þá þjónustu sem Akur-
Akureyri
Útsvariö hækkar.
eyrarbær veitir á öllum sviðum er al-
veg ljóst að launakostnaður er
langstærsti einstaki liðurinn i rekstri
bæjarsjóðs. Það hafa orðið mjög mikl-
ar launabreytingar á árinu sem er að
líða og með einhverjum hætti verður
bæjarsjóðurinn að mæta því. Annað-
hvort verður það gert með þvi að
draga úr þeirri starfsemi sem hann
hefur haldið úti í þjónustu við íbúana
eða mæta því með hækkun skatta.
Þessi leið er talin fýsilegri, ásamt því
að þegar ríki og sveitarfélög voru að
ræða um kostnaðarskiptingu fyrir
einu og hálfu ári lýsti rikið því yflr að
það myndi lækka tekjuskattsprósent-
una um 0,3% um næstu áramót. Svig-
rúm fyrir sveitarfélög sem töldu sig
þurfa meiri tekjur myndaðist því
þama. Launaskattsprósenta er saman-
sett úr tekjuskatti til ríkisins og út-
svari til sveitarfélaganna, þannig að
skattbyrði einstaklinganna á ekki að
aukast við þetta. Þama er um að ræða
svigrúm sem sveitarfélögin ráða hvort
þau nýta sér eða ekki og langflest, eða
nær öll stóm sveitarfélögin, gera það“
segir Kristján Þór. -gk
Umsjón: Birglr Guömundsson
netfang: birgir@dv.is
Flokkanafnanefnd?
í pottinum hafa menn verið að
ræða hinn sérkennilega nafnaslag
sem er í uppsiglingu á landsfundi
Samfylkingarinnar, en Guðmundur
Árni Stefánsson,
og Lúðvfk Berg-
vinsson eru með
tillögu um að kalla
flokkinn Samfylk-
inguna - Jafnaðar-
mannaflokk fslands
og nota þannig
hluta úr nafni I
gamla Alþýðuflokksins. Jóhann
Geirdal hefur komið með krók á
móti bragði og leggur til að flokkur-
inn verði kallaður „Alþýðubandalag-
ið“ og segir tillöguna hugsaða til að
draga fram fáránleika tillögunnar
um Jafnaðarmannaflokk íslands.
Tvær tiflögur enn munu á floti og i
pottinum hafa menn veft þvi fyrir
sér hvort ekki sé ástæða til að setja
upp sérstaka „flokksnafnanefnd"
innan Samfylkingarinnar sem væri
þá eins konar ígildi „mannanafna-
nefndar" úti í samfélaginu ...
Gamall leiðari á flakki
Eftir að fslenska ákvæðið svokalf-
aða var samþykkt í Marrakech á
dögunum, um undanþágu frá Kyoto-
bókuninni til lítilla hagkerfa sem
ætla í einstakar
stórframkvæmdir
l á sviði stóriðju og
: nota til þess end-
umýjanlega orku,
hefur gamall leið-
ari úr DV gengið á
milli ungra fram-
sóknarmanna.
Þessi leiðari var skrifaður fyrir rétt-
um þremur árum og höfundur hans
var Össur Skarphéðinsson sem nú
er formaður Samfylkingarinnar. Sér-
staklega er búið aö undirstrika
hluta leiðarans þar sem segir: „Aðr-
ar þjóðir pípa á þetta viðhorf. Það
kom berlega fram á ráðstefnunni
sem nýlokið er í Buenos Aires. Þar
lögðu íslendingar tii að þeir fengju
undanþágu frá Kyotosamningnum.
Það hlaut engar undirtektir nema
hjá Áströlum sem vilja byggja hér
magnísímstöð.“ Greinilegt er að
ungum framsóknarmönnum þykir
þessi leiðari Össurar hafa elst illa
og dreifa honum því sín á milli...!!
Hlaðan og Laden
Pottverjar hafa alltaf gaman af ný-
yrðasmíð og ekki síst þegar ungt
fólk er að leika sér að þvi að ís-
lenska nöfn og hugtök sem notuð
eru á hverjum
degi í fréttum fjöl-
miðla. Þannig
fréttist í pottinn af
því að i ákveðnum
hópum grunnskóla-
nema i 9. og 10. |
bekk norður á Ak-
ureyri væri Osama I
bin Laden sjaldan kallaður Osama
bin Laden. Krakkarnir, sem margir
hverjir hafa lært eitthvert þýsku-
hrafl, mest af því að hlusta á Ramm-
stein, hafa íslenskað nafn þessa
hryðjuverkaleiðtoga og kalla hann
aldrei annað en „Hlöðu-
ósómann" ...!
Stjórnardansinn
Ummæli Guðna Ágústssonar um
stjórnarsamstarfið hafa vakið mikla
athygli en ráðherrann líkti samstarf-
inu sem kunnugt er við dans þar
sem heldur smá-
vaxinn herra, sem
var Framsókn, var
að dansa við stór-
gerða konu, íhald-
ið, sem af var bæði
dálítil svitalykt og
táfýla. Guðni sagði
að slíkt mættu
menn ekki láta á sig fá og þvi væri
ekkert annað að gera en klára dans-
inn með reisn. Um þetta hafa menn
farið að yrkja, eins og vera ber, og
P.K. orti t.a.m. þetta:
Af íhaldsfótum fýlan er,
fráleitt svitinn laðar.
Þetta að góðu gerir sér
Guðni landbúnaðar.