Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2001, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001
Schröder fékk
nauman stuðning
Neöri deild þýska þingsins sam-
þykkti í gær með naumum meirihluta
stuðningsyfirlýsingu til handa Ger-
hard Schröder kanslara, vegna þátt-
töku þýska hersins í baráttunni gegn
hryðjuverkum í Afganistan. Schröder
fór fram á stuðningsyfirlýsinguna eft-
ir að ágreiningur hafði komið upp
innan stjórnarflokkanna, jafnaðar-
manna og grænna, vegna ákvörðunar
rikisstjórnarinnar um að senda um
4000 sérsveitarmenn til Afganistan.
Málið varð mjög tilfmningalegt og fór
Schröder því fram á stuðningsyfirlýs-
ingu sem samþykkt var með 336 at-
kvæðum gegn 326. Aðeins fjórir græn-
ingjar munu hafa greitt atkvæði gegn
tillögunni.
Norðmenn haldi
sig innandyra
Óveðrið sem herjaði á Island um
síðustu helgi gerði einnig usla í Nor-
egi og urðu fylkin Norður-Þrændalög,
Mæri og Romsdalur verst úti. Vegir
rofnuðu vegna skriðufalla og víða
varð fólk að flýja híbýli sín vegna
aurskriðna. Þá urðu lestarteinar illa
úti og ferjusamgöngur lögðust af frá
því aðfaranótt fimmtudagsins þar til
fram í miðja viku. Einnig féll allt flug
frá Mið-Noregi niður og því má segja
að þessi landshluti hafi verið án ailra
samgangna.
í hafnar- og fótboltabænum Molde
urðu sjónvarpssjúklingar fyrir tölu-
verðu áfalli. í þrumunum og elding-
unum sem fylgdu íslandslægðinni
eyðilögðust hundruð sjónvarps- og út-
varpstækja og tölva þegar eldingum
sló niður í húsnæði bæjarbúa.
Um helgina hafa veðurfræðingar
boðað að önnur lægð sé á leiðinni frá
íslandi en sú muni ekki valda jafn-
miklum hremmingum og sú fyrri.
Samt sem áður er fólki ráðlagt að
halda kyrru fyrir heima hjá sér um
helgina og ana alls ekki upp til fjalla,
þar sem stór hluti Norðmanna eyðir
öllum sínum frítimum í gallakofum
sínum. -GÞÖ
Mohamed Atef
Atef, nánasti samstarfsmaður bin
Ladens, lést í loftárásum á Kabúl.
Samstarfsmaður
bin Ladens
er fallinn
Egyptinn Mohammed Atef, einn
nánasti samstarfsmaður Osama bin
Ladens í al-Qaeda samtökunum,
mun hafa farist i sprengjuárásum
Bandaríkjamanna á Kapúl um síð-
ustu helgi. Atef var af mörgum tal-
inn helsti hugmyndasmiður hryðju-
verkaárásanna á Bandaríkin þann
11. september sl. og höfðu bandarísk
yfirvöld lagt fram flmm milljón doll-
ara honum til höfuðs, dauðum eða
lifandi. Hann gekk bin Laden næst í
virðingarröðinni innan al-Qaeda
samtakanna og er dóttir Atefs gift
syni bin Ladens.
Bandaríkjamenn gerðu loftárásir á Kandahar í gær:
Talibanar íhuga nú að af-
henda pashtúnum borgina
I sínu fínasta á fyrsta degi Ramadan
Þessar ungu palestínsku stúlkur voru mættar við bænahald með foreldrum sínum í bænahús múslíma í Jerúsalem í
gær á fyrsta degi föstumánaðarins Ramadan. Óvenjurólegt var á óróasvæðinu á Vesturbakkanum og kom lítillega til
óeirða þegar ungir Palestínumenn reyndu að smygla sér fram hjá varðstöð ísraelsku öryggislögreglunnar.
Pútín í New York
Pútin Rússlandsforseti heimsótti í
gær rústirnar af WTC á Manhattan á
leið sinni til Rússlands eftir að hafa
fundað með Bush Bandaríkjaforseta í
Texas. Hér á Myndinni er Pútín með
Giuliani borgarstjóra og túlk.
Bandarískar sprengjuflugvélar
gerðu í gær, á fyrsta degi Ramadan,
fóstumánaðar múslíma, sprengjuárás-
ir á stöðvar talíbana í borginni
Kandahar og var flugskeytum meðal
annars skotið á húsnæði utanríks-
ráðuneytis og bænahús í borginni.
Samkvæmt fréttum pakistanskrar
fréttastofu munu ellefu óbreyttir borg-
arar hafa fallið í árásunum sem lögðu
byggingu utanríkisráðuneytisins og
hliðarbyggingar hennar í rúst.
Á meðan hersveitir Norðurbanda-
lagsin herða enn sóknina gegn tali-
bönum eru Bandaríkjamenn og
bandamenn þeirra í óðaönn að koma
hersveitum sínum fyrir á svæðinu og
munu um eitt hundrað breskir her-
menn hafa komið sér fyrir á flugvelli
borgarinnar Bagram, í nágrenni höf-
uðborgarinnar Kabúi, tilbúnir að að-
stoða við hjálparstörf.
í gær voru einnig um sextíu fransk-
ir hermenn á leiðinni til sams konar
starfa í Úsbekistan, þaðan sem þeir
munu halda áfram til hjálparstarfa í
Pashtúni í vígahug
Hersveitir pashtúna sitja nú um að
komast inn í Kandahar.
borginni Mazar-e-Sharif í norður-
Afganistan en stórsókn hersveita
Norðurbandalagsins hófst með her-
töku hennar á fóstudaginn í síðustu
viku.
í gær var rússnesk sendinefnd
einnig á leiðinni á svæðið til móts við
fulltrúa Norðurbandalagsins, að sögn
Sergeis Ivanovs, varnarmálaráðherra
Rússlands, til viðræðna um myndun
nýrrar ríkisstjórnar í Afganistan.
Mikið kapphlaup er nú hafið um
hertöku Kandahar milli Norður-
bandalagsins og hersveita pashtúna,
sem eru fjölmennasta þjóðarbrotið í
Afganistan, en milli þessara þjóðar-
brota hefur lengi ríkt hatur. Her
pashtúna er sundraður og margir sem
vilja ráða ferðinni en aðeins hatrið á
Norðurbandalaginu sem sameinar þá.
Einn foringja þeirra, Gul Agha
Sherzai, er fyrrum héraðsstjóri tali-
bana í Kandahar.
Mullah Omar, leiðtogi talibana,
mun nú íhuga að afhenda pashtúnum
borgina til að komast hjá blóðsúthell-
ingum en fréttir bárust þó af bardög-
um í norðurjaðri hennar og ekki vitað
hverjir átta þar hlut að máli.
Palestínumenn fjölmenntu til bæna í Jerúsalem:
Rólegt á óróasvæðinu á
fyrsta degi Ramadan
Um fjörutíu þúsund
Palestínumenn lögðu leið
sína til bænahalds sem
fram fór í Al-Aqsa bæna-
húsinu í palestínska
hluta Jerúsalem í gær, á
fyrsta degi Ramadan,
föstumánaðar múslíma.
íraelski herinn hafði
mikinn viðbúnað á
staðnum þar sem búist
var við miklum óróa en
atburðir við bænahúsið
urðu einmitt til þess að
óeirðaaldan, sem nú hef-
ur staöið í þrettán mán-
uði, hófst í október í
fyrra.
ísraelsk yfirvöld, sem
höfðu um 2000 öryggis-
verði í viðbragðsstöðu í
Jerúsalem, höfðu ákveð-
A leiö til bænahalds
ísraelskur hermaður hleypir eidri Palestínumanni inn fyrir borgarmúra
Jerúsalem á fyrsta degi föstumánaðarins Ramadan sem hófst í gær.
ið að hleypa aðeins þeim
sem náð höfðu þrjátíu ára
aldri inn fyrir múrana í
gamla hverfið í Jerúsal-
em, frá svæðinu á Vestur-
bakkanum, en þegar
nokkrir sem ekki höfðu
náð aldri reyndu að
smygla sér fram hjá varð-
stöð kom til óeirða sem
enduðu með því að þrir
Palestínumenn lágu slas-
aðir eftir.
í Ramallah á Vestur-
bakkanum kom einnig til
óeirða en að öðru leyti
var lítið um óeirðir á
svæðinu. Á fimmtudag
skutu ísraelskir öryggis-
verðir Palestínumann
sem komist hafði ólöglega
inn á ísraelskt landsvæði.
mimti
700 látnir í Alsír
Yfirvöld í Alsír staðfestu í gær að
vitað væri með vissu um 700 manns
sem farist hefðu í flóðunum í höfuð-
borg landsins um síðustu helgi. Lík-
legt er talið að tala látinna eigi enn
eftir að hækka og er giskað á að meira
en 1000 manns hafi farið. Miklar
skriður og landsig fylgdu flóðunum og
er nú unnið að því að hreinsa burt
þúsundir tonna af leðju en ólíklegt
talið að nokkur finnist þar á lífi.
Umsvifalaust skotnir
Donald Rumfeld
sagði í gær að þeir
talibanar og stríðs-
menn al-Qaeda-sam-
takanna sem þráuð-
ust við að gefast upp
fyrir bandarískum
sérsveitarmönnum,
' yrðu umsvifalaust
skotnir og bætti því við að sérsveitar-
mennirnir tækja nú virkan þátt í bar-
áttunni við Kandahar i suðurhluta
landsins. Hann sagði einnig að þeir
tækju þátt í yfirheyrslum yfir þeim
sem teknir væru til fanga
Poppkornseitrun
Fréttir frá Kamerún herma að 400
skólabörn hafi verið flutt á sjúkrahús
í borginni Yaounde eftir að hafa
veikst hastarlega af matareitrun.
Talið er að börnin hafa fengið eitrun-
ina eftir að hafa borðað poppkom sem
keypt var af götusölumanni og var
hann strax hnepptur í gæsluvarðhald,
að sögn lögreglunnar vegna eigin ör-
yggis, þar sem foreldrar sumra barn-
anna hugðu á hefndir.
Osama til Pakistan?
íranska ríkisút-
I varpið sagði frá því í
gær að hugsanlegt
væri hryðjuverka-
foringinn Osama bin
Laden hefði flúið yf-
ir landamærin frá
Afganistan til Pak-
istan eftir að her-
‘ sveitir Norðurbanda-
lagsins hófu sókn suður til Kandahar.
Útvarpið hafði eftir áreiðanlegum
heimildum að bin Laden hefði farið
yfir landamærin nálægt bænum Tirah
í nágrenni borgarinnar Peshawar.
Byssumaöur í Atlanta
Alþj óðaflugvellinum i Atlanta í
Bandaríkjunum var lokað í gærkvöldi
eftir að maður hafði hlaupið frá ör-
yggishliði eftir að byssa uppgötvaðist
í vasa hans. Allt flug frá vellinum var
þegar stöðvað og fólki beint frá flug-
vellinum meðan mannsins var leitað
en hann hafði ekki fundist þegar síð-
ast var vitað.
Heimta afsögn Peresar
Harðlínumenn sem í gær gagn-
rýndu Shimon Peres, utanríkisráð-
herra ísraels, fyrir að segja i ræðu á
fundi Allsherjarþings SÞ að margir
israelskir borgarar styddu stofnun
Palestínuríkis á Vesturbakkanum
hafa nú farið fram á afsögn hans. Við-
brögð Peresar voru þau að menn ættu
frekar að bretta upp ermarnar og
segja hvað þeir vildu. „Þeir vilja
kannski tvö ríki í einu,“ sagði Peres.