Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2001, Qupperneq 17
17
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001
X>V ______________________________________________________________________________________Helgarblað
DV-MYND HILMAR ÞÓR
Lögreglan aöhefst ekkert
„Lögreglan aöhefst ekkert í því þegar listaverkum í opinberu rými er
stoliö eöa þau skemmd, “ segir Katrín Siguröardóttir myndlistarmaöur
sem tvisvar hefur lent í því aö útilistaverk hennar hafa veriö eyöiiögö.
„Þaö virðist vera litiö ööruvísi á skemmdir og þjófnaö á slíkum verkum
en þegar brotist er inn í hús og hljómtækjasamstæöum er stoliö. Lista-
verk eru yfirleitt margra hljómtækjasamstæöna viröi auk þess sem í
þeim eru fólgin verömæti sem ekki veröa metin í peningum."
Listdhryðjuverk
í Reykjavík
- listaverk Katrínar Sigurðardóttur tvisvar verið eyðilögð
Síðasta laugardag stóð Katrín Sig-
urðardóttir myndlistarmaður í rok-
inu og kuldanum á horni Rauða-
lækjar og Brekkulækjar í Reykjavík
og steypti áttatiu örsmá steinhús
niður i gangstéttina. Nokkrum tím-
um eftir að uppsetningu verksins
lauk sneri Katrín aftur í Rauðalæk-
inn en þá mætti henni ófögur sjón.
Einhver hafði haft fyrir því að eyði-
leggja með spörkum steypt lista-
verkið.
Eggjum hent í leikara
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
listaverk Katrínar eru eyðilögð. Á
strandlengjusýningu fyrir fáum
árum var verk hennar eyðilagt eins
og verk margra annarra lista-
manna. Árásargirni Islendinga í
garð útilistaverka er landlægt
vandamál og lýsir sér kannski best
í því að Myndhöggvarafélagið hefur
ekki fengið listaverk á útisýningum
sínum tryggð hjá tryggingafélögum,
sama þótt boðist hafi verið til þess
aö greiða hærri iðgjöld. íslensk
listahryðjuverk hræða tryggingafé-
lögin.
Katrín segir að hugmyndin um
hryðjuverk sé í huga hennar og
flestra öðruvísi en fyrir fáum mán-
uðum. „Það er því sterkt til orða
tekið að kalla þetta hryðjuverk. Það
má þó ekki verða til þess að gera lít-
ið úr skemmdum af þessu tagi.
Þetta var viljaverk; einhver hafði
fyrir því að eyðileggja verkið gjör-
samlega. Þegar ég kom að verkinu
fékk ég smá-áfall. Þetta var svipað
því og eggjum sé hent í leikara á
sviði; mjög skrýtin upplifun."
Eyöilegging á útisýningum
Katrín segist gera sér grein fyrir
því að á íslandi séu skemmdarverk
af þessu tagi ekki persónuleg árás á
listmanninn sjálfan. „Listaverk eru
eyðilögð á hverri einustu útisýn-
ingu sem haldin er,“ segir Katrín.
„Þetta er dálítið í andstöðu við
snyrtimennsku íslendinga."
Sumir myndu telja þessa lista-
verkaeyðileggingaráráttu íslend-
inga sem andóf gegn myndlist.
Katrín er ekki sannfærð um það.
„Ég held að fólk gangi oft fram hjá
listaverkum án þess að átta sig á þvi
að þau séu hluti af listsýningum.
Það er alltof lítið lagt upp úr
kennslu í listum í skólakerfinu.
Maður þakkar fyrir ef börnum er
kennt að snerta ekki verk á lista-
söfnum. Mér finnst þó rangt að
skella skuldinni á börn, það er ekk-
ert víst að um böm sé að ræða, auk
þess sem börn læra þaö sem fyrir
þeim er haft.“
Ekki má gleyma því að í lista-
verkum eru fólgin mikil verðmæti,
bæði menningarleg og fjárhagsleg.
„Lögreglan aðhefst ekkert i því þeg-
ar listaverkum í opinberu rými er
stoliö eða þau skemmd," segir
Katrín. „Það virðist vera litiö öðru-
vísi á skemmdir og þjófnað á slíkum
verkum en þegar brotist er inn í
hús og hljómtækjasamstæðum er
stolið. Listaverk eru yfirleitt
margra hljómtækjasamstæðna virði
auk þess sem í þeim eru fólgin verð-
mæti sem ekki verða metin í pen-
ingum.“
íslenska myndlistarþjóðin
Katrín fór í gær til New York þar
sem hún vinnur að sýningu sem
verður opnuð í janúar þar í borg. í
haust var opnuð sýning á íslenskri
myndlist frá 20. öld í Corcoran-
safninu i Washington. Safnið er
þriðja elsta einkasafn Bandarikj-
anna, ihaldssamt og mjög virt.
Verkið sem Katrin var með á sýn-
ingunni hefur aldrei verið sýnt á
íslandi. Hún gerði verkið í Noregi
og hefur það verið sýnt í Kanada og
Þýskalandi auk þess sem það hefur
verið sýnt áöur í Bandaríkjunum. í
tilefni sýningarinnar var meðal
annars viðtal við Katrínu í banda-
ríska ríkisútvarpinu.
Katrín segir að samfélag ís-
lenskra myndlistarmanna sé sterkt
og hvar sem þeir komi myndi þeir
heild með sterkum tengslum við
uppruna sinn. „íslenska myndlist-
arþjóðin á sinn kjarna á íslandi en
það er mikið af listamönnum sem
vinna jafnmikið í útlöndum og
heima. Samt er aldrei neinn vafi
um að þeir eru íslenskir lista-
menn.“
-sm
VELKOMIN í EURONICS!
67-995»
Whirlpool þvottavél AWM 8022
Ryðfrí stáltromla, 1200 snuninga. Rafrænn kerfisveljari
48 lítra þvottatromla. Mjög stórt hurðarop.
Stafrænn niðurteljari. Fjögurra þrepa hraðkerfi.
Barnalæsing. Þvottahæfni A. Vinduafköst B.
Raforkunotkun A.
mw
f i-iÉÉi
f * 1
ÆPft
mtf
.
Ignis örbylgjuofn AKL 219
18 lítra handstýrður örbylgjuofn
5 þrepa styrkstillir gefur færi
á margs konar notkun.
54-995»
Whirlpool kæliskápur ART 571
278 lítrar brúttó. Raforkunotkun A.
Stærð: H139. B60. D61 cm.
Stærsta versiunarkeðja með raftæki í Evrópu!
2-995»
eH
s. 569 1550