Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2001, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________DV
Kynlrf
- Víkjum að öðru, hvað viltu gera í
brottkastsmálinu?
„Ég vil banna leiguviðskipti með
kvóta. Þótt sveigjanleiki minnki eitt-
hvað verða menn að lifa við það. Þetta
er róttæk tillaga en hún leysir mörg
vandamál."
- Eftir að þú gagnrýndir kostnað
við sendiráðið í Japan sagði Halldór
Ásgrímsson eitthvað á þá leið að þú
ættir að halda þig við þína deild.
Hverju svararðu þessu?
„Ég tek þetta sem hvert annað
reiðikast, sem er óvanalegt af Hall-
dóri. Auðvitað hef ég rétt til að hafa
skoðanir og ég mun segja þær sem
einstaklingur, sama hvort ég kenni
uppi í Háskóla eða geri eitthvað ann-
að. Það er ekki flokkspólitísk afstaða
að gagnrýna þetta rándýra sendiráð í
Japan sem kostar þjóðina yfir 700
milljónir. Margir hafa gagnrýnt þetta
og viðbrögð Halldórs voru mjög yfir-
drifin. Hann á að þola svona gagn-
rýni.“
- Þótt þú sért að hætta í starfi for-
manns framkvæmdastjórnar Samfylk-
ingar þá muntu væntanlega ekki
hætta að skrifa heimasíðu þína?
„Nei, ég ætla að halda minni
heimasíðu áfram. Hún verður ekki á
sömu flokkspólitísku nótum og oft
áður, heldur mun fjaUa um lífið, til-
veruna og þjóðfélagsmál. Mér finnst
það líka skylda háskólamanna að vera
virkir í umræðu um þjóðfélagsmál. Ég
er búinn að vera nokkuð lengi í
stjórnmálum og í mínum huga snúast
þau fyrst og fremst um hugmyndir.
Menn verða að hafa hugmyndir og
tala fyrir þeim. Ég hef séð margar af
mínum hugmyndum ná fram að
ganga. Ég talaði fyrir veiðileyfagjaldi
á sínum tíma og nú er það að koma í
höfn. Skattahugmyndir mínar eru
flestar orðnar hluti af skattastefnu
Samfylkingarinnar. Ég er stoltur af
því að hafa unnið með Einari Oddi
Kristjánssyni í aðdraganda þjóðarsátt-
arinnar fyrir meira en áratug. Ég er
mikiU Evrópusinni og er bjartsýnn á
að við verðum komin með alvöruum-
ræðu um aðild að Evrópusambandinu
á næstu misserum og verðum orðin
aðUar innan örfárra ára. Það skiptir
máli að berjast fyrir hugmyndum. Til
þess hef ég verið í íslenskri pólitík og
hef haft gaman af því.“
- Ertu hættur stjórnmálaafskipt-
um?
„Þótt ég hætti i starfi mínu hjá
Samfylkingunni hef ég ekki afsalað
mér lýðræðisiegum réttindum. Ég
horfl glaður tii baka og fram á við og
er sáttur við að hætta. En ég held að
fóik eigi að þekkja sinn vitjunartíma.
Menn þurfa að
kunna að hætta.“
Sálnabjörg
Trúboðar sem dvöldu í Afríku á
sextándu öldinni gerðu stundum
árangurslausar tilraunir til aö
koma í veg fyrir umskurð meðal
kvenna. Jesúítar i Abyssiníu
(Eþiópía á vorum dögum) komust
að því að þá neituðu karlmennirn-
ir að giftast konum sem ekki voru
umskornar. Og þar sem páfinn
setti sálnabjargir í forgang fram
yfir heil kynfæri kvenna var gefin
út tilskipun um að umskurður
væri þóknanlegur í „læknisfræði-
legum“ tilgangi.
Grasrótarvinna skilar mestu
í mörgum löndum, til að mynda i
Afriku, hefur umskurður kvenna
verið bannaður með lögum og sums
staðar hefur fræðsla verið sett á
laggirnar. í stuttu máli hefur þessar
aðgerðir mistekist, m.a. vegna þess
að það þarf hvorki meira né minna
en að gjörbylta viðkomandi samfé-
lagi til að siður af þessu tagi lognist
út af. Það er erfitt en ekki vonlaust
og þar sem baráttan hefur skilað ár-
angri er það grasrótarsamtökum
fyrst og fremst að þakka.
Ágúst Einarsson prófessor gef-
ur ekki kost á sér til endurkjörs
sem formaður framkvæmda-
stjórnar Samfylkingar. í viðtali
við Kolbrúnu Bergþórsdóttur
ræðir hann um stöðu Samfylk-
ingarinnar og þau mál sem hann
telur eiga að vera helstu áherslu-
mál hennar.
- Er staða Samfylkingarinnar svo
slæm að þú sért búinn að gefast upp á
opinberri þátttöku i stjórnmálum?
„Nei, það er ekki ástæðan. Ég kenni
fulla kennslu í Háskóla íslands og er
orðinn þar deildarforseti. Mér finnst
ekki fara saman að vera forystumað-
ur í einni stærstu deild Háskólans og
vera jafnframt í forystusveit stjóm-
málaflokks.
Þótt staöa Samfylkingarinnar sé
núna döpur í skoðanakönnunum er
það tímabundið. Aðalatriðið er að
Samfylkingin hafi þær hugmyndir
sem duga til fjöldafylgis - og ég tel að
í meginatriðum hafi hún þær. Henni
ber að fylgja þeirri aðferðafræði sem
jafnaðarmannaflokkarnir í nágranna-
löndunum hafa gert með góðum ár-
angri. Sýnin á þriðju leiðina er að
skerpast og um leið held ég að Sam-
fylkingin muni uppskera í næstu
kosningum. Þannig að ég er bjartsýnn
fyrir hönd Samfylkingarinnar."
- Segðu mér þá í stuttu máli hverj-
ar þér finnast eiga að vera áherslurn-
ar?
„Hornsteininn í okkar málflutningi
eru menntamál, efnahagsmál og vel-
ferðarmál. Þetta er hinn gullni þri-
hyrningur sem myndar umgjörðina
um öll stefnumál. Éf menn tala nógu
skýrt út frá þessari einfóldu heimssýn
mun fylgið koma, ef talsmennirnir
eru trúverðugir. Menntamálin eru
lykillinn að lífskjörum fólksins í land-
inu og því að halda byggð í landinu.
Það er vitlaus umræða að tala um
dreifbýli og þéttbýli. Þetta snýst um
það hvort ungt fólk mun búa hér á
landi eða ekki. Lykillinn að því er
menntunin. Það er ekkert sjálfgefið að
300.000 manna þjóð langt úr alfaraleið
takist að halda uppi öflugu samfélagi.
Það verður erfitt verkefni. Þetta er
hin nýja sjálfstæðisbarátta."
Engin foringjakreppa
- Nú er talað um foringjakreppu í
Samfylkingunni, ertu sammála því?
Reiðikast Halldórs
- Finnst þér að Samfylkingin hafi
gert þau mistök að vera of hrædd við
Vinstri græna og hugsanlega elt þá í
einhverjum stefnumálum í von um
fylgi?
„Nei. Ég held hins vegar að upphaf-
legu mistök Samfylkingarinnar hafi
verið að bíða of lengi með að stofna
flokk. Ef flokkurinn hefði verið stofn-
aður strax eftir kosningar hefðu
Vinstri grænir ekki haft svigrúm tO
að koma sér vel fyrir i stjórnmálun-
um. Þeir sköpuðu sér mikið rými með
góðri forystu Steingríms og Ögmund-
ar og það rýrði mjög möguleika Sam-
fylkingarinnar. En það þýðir ekkert
að horfa til baka. Það verður að horfa
fram á við og ég er bjartsýnn fyrir
hönd flokksins."
- rótgróin viðhorf viðhalda limlestingum á kynfærum kvenna
Jóna
Ingibjörg
Jónsdóttir
skrifar
um kynlíf
fyrir 0V og
Spegilinn
„Þetta er hefðbundið umræðuefni
þegar fylgið fer niður í skoðanakönn-
unum. Foringjanum er kennt um. Það
er alltof mikil einföldun. Össur er bú-
inn að standa sig vel og hann verður
endurkosinn á þessum landsfundi og
fær stuðning við sína stefnu. For-
ingjakrepputalið er áróður andstæð-
inga Samfylkingarinnar en áróður
sem bítur býsna vel, það verður að
viðurkennast."
- Voru ekki mistök að lýsa því yfir
í upphafi að Sjálfstæðisflokkurinn
væri höfuðóvinur Samfylkingarinn-
ar? Samfylkingin verður varla stór
nema hún taki fylgi frá Sjálfstæðis-
flokknum.
„Þetta voru ekki mistök. Samfylk-
ingin ætlar sér að standa jafnfætis
Sjálfstæðisflokknum í fylgi og verða
30 til 40 prósenta flokkur. Við ætlum
að sækja kjósendur, meðal annars til
Sjálfstæðisflokksins. Hann er með
mikið af okkar kjósendum í láni og
hefur haft þá mjög lengi. Jafnaðar-
mönnum hér á landi hefur ekki tekist
að verða breiður miöflokkur jafnaðar
og framtaks eins og gerst hefur í ná-
grannalöndunum. Þetta er verkefnið
og eini tilgangur Samfylkingarinnar.
Ef Samfylkingin hverfur frá þessari
hugmyndafræði er hún búin að glata
tilgangi sinum og á enga framtíð fyrir
sér sem sjálfstæður stjórnmálaflokk-
ur.“
- Ef Samfylkingin er jafnaðar-
mannaflokkur af hverju getur hún þá
ekki bara viðurkennt það og tekið upp
nafnið Jafnaðarmannaflokkur?
„Hún mun væntanlega gera það á
þessum landsfundi. Ég tel rétt að
kenna flokkinn við jafnaðarmanna-
hreyfingu. Flokkurinn er aðili að al-
þjóðasambandi jafnaðarmanna og öðr-
um alþjóðasamtökum jafnaðarmanna
og á því að hafa íslenskt nafn sem lýs-
ir honum þannig."
í síðasta pistli, sem fjallaði um
limlestingar á kynfærum kvenna,
endaði ég skrifin á að segja að það
væri ekki undarlegt ef fólk heyrð-
ist spyrja: „Hvers vegna er ekki
hætt við umskurð á kynfærum
kvenna fyrst það veldur svona
miklum sársauka og kvölum?"
Svona er lífið bara.
í gegnum aldirnar hefur um-
skurður/limlesting á kynfærum
kvenna orðið samgróin daglegu
lífi. Fyrir margar stúlkur og konur
er þessi siður „bara“ eitt af því
sem þær þurfa að lifa með og um-
bera rétt eins og sligandi daglega
vinnu, þurrka, sandstorma, sult,
fátækt, ólæknandi sjúkdóma,
brennandi hita og vatnsskort. Og
það er kaldhæðnislegt að það eru
ekki síst konurnar sjálfar, þar sem
þessi siöur viðgengst, sem hvað
mest verja hann.
Eldri konur mega ekki við að
missa þá aura sem þær fá aukreit-
is fyrir að framkvæma umskurðs-
aðgerðirnar í þorpinu, foreldrar
óska þess að dætur þeirra séu um-
skomar svo þær séu þess verðar
að vera gefnar í hjónaband og
stúlka sem ekki er umskorin á á
hættu að vera stimpluð hóra eða
álitin óhrein. Af tvennu illu er
þessi hryllilega sársaukafulla að-
gerð talin skárri kostur - a.m.k. í
hugum heimamanna.
Alhliöa kúgun kvenna
Eftir að hafa kannað málið litil-
lega virðast tvær ástæður oftast
nefndar til sögunnar um það hvers
vegna þessi siður viðgengst enn í
dag. í fyrsta lagi er umskurður tal-
inn vera eina pottþétta leiðin til að
vernda konuna (og þá sem hún
umgengst) gegn taumlausum
ástríðum hennar og þar með hætt-
una á gegndarlausu fjöllyndi hjá
henni. Þannig á umskurður aö
tryggja að stúlkan sé tandurhrein
mey þegar kemur að hjónabandi.
Sömuleiðis er umskurður garantí
fyrir að hún haldi sig frá öðrum
karlmönnum en eiginmanninum
eftir hún er orðin eign hans. Með
öðrum orðum þá er hræðsla við
konur sem kynverur talin helsta
rótin að þessum hryllilega sið.
í öðru lagi tengist þessi siður á
flókinn hátt konum sem vinnuafli
og eignamyndun, sérstaklega í
smærri akuryrkjusamfélögum þar
sem konur eru seldar líkt og um
kýr væri að ræöa. Umskurðurinn
tryggir hjónabands- og barneigna-
virði viðkomandi konu. En óhætt
er að segja að hvað sem öllum
skýringum líður er þetta athæfi
sínum. Þessi siður viögengst enn í
dag í tuttugu og átta löndum Afr-
íku. Vægari útgáfa á þessari að-
gerð er víða framkvæmd meðal
kvenna í Mið-Austurlöndum og
Pakistan og meðal hluta múslíma í
Malasíu, Indlandi og Sri Lanka.
Meðal 600 milljóna múslíma á jörð-
inni er umskurður „aðeins" fram-
kvæmdur hjá 1/5 hluta þeirra en
það er athyglisvert að ekki er að
finna eitt orð um þessa aðgerð í
Kóraninum, trúarriti múslíma.
Á fimmtu öld f. Kr. þekktist um-
skurður á kynfærum kvenna í Eg-
yptalandi, Eþíópíu og meðal
Fönikíumanna. Umskurður hefur
heldur ekki einskorðast við fram-
andi menningarsamfélög með önn-
ur trúarbrögð en okkar eigin. Fyr-
ir rúmlega hundrað árum var við-
horf til sjálfsfróunar í Evrópu svo-
lítið sérstakt, svo ekki sé fastar að
orði kveðið. „Sjálfssaurgun" var
talin orsök ýmissa kvilla og hjá
sumum kynheitum eöa vergjörn-
um konum fékk snípurinn að
Qúka í „lækningaskyni". Nudd í
lækningaskyni þróaðist líka sem
meðferð og er til heilt safn lækn-
ingatóla (sem líkjast mest fornfá-
legum titrurum) sem beitt var til
„lækninga" við vergirni og hyster-
íu. Jæja, þetta var smáútúrdúr.
DV-MYND GVA
Agúst Einarsson
„Ég er mikill Evrópusinni og er bjartsýnn á aö viö veröum komin meö alvöruumræöu um aöild aö Evrópusambandinu
á næstu misserum og veröum oröin aöilar innan örfárra ára. “
Menn þurfa að
kunna að hcetta
- Ágúst Einarsson segir enga foringjakreppu
orðið táknmynd fyrir alhliða kúg-
un kvenna - bæði kynferðislega,
félagslega og fjárhagslega.
Fauk af í „lækningaskyni"
Um 80 milljónir núlifandi
kvenna um allan heim hafa verið
umskornar/limlestar á kynfærum
Hræðsla við konur sem kynverur