Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2001, Qupperneq 43
51
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001
DV Tilvera
:mmmm
Er Kleifarvatn
ad hverfa?
Á morgun efnir Umhverfis- og úti-
vistarfélag Hafnarfjarðar í samvinnu
við Upplýsingamiðstöð Hafnarfjarðar
til fræðsluferðar að Kleifarvatni og í
Krýsuvík sem mikið hefur verið í frétt-
um undanfarið vegna lækkunar yfir-
borðsvatnsins í kjölfar jarðskjálftanna
í fyrra og glæsilegs hverasvæðis sem
komið hefur i ljós. Brottfor er frá BSÍ,
Umferðarmiðstöðinni Reykjavík, með
rútu Vestfjarðaleiðar kl. 10 og áætluð
heimkoma um kl. 15. Fyrir Hafnfirð-
inga er brottfór kl. 10.15 frá Upplýs-
ingamiðstöð Hafnarfjarðar að Vestur-
götu 8.
Leiðsögn verður i höndum Krist-
jönu Eyjólfsdóttur, jarðfræðings á
Orkustofnun, sem stundað hefur rann-
sóknir á svæðinu, og Jónatans Garð-
arssonar sem er þar gjörkunnugur.
Ekið verður að Lambhagatjörn
norðanmegin vatnsins og skoðaðar
sprungur sem liggja suður í vatnið.
Skoðaður verður gamli vatnamælinga-
staðurinn við Hellur og komið að þeim
nýja við Syðristapa.
Síðan er haldið suður fyrir vatn að
hverasvæðinu. Verð er 1.500 kr. fyrir
fullorðna og 500 kr. fyrir böm 7-15 ára
og þátttökugjald greiðist í rútu en ekki
þarf að panta fyrir fram. Þátttakendur
er hvattir til að mæta vel búnir til úti-
vera og með nesti en ekki verður farið
í mjög langar gönguferðir. Hjá Upplýs-
ingamiðstöð Hafnarfjarðar má leita
upplýsinga á heimasíðunni: hafnar-
Qordur.is/upphaf.
Pílagrimsför til New York
í Washington Post
skrifar blaðamaðurinn
Caryle Murphy um ferð
sína til eyðileggingarinn-
ar í New York. Blaða-
maðurinn segir að sér
hafi ekki liðið eins og
ferðamanni heldur mikiu fremur eins
og pílagrimi enda heitir greinin Píla-
grímsfór til heilags lands. „Ég lít á
þennan stað sem minnisvarða um
hverfulleika framtíðarinnar, brothætt
lífið og vamarleysi valdsins," segir
Murphy.
SAS umtalað
SAS er tekið á beinið í Aftenposten
en nú liggur frammi nýr bæklingur frá
fyrirtækinu þar sem meðal annars er
talað um World Trade Center. Textinn
um tvíburatumana er í lauslegri þýð-
ingu á þessa leið: „Frá efstu hæð
World Trade Center liggur Manhattan
við fætur þína og útsýnið er yfirþyrm-
andi.“ Þetta þykir ekki beint sniðugt
og spyr fólk sig hvort ekki ætti að
skipta þessum bæklingi út þótt hann
hafi verið prentaður fyrir 11. septem-
ber.
Kringum jörðina á 20 mínútum
í Stand
By, riti
ferðaþjón-
ustunnar á
Norður-
löndum, er
fjallað ítar-
lega um Vestnorden-ráðstefnuna sem
haldin var fyrir skömmu. Þar er með-
al annars sagt frá nýlundu hjá Atlanta
en næsta sumar ætlar félagið að bjóða
upp á flug umhverfis jörðina á 20 mín-
útum. Flogið verður frá Stansted í
London og að norðurpólnum. Þar verð-
ur flogið yfir allar lengdargráður
hnattarins á meðan boðið verður upp á
kampavín og „bröns“.
Beðið eftir snjónum
OLYMPUS
v-'l Packard Bell
0 inDesiT jamq
Nikon rovo f* nordica
intimus sangean LOEWE. gameboy
Full búft af fínum vörum frá topp framleiðendum
- hvað eiga skíðamenn að gera á haustin?
Skíðaíþróttin er ein af þeim
skemmtilegri og margir sem hana
stunda haldnir mikilli skíðadellu
eins og títt er um góða íþróttamenn.
Haustið er óumdeilanlega erfiðasti
árstíminn fyrir skíðamenn. Á sumr-
in sitja þeir á strák sínum því árs-
tíminn gefur þeim löglega afsökun
en strax og haustar fara menn að yf-
irfara dótið sitt og athuga hvort allt
sé í lagi og fylgjast grannt með veð-
urspánni.
Síðustu vetur á íslandi hafa verið
sannkölluð martröð fyrir skíða-
menn því snjóleysi hefur verið nær
algert, að minnsta kosti á þétt-
býlasta horni landsins þar sem
flesta skíðamenn er að finna. Skíða-
menn sitja í eldhúsum og tala með
dreymnum svip um þau gömlu góðu
ár þegar Bláfjöllin voru opnuð fyrir
áramót og það var hægt að bregða
sér á Miklatúnið eftir vinnu á
gönguskíðum.
í ár bendir flest til þess að annar
vetur eins og sá I fyrra sé í uppsigl-
ingu. Óvenjuleg hlýindi, miklar
haustrigningar og fréttir af háum
sjávarhita. Allt bendir þetta til þess
að það muni snjóa seint og illa.
En það er margt sem skíðamenn
geta gert til þess að búa sig undir
þann tíma þegar snjórinn hylur allt
og gósentíð ríkir. Það þýðir náttúr-
lega ekkert að mæta snjónum óund-
irbúinn.
Svigskíðamenn geta farið í rækt-
ina og lyft lóðum eftir sérstöku kerfi
til þess að vera vel undirbúnir. Það
er sérstaklega mikilvægt að leggja
rækt við axlir og handleggi en ekki
gleyma lærvöðvunum. Svigskíða-
menn mega heldur ekki gleyma út-
haldinu og bregða sér á hlaupabrett-
iö í ræktinni eða út að skokka.
Gönguskíði eru best
Gönguskíðamenn eru sérstaklega
óþreyjufullir því þótt ef til vill
myndi setja niður snjó fyrir áramót
þá er ólíklegt að gönguskíðafæri
yrði reglulega gott nema í troðnum
brautum. Alla gönguskíðamenn
dreymir um þær aðstæður þegar
þykkt snjólag hylur fjöll og dali og
hægt er að svifa um auðnina á sín-
um skíðum í hreinleika íslenskrar
vetrarnáttúru.
A skíðum skemmti ég mér.
Sennitega er haustiö erfiöasti tími skíöamanna því biðin eftir snjónum
getur veriö löng og leiöinleg.
amsræktarstöðvum er að finna tæki
sem líkir eftir hreyfmgum göngu-
skíðamanna og reynir bæði á hend-
ur og fætur.
Hvað viltu fara langt?
Sérstakur hópur gönguskíða-
manna stundar síðan langferðir á
skíðum með allan búnað meðferðis í
bakpokum eða á snjóþotum. I þess-
um hópum sitja menn á þessum árs-
tímum yfir kortum og GPS-punkt-
um og reikna út dagleiðir og hyggja
að búnaði sínum. Slíkir leiðangrar
eru yfirleitt ekki farnir fyrr en seint
á vetrum en krefjast mikils undir-
búnings og þess að allir leiðangurs-
menn séu í góðu formi. Vinsælir
leiðangrar af því tagi eru t.d frá Sig-
öldu í Landmannalaugar sem eru 27
kílómetrar en dæmi um lengri ferð-
ir sem vinsælar eru í þessum hóp-
um er t.d. að fara yfir Kjöl eða
Sprengisand. Kjölur er talinn léttari
en um 160 kílómetrar eru frá Gull-
fossi að Blönduvirkjun. Sprengi-
sandsganga er meiri manndóms-
raun en rífiega 250 kílómetrar eru
frá efsta bæ í Bárðardal niður að
Búrfellsvirkjun.
Svo má líka sitja með bæklinga
frá ferðaskrifstofum og láta sig
dreyma um skíðaferðir í Ölpum eða
Klettafjöllum. Það eru einkum svig-
skíðamenn sem sækja í slíkar ferðir
sem þykja í dýrari kantinum. Þegar
gönguskiðamenn láta skíðalöngun-
ina bera sig ofurliði og hrekjast til
útlanda undan íslensku snjóleysi
fara þeir yfirleitt til Noregs en þar
njóta langferðir á skiðum mikilla
vinsælda og auðvelt er aö komast í
skipulagðar slíkar feröir gegnum
norska ferðafélagið sem er hlið-
stæða Ferðafélags íslands. -PÁÁ
Gönguskíði eru ein erfiðasta
íþrótt sem menn táka sér fyrir
hendur því skíðaganga reynir á all-
an líkamann og krefst tækni og
mikils úthalds og þols. í þolprófum
ólíkra íþróttamanna koma göngu-
skíðamenn betur út heldur en t.d.
sundmenn og langhlauparar. Marg-
ir gönguskíðamenn halda sér í þjálf-
un með því að hlaupa eða skokka en
einnig má benda á að í sumum lík-
Nýtt kortatímabil
Lágmúla 8 • Sími 530 2800