Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2001, Qupperneq 44
52
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001
Tilvera
Tony Miles látinn:
Umdeildur og skemmti-
legur persónuleiki
Enski stórmeistarinn Anthony
John Miles lést mánudaginn 12.
nóvember síöastliöinn. Hann varð
aðeins 46 ára gamall, fæddist 23.
apríl 1955. Hann lést i svefni en
hann haföi lengi átt við sykursýki á
háu stigi að stríða. Miles var mjög
umdeildur en skemmtilegur per-
sónuleiki og var ekki feiminn við að
fara ótroðnar slóðir. Hann varð
fyrsti stórmeistari (1976) og fyrsti
heimsmeistari unglinga Breta (sami
titill og Helgi Áss Grétarsson náði,
þ.e. 20 ára og yngri) aðeins nítján
ára að aldri 1974 og höfðu þeir þá
beðið lengi og voru farnir að ör-
vænta. Það er skemmtileg tilviljun
að sami breski auðkýfingurinn, Jim
Slater, lofaði að tvöfalda verðlauna-
féð í einvígi Fischers og Spasskís og
lofaði 5000 sterlingspundum þeim
Sævar
Bjarnason
skrifar um
skák
Skákþátturinn
Breta sem fyrstur yrði til þess að ná
stórmeistaratitli í skák. Hvort þeir
Fischer og Spasskí fengu aura frá
honum veit ég ekki en Miles sá ekki
hvorki né fékk eitt einasta pund frá
þessum skrumara!
Likt og á íslandi tæpum áratug
seinna fylgdi mikil skáksprenging í
kjölfarið. Þeir John Nunn og Nigel
Short komu fram á sjónarsviðið
ásamt fjölda annarra sem uppgötv-
uðu við þennan áfanga Miles að
þetta væri ekki óyfirstíganlegur
þröskuldur. Miles var þeirra fremst-
ur framan af en veikindin og óskyn-
samlegt líferni á stundum komu í
veg fyrir að hann væri I allra
fremstu röð lengur en efni stóðu til.
Ég vitna í Áskel Örn Kárason, sál-
fræðing og fyrrverandi forseta Sí:
„Við minnumst Miles með söknuði
og virðingu. Hann var litríkur per-
sónuleiki en fékk víst sinn skammt
af vonbrigðum í lífinu. Hann var
einn af „krónprinsunum" á 8. og 9.
áratugnum en missti svo dálítið
flugiö þótt hann væri alltaf erfiður
heim að sækja. Þó setti hann mun
meira mark á skáksöguna síðustu
2-3 áratugi en skákstigin ein segja
til um. Megi skákmenn heiðra
minningu þessa einstaka snillings."
Áskell kynntist Miles nokkuð, enda
var Áskell oft liðs- og fararstjóri á
ólympíumótum, auk þess sem Tony
Miles kom mjög oft og tefldi hér á
Islandi.
Tony Miles tefldi yfir 3000 kapp-
skákir á ævinni sem sýnir vel að
hann eyddi mörgum stundum við
skákborðið eða, eins og Bretar segja
sjálfir: „Many miles on the clock!“
Sú setning segir mikið. Þar er
minnst á Tony sjálfan, tímann við
skákborðið og mílumar mörgu um
heimsbyggðina. Ýmis uppátæki
hans vöktu athygli og skrýtnar byrj-
an,ir og skákir voru aðalsmerki
hans. Hann lenti í deilum við
Breska skáksambandið í lok 9. ára-
tugarins og fluttist þá til Bandaríkj-
anna og tefldi fyrir þau. Og auðvit-
að gegn sínum félögum á ólympíu-
móti. Svo leystist Sovétið upp og þá
fór Miles að tefla undir merkjum
Ástrala um hríð. Reglur FIDE voru
svolítið óskýrar. Nóg var að menn
hefðu „búið“ eitt ár í landi til að
geta teflt fyrir þess hönd. Reglur
þessar hafa verið skerptar eitthvað
en það er önnur saga. En hugurinn
leitar alltaf heim og Miles sættist
við sina menn og varð sannur Eng-
lendingur frá Birmingham aftur.
Sú skák sem Tony Miles verður
sennilega lengst tengdur við er einn
af sigrum hans á heimsmeistaran-
Frd eyðimerkurlffi
til ofurfjTÍrsíEtu
| jpv/2C8
/
Þetta er sðnn og
áhrifamikil frásögn.
Waris Dirie ólst upp við
erfiða lífsbaráttu
í eyðimörkum Sómalíu.
Tólf ára var henni skip-
að að giftast sextugum
manni en þá flúði hún
til Mogadishu.
Hún komst síðartil
London, þar sem hún
var „uppgötvuð" og
hóf þá ævintýralegan
feril sem heimsþekkt
Ijósmyndafyrirsæta.
„Mögnuð lesning og afor áhugaverd ... Sd sem les Eyðimerkurblómið
kemst vart hjd J)ví að ddst að ótnílegum viijastyrk og hugrekki Waris."
Kolbrim BergJwrslóriir/DV
„Heiilandi bók, sem sýnir að Iífið slœr allan
skdldskap út... héit mér föngnum heila nótt,
dr og dagar síðan bók hefúr ndð slíkum
tökum d mér.“
Hrafn Jökulsson/strik.is
JjJ 0
JPV ÚTGÁFA
Braðraborgarstíg 7
101 Reykjavlk
Sími 575 5600
jpv®Jpv.ls • www.jpv.is
„Ævintýri líkust. Frásögn
hennar er lifandi og greinilegt
að hún hefur góða tilfinningu
fýrir því að segja sögu d þann
hdtt að athygii lesandans er œtíð vakandi.“
Sofíía Auður Birgisdóttir/Morgunblaáíð
Áhrifdmikil bók
um einstaka konu
Anthony John Miles
Var ekki alltaf sáttur viö landa sína
og keppti meöal annars fyrir Banda-
ríkin og Ástralíu.
um Anatoll Karpov 1 Skara í Sví-
þjóð. Þar mun kristni hafa tekið sér
bólfestu fyrst á Norðurlöndum og
elsta dómkirkja Norðurlanda er
þar. Skara er lítil vinaleg borg fyrir
norðan Gautaborg. íslenskir skák-
menn hafa rifjað upp minningar um
Miles á umræðuhorni skákmanna á
Netinu og Páll Agnar Þórarinsson
ritaði þetta: „Skákin var tefld á Evr-
ópumóti landsliða í Skara 1980. Fyr-
ir viðureignina við Sovétmenn
ræddu þeir félagar, Miles og GM
Stean, stöðu mála. Miles taldi sig
hafa greint ákveðið óöryggi hjá Kar-
pov í þeim skákum sem hann hafði
fengið á sig óhefðbundnar byrjanir.
Hann sagði Stean frá þeirri hug-
dettu sinni að svara kóngspeðsleik
Karpovs með 1. - a6!? og reyna
þannig að koma heimsmeistaranum
úr jafnvægi. Viðbrögð Steans voru
eitthvað á þessa leið: „Já, hann
verður örugglega með tárin í augun-
um á meðan hann rúllar þér upp!“
Miles lét þessa svartsýni ekki á sig
fá og lét slag standa. Karpov mátti
játa sig sigraðan eftir 46 leiki.
Hvítt: Anatolí Karpov
Svart: Tony Miles
Mjög frumleg byrjun! Skara 1980
1. e4 a6 2. d4 b5 Ósvífni? Sál-
fræði? Snilld? Vitleysa? Sennilega
góð blanda af þessu öllu. Byrjun
þessi hefur ekki verið endurtekin
oft undanfarna tvo áratugi. Ástæð-
an er væntanlega sú að þetta er
ágætt til að koma andstæðingnum á
óvart en stenst til lengdar ekki
hæstu gæðakröfur! 3. Rf3 Bb7 4.
Bd3 Rf6 5. De2 e6 6. a4?! Nú
myndu flestir leika 6. e5 Rd5 7. c3
með ágætu tafli. 6. - c5
Karpov vill auðvitað refsa Miles
fyrir ósvífnina en í hugaræsingnum
skolast það eitthvað til! Sennilega
var best aö skjóta inn 7. axb5 axb5 8.
Hxa8 Bxa8 9. dxc5 og hvitur hefur
von um örlítið frumkvæði. 7. dxc5
Bxc5 8. Rbd2 b4 Jú, b5-peðinu var
hótað með 9. e5, fylgt af axb5. En nú
er staða svarts orðin eðlileg aftur! 9.
e5 Rd5 10. Re4 Be7 11. 0-0 Rc6 12.
Bd2 Dc7
Karpov reynir að tefla af krafti en
tekst ekki. 13. Rg3 er eðlilegasti leik-
urinn og svartur leikur þá annað-
hvort 13. d6 eða 13. f6, allt eftir því
hvernig Miles var stemmdur þennan
dag. Frumkvæðið er aliavega rokið í
burtu eftir næsta leik og stutt í það
að Miles fái yfirhöndina. 13. c4!?
bxc3 14. Rxc3 Rxc3! 15. Bxc3 Rb4
16. Bxb4!? Hér var hægt að leika 16.
Be4 en Karpov vill refsa 16. - Bxb4
17. Hacl Db6 18. Be4 0-0.
Miles lék oft ögrandi leikjum. Hér
býður hann Karpov upp á að fóma
biskupi með gamalkunnu stefl en
Karpov var mest fyrir hreinar línur.
Fórnin er réttilega vafasöm. Eftir 19.
Bxh7+ Kxh7 20. Rg5+ Kg6 21. Dg4 (21.
Hc4 Í5) 21. - f5 22. exfB KxfB 23. Rh7+
Kf7 24. Hc4 Be7 virðist sem svartur
hafi hrundiö sókninni. En Karpov
gerir sér of miklar vonir um mát-
sókn. 19. Rg5 h6 20. Bh7+? Hér var
enn hægt að leika 20. Bxb7 Dxb7 21.
Re4 og hvítur stendur aöeins betur.
En Miles hefði þá haldið jafntefli og
það kom ekki tfl greina hjá heims-
meistaranum. Það er of seint að vera
vitur eftir á og að skflja að mörg
strákapör eru ekki gerð til leiðinda!
20. - Kh8 21. Bbl Be7. Ekki mátti
taka riddarann vegna 22. Dh5 mát.
Karpovsfórn! 22. Re4 Hac8. Nú
stendur svartur aðeins betur. í hug-
arangri fer heimsmeistarinn að tefla
afskaplega ómarkvisst, Hér var nauð-
synlegt að leika fyrst 23. Hxc8 Hxc8
24. Dd3 og aðeins meira vit er í sókn-
inni. 23. Dd3 Hxcl 24. Hxcl Dxb2
Eitraða peðið er sko afeitrað hér! 25.
Hel Dxe5. Takk fyrir! 26. Dxd7 Bb4
27. He3.
Með peði yfir biskupaparið og
betri stöðu neyðir Miles Karpov í
drottningarkaup. Eftirleikurinn
skýrir sig sjálfur! 27. - Dd5 28. Dxd5
Bxd5 29. Rc3 Hc8 30. Re2 g5 31. h4
Kg7 32. hxg5 hxg5 33. Bd3 a5 34.
Hg3 Kf6 35. Hg4 Bd6 36. Kfl Be5
37. Kel Hh8 38. f4 gxf4 39. Rxf4
Bc6 40. Re2 Hhl+ 41. Kd2 Hh2 42.
g3 Bf3 43. Hg8 Hg2 44. Kel Bxe2
45. Bxe2 Hxg3 46. Ha8 Bc7 0-1.
Minningarmót Botvinniks!
Það litur út fyrir að eitthvað verði
af taflmennsku á miUi Kasparovs og
Kramniks til að heiðra 90 ára fæðing-
arafmæli Botvinniks, fyrrverandi
heimsmeistara í skák. Anatolí Kar-
pov dró sig úr minningarmótinu til
að taka þátt í heimsmeistarakeppni
FIDE og sögusagnir eru um að hann
verði næsti forseti FIDE. Þeir
Kramnik og Kasparov ætla að tefla
fjórar kappskákir, sex atskákir og tíu
hraðskákir og byrjar skákveislan í
Moskvu 9. desember. Verðlaunaféð
er 500.000 doUarar og skipta þeir því
á miUi sín í hlutfóllunum 3:2 sem
þýðir væntanlega að sigurvegarinn
fær meira! Ekki þó 300.000 doUara
þvi að aðalverðlaunin verða fyrir
kappskákirnar, minna fyrir atskák-
irnar og minnst fyrir hraðskákirnar
þannig að auðvitað er mesti heiður-
inn að sigra í kappskákareinvíginu!
En sigurvegari verður sá þeirra út-
nefndur sem sigrar í tveimur ein-
vígjum. Svo er bara að sjá til hvort
ekki verði skákveisla á alþjóðlegum
veraldarvef-taflfélaginu í desember,
sem sendir beint í grið og erg, einnig
frá íslandi. Heimsmeistarakeppni
FIDE verður líka í beinni frá Moskvu
og byrjar 27. nóvember, þó ekki i
sömu byggingu. Erfitt að fylgjast
með!! (Nema á Netinu, auðvitað!)
Jennifer Lopez er prímadonna:
Æ sér gjöf til gjalda
Hafi einhver haldið að Jennifer
Lopez þyrfti tUsögn í prímadonnu-
stælum þá er það misskilningur. Hafi
þess einhvern tíma þurft hefði Mari-
ah Carey kannski komið til greina
sem leiðbeinandi en þess á ekki að
þurfa úr þessu. Við höfum áður sagt
frá því hversu erfitt fólki hefur þótt
að vinna með Carey og því bjuggust
margir við því að hún yrði höfuð-
verkur fyrir meðreiðarsveina sína
þegar hún var gestastjarna i þáttun-
um vinsælu um AUy McBeal. En því
fór fjarri. Mariah Carey var hvers
manns hugljúfi og gerði allt sem hún
var beðin um.
Sögurnar af frammistöðu Carey í
AUy McBeal eru nokkuð frábrugðnar
þeim sögum sem nú berast af stjörnu-
stælum Jennifer Lopez. Nýlega var
hún við upptökur á hinu klassíska
lagi Marvins Gaye, What’s Going On,
en upptakan var
með mörgum
merkum söngvur-
um og var ætluð til
styrktar Twin
Towers Fund. En
gjafmildi Lopez var
ekki mikil. Sagt er
að hún hafi í samn-
ingi gert óheyrUega
miklar kröfur. Hún
fór fram á fá stórt
hjólhýsi, hvítt bún-
ingsherbergi,
geislaspUara, hvíta
sófa og gluggatjöld og síðast en ekki
síst vildi hún fá ölkelduvatn við
stofuhita. Hún fékk ekki mikið af því
sem hún bað um en það sem hún
fékk snerti hún ekki, enda var sá
tími sem hún var á staðnum einung-
is ein og hálf klukkustund.
Jennifer Lopez
Jennifer okkar
Lopez er oröin
fullupptekin af
sjálfri sér ef
marka má fregn-
ir erlendra
blaöa.