Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2001, Síða 45
I
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001
53
I>V
Tilvera
íslandsmótið í tvímenningskeppni 2001:
Erlendur og
Hermann sigruðu
Myndasógur
Erlendur Jónsson og Hermann
Lárusson voru meö tímasetninguna
í lagi þegar þeir skutust upp í efsta
sætið í lok íslandsmótsins í tví-
menningskeppni sem haldið var í
Hreyfilshúsinu við Grensásveg um
sl. helgi.
íslandsmeistara síðasta árs, Stef-
án Jóhannsson og Steinar Jónsson,
vantaði herslumuninn til þess að
verja titilinn og urðu að láta sér
nægja silfrið. Og bronsið kom í hlut
Hermanns Friðrikssonar og Jóns
Hjaltasonar, nýbakaðra Reykjavik-
urmeistara, sem höfðu haft forystu
seinni hluta mótsins.
Þetta er fyrsti íslandsmeistaratit-
ill Erlends og Hermanns en sem
kunnugt er voru þeir í sveit sem
hreppti bikarmeistaratitilinn ný-
lega. Gott skrið er á þeim.
Röð og stig efstu para var annars
þessi:
1. Erlendur Jónsson - Hermann
Lárusson 306.
2. Steinar Jónsson - Stefán Jó-
hannsson 281.
3. Jón Hjaltason - Hermann Frið-
riksson 261.
4. Ásm. Pálsson - Guðm. Páll Arn-
arson 217.
5. Júlíus Snorrason - Guðmundur
Pálsson 202.
6. Anton Haralds. - Sigurbjörn
Haraldsson 201.
Þetta var 47. íslandsmótið í tví-
menningskeppni en frá upphafi þess
árið 1953 hafa 57 einstaklingar unn-
ið til þessara eftirsóttu verðlauna.
Þeir sem oftast hafa unnið eru:
Ásmundur Pálsson, 9 sinnum.
Hjalti Elíasson, 7 sinnum.
Símon Símonarson, 5 sinnum.
Jón Baldursson, 4 sinnum.
Skoðum eitt spil frá keppninni að
lokum. Þar eru íslandsmeistararnir
í vörninni með frábærum árangri.
Stefán
Guöjohnsen
skrifar um bridge
S/A-V
4 G97
V A5
♦ 9875
4 10432
4 D
4A KG1032
4 D64
4 AG76
4 K42
N
V A
S
D9876
4 32
4 K95
4 A108653
M 4
4 AKGIO
4 D8
Með Hermann og Erlend í a-v en
Guðlaug Sveinsson og Jón Stefáns-
son í a-v-gengu sagnir á þessa leið:
Suöur
1 S4
24
pass
Vestur
pass
pass
pass
Noröur Austur
2 »4 pass
3 grönd pass
Það er ef til vill ekki eftir bókinni
að spila upp í lit andstæðinganna en
Hermann tók áhættuna. Heppnin
var með honum þegar Erlendur
drap á ásinn og spilaði hjarta til
baka. Guðlaugur svínaði gosanum
og Hermann drap með drottningu.
Nú kom annað snilldarbragð en
ekki áhættulaust. Hermann spilaði
spaðakóng.
Guðlaugur getur nú enn unnið
spilið með þvi að gefa slaginn en ef
hjartað fellur og laufkóngur er rétt
þá er það dauðadómur, Hann drap
því á ásinn, fór heim á tígul og próf-
aði hjartað. Þegar það féll ekki fór
hann inn á tígul í blindan og svín-
aði laufdrottningu. Hermann drap á
kónginn, spilaði spaða - einn niður
og algjör toppur.
,
Smáauglýsingar
byssur, ferðalög, feröaþjónusta,
fyrir feröamenn, fyrir veiðimenn,
gisting, goifvörur, heilsa, hesta-
mennska, Ijósmyndun, líkamsrækt,
safnarinn, sport, vetrarvörur,
útilegubúnaður... tómstundir
DV
Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍr.IS
550 5000
■
Myndgátan hér
til hliðar lýsir
nafnorði.
Lausn á gátu nr. 3159:
Kafrjóður
EyþoR-