Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2001, Qupperneq 49
57
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001
I>V Tilvera
Afmælisbörn
Martin Scorsese 59 ára
Einn merkilegasti kvikmyndaleikstjóri samtímans,
Martin Scorsese, á afmæli í dag. Hann hefur haft mik-
il áhrif á kvikmyndagerð undanfarinn aldarQórðung.
Scorsese fæddist í Flushing í New York og er sonur
ítalskra innflytjenda. Hann ólst upp í Litlu-Ítalíu.
Asmi og fleiri kvillar komu í veg fyrir að hann gæti
tekið þátt í íþróttum og hann náði því aldrei að mynda
tengsl við krakkana í hverfinu. Hann leitaði á náðir
kvikmyndahúsanna í hverfmu. Eftir að hafa verið um
nokkurt skeið í Hollywood og gegnt ýmsum störfum
sneri hann aftur til New York og gerði Mean Streets
og björninn var unninn. Með sinni næstu mynd, Taxi
Driver, fór hann beint í hóp brstu leikstjóra.
Linda Evans 59 ára
Sjónvarpsleikkonan Linda Evans, sem gerði
garðinn frægan í einhverri vinsælustu sjónvarps-
seríu sem gerð hefur verið, Dallas, verður fimmtíu
og níu ára á morgun. Evans, sem leikið hefur jöfn-
um höndum í kvikmyndum og sjónvarpi, náði sér
aldrei almennilega á strik eftir Dallas frekar en
aðrir leikarar sem urðu frægir fyrir þátttöku sína
og hefur í æ meira mæli farið út í líkamsræktar-
málefni. Hún á flmmtán slíkar stöðvar víðs vegar
um Bandaríkin, hefur gefið út bækur og fer reglu-
lega í fyrirlestraferðir þar sem hún lýsir dásemd-
um þeim sem fylgir að vera í góðu formi
______________Afmælisbörn
Gildir fyrir sunnudaginn 18. nóvember og mánudaginn 19. nóvember
Vatnsberinn (20. ian.-18. fehr.l:
Spa sunmidagsins:
Einhver hætta virðist
vera á árásargirni innan
vinahópsins. Þú skalt
þess vegna gæta þess að halda skoð-
unum þínum ekki um of á lofti.
a
Spa mánudagsíns
Þér berst óvænt tilboð sem kemur
róti á hug þinn. Ef rétt er á mál-
um haldið getur þú hagnast veru-
lega í fleiri en einum skilningi.
Hrúturinn (21. mars-19. apríl):
Spá sunnudagsms:
r\i
Þú munt þakka fyrir
það í næstu viku ef þú
m leyfir þér að eiga ró-
legan dag i dag. Ef þig vantar fé-
lagsskap veldu rólega vini.
Spá mánudagsíns
Eitthvað er að vefjast fyrir þér sem
ekki sér fyrir endann á á næstunni.
Ástfangnh' eiga góða daga og kvöld-
ið verður rómantískt.
Rskarnir C19. fehr.-?0. marsl:
Spa sunnudagsins
•Hefðbundin verkefni taka
mest af tíma þínum. Þar
sem þér hættir til að vera
utan við þig er góð hugmynd að skrifa
niður það sem ekki má gleymast.
Spá manudagsins:
Fyrri hluti dagsins verður fremur
strembinn hjá þér en þú kemur
líka heilmiklu í verk. Kvöldið
verður hins vegar fremur rólegt.
Nautið 120. apríl-20. maí.i:
Spa sunnudagsins:
í dag verður leyndarmál-
r um ljóstrað upp og dular-
V-/ fullir atburðir skýrðir.
Samt sem áður er þetta góður dagur
til að ræða málefni fjölskyldunnar.
Spá mánudagsins
Þú hefur óþarfa áhyggjur sem þú
lætur draga þig niður. Bjartari
horfur eru fram undan hjá þér en
verið hefur lengi.
Tvíburarnir (21. mai-21. iúni>:
ur á daginn. Ástarsamband þitt er
í góðu jafnvægi.
Spá mánudagsins:
Þú kemst að raun um að greiðvikni
borgar sig ekki alltaf. Varaðu þig á
einhverjum sem er að reyna að
notfæra sér hjálpsemi þína.
Liónið (23. iúií— 22. áeústl:
Spá sunnudagsins:
' Þér finnst langbest að
vinna einn í dag. Aðr-
ir, jafnvel þó að þeir
séu allir af vilja gerðir, tefja að-
eins fyrir þér.
Spá manudagslns
Miklar breytingar eru fyrirsjáanleg-
ar hjá þér á næstunni. Einhver er að
reyna að telja þér hughvarf i máli
sem þú hefur þegar tekið ákvörðun í.
Vogjn (23. sent.-73. nkt.i:
Krabbinn Í22. iúní-22. iúlíi:
f
Spá sunnudagsins
I Vináttubönd og ferða-
lög tengjast á einhvern
hátt og augljóslega
skemmtir þú þér vel. Kvöldið
verður sérstaklega vel heppnað.
Spá mánudagsins:
Þér kann að leiðast eitthvað sem
þú telur þó að nauðsynlegt sé að
koma frá þér. Ekki gera neitt
vanhugsað.
Mevian (23. aeúst-22. sept.t:
Ef þú býst ekki við allt
l^of miklu verður dagur
' mjög ánægjulegur hjá
þér. Metnaðargimi er ekki vel til
þess fallin að skapa ánægju.
ISSaBBSElEa
Ef þú ert að fást við eitthvað sem
þarfnast sérfræðiþekkingar er
réttast að leita ráðleggingar hjá
þeim sem eru vel að sér.
Sporðdrekinn (24. okt.-?i. nnv.i:
Spá sunnudagslns i Spá sunnudagsins
Sinntu aðallega hefð-
bundnum verkefnum í
dag, það hentar þér best.
Ef þú ert óöruggur eða niðurdreginn
er best að hafa nóg fyrir stafni.
Spá mánudagsins
Gamalt fólk verður í stóru hlut-
verki í dag og hjá þeim sem eru
komnir af léttasta skeiðinu verð-
ur mikið um að vera.
Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.l:
pa sunnudagsins:
"Utanaðkomandi áhrif
hafa ekki góð áhrif á ást-
: arsamband sem þú átt í.
Þú færð ánægjulegar fréttir sem
snerta fjölskylduna eða náinn vin.
Spá manudagsins:
Gættu þess að vera ekki of auð-
trúa. Það getur verið að einhver
sé að reyna að plata þig.
Happatölur þínar eru 2, 24 og 32.
Leitað verður ráða eða
Jhjálpar hjá þér við að
leysa vandamál í vina-
hópnum. Varastu að blanda þér
um of í þau mál.
Þú umgengst nágranna þína
mikið á næstunni og kynnist
þeim mim betur. Félagslifið er
fyrirferðarmikið.
Steingeitin (22. des.-19. ian.l:
Þér hættir til að vera of
gjafmildur eða vin-
gjarnlegur og láttu ekki
flækja þér í neitt. Fimdur um miðj-
an dag gæti orðið gagnlegur.
Spa mánudagsins:
Ástvinum hættir til að lenda upp
á kant og reyndar er víða einhver
pirringur í loftinu. Þú færð mjög
óvæntar fréttir.
Gwyneth Paltrow:
Sást allur rassinn?
Leikkonan góðkunna og ít-
urvaxna, Gwyneth Paltrow,
er í miklu reiðikasti við einn
af frægustu ljósmyndurum
heimsins um þessar mundir.
Hann heitir Patrick
Demarchelier og er frægur
fyrir það hvað dýrt er að fá
hann til að mynda.
Hann skaut á Paltrow
vegna nýrrar kvikmyndar
hennar sem heitir Shallow
Hal og fjallar um feitt fólk.
Sú mynd hefur reyndar þeg-
ar vakið deilur og gagnrýni
fyrir að skopast að feitu fólki
sem feitu fólki finnst alls
ekki smekklegt.
Paltrow segir aö í umrædd-
um myndatökum hafi Pat-
rick platað hana úr öllum fót-
unum og fengið hana til að
sitja fyrir á nektarmyndum.
Þar á meðal voru myndir þar
sem allur rassinn á Paltrow
sást eins og Guð skapaði
hann. Þetta vill Paltrow víst
alls ekki og varð öskuvond
Gwyneth Paltrow
Hún er ekki til í aö sýna á sér rassinn. Ekki allan.
þegar myndirnar birt-
ust opinberlega og
rassinn á henni blasti
við allri heimsbyggð-
inni.
Patrick sá sem ýtti á
takkann segist á hinn
bóginn vera alsaklaus
og kveðst alls ekki
hafa platað hana til
eins né neins. Hann
hafi einfaldlega beðið
hana að fara úr fötun-
um og hún hafi gert
það greiðlega. Hann
hafi síðan tekið falleg-
ar myndir af henni og
birt opinberlega. Þetta
sé ekki flókið mál.
Allt er þetta mál hið
undarlegasta í laginu
og engin leið að vita
hvað er rétt og hvað er
satt. Það eina sem er
ekkert undarlega vax-
ið er rassinn á Gwy-
neth Paltrow. Hann er
flottur.
John Travolta
Hann viröist vera aö sökkva ferli
sínum aftur.
Vond mynd
á leiðinni
Leikarinn John Travolta hefur
bragðað bæði súrt og sætt á sín-
um langa ferli. Hann var einu
sinni ofurvinsæll, varð síðan það
haHærislegasta sem til var en
skaust síðan upp á stjömuhimin-
inn með leifturhraða og hefur
trónað þar á festingunni í nokk-
ur ár.
í seinni tíð hefur hann farið
að ráða meira um þær kvik-
myndir sem hann leikur í og þá
koma undarlegir hlutir í ljós
sem varða dómgreind hans.
Hann fékk að ráða öllu um
Battlefield Earth sem reyndist
verða ein versta mynd seinni ára
og hefur fengið mörg verðlaun
sem slík.
Travolta er um þessar mundir
að ljúka við gerð myndar sem
heitir Domestic Disturbance eða
Heimilisófriður á góðri íslensku.
Það hefur gengið afar erfiðlega
og eftir forsýningar þar sem
áhorfendur geispuðu í stórum
hópum var ráðist í að taka nýjan
endi sem kostaði morð fjár. Eins
og það væri ekki nóg þurfti líka
að endurgera aHar auglýsingar
um myndina því senum sem þar
voru notaðar var hent út á sein-
ustu stundu.
Svona fæðingarhríðir boða að-
eins eitt þegar Hollywood á í
hlut. Það er vond mynd á leið-
inni.
Amerískur hvíldarstóll
Ótrúlega þœgilegur!
Persónuleg, íslensk rey
r
u s a g a
Úrdjúpu myrkri
til bjartrar
lífssýnar
Óvenju myndræn
frásögn af
hversdagslífi í
svartholi þunglyndis.
Hispurslaus og
fágætlega einlæg
og hugrökk lýsing
á ferðalagi frá djúpu
myrkri til bjartrar
lífssýnar.
Konan í köflótta
stólnum á erindi til
allra hvort sem
þeir hafa kynnst
sjúkdómnum af eigin
raun eða ekki.
„Einiœg og dJirifarík."
Gudríður Haraldsdóttir/Vikan
JPV ÚTGÁFA
Bræðraborgarstíg 7
101 Reykjavfk • Sími 575 5600
Jpv@jpv.is • www.jpv.ls
„Það er stór ókvörðun að skrifa og gefa
út svo persónulega bók ... [Þórunn]
hlffir sér hveigi þótt fjaliað sé um erfiða
reynslu ... Hiklaust md segja að hún
bœtí heiminn með jtessari bók.“
Sieinunn Óiafsdottir/kistaius