Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2001, Side 2
2
MIDVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001
Fréttir
Bræður ráðherra hafa átt jarðaviðskipti við ráðuneyti hans í ár:
Sagði sig frá sölu
til bræðra sinna
Heimsmarkaður:
Olía lækkar
Heimsmarkaðsverö á hráolíu hef-
ur farið lækkandi í september. Eftir
örlitla uppsveiílu er tonnið nú i um
116 dollurum á Rotterdammarkaði.
Bensínverð á heimsmarkaði er
einnig í lágmarki, en tonnið af 95
oktana bensíni var á um 170 dollara
í morgun, samkvæmt upplýsingum
Félags íslenskra bifreiðaeigenda..
Staða krónunnar gagnvart dollar
er hins vegar afar veik, eða rúmlega
110 kr.
Samtök iðnaðarins benda á á
heimasíðu sinni að verð á gasolíu
frá dælu á íslandi, mælt í dollurum,
hafi ekki lækkað til jafns við lækk-
un erlendis. Mismunurinn sem
hlutfall af innlendu verði hafi farið
stighækkandi. Það bendi til þess að
álagning hafi hækkað verulega.
Mismunurinn hafi vaxið úr 36 pró-
sentuim i um 55 prósent frá því í
september í fyrra. Þessar tölur tali
sínu máli. Því hafa samtökin beint
því til Samkeppnisstofnunar að hún
hraði yfirstandandi athugun á mál-
inu -JSS
Áburðarverksmið j an:
Engin efnafram-
leiðsla lengur
Engin efnafram-
leiðsla hefur verið í
Áburðarverksmiðj-
unni í Gufunesi eft-
ir sprenginguna
sem varð þar 1.
október. Haraldur
Haraldsson, stjórn-
arformaður segir
verksmiðjuna geta
staðið við skuld-
bindingar sínar um
að útvega bændum áburð þrátt fyrir
sprenginguna.
„Við hættum efnaframleiðslunni
sem slíkri og flytjum inn hráefni á
meðan ekki er búið að semja við borg-
ina um framtíð verksmiðjunnar," seg-
ir Haraldur. Hann segir að undanfarið
hafi miklar gengisbreytingar gert það
að verkum að mjög hagstætt væri nú
að framleiða áburð hér innanlands.
Gríðarlegur samdráttur
„Það má því segja aö lokun efna-
framleiðslunnar komi sér nú illa fyrir
okkur. Sem dæmi þá kostaði dollarinn
um 70 krónur þegar við keyptum verk-
smiðjuna 1999. Nú er hann um 112
krónur.“ Á þeim tíma var mikil of-
framleiðsla á áburði í Evrópu og var
verksmiðjum lokaö í kjölfarið víða um
Evrópu. Norsk Hydro dró framleiðsl-
una saman um eina milljón tonna og
lokaði verksmiðjum í Bretlandi, Sví-
þjóð og í Frakklandi. Að sögn Haralds
urðu af þessum sökum verulegar verð-
hækkanir á öllum mörkuðum nema á
íslandi.
Haraldur segir að áður en þessi
gengisstaða kom upp hafi verið búið
að taka ákvörðun um að loka efnaverk-
smiðjunni. „Við vorum hins vegar
komnir á fremsta hlunn með að setja
allt í gang að nýju þegar sprengingin
varð í haust." -HKr.
Gísli Jónsson látinn
Gísli Jónsson
menntaskóla-
kennari á Akur-
eyri og einhver
mesti íslensku-
maður seinni
tíma lést á Ak-
ureyri að kveldi
mánudags.
Hann var 76
ára.
Fjöldi ritverka liggur eftir
Gísla, nú síðast bók um Limruna
sem kemur út fyrir jólin.
Guðni Ágústs-
son landbúnaðar-
ráðherra hefur
tvívegis sagt sig
frá frágangi á sölu
ríkisjarða á Suð-
urlandi vegna
þess að í hut áttu
bræður hans sem
eru þar bændur.
Annars vegar er
um að ræða sölu á
jörðinni Syðra-Velli I og hins vegar
er um að ræða sölu til Gaulverja-
bæjarhrepps á jarðarhlutanum
Brandshúsum. Báðar þessar sölur
fóru fram í ár.
Jörðina Syðri-Völl keyptu hjónin
Þorsteinn Ágústsson, bróðir Guðna,
og kona hans Margrét Jónsdóttir,
sem búið hafa á henni í ein tuttugu
ár en Margrét er fjórði ættliður
hennar fólks sem situr jörðina.
Gaulverjabæjarhreppur keypti
hins vegar jarðarpartinn Brandshús
en Geir Ágústsson í Gerðum er odd-
viti og hafði þvi með kaupin að gera
sem slíkur. Þessar jarðir eru á lista
25 ára Letti, sem situr í svokall-
aðri lausagæslu á Litla-Hrauni, gæti
þurft að sitja þar eða sæta farbanni
svo vikum eða mánuðum skiptir á
meðan íslensk og lettnesk yfirvöld
komast að niðurstöðu um það hvort
hann verði framseldur til heima-
lands síns héðan. Lettar hafa boðaö
aö þeir muni leggja fram kröfu um
framsal vegna rannsóknar á þremur
manndrápum sem maðurinn er
grunaður um aðild að í Lettlandi. Á
þeim forsendum fékkst hann úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 5. des-
ember.
Á miðvikudagskvöldið í síðustu
viku barst lögreglunni á Dalvík fyr-
irspum um það frá ríkislögreglu-
stjóra hvort verið gæti að umrædd-
ur maður, Juris Eglitis, væri stadd-
ur í bænum. Er það var kannað kom
á daginn að hann var þar og hafði
fengið vinnu í fiskvinnslu og verið
yfir seldar ríkisjarðir sem ráðherra
lagði fram sem svar við fyrirspum á
Alþingi á dögunum en hann hefur
sem kunnugt er verið gagnrýndur
fyrir að birta ekki kaupverð jarð-
anna. Það hafa lögfræðingar ráð-
herra hins vegar sagt óheimilt að
gera fyrr en búið væri að þinglýsa
eignunum. Er það mál nú til skoð-
unar eins og greint hefur verið frá í
DV. Margrét Jónsdóttir, bóndi á
Syðra-Velli, sagði í samtali við DV
að þau hefðu ekkert að fela varð-
andi kaupverð sinnar jarðar en þau
hafi borgað rúmar 10 milljónir fyrir
hana.
„Það er síður en svo neitt að fela
í því að þessir bræður mínir hafa
átt viðskipti við ráðuneytið," segir
Guðni Ágústsson aðspurður um
þessi mál. „Annar þeirra hefur sam-
band við mig vegna þessara jarða-
kaupa fyrir hreppinn, þ.e.a.s. sá
sem er oddviti, og ég segi honum
strax að við getum ekki átt þessi
viðskipti. Ég fór því í ríkisstjórn og
óskaði eftir að tilnefndur yrði annar
landbúnaðarráðherra í málið og það
þar í nokkra daga. Tengdaforeldrar
hans búa í bænum en hin tilvonandi
eiginkona hans er ekki talin stödd
hérlendis. Hún kom til Dalvíkur í
heimsókn í haust en fór svo aftur
utan. Samkvæmt upplýsingum DV
frá Dalvík liggur ekki fyrir hvort
hún hafi ætlað að koma á eftir Juris.
Menn frá ríkislögreglustjóra
komu norður á flmmtudag og fóru
suður með manninn í flugvél frá
Akureyri. Samkvæmt upplýsingum
frá ríkislögreglustjóra er Lettinn
grunaöur um þrjú manndráp. Þar
er um að ræða verknaöi sem framd-
ir voru á tímabilinu allt aftur til
ársins 1997.
Ef og þegar framsalskrafa berst
frá Lettum verður fyrsta spurningin
hvort hinn grunaði fallist á kröfuna
og verði við beiðni um að fara til
heimalandsins, fara væntanlega í
gæsluvarðhald þar og svara svo til
var Páll Pétursson sem gekk frá því.
Nú, hinn bróðirinn, sem er sam-
kvæmt 38. gr. jarðalaga að kaupa
jörð sem hann hefur búið á í 20 ár,
hefur nú ekki svo mikið við að hafa
samband við bróður sinn vegna
kaupanna heldur klárar þau í gegn-
um Ríkiskaup. Það er ekki fyrr en
samningurinn liggur á mínu borði
að ég sé að þarna er bróðir minn að
kaupa og þá vísa ég málinu frá mér.
Það er svo ráðuneytisstjórinn sem
gengur frá þessu fyrir hönd ráðu-
neytisins," segir Guðni Ágústsson.
í Ríkisreikningi fyrir 1999 kemur
fram að gengið hafi verið frá sölu á
jörðinni Gerðum í Árnessýslu en
þar býr Geir Ágústsson, oddviti og
bróðir Guðna sem áður segir. Guðni
kannast ekki við þá sölu í sinni ráð-
herratíð og samkvæmt upplýsing-
um frá Guðmundi Helgasyni ráðu-
neytisstjóra var jörðin seld 1993 en
ekki færð í ríkisreikning fyrr en
1999 vegna tæknilegra bókhaldsat-
riða er varða það að söluverðmæti
skiptist milli ríkissjóðs og Kristni-
sjóðs. -BG
saka fyrir það sem hann er grunað-
ur um. Fallist hann ekki á það á
hann rétt á að dómstólar hér á landi
taki afstöðu til framsalskröfunnar,
það er hvort fallist verði á hana eða
ekki. Enn annar möguleiki er fyrir
hendi; að Útlendingaeftirlitið visi
honum einfaldlega úr landi. Þar
væri t.a.m. mögulegt að byggja á
lagaákvæðum sem kveða á um að
slíkt væri hægt ef almannahags-
munir krefðust þess að hann færi
úr landinu. Einnig væri hægt að
byggja á ákvæði sem kveður á um
aö hefðu yfirvöld hér haft um það
upplýsingar þegar maðurinn kom
til landsins að hann hefði verið
grunaður um afbrot, eins og raun
ber vitni, þá væri þeim heimilt að
vísa honum úr landi.
Næsta skref í þessu máli verður
væntanlega að lettnesk yflrvöld
leggi framsalsbeiðnina fram. -ótt
Gagnlegur fundur
Halidór Ásgríms-
son utanríkisráð-
herra segir að fundur
sinn í gærkvöldi i
Ráðherrabústaðnum
með Jan Petersen,
nýskipuðum utanrík-
isráðherra Noregs,
hafi verið bæði gagn-
legur og vinsamlegur.
Þetta var fyrsta heimsókn Petersens
til annars lands síðan hann varð utan-
rikisráðherra. - Mbl. greindi frá.
Áfram í varðhaldi
Gæsluvarðhald yfir háliþrítugum
sjóðstjóra hjá Kaupþingi hefur verið
framlengt um eina viku, til 4. desem-
ber. Maðurinn var handtekinn í byrjun
síðustu viku grunaður um að hafa mis-
notað aðstöðu sína hjá fyrirtækinu til
að hagnast sjálfur. - RÚV greindi frá.
Burnham í þrot
„Auðvitað hefur þróunin á verð-
bréfamarkaði að undanfómu komið
við rekstur og eiginfjárstöðu verðbréfa-
fyrirtækjanna en samkvæmt fyrirliggj-
andi upplýsingum eru önnur fyrirtæki
yflr lögmæltum hlutfóllum um eigið
fé,“ sagði Páll Gunnar Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Fjármálaeftirlitsins, í
samtali við DV. Bumham Intemational
á íslandi er komið í þrot eftir að Fjár-
málaeftirlit og viðskiptaráðuneyti
mátu stöðuna svo að hlutfall eigin hár
félagsins væri komið undir lágmarks-
kröfur, það er 8% af áhættugrunni.
43 milljarða skuldir
Heildarskuldir Reykjavíkurborgar
hafa hækkað um tæpa 13 milljarða
króna og eru rúmir 43 milljarðar sam-
kvæmt fjárhagsáætlun Reykjavikur-
borgar sem kynnt var i gær fyrir næsta
ár. Heildartekjur borgarsjóðs eru áætl-
aðar 34 milljarðar króna en rekstrar-
gjöld tæplega 29 milljarðar.
Enn ósamið
Kennsla getur ekki haflst við Tón-
listarskólann á Akureyri fyrr en í
fyrsta lagi á morgun, flmmtudag.
Ósamið er við nokkra kennara skólans
sem eru í Starfsmannafélagi Akureyr-
arbæjar. Kennarar við skólann em í
þremur stéttarfélögum. - RÚV greindi
frá.
Sex dæmdir
Héraðsdómur Vestfjarða kvað upp
dóm i gær í máli sjö ungra manna á
aldrinum frá 17 ára til 21 árs. Þeir vom
ákærðir fyrir allmörg albrot framin á
Patreksfirði. Einn þeirra var sýknaður,
ákvörðun refsingar hjá einum var
frestað en hinir hlutu sektir eða fang-
elsi. - BB greindi frá.
Kært vegna slagsmála
Móðir 14 ára pilts í Hagaskóla hefur
lagt fram kæm á bandarískan karl-
mann til lögreglu fyrir að nefbijóta son
sinn. Pilturinn var í hópi unglinga úr
Hagaskóla sem veittust með snjókasti
að 2 mönnum úti fyrir Háskólabíói í
fyrradag.
Fjarlækningastofnun
Bæjarráð ísafjarðarbæjar hefur lagt
til að komið verði á fót Fjarlækninga-
stofnun íslands með aðsetri á ísafirði.
Hér yrði um sjálfseignarstofnun að
ræða með aðild ísafjarðarbæjar, fyrir-
tækja, stofnana og einstaklinga. Á hún
að stuðla að nýrri þekkingu, aukinni
menntun og þróun á tækni og aðferð-
um í fjarheilbrigðisþjónustu. - BB
greindi frá.
-HKr.
Áburöarverksmiðjan í Gufunesi
Engin efnaframleiösla er lengur í gangi eftir sprenginguna í haust. Þykir þaö bagalegt þar sem áburöarframleiösla hér-
lendis væri mjög hagstæö vegna lækkunar á gengi krónunnar.
Letti sem situr í lausagæslu á Litla-Hrauni er grunaður um þrjú manndráp ytra:
Dómstóll gæti þurft að
dæma um framsalskröfu
- var kominn til tengdaforeldra á Dalvík, dóttirin kom í heimsókn í haust
Haraldur
Haraldsson.