Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2001, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001
DV
Utlönd
u
Harðar loftárásir Bandaríkjamanna á síðasta vígi talibana í Afganistan:
Árásum beint að bækistöðvum
Mullah Omars í Kandahar
Að sögn talsmanns Bandaríkjahers
gerðu bandarískar sprengjuílugvélar í
gær harðar sprengjuárásir á bæki-
stöðvar talibana suðaustur af borg-
inni Kandahar, siðasta vígi talibana í
Afganistan, eftir að leynilegar upplýs-
ingar höfðu borist um að Mullah
Muhammed Omar, ieiðtogi talibana,
væri líklega staddur í bækistöðvun-
um. Fram kom að sprengjurnar hefðu
hitt en engar upplýsingar um mann-
fall, né staðfesting á þvi að Omar
hefði verið á staðnum. Árásirnar
munu hafa verið gerðar aö skipun
Donalds Rumsfelds, sem var i heim-
sókn í höfuðstöðvum bandaríska hers-
ins í Flórída, og að hans sögn er nú
verið að kanna ástandið.
Mullah Abdul Salam Zaeef, fyrrum
sendiherra talibana í Pakistan, sagði
aftur á móti í útvarpsviðtali eftir
árásirnar að Mullah Omar væri heill
á húfi eftir árásirnar. „Enginn æðstu
foringja okkar, hvorki Omar né
nokkur annar, voru í bækistöðvunum
REUTER-MYND
Sprenging í Róm
Slökkviliösmenn í Róm og neyöar-
sveitir vinna viö fjölbýlishúsið þar
sem gassprenging varö i gær.
Gassprenging í
Róm kostaði
fjóra menn lífið
Gífurleg sprenging af völdum
gasleka sem varð í fjölbýlishúsi í
einu úthverfa Rómar, höfuðborgar
Ítalíu, í gær kostaði fjóra menn líf-
ið, þar af þrjá slökkviliðsmenn. Að
sögn embættismanna slösuðust
rúmlega þrjátíu manns.
Fjórði slökkviliðsmaðurinn ligg-
ur í dái og telja læknar litlar likur á
að hann muni ná sér. Allt að fjög-
urra manna var enn saknað í gær-
kvöld.
Héraðsstjórinn í Róm sagði i við-
tali við fréttamann Reuters að
gasleki neðanjarðar hefði valdið
sprengingunni og að fjöldi slökkvi-
liðsmanna hefði verið á staðnum.
íbúar hverfisins höfðu kvartað yf-
ir mikilli gaslykt í gærmorgun.
Hótun Bush er
bara brandari
Richard Butler, fyrrum yfirmað-
ur vopnaeftirlits Sameinuðu þjóð-
anna í Irak, kallaði hótun Georges
W. Bush Bandaríkjaforseta í garð
stjórnvalda í Bagdad „brandara frá
Texas“. Butler sagði að Bush yrði
að vera skýrari í tali þar sem aug-
ljóst væri að írakar ættu gjöreyð-
ingarvopn.
Bush krafðist þess á mánudag að
írakar hleyptu vopnaeftirlitsmönn-
um aftur inn í landið, þar sem gjör-
eyðingarvopn væru á lista yfir skot-
mörk í stríðinu gegn hryðjuverka-
mönnum. Var litið á þau orð sem
hótun um að næst yrði ráðist á írak
ef Saddam Hussein forseti léti sér
ekki segjast.
Butler sagði að núverandi vit-
neskja réttlætti aðgerðir gegn
Saddam Hussein.
á
ftj F ~ ■ fjlMMKgglMÍB 'wgzM
Leitin að bin Laden að hefjast
Bardarískir sérsveitarmenn á flugmóðurskipinu Penelíu, sem staösett er á Persafióa,
stinga saman nefjum áöur en haldið er á slóöir bin Ladens i suöurhiuta Afganistans.
sem urðu fyrir árásunum," sagði
Zaeef. Spurður um bin Laden, sagðist
Zaeef ekkert vita um hann og engar
upplýsingar hafa fengið um verustað
hans. Rumsfeld sagði að leitin að bin
Laden væri að hefjast. „Við munum
þrengja verulega að þeim á næstu
dögum, þannig að þeir eigan enga
undakomuleið."
Að sögn Maulvi Abdullah, tals-
manns talibana í bænum Spin Boldak,
nálægt landamærum Pakistans, sem
talibanar hafa enn á sínu valdi, voru
harðar loftárásir gerðar á flutn-
ingaleiðir að bænum í nótt, þar sem
fjöldi ökutækja talibana var eyði-
lagður. Óstaðfestar fréttir segja þó að
um 5000 hermenn pashtúna hafi gert
innrás í bæinn og hertekið hann.
í gær tókst loks að bæla niður
fangauppreisnina í Janghi-virki og
lauk henni með því að þeir sem lengst
héldu út voru drepnir í skriðdreka-
skothríð, eftir þriggja daga úthald
sem kostaði hundruð talibana lífið.
„Konungdæmi guöanna"
Hinn 76 ára gamli Nek Chand, frá borginni Chandigarh í Noröur-lndlandi, situr hér meöal tistaverka sinna i „Rock
Garden", sem opnaöur var áriö 1976 í útjaöri borgarinnar. Chand á heiöurinn aföllum styttunum í garöinum, sem að
mestu eru búnar til úr gömlu drasli, eins og ryöguöum tunnum, brotnum leirmunum og jafnvel klósettsetum sem
Chand hefur fundiö á viðavangi oggert úr því „konungdæmi guöanna“ eins og hann kallar listaverkin sín.
Ný stjórn Danmerkur er tekin til starfa:
Anders Fogh segir ráðherrana
verða að standa sig í stykkinu
Anders Fogh Rasmussen, forsæt-
isráðherra Danmerkur, kynnti nýja
minnihlutastjóm Venstre og íhalds-
flokksins í gær og sagði við það
tækifæri að ætlast væri til að ráð-
herrarnir stæðu sig i stykkinu.
Átján ráöherrar eiga sæti í nýju
ríkisstjórninni, þremur færri en í
fráfarandi stjórn Pouls Nyrups
Rasmussens. Þá hafa nokkur ráðu-
neyti verið lögð niður og öðrum hef-
ur verið steypt saman. Tvö ný ráðu-
neyti líta dagsins ljós, annars vegar
ráðuneyti sem fjallar um málefni út-
lendinga og hins vegar ráðuneyti
Evrópumála.
Ný stjórn Anders Foghs verður
minnihlutastjóm og þarf því meðal
annars að reiða sig á stuðning
Danska þjóðarflokksins, sem hafði
andúð gegn útlendingum efst á
REUTERTylYND
Harkan sex
Anders Fogh Rasmussen, nýr for-
sætisráöherra Danmerkur, líöur ekki
neitt slugs i ráöherraliöinu.
stefnuskránni og jók fylgi sitt um-
talsvert í kosningunum á dögunum.
Anders Fogh ítrekaði einarða af-
stöðu stjómar sinnar í málefnum
flóttamanna og innflytjenda.
„Það er nauðsynlegt að draga úr
straumi útlendinga til Danmerkur
og einbeita sér að því að tryggja að
þeir sem era hér fyrir fái atvinnu,"
sagði forsætisráðherrann á fyrsta
fréttamannafundi sínum i gær.
Nýja ríkisstjómin í Kaupmanna-
höfn hefur einnig á stefnuskrá sinni
að draga úr aðstoðinni við erlend
riki, hækka ekki skatta, bæta þjón-
ustu sjúkrahúsa landsins og veíferð-
arkerfisins, meðal annars með því
að lengja foreldraorlof.
Þá hét Anders Fogh að fylgja var-
kárri stefnu fyrri ríkisstjórnar í
efnahagsmálum.
Dodge Intrepid 3,3, 4 d., ssk.
Skr. 5/94, ek. 69 þús. Verð kr.
980 þús. TILBOÐ kr. 780 þús.
Notaðir bílar hjá
Suzuki bílum hf.
Suzuki Baleno GLX, 4 d., bsk.
Skr. 7/97, ek. 39 þús. Verð kr.
860 þús. TILBOÐ kr. 750 þús.
Suzuki Swift GLX, 5 d., bsk.
Skr. 3/98, ek. 52 þús. Verð kr.
650 þús. TILBOÐ kr. 550 þús.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---////.-------------
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, sími 568-5100
Hyundai Accent Gsi, 3 d., bsk.
Arg. '98, ek. 38 þús. Verð kr.
635 þús. TILBOÐ kr. 490 þús.
Suzuki Swift GX, 5 d., bsk. Skr.
9/96, ek. 48 þús. Verð kr. 540
þús. TILBOÐ kr. 470 þús.
Fiat Punto Sporting, bsk. Skr.
12/97, ek. 41 þús. Verð kr. 780
þús. TILBOÐ kr. 590 þús.
Suzuki Baleno Wagon 4x4.
'97, ek. 122 þús. Verð kr. 790
þús. TILBOÐ kr. 650 þús.
MMC Lancer GLXi, 4 d., ssk.
Skr. 6/97, ek. 63 þús. Verð kr.
860 þús. TILBOÐ kr. 690 þús.
Opel Astra station, ssk. Skr.
3/98, ek. 32 þús. Verð kr. 1130
þús.TILBOÐ kr. 800 þús.
MMC Lancer st. 4x4. Skr. 5/99,
ek. 58 þús. Verð kr. 1260 þús.
TILBOÐ kr. 990 þús.