Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2001, Blaðsíða 16
«28_____
Skoðun
MIÐVIKUDAGUR 28. NÓVEMBER 2001
DV
Spurning dagsíns
Ásta Jónsdóttir skólaliöi:
Já, ég verö heima meö fjölskyldunni.
Anna Berglind Jónsdóttir, 10 ára:
Já, ég verð heima.
Högni Þorkelsson, 14 ára:
Ég er aö flytja til Noregs og verö
kominn þangaö á nýja heimiliö mitt.
Sigurlaug Tara Eiíasdóttir nemi:
Já, viö fáum ættingja heim í mat.
Margrét Pála Valdimarsdóttir nemi:
Já, meö fjölskyldunni.
Maríanna Magnúsdóttir nemi:
Já, viö erum alltaf heima
fjölskyldan.
Jér, viö erum alltaf heima
fjölskyldan.
Sjónvarpsfréttir á
sunnudagskvöldi
Þorvaidur Jónsson
skrifar:
Sl. sunnudagskvöld missti ég af
fréttum kvöldsins, bæði í hljóðvarpi
RÚV kl. 19 og á Stöð 2 kl. 19:30, og þar
sem ég er talsverður fréttafikill er ég
yfirleitt til taks og fylgist með þess-
um þrennum fréttum kvöldsins.
Fréttir Sjónvarpsins urðu þvi þrauta-
lendingin.
En þar var ekki um auðugan garð
að gresja, miðað þó við það sem ég
heyrði og sá síðar um kvöldið úr upp-
tökum frá útvarpsfréttum og Stöö 2.
Sjónvarpsfréttir voru mest félagslegt
raus, t.d. um hæstu húsnæðislánin til
höfuðborgarsvæðisins, gamla tuðið
um aðgang að sjúkraskrám, og annað
i þeim dúr. - Hins vegar var eina er-
lenda fréttin, um að talibanar í borg-
inni Kunduz í Afganistan hefðu gef-
ist upp, stutt, og kippt burt eftir
nokkrar sekúndur. Frétt sem allar
fréttastofur, og erlendar sjónvarps-
stöðvar voru með sem aðalfrétt þetta
kvöld (og sá síðar í gegnum gervi-
hnattasjónvarp sem ég er svo hepp-
inn að njóta, algjörlega ókeypis).
Að loknum fréttunum kom svo
Kastljós sem augljóslega var ætlað að
klekkja á ríkisstjóm og ráðherrum
hennar vegna „stöðu krónunnar" og
afleiddra mála. Inngangur umsjónar-
manns Kastljóssins, i dagskrárkynn-
ingu og svo aftur i inngangi í upphafi
þáttarins með þátttakendum, sýndi
hvert hann vUdi beina umræðunni -
nefnilega gegn rikisstjórninni.
Allt þetta sýndi mér enn og aftur
að fréttastofa Sjónvarps er einskis
nýt sem fréttamiðUl og í besta faUi yf-
irvarp tU að geta flokkast sem alvöru
ljósvakafjölmiðill. - Þetta kvöld var
ekki einu sinni að finna almennUega
dagskrá það sem eftir lifði, utan hvað
„Ég veit ekki hvemig
menntamálaráðherra ætlar
að verja þá aðgerð, sem nú
er sögð ofarlega í umræð-
unni, að koma Sjónvarpinu
ásamt öðrum þáttum RÚV
á fjárlög eða jafnvel að
rukka fyrir dagskrá þess
með nefskatti. “
mér þótti gaman heyra og sjá upprifj-
un Steindórs Hjörleifssonar leikara
og sjá hann og Guðmund heitinn
Pálsson syngja saman. - Sjónvarpinu
væri nær að sýna þeim sem ekki hafa
aðgang að öðrum stöðvum þessi
gömlu leikrit sem tekin hafa verið
upp og eru í fullu gUdi sem boðlegt
afþreyingarefni.
Ég lét mér því nægja að „hlusta"
og horfa á prýðilegt en „truflað" við-
tal Hans Kristjáns Árnasonar við
Valgerði Bjarnadóttur framkvæmda-
stjóra (ég hef ekki efni á að greiöa af-
notagjald af Stöð 2 jafnhliða RÚV. -
Svona er nú mitt viðhorf tU Sjón-
varpsins, sem er oröið að menningar-
legu afstyrmi.
Ég veit ekki hvemig menntamála-
ráðherra ætlar að verja þá aðgerð
sem nú er sögð ofarlega í umræð-
unni, aö koma Sjónvarpinu ásamt
öðrum þáttum RÚV á fjárlög eða jafn-
vel að rukka fyrir dagskrá þess með
nefskatti.
Ríkisútvarpinu veröur á engan
hátt bjargað héðan af nema með al-
gjörri aftengingu Sjónvarpsins og
Rásar 2 frá Ríkisútvarpinu hljóð-
varpi - Gömlu gufunni, sem er hægt
að réttlæta rekstur á fjárlögum sakir
öryggissjónarmiðs og frábærrar dag-
skrár aUa jafna.
frekar en evrur
Dollara
Tryggvi Jónsson
skrifar:
Þótt orðið evra sé orðskrípi sem
feUur ekki að íslensku máli fmnst
mér það ekki duga sem rök gegn því
að taka hana upp hér í staðinn fyr-
ir íslensku krónuna. En það bætir
ekki stöðu hennar hér að vera orð-
skrípi. Að auki hafa að undanfornu
verið að hrannast upp efnahagsleg-
ar vísbendingar um að doUarar
væru betri kostur fyrir okkur.
Miklu meiri vöxtur er í viðskiptum
okkar í Bandaríkjadölum en við
evrulöndin. Þetta á ekki síst við um
þjónustuviðskipti sem eru vaxtar-
broddur framtíðar.
Erlend fjárfesting hér er ekki
„Erlend fjárfesting hér er
ekki nema að litlu leyti frá
evrulöndunum eða um 14%
af heildarfjárfestingu útlend-
inga hér. Hún er tvöfalt meiri
frá Norður-Ameríku og
þrefalt meiri frá Sviss. “
nema að litlu leyti frá evrulöndun-
um eöa um 14% af heUdarfjárfest-
ingu útlendinga hér. Hún er tvöfalt
meiri frá Norður-Ameríku og
þrefalt meiri frá Sviss.
Áform um frekari nýtingu vatns-
afls hér á landi eru ekki að tUstuðl-
an fjárfesta frá evrulöndunum held-
ur frá Noregi, Sviss og Norður-Am-
eríku. Ekkert þessara landa er aðili
að ESB og ekkert notar evruna. Við
eigum einnig í mikilvægu og heilla-
drjúgu vamarsamstarfi við Banda-
ríkin.
Bandaríkjadalur á sér langa og
farsæla sögu. Evran er hins vegar
óskrifað blað. Sú reynsla sem kom-
in er á hana lofar ekki góðu og
furðulegt að islenskar fjármála-
stofnanir hafi skráð suma sjóði sína
í evrum. Ef þær hefðu haft vit á því
að skrá bréf í þessum sjóðum í doU-
urum væri útkoma sjóðanna gagn-
vart íslenskum fjárfestum mun
betri í krónum talið.
Víst skal höggva
Slagurinn um borgina tekur sífeUt á sig nýjar
myndir. Garri hefur oftsinnis velt upp hinu
-,merkilega fyrirtæki Línu.neti, sem fer nú lang-
leiöina með að verða eitthvert pólitískasta fyrir-
tæki íslandssögunnar og er þá langt tU jafnaö.
Svo virðist sem næstu borgarstjórnarkosningar
muni að meira eða minna leyti snúast um þetta
fjarskiptafyrirtæki og hlýtur það raunar að telj-
ast merkilegt að fyrirtækið geti yfirhöfuð þrifist
í þessu rafmagnaða andrúmslofti. Nú síðast var
það sjálfur Ágúst Einarsson, fyrrum formaður
framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, sem
tók upp hanskann fyrir íhaldið og byrjaði að
gagnrýna Linu.net. EölUega hefur slíkt ekki vak-
ið mikla hrifningu hjá reykjavíkurlistamönnum
en á móti kemur að samhliða því aö gagnrýna
R-listann gerði hann Sjálfstæðisílokknum tals-
'•verðan óleik, með því að finna handa þeim nýtt
borgarstjóraefni.
Engin MJallhvít
Sannleikurinn er auðvitað sá að leiðtogaleit
sjálfstæöismanna í Reykjavík er farin að verða
vandræðaleg, svo ekki sé meira sagt. Ekki nóg
meö að búið sé að steypa gjörsamlega undan
Ingu Jónu Þórðardóttur aUri þeirri tiltrú sem
^hún kann að hafa haft heldur hefur viövarandi
vandræðagangurinn aUur í kringum þetta mál
gert lítið úr öðrum borgarfuUtrúum flokksins
líka. Eftir standa þessi sjö minnihlutafulltrúar
sem pólitískir dvergar, ráðvilltir og höfuðlausir.
Dvergamir sjö í leit að Mjallhvíti. Því lengur
sem þessi framhaldssaga veltur áfram því pín-
legra fyrir flokkinn og því pinlegra fyrir dverg-
ana sjö.
Bolli í Sautján
Það er í því ljósi,_ sem skoða ber tUlögu
Ágústs Einarssonar’ um BoUa í Sautján sem
næsta borgarstjóraefni sjálfstæðismanna. Ekki
er að efa að Bolli er ákaflega hæfur maður í
starfiö og tiUaga Ágústs þvi ekki galin hvaö þaö
varðar. Hins vegar er ljóst að framkvæmda-
menn, sem eru að ná árangri i því sem þeir
hafa tekið sér fyrir hendur, eru ekki ginnkeypt-
ir fyrir því að halda of lengi á þeirri heitu kart-
öflu að vera bendlaður við framboð hjá Sjálf-
stæðisflokknum í Reykjavik. Slíkt er einfaldlega
ekki til marks um að viðkomandi sé í hópi sig-
urvegaranna í þjóðfélaginu. Enda kom á daginn
að Bolli í Sautján viU ekki kannast við aö hafa
áhuga á að fara í framboð. Hann ætlar ekki að
halda á þessari kartöflu þar tU hann fær bruna-
sár í lófana eins og Björn Bjamason hefur gert.
Þvert á móti hendir hann kartöflunni frá sér og
yfir tU Sigurðar Gísla Pálmasonar sem hann
leggur til að fari í framboð! Það vantar ekkert
nema BoUi segi: „Klukk! Þú ert hann núna!“
Þannig verður gagnrýni Ágústs tvíeggja, hann
gagnrýnir félaga sína í R-listanum en setur um
leið af stað enn eina hringekjuna í umræðunni
um forustuna hjá sjálfstæðismönnum í borginni.
Garra sýnist nú að af tvennu Ulu hafi Ágúst ver-
ið sýnu verri við sjálf-
stæðismennina!
Bryndís Hlööversdóttir og Jónína
Bjartmarz alþingismenn
Hafa þaö sem til þarf fyrir þingmenn.
Konur í stjórnmálum
Guðmundur Sveinsson hringdi:
í þættinum Silfri Egils, sem ég
horfði á sl. sunnudag, var viðtal við
þrjá þingmenn, þær konurnar Bryn-
dísi Hlöðversdóttur og Jónínu Bjart-
marz og svo Pétur Blöndal. Það kom
þarna glöggt fram að mínu mati að
þær konur sem eru vel menntaðar
líkt og þessar konur báðar (en mér er
tjáð að þær séu lögfræðimenntaðar)
skara fram úr i stjórnmálum. Lög-
fræðin er líka einkar heppUeg mennt-
un í stjórnmálum, því þar gilda rök-
ræður umfram flest annað. Pétur var
skemmtUegur að vanda og flest rétt
sem hann færði þarna fram, t.d. um
opinbera starfsmenn. En konumar
báru af í málflutningi.
Þriðja leiðin
Einar Guðjónsson skrifar:
Nokkrir menn sem hafa þaö helst
fyrir stafni að láta sig dreyma um
sameiningu vinstri manna hafa að
undanfómu látið eins og þriðja leiöin
i stjórnmálum sé það sem koma skal
og jafnvel óumflýjanleg fyrir mannkyn
aUt. Þessari leið var hafnað í banda-
rísku forsetakosningunum í fyrra og
einnig nýlega á Ítalíu, á Spáni og nú
síðast í Ástralíu, þar sem hægri menn
fóm með sigur af hólmi. Svo má ekki
gleyma að bæði Norðmenn og Danir
hafa hafnað því nýlega að fara í þriðja
flokk. - Og hvaða ályktanir draga
menn svo af þessu á íslandi?
Hreyfingar í bréfum íslandsbanka
Stundum skráöar og stundum ekki?
Innherjaviðskipti
Bjarni Sigurðsson hringdi:
í fréttum af innherjaviðskiptum
sem snerta bæði Kaupþing og íslands-
banka og snerust um óskráð hluta-
bréf lífeyrissjóðsins HlUar furða ég
mig á að ekki skuli hafa borist hávær
og kröftug yfirlýsing frá Verkalýðsfé-
laginu Hlíf í Hafnarfirði vegna nafna-
tengslanna og þeirra óþæginda sem
verkamannafélagið hlýtur að verða
fyrir vegna misferlis innan áður-
nefnds lífeyrissjóðs. En þetta er svo
sem ekki í fyrsta sinn sem íslands-
banki lendir í klípu vegna einhverra
svona atburða. Og enn er íslands-
banki i umræðunni vegna kaupa og
sölu á hlutabréfum upp á hundrað
milljóna að nafnvirði að því er fréttir
herma. Maður hefði haldið að VÞÍ
væri sá aðili sem héldi utan um þessi
mál og tilkynnti jafnóðum um hreyf-
ingar á hlutabréfamarkaði í skráðum
fyrirtækjum eins og íslandsbanka.
Gleðst yfir veikindum
María Guðmundsdðttir hringdi:
Mér datt í hug þegar ég sá í fréttum
að kostnaður af iktsýki væri um
milljarður á ári hér á landi að víða
væri nú pottur brotinn í veikinda-
sögu þessarar blessaðrar þjóðar. Ég
get ekki betur séð og heyrt af fréttum
en að þjóðin öll sé meira og minna
veik, enda er umræðuefni hennar
mest veikindi og aftur veikindi. Þjóð-
inni hlýtur að þykja meira en lítið
vænt um veikindi sín, svo fjarlægt
það ætti nú að vera hverjum heil-
brigðum manni aö ræða veikindi.
Nóg er bölið þegar það dynur yfir.
DV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.