Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2001, Qupperneq 14
14 Menning Tími og tíðarandi Vegna þeirra sviptinga sem orðiö hafa á íslensk- um bókamarkaði undan- farna mánuði óttuðust margir að kortast myndi snarlega útgáfusaga bókaflokksins ísland í aldanna rás. Það reynd- ust óþarfa áhyggjur og nú er komið út annað bindið af þessu mikla verki og fjallar um timabilið 1951-75. Bókin byggð upp eins og annáll, þar eru rakin frá ári til árs þau mál sem efst voru á baugi hverju sinni. Hin stærri mál fá jafnvel nokkrar blaðsíður þannig að höfundi gefst tækifæri til að draga upp ítarlega mynd af umfjöllun- arefni sínu. Því virðist þetta bindi skipu- legra í efnistökum en fyrra bindið, sem á köflum virkaði dálítið grautarlegt. Inn á milli hinna stóru mála er svo skotið ýmiss konar smælki sem þegar best tekst til dregur upp lifandi mynd af tíðarandanum. Auk þess eru sumar þessar klausur bráð- fyndnar. Sem dæmi má nefna afskipti lög- reglunnar af sýningu Stefáns frá Möðrudal á málverkinu Vorleik sem sýndi náin kynni stóðhests og merar. Töldu laganna verðir ekki við hæfi að sýna slíkt opinberlega. Myndaval í bókinni er til fyrirmyndar og fellur yfirleitt vel að textanum. Inn á milli annars efnis er til dæmis skotið með reglu- legu millibili myndasíðum með stuttum skýringartextum. Þar er hægt að fylgjast með breytingum sem verða á fatatísku, bif- reiðum, íbúðarhúsnæði, verslun og síðast en ekki síst verklagi og atvinnuháttum til sjós og lands. Sérstaklega skal bent á stuttar klausur á víð og dreif um bókina þar sem gerð er grein fyrir tískusveiflum og þróun í hús- gagnahönnun og barnaleikföngum. Sem fyrr er Illugi Jökulsson aðalhöfundur bókarinnar og fær til liðs við sig sérfræðinga á ýmsum sviðum til að rita yfirlitskafla um valin Víða hefur verið leitað fanga við efnisöfl- un. Sem fyrr hafa dagblöðin reynst nota- drjúg en einnig er í bókinni efni úr tímarit- um, bókum og persónulegum skrifum fólks. í frásögninni um forsetakjörið 1952 er til dæmis birtur kafli úr dagbók Elínar P. Blöndal þar sem hún lýsir skoðunum sínum á málinu. Gjarnan hefði mátt vera meira af slíku. I efnismeiri greinum um einstaka at- burði eða málefni nýtir höfundur sér einnig nýjustu rannsóknir fræðimanna og gefur það umfjölluninni meira gildi. Andstætt því sem oft gerist í ritum sem þessu hika höf- undar ekki við að leggja mat á þá atburði sem þeir fjalla um og er það tvímælalaust til bóta. Bókmenntir Fyrsta bindi bókaflokksins var gagnrýnt fyrir að oft væri erfitt að átta sig á hvaðan einstakir kaflar og greinar kæmu. I þessum efnum hefur orðið breyting til batnaðar, helst að misbrestur verði þegar efni greinar er dregið saman úr ýmsum áttum. I formála segir aðalhöfundur að heimildaskrá sé birt á heimasíðu JVP útgáfu og bendir á að þetta sé nýbreytni. Ekki verður um það deilt. Hins vegar er þessi nýjung síst til eft- irbreytni og er það von mín að þetta sé í fyrsta og síöasta sinn sem þessi háttur verð- ur hafður á. Hvað verður til dæmis um heimildaskrána ef svo illa færi að JVP út- gáfa endaði á sömu leið og Genealogia Is- lllugi Jökulsson rithöfundur landorum? Ég vil því hvetja höfund og út- Hin stærri mál fá jafnvel nokkrar blaösíður þannig aö höfundi gefanda til að taka á sig rögg og birta heim- gefst tækifæri til aö draga upp ítarlega mynd af umfjöllunar- ildaskrá fyrir allt verkiö í næsta og vænt- efni sinu. efni. Yfirleitt er mikill fengur að þessum yfirlit- sköflum og þegar best lætur tengja þeir saman efni sem dreift er í smágreinum um bókina. I þeim er fjallað um bókmenntir, myndlist og leiklist en einnig dægurtónlist og efnahagmál, svo dæmi séu nefnd. anlega síðasta bindi þess. Að öðru leyti er við hæfi að óska aðstandendum til ham- ingju með vel unnið verk. Guðmundur J. Guðmundsson lllugi Jökulsson o.fl.: ísland í aldanna rás 1951-1975. JPV útgáfa 2001. Tónlist ___________________________________________________________________________^ Undarleg tónlist Caputhópurinn hélt tónleika í Listasafni Reykjavíkur síðastliðinn laugardag og voru á efnisskránni eingöngu íslensk verk, bæði ný og gömul. Tónleikarnir voru þeir fyrstu af sex sem Caput tileinkar tónlistarkennslu á íslandi og hófust þeir á tveimur píanóverkum eftir Jón Leifs. Hið fyrra var ísland, farsælda frón, senni- lega í tOefni fullveldisdagsins, og lék Daníel Þorsteinsson á píanó. Flygillinn var fenginn frá Kjarvalsstöðum, og hljómaði einstaklega vel í litlum sal listasafnsins. Þetta píanóverk Jóns er í rauninni ekkert annað en lagið sem allir ís- lendingar þekkja, skreytt týpískum Jóns-Leifs- hlussuhljómum, og voru þeir mjög sannfærandi í meðförum Daníels sem lét allan sinn þunga hvíla á hljómborðinu þegar við átti. Ekki síðri var túlkunin á Valse Lente ópus 2 nr. 1 eftir Jón sem svipar til ýmissa píanóverka Eriks Satie, nema aö það er enn þunglyndislegra. Var píanó- leikur Daníels einstaklega vel mótaður og fal- legur. Ný tónsmíð var frumflutt á tónleikunum, Sextett eftir Þorstein Hauksson, sérlega fjörleg tónlist sem grundvallast á einföldum danstakti og er verkiö kunnáttusamlega skrifað fyrir öll hljóðfærin: óbó, klarinettu, flautu, fiðlu, selló og Jón Leifs. Þorstelnn Atli Ingólfsson. Hauksson. kontrabassa. Tónskáldið skiptir hljóðfærunum niður i smærri einingar á köflum, t.d. spiluðu eingöngu blásturshljóðfæraléikararnir um stund, svo bara strengjaleikararnir, síðan fjórir hljóðfæraleikar saman og svo framvegis. Það kom skemmtilega út og skapaði fjölbreytni. Sextett Þorsteins er glæsileg tónsmíð sem gam- an var að hlýöa á, enda ágætlega leikin undir markvissri stjórn Snorra Sigfúsar Birgissonar. Ekki síðri var Kvintett Atla Ingólfssonar sem er vissulega undarleg tónlist en svo vel unnin að maður gat ekki annað en fundist hún áhuga- verð. Efniviöurinn er mjög einfaldur, litlar hendingar úr krómatískum skölum, glissum, trillum og brotnum hljómum, sem er raðaö í mynd af einhverju sem maður vissi ekki að væri til. Verkið var afar vel flutt af hópnum og var eitt besta atriöi tónleikanna. Ekki eins spennandi var einleiksverk fyrir fiðlu eftir Jónas Tómasson, Vetrartré, er skipt- ist í fjóra kafla sem hétu Góð tré, Hrygg tré, Óð tré og Þögul tré. Þessir kaflar hefðu alveg eins mátt heita Dauð tré, því ósköp lítið átti sér stað í tónlistinni. Þetta er ekki illa samið tónverk en það virkaði viðburðasnautt og flatneskjulegt á tónleikunum. Hugsanlega hefði fiðluleikarinn, Sif Tulinius, mátt skapa ríkari andstæður með túlkun sinni, gera meira úr styrkleikabrigðum og leika af aukinni snerpu, til að gera betur skil þeim geðbrigðum sem titlar kaflanna vísa til. Smátrió fyrir flautu, selló og pianó eftir Leif Þórarinsson var hins vegar magnað þótt hama- gangurinn yrði dálítið þreytandi er á leið. En einmitt þegar maður ætlaði að fara að líta á klukkuna leystist allt upp í hugleiðslukennda, ljúfsára og einlæga slökunartónlist, skreytta nöturlegum pianóhljómum, og var það óneitan- lega hinn fullkomni endir. Jónas Sen Caput í Listasafni Reykjavíkur, 1. des. Hljóöfæraleik- arar: Daníel Þorsteinsson, píanó; Eydís Franzdóttir, óbó; Guöni Franzson, klarinetta; Kolbeinn Bjarnason, flauta; Hávarður Tryggvason, bassi og Siguröur Hall- dórsson, selló. mannsgaman / UN / A þeim buxunum Einar skringilegustu stundir í lífi manns eru þegar mátuð eru föt. Ný föt, stífpressuð með angandi búðarlykt. Þá er staðiö framan við rekka fullan af bxum og flett yfir úrvalið eins og maður hafi tilflnningu fyrir efnum og sniði. Gómarnir nema staðar við eina flíkina og hún er tekin til hliðar með augum sem læsa sig í sér- hvern saum. Og gjarna er spurt hvort gott sé í þessu. Iðulega er búðarmaðurinn kynlaus vera með neonlitað hár og hún horfir á mann eins og hvern annan lubba úr löngu dánum tíma. Mæn- ir á mann frá hvirfli til ilja og hugsar með sér hvurslags ómóðins aumingjatetur standi þarna við rekkann i illa burstuðum skóm og með herðatrésfarið í buxunum. Þannig er maður hvunndags, hvorki fyrir forsíður né innsíður. Bara takmarkaður kaupandi. Efms og hrakinn af tíma. Og tiltölulega ólekker. Stuttu síðar er staðið á nærbuxunum framan við spegil. Og smeygt sér varfæmislega í skálm- amar eins og maður vilji ekki meiða þær. Svo er gengið út úr klefanum líkast tveimur leggjum á leið til dóms. Séð að búðin starir. Hvert auga... Nei, þú hér. Blessaður, bara verið að fá sér bux- ur. Flottar þessar. Lendir meira að segja í hrókasamræðum við konur af ættarmótinu í Vatnsdal. Og hittir gamla kærustu. En svo einn. Þokkalega einn, framan við stóra dómadags- spegilinn. Og þar er reynt að fara hringinn um sjálfan sig án þess að hausinn fylgi með. Án ár- angurs. Manni er ekki ætlað í lífinu að horfa á sinn eigin afturenda. Reigja samt hausinn og reigja lengi. Þangað til kynlausa veran svífur á mann og ískrar í munninum. Fer um mann höndum, þessum linu og látlausu lófum og hlær að því búnu eins og til að fylla upp í þögn. Fínar í mittið og fara þér vel! Segir veran. Og maður geti komið eftir tvo daga og fengið þær lengdar út á kant. Svo vinkar maður neonlituðu hári. Og geng- ur út í eldri buxunum. -SER MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2001 ________________________DV Umsjón; Silja Aöalsteinsdóttir Ítalía, ísland, Japan t dag kl. 12.30 flytur Halldór Ásgeirsson myndlistarmaður fyrir- lestur i LHÍ, Laugamesi, stofu 024. Fjallað verður um þrjá staði þar sem Halldór hefur starfað og sýnt list sína á þessu ári, Ítalíu, ísland og Jap- an. Sýndar verða mynd- bandsupptökur af undirbúningi og endan- legri gerð myndverka hans í þessum þremur óliku eldfjallalöndum. Langt ferli liggur að baki hverju myndverki og mun Halldór varpa ljósi á vinnuaðferðir sínar og kynna næstu verkefni, sem unnin verða í ýmsum löndum. Sögur, leikrit, ljóö Mál og menning hefur gefið út safn frumsam- inna verka og þýðinga Geirs Kristjánssonar undir titlinum Sögur, leikrit, ljóð. Með sögum sinum og leikritum varð Geir einn af brautryðj- endum módernismans 1 íslenskum bókmenntum upp úr miðri 20. öld. Hann átti líka stærri þátt í því en flestir aðrir um sína daga að kynna hér á landi erlend ljóð í nákvæm- um og fáguðum þýðingum. Meðal annars varð hann fyrstur Islendinga til þess að þýða rússneskan skáldskap aö einhverju marki úr frummálinu og vann alla ævi að því að kynna löndum sinum gullöld rúss- neskrar ljóðlistar, öld Majakovskís, Pastemaks og Akhamatovu. í safninu eru tólf sögur eftir Geir og tvö leikrit eftir hann. Einnig er hér að finna flestallar ljóðaþýðingar Geirs sem birtust á prenti um fjörutíu ára skeið. Alls eru í bókinni yfir eitt hundrað erlend ljóð eftir rúmlega tuttugu skáld frá sjö þjóðlönd- um, auk sagna og minningabrota eftir rússnesku meistarana Gogol og Dostojev- skí, Pasternak og Jevtúshenko. Saman- lagt gefur allt þetta glögga mynd af ævi- starfi mikils listamarms. í upphafi bókar lýsir Þorgeir Þorgeir- son kynnum sínum af Geir og metur þátt hans í íslenskri menningarsögu en í lok bókar ritar Árni Bergmann grein um Rússland skáldskaparins eins og það birt- ist í þýðingum hans. Loks er í bókinni ritaskrá Geirs Kristjánssonar. Þorvaldur Kristinsson valdi efnið og annaðist útgáf- una. Heilbrigö þjóð - sjúk óþjóð A morgun kl. 12.05 heldur Jón Ólafur Isberg sagnfræðingur fyrirlestur i hádeg- isfundaröð Sagnfræðingafélags íslands sem hann nefnir „Heilbrigö þjóð - sjúk óþjóð“. Fundurinn er í stóra sal Norræna hússins. I fyrirlestrinum fjallar Jón Ólafur um rætur heilbrigðiskerfisins og hvers vegna það þróðast í þá átt sem það hefur gert síðastliðin 250 ár. Sérstaklega verður tek- in til umfjöllunar barátta við berklaveiki og kynsjúkdóma en þar koma fram áhersluatriði sem skipta máli varðandi afstöðu yfirvalda og almennings til heil- brigðis. Hvers vegna var það talið nauð- synlegt að þjóðin væri heilbrigð og hvað er heilbrigð þjóð? Rætt veröur um for- sendur núverandi heilbrigðiskerfís sem eru að mestu þær sömu og áður, en nú hattar fyrir nýjum tímum sem kannski gera þjóðina ennþá heilbrigðari. Þegar Trölli stal jólunum Barnabókin sívinsæla Þegar Trölli stal jólun- um eftir Dr. Seuss hefur lengi verið ófáanleg hér- lendis en er komin aftur í frábærri þýðingu Þor- steins Valdimarssonar. Trölli þolir ekki jólin en í næsta nágrenni við hann, í Þeim-bæ, halda menn þau hátíðleg með mat og drykk, söng og gjöfum. Eitt árið fær Trölli nóg. Hann arkar af stað nóttina áður en jólin ganga í garð og fjarlægir allt sem minnir á þau. Honum til mikillar furðu hljóma samt jólasöngvar að morgni og TröUa skUst að jólin felast ekki í steikinni, tré- nu eða pökkunum - heldur í hjörtum mannanna. Mál og menning gefur út.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.