Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2001, Side 6
ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2001
DV
Fréttir
mmmmmmá
Umsjón: Btrgir Guömundsson
netfang: birgir@dv.is
Jólasveinar á Alþingi
Á kreml.is er iðulega að finna hvassa
palladóma um menn og málefni og er
það ýmist í gamni eða alvöru. Á vefsið-
unn er nú að finna hugleiðingar um
hvernig það væri ef
„alþingismenn væru
alvöru, en ekki plat
jólasveinar". Þar getur
m.a. að líta eftirfar-
andi: „Stúfur - það
hlýtur að vera Ólafur
Öm Haraldsson, ekki
bara sökum fýsískrar smæðar heldur
einbeitts vilja til aö vera stór, þó hann
verði alltaf lítiIL Þvörusleikir - það
myndi vera Sólveig Pétursdóttir sem
reynir að sleikja allar þvörur sem að
henni eru réttar og skilar öngvu frá sér
nema fullsleiktu... Hurðaskellir - það er
freistandi að nefna Jóhönnu Sigurðar-
dóttur í þessu samhengi en Ágúst Ein-
arsson myndi vinna ef hann væri á
þingi. Skyrgámur - Jón Bjarnason, það
er bara til eitt orð sem lýsir þessum
gæja - SKYR... Gluggagægir - Kolbrún
Halldórsdóttir, vill helst fylgjast með
lífi okkar allra en það verður jú best
gert meö gluggagægjum.
Gáttaþefur - Það hljóta allir að sjá að
það er Pétur Blöndal, það er næstum
eins og hann sé fyrirmyndin að Gátta-
þef. Var Gáttaþefur til áður en Pétur
varð til?....“
Sendir Ögmundi tóninn
í pottinum fylgjast menn grannt með
því hvernig fjandskapurinn í orðræð-
unni milli framsóknarmanna og vinstri
grænna stigmagnast. Á vefsíöu sinni er
Valgerður Sverris-
dóttir að svara grein
frá Svanfríði Jónas-
dóttur um byggða-
stefnu en getur greini-
lega ekki stiilt sig um
að senda Ögmundi
Jónassyni kveðju í
leiðinni. Valgerður segir: „Hann (Ög-
mundur) hefur notað hvert tækifæri til
þess að berjast gegn því að flytja störf út
á land og sent mér tóninn í þeim efnum,
t.d. í sambandi við flutning Byggðastofn-
unar. Hann getur því bara átt sig meö
sína hentistefnu, sem miðast við það
hvernig vindar blása hverju sinni, auk
þess sem hann á erfitt með að skilja
milli stööu sinnar sem þingmanns og
formanns BSRB.“ Það fer að verða held-
ur ótrúlegt að hægt verði að mynda
vinstristjórn eftir næstu kosningar þeg-
ar tónninn er svona...
Össur spyr
En ólíkt VG þykir forusta Samfylk-
ingarinnar vera dugleg við að bjóða
framsóknarmönnum upp í vinstrimenú-
ett. Þannig hendir össur Skarphéðins-
son, formaður Sam-
fylkingarinnar, á það í
forustugrein á vefsíðu
flokksins í gær að
hæöi Davíð Oddsson
og Tómas Ingi Olrich
hafi í raun veist að
Halldóri Ásgrímssyni
í síöustu viku þegar þeir töluðu um
óheillaverk manna sem töluðu gengi
krónunnar niður með tali um evru og
ESB. „Á hvaða stig er samstarf í ríkis-
stjórn komið þegar forsætisráðherra get-
ur ekki lengur rætt augliti til auglitis
málefni Evrópusambandsins við utan-
ríkisráðherra en sendir honum tóninn
utan úr bæ einsog strákur á götu?“ spyr
Össur og kyndir undir þeim samhljómi
sem er milii Framsóknar og Samfylking-
ar í Evrópumálum
Spurt um Þórarin
Legið hefur í loftinu að frí Þórarins
Viðars Þórarinssonar frá forstjórastóli
Símans hafi átt að enda nú um mánaða-
mótin. Starfsmenn Símans bíða vist í of-
væni eftir því hvort
hann snýr aftur og
; mætir í vikunni en
spurst hefur af ferðum
Þórarins í samgöngu-
ráðuneytið nýlega.
Væntanlega hefur hann
— þá fengið línuna um
framhaldiö en enn hefur ekki tekist að
ganga frá sölunni á fyrirtækinu. Óskar
Jósefsson forstjóri sýnir ekkert
fararsnið á sér og tekur hann æ meiri
þátt í framtíðarstefnumörkun Símans...
Mikið kvartað yfir litlum snjómokstri í íbúðagötum í Reykjavík:
Mokað dag og nótt
- erfitt að komast að fyrir bílum, segir gatnamálastjóri borgarinnar
Sigurður Skarphéðinsson, gatna-
málastjóri Reykjavíkurborgar, segir
að klukkan íjögur i fyrrinótt hafi
verið lagt af stað með 45 snjómokst-
urtæki til að hreinsa snjó af öllum
helstu samgönguleiðum höfuðborg-
arinnar. Um 15 til 20 tækjum var
síðan bætt við á milli klukkan sjö
og átta í gærmorgun. Reyndar var
mokað meira og minna alla helgina
en vart hafðist undan vegna snjó-
komu.
Talsverðar kvartanir hafa verið
vegna lítils moksturs í íbúðagötum.
Sigurður segir að aðalvandamálið
sé að oft sé eriitt að koma mokst-
urstækjum að þar sem bílum er þétt
lagt viö göturnar. Því verði að bíða
eftir að íbúar komi bílum sínum í
burtu. Þetta hafi orsakað það að
viða lenti fólk í vandræðum um
helgina. Sigurður sagði að síðdegis í
gær hefði verið meiningin að allur
flotinn færi í að hreinsa húsagötur.
„Það er líka mjög algengt að fólk
kvarti vegna þess að við séum að
ryðja fyrir innkeyrslur. Því er til að
svara að við komumst einfaldlega
ekki yfir að moka út úr innkeyrsl-
um sem eru nokkrir tugir þúsunda
í borginni allri. Ef við ættum að
fara að stinga út úr hverri einustu
þeirra kæmumst við einfaldlega
ekki yfir það sem okkur er ætlað að
gera,“ sagði Sigurður.
„Okkar plan gengur út á það að
gera allar aðalgötur færar áður en
morgunumferðin hefst.“
Sigurður segir grunnflota snjó-
moksturstækja borgarinnar saman-
Skipt yfir á vetrardekkin
Margir ökumenn voru enn á sumardekkjunum þegar sjó fór aö kyngja niöur í
síöustu viku. Þaö var því mikiö aö gera á dekkjaverkstæöum borgarinnar í
allan gærdag enda flestir búnir aö fá nóg af vonlausu spóli í vetrarfæröinni.
DV-MYNDIR GVA
Veghefill ryður íbúðagötu í Reykjavík
Gatnamálastjóri segir oft erfitt aö koma stórum tækjum aö til aö ryðja vegna bíla sem lagt er í götunum.
standa af 8 öflugum vörubílum sem
bæði eru með tönn og saltkassa. Þá
er greiður aðgangur að verktökum
sem kallaðir eru út eins og í fyrri-
nótt. Þannig voru 37 snjómoksturs-
vélar á vegum verktaka komnar í
vinnu klukkan fjögur í gærmorgun
og um 15 til 20 bættust við þann
flota um þrem tímum síðar. Sigurð-
ur telur þetta þokkalegan tækja-
fjölda miðað við að gatnakerfi höf-
uðborgarinnar er um 370 km.
Klukkan sjö í gærkvöldi var byrj-
að að keyra burt snjó úr verslunar-
götum miðbæjarins. Var því haldið
áfram til miðnættis. í framhaldinu
var áætlað að keyra burt snjó af
þeim hlutum Miklubrautar þar sem
snjór er farinn að þrengja verulega
að akbrautinni.
Trausti Jónsson, veðurfræðingur
á Veðurstofu íslands, segir sjó og
úrkomu ekki vera að slá nein met
enn sem komið er. Hins vegar er bú-
ist við köldu veðri og snjókomu eða
éljum áfram næstu daga. Það þarf
því ekki mikið að hreyfa vind svo
allt verði kolófært á höfuðborgar-
svæðinu. „Það er einmitt það sem
maður óttast," segir Sigurður
Skarphéðinsson. Hann segir veður-
spá geri þó sem betur fer ekki ráð
fyrir neinu hvassviðri næstu daga.
Hjá Félagi íslenskra bifreiðaeig-
enda hefur verið annasamt eftir að
snjó fór að kyngja niður. Hafa þjón-
ustubila FÍB verið á þönum við að
starta rafmagnslausum bílum og
bjarga öðrum, bæði bensínlausum
og þar sem frosið hefur vatn i bens-
íni. Mjög algengt virðist vera að bíl-
ar verði rafmagnslausir í kuldum
eins og að undanfórnu. Stefán Ás-
grímsson hjá FÍB vildi koma þeim
tilmælum á framfæri við fólk að það
léti mæla rafgeyma bíla sinna á
næstu bensínstöð eða hjá rafgeyma-
þjónustum. Það væri einfalt mál að
Öskukarlar að störfum
Nauðsynlegt er aö fólk moki frá
sorptunnum sínum til aö tryggja þaö
aö hægt sé aö sinna þessari
bráönauösynlegu þjónustu.
komast að þvi hvort rafgeymarnir
væru orðnir lélegir. Hann segir raf-
orkuþörf nýrra bíla stöðugt fara
vaxandi. Hins vegar sé algengt að
bílarnir séu með helst til of litlum
rafgeymum. Þegar keyrt sé af stað i
kulda og snjó stuttar vegalengdir
dugi aksturinn ekki til að endur-
nýja orkuna á geymunum. Bara aft-
urrúðuhitarinn einn og sér taki raf-
magn á við hraðsuðuketil. Þá er eft-
ir að reikna með orkunotkun vegna
ljósa, miðstöðvar og annars búnað-
ar. -HKr.
Komdu og njóttu hátíðarstemningarinnar
í Smáralind þar sem jólasveinarnir og yfir 70 verslanir
og þjónustuaðilar bjóða alla velkomna.
Jóladagskráin í Vetrargarðinum í dag!
1630 og 17:30 JÓlasagan lesin
16:00 -18:00 Jólasveinn í Vetrargarði Smáralindar
17:00 og 18:00 Jólasveinar skemmta
Ævintýraheimur barnanna í JÓlalandÍnU i allan dag
Einnig verður líf og fjör í Veröidinni okkar og
göngugötunni í dag frá klukkan 16:00 þarsem
fiðlu- og harmonikkuleikarar skapa rétta
jólaandann.
(ij> Smáralind
\ -RÉTTI JÓLAANDINN
Verslanir opnar i dag milli klukkan 11:00 og 20:00 • www.smaralind.is