Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2001, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2001
11
x>v
Utlönd
Elgur ehf., símar 581 4070 og 567 4060
REUTER-MYND
Aöstoö úr óvæntri átt
Anders Fogh Rasmussen,
forsætisráðherra Danmerkur, fær
hjálp krata í skattamálunum.
Anders Fogh fær
aðstoð kratanna
Jafnaðarmenn á danska þinginu
hafa boðið stjórn Anders Foghs
Rasmussens aðstoð sína við að
hrinda í framkvæmd kosningalof-
orðum stjórnarflokkanna um að
koma í veg fyrir skattahækkanir.
Jafnaðarmenn hafa lofað borgara-
flokkunum að ekki verði lagðar
fram tæknilegar eða formlegar
hindranir til að koma í veg fyrir að
áform stjórnarinnar nái fram að
ganga.
Skattamálaráðherranum og fjár-
málaráðherranum hafa verið skrif-
uð bréf þessa efnis.
Hörð viðbrögð ísraelsmanna við sjálfsmorðsárásunum um helgina:
ísraelska stjórnin hefur sagt
hryðjuverkum stríð á hendur
REUTER-MYND
Kjörkassi í lögreglufylgd
Lögregluþjónn á Sri Lanka fylgir manni sem heldur á kjörkassa í höfuðborginni Colombo. Ibúar Sri Lanka ganga að
kjörborðinu á morgun til að kjósa sér nýtt þing. Tvö mál brenna á íbúum eyjarinnar um þessar mundir, stríðið við
skæruliða Tamíla og þrengingar í efnahagslífmu. Skoðanakannanir benda til að enginn flokkur fái hreinan meirihluta.
20 hefðu slasast á Gaza-svæðinu.
Eftir eldflaugaárásirnar réðust
ísraelskar skriðdrekasveitir inn í bæ-
inn Nablus og einnig Ramallah á
Vesturbakkanum og herma fréttir að
ein hersveitin hafi tekið sér stöðu í
um eins kílómetra fjarlægð frá höfuð-
stöðvum Yassers Arafats þegar hann
sat þar við störf í morgun.
Til skotbardaga kom á svæðinu og
mun einn meðlimur Fatha-samtaka
Arafats hafa fallið í skotbardaga í
bænum Nablus. Þá munu ísraelskir
bryndrekar hafa tekið sér stöðu við
aðþjóðaflugvöllinn í Gaza.
Tilgangur árásanna er fyrst og
fremst hefnd fyrir sjálfmorðsárásirn-
ar i ísrael um helgina, sem urðu 25
manns að bana og ekki síður til að
niðurlægja Arafat og minnka mögu-
leika hans á að komast á milli palest-
ínskra yfirráðasvæða.
Bandaríkjastjórn gert til hæfis:
Öryggissveitir Arafats hafa
handtekið 110 harðlínumenn
Snjóplögur
“Ég eignaðist svona snjóplóg á jeppann minn fyrir nokkrum árum
og er eldsnöggur að ryðja planið fyrir rútuflotann strax og byrjar
að snjóa. Plógurinn borgaði sig fljótt og hefur staðið fyrir sínu.“
JÓhannes Ellertsson, Vestfjarðaleið.
• Ein stærð sem hentar fyrir alla jeppa og stærri bíla.
• Fjarstýríng á rafstýrða hækkun/lækkun.
• Þægilegar festingar undir stuðara.
• Fljótlegt að festa á / losa af.
• Þú mokar sjálfur — það borgar sig fljótt.
• Fljótleg og einföld lausn þegar ryðja þarfsnjó af bílastæðum,
athafnasvæðum, göngu- og reiðvegum, heimskeyrslum og leiksvæðum.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels, sagði í gær að Yasser Arafat,
leiðtogi Palestínumanna, væri ekkert
annað en hreinn og beinn stuðnings-
maður hryðjuverka og því bæri að
taka hann sem slíkan. Á móti ásök-
uðu palestínsk yfírvöld Ariel Sharon
um að lýsa yfir stríði gegn palest-
ínsku þjóðinni og sögðu að Arafat
bæri enga ábyrgð á árásunum á
sama tíma og hann legði alla áherslu
á að handtaka palestinska harðlínu-
menn.
Sharon ávarpaði þjóð sina
skömmu eftir öflugar hefndarárásir í
gær og sagði einnig að Arafat væri
mesta ógnun við friðinn fyrir botni
Miðjarðarhafs. „Þetta eru ekkert
annað en hryðjuverk og tilraun til að
fæla israelsku þjóðina í burtu af
svæðinu. Það mun aldrei gerast og
við vitum hver ber ábyrgð á hryðju-
verkunum. Það er Arafat og enginn
annar og við höfum nú sagt hryðju-
verkunum stríð á hendur,“:, sagði
Sharon, en það var ákvörðun ísra-
Ariel Sharon
Ariel sharon, forsætisráðherra
ísraels, hefur sagt hryðjuverkum
stríð á hendur.
elsku ríkisstjórnarinnar eftir storma-
saman fund í fyrrinótt, sem stóð í að
minnsta kosti fimm klukkustundir.
Ríkisstjórnin klofnaði í afstöðu sinni
og gengu ráðherrar Verkamanna-
flokksins af fundi í mótmælaskyni.
Shimon Perers, utanrikisráðherra og
leiðtogi Verkamannaflokksins, sagði
að flokkurinn myndi nú endurskoða
afstöðu sína til ríkisstjórnarsam-
starfsins, þar sem þeir gætu engan
veginn sætt sig við harðlínustefnu
Sharons sem stefndi tilveru Israels-
ríkis í voða.
ísraelska ríkisstjórnin sýndi svo
sannarlega í verki að henni er al-
vara, þegar ísraelski herinn gerði öfl-
ugar eldflaugaárásir á stöðvar palest-
ínumanna á Gaza-svæðinu og á bæ-
inn Nablus á Versturbakkanum.
Meðal skotmarkanna var þyrluflug-
skýli Yassers Arafats og munu allar
þrjár einkaþyrlur hans hafa eyðilagst
í árásinni, auk lendingarpalls. Engar
fréttir höfðu i morgun borist um
mannfall í árásunum, en sagt að um
Yasser Arafat, forseti Palestínu-
manna, hefur látið öryggissveitir
sínar handsama rúmlega eitt hundr-
að róttæka múslíma, eins og banda-
rísk stjórnvöld hafa farið fram á.
Arafat á hins vegar á hættu að
lenda upp á kant við eigin þjóð fyr-
ir bragðið, að sögn breska blaðsins
Guardian í morgun.
Palestínskar öryggissveitir tóku
fimm menn í borginni Jenin á Vest-
urbakkanum, sem ísraelar segja að
sé helsta uppeldisstöð sjálfs-
morðsárásarmanna. Þrír hinna
handteknu tilheyra Hamas en hinir
tveir samtökunum Heilögu stríði ís-
lams. Mennirnir voru teknir í kjöl-
far sjálfsmorðsárásanna í Haifa og
Jerúsalem um helgina sem urðu 25
manns að bana.
„Ef skipunin þar um kemur mun-
REUTER-MYND
Arafat í vanda
Yasser Arafat, forseti Palestínu-
manna, hefur sigað öryggissveitum
sinum á harðlínumenn.
um við gera það,“ sagði Ahmed Ala,
yfirmaður í þjóðvarðliði Arafats.
„Þessir menn eru vinir okkar og
börðust með okkur gegn hernámi
ísraels en ég fylgi skipunum frá
æðstu stöðum."
Að sögn Guardian er ekki ljóst
hvaða áhrif aðgerðir sveita Arafats
gegn harðlínumönnum munu hafa á
tilraunir manna til að binda enda á
uppreisn Palestínumanna sem hef-
ur nú staðið í rúmt ár.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gær með miklum
meirihluta atkvæða nokkrar álykt-
anir þar sem meðal annars er hvatt
til þess að Palestiunumenn fái
sjálfsákvörðunarrétt. Sendiherra
ísraels kvartaði yfir því að ályktan-
irnar hefðu verið samþykktar eins
og ekkert hefði gerst um helgina.
5*Ví -.1
IIEFIJU I»IJ Sl-1) I»H\\A\ HIL?
Efþú hefurséð þennan bill sem stolið var
á sunnudagsmorgun úr miðbænum með
skráningarnúmerið KC 007 vinsamlegast
hafðu þá samband við
lögregluna í Reykjavík
eða við Grim Hannesson í síma 698-4157.