Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2002, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2002
I>V
Fréttir
Ekki vitað um alvarlegar skemmdir af völdum vatnavaxtanna:
i c.
Stórflóð í rénun
- rennsli í Skjálfandafljóti 25-faldaðist og hefur aldrei mælst meira á þessum árstíma
„Ástæða þessara miklu flóða er
fyrst og fremst gríðarleg úrkoma á
hálendinu, t.d. bæði á Kili og
Sprengisandi. Annars er það nýjast
að frétta að flóðin eru alls staðar í
rénum nema í Ölfusá við Selfoss en
þar mun flóðið ná hámarki fyrri
hluta dagsins í dag,“ sagði Árni
Snorrason hjá Orkustofnun i morg-
un um flóðin i gær og nótt en þau
voru aðallega í ám á Suðurlandi. Þá
krakka sem voru í skóla,“ sagði
Steinar.
Hann segir að ekki sé vitað um
tjón af völdum flóðanna. „Það er þó
greinilegt að landbrot er búið að
vera mjög mikið en það kemur ekki
i ljós endanlega fyrr en þetta sjatn-
ar. Eins er með girðingar og vegi,
við sjáum þetta ekki fyrr en flóðið
er gengið niður,“ sagði Steinar.
Það var ekki bara í Hvítá sem
Urriðafoss að sumri
Hér sést fossinn í sumarblíðu og sami foss hér til hliðar á síðunni er öllu
mikilúðlegri.
Urriðafoss í Þjórsá
Fossinn var óþekkjanlegur miðað við eðlilega sumarmynd, eins og sjá má.
stórflóð varð en áin lét reyndar
þannig að Gullfoss varð nánast
óþekkjanlegur og var ekki meira en
svo að gilið fyrir neðan fossinn
næði að taka við öllum vatns-
flaumnum. í Þjórsá urðu einnig gif-
urlegir vatnavestir og þar fór
rennslið í um 1.400 rúmmetra á sek-
úndu, úr um 400 rúmmetrum, og áin
rauf varnargarð viðÞrándarholt. Þá
óx Markarfljót mjög mikið þótt töl-
ur um vatnsmagn þar liggi ekki fyr-
ir en Markarfljót á það til að vaxa
mjög á þessum árstima, öfugt við
hinar árnar sem halda sér yfirleitt á
mottunni þar til vorflóðin heQast.
Árni Sigurðsson hjá Orkustofnun
segir að þótt hér hafi vissulega ver-
ið um mikil flóð að ræða hafi þetta
ekki verið stórflóð eins og stundum
koma á vorin. „Það sem er frábrugð-
ið í þessum flóðum er að í þeim er
enginn is og enginn snjór, enda er
þetta óvenjulegur tími fyrir stór-
flóð,“ segir Árni.
-gk
Horft heim að Auðsholtsbæjunum
Hvítá æddi yfir veginn heim að Auöshoitsbæjunum í gærdag, en myndin sýnir brúna yfir Litlu-Laxá í
Hrunamannahreppi. Bæirnir voru enn í morgun umflotnir vatni.
Genis krefur Islenska erföa-
greiningu um 600 milljónir
urðu mikil flóð í einstaka ám á
Norðurlandi, t.d. í Jökulsá í Skaga-
firði og í Skjálfandafljóti þar sem
vatnsmagnið fór úr um 25 rúmmetr-
um á sekúndu í um 600 rúmmetra
og eru þetta mestu vetrarflóð sem
vitað er um þar að sögn Árna.
„Þetta er mikið farið að sjatna og
væntanlega verður fært hingað í
dag,“ sagði Steinar Halldórsson,
bóndi í Auðsholti 4 í Hrunamanna-
hreppi, í morgun en Auðsholtsbæ-
irnir hafa verið umflotnir vatni síð-
an um hádegi í gær og voru nánast
sem eyja í hafinu. „Okkur tókst að
fara á báti og sækja þannig 12 hross
sem menn óttuðust um og það gekk
allt mjög vel. Hér var allt orðið
ófært fyrir venjuleg ökutæki upp úr
hádegi í gær en þá hafði ég farið á
dráttarvél skömmu áður og náð í
DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON
Svelgir og boöaföll
Markarfljót var eins og úfinn sjór
undir gömlu brúnni í gær.
Meira en úr-
koman ein
Markarfljót var í miklum ham í
gærdag. Áin fyllti næstum brúarop
gömlu brúarinnar við Þórs-
merkurafleggjann. Á tímabili var
óttast að áin rynni yfír varnargarð-
inn neðan við Stóra-Dímon. En áður
en til þess kom sljákkaði í henni.
Hjá Orkustofnun fengust þær upp-
lýsingar í gær að ekki hefði tekist
að ná sambandi við vatnshæðar-
mæla við ána í Emstrum, svo ekki
var hægt að sjá feril flóðsins.
Sigurgeir Ingólfsson, lögreglu-
maður í Hlíð undir Eyjafjöllum, hef-
ur oft farið yfir Markarfljót en seg-
ist aldrei hafa séð það í eins miklum
ham. Hann sagðist varla trúa þvi að
eingöngu væri um að ræða vatna-
vexti af völdum úrkomu. Eitthvað
hlyti að vera úr hverasvæðinu und-
ir Mýrdalsjökli. Hjá Orkustofnun
reiknuðu menn ekki með að um
væri að ræða jökulhlaup í ánni sam-
fara leysingunni. -NH
Þrotabú Genealogia Islandorum -
Genis og Þorsteinn Jónsson ætt-
fræðingur krefjast nærri 600 millj-
óna króna úr hendi íslenskrar
erfðagreiningar ehf. og Friðriks
Skúlasonar hf. vegna meints rit-
stuldar við gerð hins mikla ætt-
fræðigrunns sem nota á í vísinda-
legu skyni. Ef dómarar samþykktu
kröfu Genis væri þrotabúinu borg-
ið, en kröfur á hendur því nema
nærri 400 milljónum króna.
Dómkvaddir matsmenn, þeir
Gunnlaugur Haraldsson þjóðhátta-
fræðingur sem hefur stundað ætt-
fræði og Helgi Þorbergsson, dósent
og tölvunarfræðingur, munu næstu
vikumar kanna fyrir þrotabúið
ákveðna þætti varðandi málsókn
Genis á hendur Friðriki og íslenskri
erfðagreiningu. Þrotabúið vill láta á
það reyna hvort í þessari kröfu
Höfuðstöðvarnar
Þrotabú Genealogia Islandorum
ásamt Þorsteini Jónssyni ættfræð-
ing krefjast hundruð milljóna frá ÍE
vegna meints ritstuldar.
leynist von um fé fyrir ættfræðiupp-
lýsingarnar.
Helgi Jóhannesson hrl. er skipta-
stjóri þrotabús Genis. Hann sagði
að beðið væri niðurstöðu mats-
mannanna og kvaðst vonast til að
hún birtist sem fyrst. „Þegar niður-
staða er fengin sjáum við hvort efni
eru til að halda áfram eða ekki,“
sagði Helgi í samtali við DV í gær.
Helgi Þorbergsson vissi ekki í
gær um nýjan mann við matið,
Gunnlaug Haraldsson, sem kemur í
stað Ögmundar Helgasonar sem er
hættur störfum. Þeir Helgi og Ög-
mundur unnu ásamt öðrum störfum
í hálft ár við matið en voru síðan
beðnir að hætta í fyrrasumar. Nú er
framundan að ljúka matinu og sagði
Helgi að það væri gífurleg vinna og
ljóst að hún tæki mikinn tíma.
Reynir Karlsson hrl., lögmaður
Friðriks Skúlasonar, sem vinnur
náið með lögmanni ÍE, Jóhannesi
Björnssyni, sagði í gær að þrotabú-
ið hefði reitt fram málskostnaðar-
tryggingu upp á 1,5 milljónir króna.
Reynir sagði að fyrir héraðsdómi
yrði krafist sýknu. -JBP
Tvenn jarðgöng samtímis
Halldór Blöndal,
forseti Alþingis,
vill að hafnar
verði framkvæmd-
ir við jarðgöng
bæði fyrir austan
og norðan samtím-
is. Segir hann að
það verði mikið
áfall fyrir viðkomandi byggðir ef
ekki verði staðið við áform um að
hefja framkvæmdir á báðum stöð-
um nokkurn veginn samtímis.
Um er aö ræða jarðgöng milli
Ólafsfjarðar og Siglufjarðar fyrir
norðan og Reyðarfjarðar og Fá-
skrúðsfjarðar fyrir austan.
Lögga á nýbúanámskeið
Lögreglumenn sitja
nú námskeið í
framhaldsdeild
Lögregluskólans
um málefni ný-
búa. Meiningin
er að auka færni
lögreglumanna til að
vinna að málum þar sem útlend-
ingar koma við sögu og eins til að
geta betur leiðbeint þeim. - Mbl.
greindi frá.
Skammar ráðuneytið
Umboðsmaður Alþingis hefur
sett ofan í við dómsmálaráðu-
neytið vegna neitunar þess á gjaf-
sókn til handa konu í forsjár-
deilumáli við föður tvíbura. Haföi
ráðuneytið hafnað beiðni kon-
unnar í tvígang. Samkomulag
náðist síðan milli foreldranna í
þinghaldi fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur. Umboðsmaður bein-
ir þeim tilmælum til ráðuneytis-
ins að framvegis verði meðferð
sambærilegra mála hagað í sam-
ræmi við tilmæli hans.
á Fréttablaðið
Jónas Kristjáns-
son, fyrrverandi
ritstjóri DV, hefur
verið ráðinn rit-
stjóri Fréttablaðs-
ins. Hefur hann
störf við hlið
Gunnars Smára
Egilssonar rit-
stjóra á morgun, laugardag. Gunn-
ar Smári lýsir Jónasi sem nestor
íslenskrar blaðamennsku á forsíðu
Fréttablaðsins í morgun og væntir
mikils af komu hans að blaðinu.
Rannsakar fugladauða
Náttúrufræðistofnun Islands
hefur sent menn til að rannsaka
mikinn svartfugladauða í Öxar-
firði og á fjörum við Melrakka-
sléttu. Þar skolaði á land þúsund-
um dauðra fugla í síðustu viku.
ÁTVR opin lengur
Opnunartími verslana ÁTVR í
Reykjavík hefur verið lengdur á
laugardögum um tvo tíma. Fram-
vegis verður opið í öllum vínbúð-
unum nema þeirri í Austurstræti
til kl. 16 en þar verður áfram ein-
ungis opiö til kl. 14 á laugardög-
um. Ekki er á dagskrá að hafa opið
á sunnudögum, enda skortir til
þess lagaheimild.
helgarblað
I Helgarblaði DV verður birt op-
inskátt viðtal við Jónínu Benedikts-
dóttur, fram-
kvæmdastjóra
Planet Pulse, þar
sem hún lýsir erf-
iðri baráttu í við-
skiptalífinu, skrif-
um bókarinnar
Dömufrís, sem hún
gaf út fyrir jólin, og
veðraskilum og nýjum markmiðum
í einkalifi sinu.
í blaðinu er einnig ítarlegt viðtal
við Hallgrim Helgason sem skrifaði
Höfund íslands, umtöluðustu skáld-
sögu á íslensku í áratugi. Hallgrim-
ur fjallar um gagnrýni á bókina,
gerir hreint fyrir sínum dyrum og
svarar andskotum sínum.
í blaðinu er einnig fjallað um
mat, ferðalög, ást, myndskreytingar
og islensk sakamál. -HKr./-PÁÁ
Nýr ritstjori