Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2002, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2002, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2002 Fréttir I>V Úthlutun Byggðastofnunar á veiðiheimildum ýmist tilefni stríðs eða friðar: Bölvun byggðakvótans - tugmilljónir færðar völdum fyrirtækjum á silfurfati Þingeyri'' 387 toni Bildudalur 205tonn Grimsey «92 tonn ■ f J \ * w HofsósC114tonri , 2 tonn d 12 tonn ■ r 67 tonn J§jj|| Fáskrúösfjörður <■ 113 tonn Stöðvarfjörður/ 94 tonn ^ Breiðdalsvík akvótiH* árinu 2001 Bakkafjörður Bíldudalur Breiðdalsvík Borgarfjörður eystri Drangsnes Fáskrúsðfjörður Ýmsar útgerðir Þórður Jónsson Utgerðarfélag Fiskverkun Karls Úthlutun Vaðhorn ehf„ ehf. Breiðdælinga flskvinnsla Sveinssonar ehf. ófrágengin Ýmsar útgerðir fiskvinnsla Grímsey Hofsós ísafjörður Seyðisfjörður Stöðvarfjörður Sigurbjörn ehf., fiskvinnsla Höfði hf„ Fjölnir hf„ Úthlutun Skútuklöpp, Sæbjörg ehf., fiskvinnsla Ýmsar útgerðir fiskvinnsla flskvinnsla ófrágengin fiskvinnsla Reynslan af úthlutun byggða- kvóta í því skyni að hjálpa byggðar- lögum í vanda er mismunandi. Á sumum stöðum hefur reynslan orð- ið sú aö í stað þess að kvótinn gefi íbúum atvinnu og þar með aukin lífsgæði þá hefur hann orðið tilefni sundrungar og deilna. Þar hefur kvótinn, sem þó telst ekki mikill, orðið til sannkallaðrar bölvunar. Byggðakvótinn er á forræði Byggðastofnunar sem ætlað er að úthluta honum til bágstaddra sveit- arfélaga eftir ákveðnum reglum. Þau sveitarfélög sem fengið hafa kvóta eru á Vestfjörðum, Norður- landi og Austfjöröum. Vesturbyggð fær 205 tonn, ísafjarðarbær 387 tonn. Á suðurfirði Austfjarðá fara 388 tonn sem skiptast á Breiðdals- vík, Fáskrúðsfjörð og Stöðvarfjörð. Þá fara 67 tonn á Seyðisfjörð. Til lít- illa byggðarlaga með einhæft at- vinnulíf fer 451 tonn. Þar er um að ræða Drangsnes á Ströndum, Hofs- ós, Grímsey, Bakkafjörð og Borgar- Qörð eystri. í þessum tilvikum er kvótanum dreift á margar útgerðir á hverjum stað. Frumskilyrði er að aflinn sem veiddur er út á byggða- kvótann fari til vinnslu í héraðinu. Þá er sú kvöð sett á það fyrirtæki sem þiggur að það leggi fram eigin kvóta á móti byggðakvótanum og öllu sé landað heima. Gerðir eru sérstakir samningar í hverju tilviki þar sem fyrirtækin eru ýmist skuldbundin til að tvö- falda kvótann eða þrefalda. Þá er ákvæði í samningunum að ef þiggj- andi byggðakvótans brýtur gegn ákvæðum hans þýði það fyrirvara- lausa uppsögn. Um er að ræða veru- leg verðmæti ef litið er tU leigu- verðs á aflaheimUdum. Að veiða eitt kíló úr þorskkvóta í eigu annars að- Ua kostar nú um 160 krónur og tonnið kostar því 160.000 krónur en aðrar bolfisktegundir eru ódýrari. Til samanburðar má geta þess að verð á hverju lönduðu kílói í bein- um samningum er gjarnan öðru hvorum megin við 100 krónur. Meira fæst þó oftast ef landað er um fiskmarkaö. Byggðastofnun hefur til ráðstöfunar 1500 tonn tU árlegrar úthlutunar víða um land. Mest- megnis er þama um að ræða þorsk en aðrar tegundir eru í bland. Verð- mæti þessa potts er um 150 milljón- ir króna árlega. Hæst hafa deilur risið um úthlut- un í Vesturbyggð, þar sem tekin var sú ákvörðun að úthluta öUum kvót- anum til Þórðar Jónssonar ehf. á Bíldudal. Þar er um að ræða 205 tonn sem ætluð eru til að hressa við atvinnulíf á Bíldudal og á Patreks- firði. Vegna lamaðs atvinnulífs og griðarlegra erfiðleika á BUdudal í kjölfar gjaldþrots fiskvinnslufyrir- tækisins Rauðfelds, eins fyrirtækja Rauða hersins, var ákveðið að láta aUan kvótann á Bíldudal í þeirri von að staðurinn lifnaði við. Þegar byggðakvótinn var auglýstur í upp- hafi sótti fiskvinnslan Oddi hf. á Patreksfirði um úthlutun og bauðst tU að þrefalda kvótann. Ekki var á þetta faUist og gengið til samninga við forsvarsmenn Þórðar Jónssonar ehf. Deilt um bæjarfulltrúa Fljótlega risu deilur um það ráðslag. Sérstaklega þótti athuga- vert að framkvæmdastjóri fyrirtæk- isins, Jón Þórðarson, er einnig bæj- arfuUtrúi í Vesturbyggð. Raddir voru uppi um að hann hefði beitt áhrifum sínum tU að fá fram þessa ■V Þingeyri Byggöakvótinn hefur oröiö til blessunar og rífandi atvinna er á staönum. niðurstöðu. Margir urðu tU að lýsa því að hann stæði ekki við samn- inga og sögusagnir voru um að fyr- tækið leigði frá sér kvóta. Engar sannanir voru þó lagðar fram um að byggðakvótinn væri þannig orðinn aö söluvöru útgerðarinnar í stað þess aö skapa atvinnu á Bíldudal. Erfitt er að færa sönnur á að útgerð leigi frá sér kvóta því leynd hvílir yfir því hvað er að baki færslum. Ef færð eru 10 tonn af einum báti á annan getur það alit eins þýtt að eigandi kvótans sé að láta veiða fyr- ir sig. Ótal færslur eru frá Þórði Jónssyni ehf. á óskyldar útgerðir. DV hefur skoðað þessar færslur en svo er að sjá að í langflestum tilfeU- um hafi aflanum verið landað tU vinnslu á Bíldudal sem þýðir að við- skiptin eru eðlileg og kvótinn BUd- dælingum til hagsbóta. Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur verið í miklum vanda vegna þessa. í haust óskaði bæjarstjórn eftir skrif- legum skýringum frá Þórði Jóns- syni ehf. um ráðstöfun kvótans. Jón Þórðarson neitaði koUegum sínum í bæjarstjóm um að svara skriflega en bauðst til að svara munnlega. Það gerði hann en sumum þóttu svörin loðin og ekki til þess að varpa ljósi á málið. Sjómenn á flótta Samkvæmt óstaðfestum heimild- um DV vantaði eitthvað upp á að fyrirtækið uppfyllti skilyrði samn- ingsins en skýringin er sögð sú að útgerð sem fékk kvóta hjá fyrirtæk- inu hafi ekki staðið viö samning um löndun. Jakob Kristinsson, vélstjóri á BUdudal, reit opiö bréf eftir ára- mótin þar sem hann sakar Jón Þórðarson um að stuðla að því að 15 sjómenn á þremur skipum þurfi að yfirgefa heimabyggð sína vegna þess að byggðakvótinn sé þeim ekki ætlaður. Heldur vUji bæjarfuUtrú- inn ráða Pólverja á skip sín og nýta betur „150 mUljóna króna jólagjöf' frá Byggðastofnun. Bæjarstjóm Vesturbyggðar hefur afþakkað að Fáskrúðsfjörður Aö sögn var brotist inn í gám til aö leita byggöakvóta. Bíldudalur Bæjarfulltrúi sakaöur um aö misnota aöstööu sína og ná í byggöakvóta. Friöur er um byggöakvótann. leggja til hvert byggðakvótinn fari og hefur það eitt aðhafst að óska eft- ir skýringum á ráðstöfun aflans. Innbrot í gám Á Fáskrúðsfirði er ástandið jafn- vel verra en í Vesturbyggð. Þar er munstrið svipað og Þóra Kristjáns- dóttir sveitarstjórnarfulltrúi þiggur 113 tonna byggðakvóta fyrir hönd fyrirtækis síns, Vafhoms ehf. í samningi fyrirtækisins og Byggða- stofnunar er tilgreint að vinna skuli „allt aö 300 tonnum" á Fáskrúðs- firði. Þóra segir ákvæðiö vera inni fyrir mistök starfsmanns Atvinnu- þróunarfélags Austfjarða þar sem fyrirtækið hafi aldrei lofað öðru en því að tvöfalda kvótann. Vafhom var stofnað árið 1999, þegar stjórn Byggðastofnunar, undir forsæti Eg- Us Jónssonar, flokksbróður Þóra, ákvað að úthluta byggðakvótanum tU fyrirtækisins. Eftir að tvö fisk- veiðiár voru liðin lagðist meirihluti hreppsnefndar Búðahrepps gegn því að Vafhom fengi kvótann áfram þar sem ekki væri staðið við samning- inn. Minnihlutinn studdi áfram- haldandi úthlutun. Þetta gerðist að undangengnum harðvítugum deil- um sem leiddu til kærumála. Meðal annars sakar Þóra varaoddvita Búðahrepps, Guðmund Þorgríms- son, um að hafa farið inn í gám á vegum Vaðhoms og rótað í kömm í því skyni að kanna hvort byggða- kvótinn væri nýttur til útflutnings á ferskum fiski. Atvikið var kært til lögreglu sem innbrot í aprUmánuði 2001. Byggðastofnun féUst ekki á þau sjónarmið meirihluta hreppsnefnd- ar að svipta bæri fyrirtækið byggð- arkvóta og ákvaö að gefa forsvars- 'mönnum Vaðhorns tækifæri þriðja árið gegn óljósu loforði um, meiri heimalöndun. Til fyrirmyndar Önnur dæmi um úthlutun byggðakvóta sýna að árangur næst og friður ríkir. Bæjarstjóm Isafjarð- arbæjar ákvað að beina þeim 387 tonnum sem Flateyri, Suðureyri og Þingeyri eru ætluð til Vísis á Þing- eyri. Á þeim tíma var Þingeyri i sárum eftir gjaldþrot Rauðsíðu og forsvarsmenn útgerðarfyrirtækis- ins Vísis í Grindavík buðust til að taka við rekstri frystihússins og halda þannig uppi öflugri atvinnu fyrir tUstUli byggðakvótans og eigin kvóta. Árangur hefur náðst og Þing- eyringar eru hæstánægðir. Sömu sögu er þó ekki að segja af Flateyr- ingum og Súgfirðingum sem kært hafa úthlutunina tU samkeppnisyf- irvalda á þeim forsendum að um mismunun sé að ræða. í öðmm byggðarlögum sem fengið hafa byggðakvóta fara ýfmgar ekki hátt þótt vissulega séu ekki allir sáttir. í úttekt Byggðastofnunar vegna byggðakvótans kemur fram það mat að árið 1999-2000 hafi þessi ráðstöf- un skilað 60-70 ársverkum þeim sem njóta. Útvaldir og útskúfaðir DeUurnar um byggðakvótann eru skUjanlegar þegar tU þess er litið að Byggðastofnun er með þessu að færa völdum fyrirtækjum tugmUlj- ónir króna á silfurfati. Sumum er gefmn kvóti á meðan aðrir þurfa að greiða allt að 160 krónum fyrir að veiða hvert kíló eða 580 krónur fyr- ir að veiða einn meðalþorsk. Hinir útvöldu verða fyrir aðkasti þeirra útskúfuðu og ólgandi deilur ein- kenna áður friðsamleg samfélög. J Umsjón: Birgir Guömundsson netfang: birgir@dv.is Lag fyrir Lúðvík Athygli hefur vakið að Lúðvík Bergvinsson, alþingismaður Sam- fylkingar, sem er Vestmannaeying- ur að uppruna, hefur verið orðaður við að verða bæj- . arstjóraefni Vesf I mannaeyinga. í I Vestmannaeyjum I eru tveir listar með menn í bæj-1 arstjórn. Sjálf- stæðisflokkur er í meirihluta en i minnihluta situr Vestmannaeyjalistinn sem að standa Framsóknarflokkur og Sam- fylking. í ljósi örlaga Árna Johnsens og þess að farsæll bæjar- stjóri sjálfstæðismanna, Guðjón Hjörleifsson, hyggst stíga út af hinu pólitíska sviði þykir mönnum sem lag hafl myndast fyrir Vest- mannaeyjalistann og þá hugsanlega Lúðvik til að ná meirihluta. Óvist er þó að Framsókn samþykki að flagga alþingismanninum í baráttu- sætið. Nú eða aldrei segja stuðn- ingsmenn Lúðvíks ... Dauða Ijónið Áhugamenn um vínveitingar og íþróttir hafa komið að lokuðum dyrum á Rauða ljóninu frá ára- mótum. Sem kunnugt er er veit- ingastaðurinn í eigu rekstrarfé- lags KR en reksturinn hef- ur verið leigð- ur út. Nokkrir hafa reynt fyrir sér upp á síðkastið en ekki haft erindi sem erfiði að þvi er virðist. Nú segja gárungarnir að fullreynt sé með að þarna verði rekstur í óbreyttri mynd og hafa tekiö upp á því að kalla staðinn Dauða ljónið ... Villutrú Hallgríms Þáttur Þorfinns Ómarssonar á Rás 1, í vikulokin, þykir ómissandi fyrir þá sem fylgjast með þjóðmála- umræðunni. Þar fær hann til sín gesti sem ræða, atburði liðinnar viku, oft á opin- skáan hátt. Á dögunum tóku hús á honum Björn Bjarnason | menntamálaráð- herra og Hall-1 grímur Helgason ' rithöfundur. Talið barst að borgar- málunum og lögðu menn við eyrun þegar Hallgrímur hafnaði nánast stuðningi við R-listann en virtist hins vegar nokkuð jákvæður gagn- vart Sjálfstæðisflokknum. Ljóst er að mörgum R-listamanninum í vinahópi Hallgríms, og þeir em margir, þótti þetta ekki gott útspil hjá höfundi Höfundar íslands því baráttan um borgina muni verða hörð og því ekkert svigrúm til að gamalgrónir jafnaðarmenn eins og Hallgrimur skorist undan merkj- um ... Copy-Aid! Annað kvöld, laugardagskvöld, mun Bandalag íslenskra leikfélaga standa fyrir miklum tónleikum í Kompaníinu á Akureyri. Fram koma Hundur í óskilum, Túpílakar, Tampax-tríóið, Ljótu hálfvitarn- ir og trúbador- inn Frosti Frið- riks og fleiri, en þetta eru allt listamenn úr röð- um aðildarfélaga Bandalagsins. Tónleikamir eru haldnir til þess að fjármagna kaup Bandalags leikfélaga á 500.000 kr. Ijósritunarvél sem er í raun lífæð starfseminnar því handrit fyrir leikfélög um land alit munu fara í gegnum þá vél. Þykir tónlistar- mönnum málið svo mikilvægt að tónleikaherferð er farin og gengur hún almennt undir nafninu „Copy- Aid tónleikarnir"! ...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.