Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2002, Side 9
9
FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2002_______________________________________
X>V____________________________________________________Neytendur
^ Ríkisskattstjóri gefur út reglur um hlunnindi:
Arshátíö í útlönd-
um skattskyld
- ef fyrirtækid býður og hún kostar meira en 10.000 kr.
Ekki skattskyldir símar
En þeir sem fá frjáls afnot afGSM-síma sem launagreiöandi lætur honum í
té þarfaö telja sér 12.000 kr. til tekna oggreiöa af þeim skatt.
í gær var sagt frá því í DV að rík-
isskattstjóri hefði hert reglur um
hlunnindi til launafólks. Hann sagði
í samtali við blaðið að tilgangurinn
með reglunum væri ekki að auka
krónumar í ríkiskassanum heldur
að stuðla að jöfnuði meðal okkar
þegnanna. Með hlunnindum er átt
við hvers konar gæði sem mönnum
hlotnast frá vinnuveitanda og eru
skattskyld, t.d. tryggingar, sima-
kostnaður, tölvur, líkamsrækt, gjaf-
ir, fæði, húsnæði, fríar ferðir, áskrift
fjölmiðla og bifreiðahlunnindi. Þar
sem reglur þessar snerta mjög marga
er ekki úr vegi að skoða þær aðeins
nánar.
Fyrst ber að nefna bifreiðahlunn-
indi. Þeir starfsmenn sem fá bifreið
frá fyrirtækinu til fullra umráða
skulu telja sér til tekna 20% af verði
bifreiðarinnar sé hún tekin í notkun
árið 2000 eða siðar en annars 15% og
skiptir þá engu hvernig hann í raun
notar bílinn. Greiði vinnuveitandi
einnig rekstrarkostnað bifreiðarinn-
ar hækkar skattmatið um 6% og
verður 26% á nýjum bifreiðum. Sem
sagt að þeir sem fá tveggja milljóna
króna bíl til fullra umráða hjá vinnu-
veitanda hafa með því hækkað tekjur
sínar um einar 400.000 kr. og þarf að
greiða fullan skatt af þeirri upphæð.
Séu afnotin hins vegar takmörkuð
eru þau metin td tekna miðað við 55
kr. á hvem ekinn kílómetra.
Sími, tölvur og föt
Mörg fyrirtæki útvega starfs-
mönnum sínum GSM-síma til af-
nota. Séu einkaafnot heimil af sím-
anum skal launþeginn meta það sér
til tekna á 12.000 kr. á ári. Hins veg-
ar þarf launamaður að telja sér
25.000 kr. til tekna hafi hann tölvu í
eigu launagreiðanda til frjálsra af-
nota á heimili sínu.
Fatnaður, hvort sem um er að
ræða formlegan einkennisfatnað
eða annan fatnað, sem vinnuveit-
andi lætur launþega í té án endur-
gjalds, er skattskyldur. Ríkisskatt-
stjóri hefur geflð út viömiðunarverð
fyrir einkennisfatnað þar sem t.d.
buxur reiknast sem 4000 kr. tekjur,
einkennisyfirhafnir sem 11.000 kr.
og skór sem 6.000 kr., svo eitthvað
sé nefnt. Annar fatnaður er talinn
til tekna á gangverði. Þessar reglur
gilda þó ekki um nauðsynlegan ör-
yggis- og hlifðarfatnað.
Skattur af árshátíðinni
Með þessum hertu reglum geta fyr-
irtæki ekki lengur boðið starfsmönn-
um sínum í fríar ferðir til útlanda,
t.d. á árshátíðir, því ef kostnaður af
einni slíkri ferð fer yfir 10.000 kr. er
hún orðin skattskyld. Eins má sam-
eiginlegur kostnaður af slíkum við-
urgjörningum, eins og skattstjóri
orðar þaö, á einu ári ekki fara yfir
40.000 kr. á starfsmann. Til viður-
gjörninga sem eru skattskyldir telj-
ast fríðindi og gæði tengd starfinu
sem starfsmenn njóta án þess að
greiða fyrir fullt verð, hvort sem þeir
fá það til eignar, afnota, láns eða
neyslu. Hins vegar eru árshátíðir
starfsmanna, jólagleði og sambæri-
legar samkomur, starfsmannaferðir
og fyrirbyggjandi heilbrigðisþjónusta
meðal þess sem ekki er skattskylt.
Að lokum má nefna að þeir sem
ferðast vegna starfs síns á kostnað
vinnuveitenda og safna í leiðinni
vildcirpunktum eiga að færa þá fríu
flugmiða sem þeir taka út á punkt-
ana til tekna sem hlunnindi. -ÓSB
Fréttatilkynning:
Nýr vor- og sumarlisti frá Freemans
Nýi vor- og sumarlistinn frá
Freemans er kominn út. I vörulist-
anum er leitast við að geta boðið
upp á vönduð föt á sanngjömu verði
fyrir alla fjölskylduna. Freemans er
sem fyrr með mikið úrval af kven-
fatnaði og ættu ungar sem eldri
konur að geta fundið margt við sitt
hæfi í listanum. Þá er mikið úrval
af karlmannafatnaði, öll þekktustu
íþróttavörumerkin og fjölbreytt úr-
val af bamafótum.
Einnig býður Freemans upp á
fiöldann allan af ábreiðum og rúm-
fatnaði. Þá býður Freemans upp á
fatnað í stærðunum 42 til 56, sem og
fatnað sérhannaðan fyrir lágvaxnar
konur.
Freemans rekur verslun i Hafnar-
firði og þar má finna mikið af vör-
unum úr nýja listanum.
Pöntunarsími Freemans, 565 3900,
er opinn alla daga vikunnar frá 9 til
22. Enn fremur má fara á heimasíðu
Freemans og panta vörurnar úr list-
anum, slóðin er www.freemans.is.
Það er hægt að nálgast vörulist-
ann í verslun Freemans að Bæjar-
hrauni 14, Hafnarfirði (baka til) eða
í öllum helstu bókaverslunum
landsins.
Vörulistinn kostar 400 kr.
FRAMBOÐSFRESTUR
Ákveóió hefur verið aó viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu
um kjör stjórnar, trúnaóarmannaráðs og endurskoðenda
í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur fyrir árió 2002. Listar
þurfa að hafa borist kjörstjórn á skrifstofu Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7,
1. hæó, eigi síðar en kl. 12 á hádegi föstudaginn
18. janúar 2002.
Kjörstjórnin
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Rafkaup
Ármúla 24. 108 Revkiax/ík • Sími 585 2800
Ármúla 24, 108 Reykjavík • Sími 585 2800
Fax 585 2801 • www.rafkaup.is • rafkaup@rafkaup.is