Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2002, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2002, Blaðsíða 28
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREISEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum alian sólarhringinn. 550 5555 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2002 Flugleiðir gera stóran leiguflugssamning: Milljarða samn- rf ingar í höfh - nýjar áherslur í rekstrinum lofa góðu Flugleiöir hafa gert stórsamning við dönsku feröaskrifstofuna Krone Rejser um að ein 757-200 Boeing- þota Flugleiða verði notuð í sólar- landaflugi ferða- skrifstofunnar frá Kaupmannahöfn. Samið er til tveggja ára og verður þotan ekki í öðrum verkefnum á meðan. Alíslensk áhöfn starfar í vélinni og verður flogið til Nice, Malaga og Alicante. Fyrsta ferðin verður farin á næstu vikum og er samningurinn metinn á 1,5 millj- arða íslenskra króna. Auk þess gæti verðmæti hans hæglega orðið meira fyrir Flugleiðir. Lesa má um samstarfið á heima- síðu Krone Rejser og má skilja af umfjölluninni að samstarfiö við Flugleiðir verði burðarás starfsem- innar á næstunni. Það er dótturfélag Flugleiða, Flugleiöir - leiguflug hf„ sem gerir Guöjón Arngrímsson. samninginn og segir Guðjón Arn- grímsson, upplýsingafulltrúi Flug- leiða, að vélin sem nýtist í þetta hefði annars verið tekin út úr flot- anum. „Þetta er mjög mikilvægur samningur og í samræmi við þá stefnu að auka leiguflugsþátt starf- seminnar,“ sagði Guðjón i samtali við DV í morgun. Áherslur hafa verið minnkaðar í áætlunarflugi félagsins en þetta er annar stóri leiguflugssamningurinn sem Flugleiðir gera eftir að ákveðið var að stokka upp starfsemina. Áður hafði verið samið um leiguflug frá Boston til sólarlanda og þá er samningur við Kanada- menn nánast fullkláraður. Heildar- verðmæti þessara þriggja samninga nemur skv. upplýsingum blaðsins á fjórða milljarð. Þrengingar hafa verið hjá Flug- leiðum í kjölfar hryðjuverkanna 11. september sl. en samningarnir vekja bjartsýni um framhaldið. Flókið er hins vegar að breyta starf- semi félags með þessum hætti og hefur m.a. þurft að semja upp á nýtt við áhafnir um ýmis mál. -BÞ Björn talar fýrir því að taka áhættuna „Ég yrði nýr maður á þessum fram- boðslista og þess vegna finnst mér eðlilegt að ég sjái niðurstööu í skoð- anakönnuninni, áður en ég tek ákvörðun um það, hvort ég fer í leið- togaprófkjörið, heimili miðstjórn það,“ sagði Bjöm Bjamason menntamálaráð- herra við DV í gær aðspurður hvort hann hygðist taka þátt í leiðtogapróf- kjöri Sjálfstæðisflokksins. Áður en til þess prókjörs kemur mun fara fram könnun hjá fulltrúaráðinu um hvern eða hverja það viU sjá nýja á listan- um. I nýjum pistli á vefsíðu sinni í morgun segir Björn að eftir því sem á hafi liðið hafi sífellt fleiri hvatt hann til að fara fram í borginni. Síðan seg- ir Björn: „Þegar ákveðið hefur verið að gefa 1400 manns í Verði kost á að nefna nýja menn á lista Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík er sjálfgefið, að mitt nafn komi þar til álita í ljósi þess sem á undan er gengið. Menn fá aldrei að vita, hvort eitthvað sé áhættunnar virði, nema þeir taki hana.“ Sjá fréttaljós á bls. 4 -BG Okumaður jeppa lést Banaslys varð sunnarlega á Holtavörðuheiði í gærkvöld þegar jeppabifreið og vöruflutningabifreið rákust þar saman, við einbreiða brú yfir Norðurá. Talsverð hálka var á veginum og f >*- akstursskilyrði ekki sem best. Öku- maðurinn sem lést ók jeppabifreið- inni en ökumann flutningabifreið- arinnar sakaði ekki. Lögreglumenn frá Borgarnesi og tækjabifreið það- an fóru á vettvang og einnig kom aðstoð víöar að, auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til. Björgunaraðgerðir á vettvangi báru hins vegar ekki árangur og lést maðurinn. Ekki er unnt að birta nafn hans að svo stöddu. -gk Gamla Bergárbrú- in brotnaði Gamla brúin yfir Bergá í Nesjum, skammt vestan við Höfn í Horrnafirði, brotnaði niður þegar áin gróf undan brúarstöplunum austan megin. Úrhellisrigning og hvassviðri var í Nesjum í gær (9.01) og fyrradag og áin óvenjumikil. Brúin var áöur i alfaraleið á þjóð- vegi 1 en þegar hringvegurinn kom var þjóðvegurinn lagöur sunnan við Hóla og ný brú byggð og síðan hef- ur þessi brú aðallega þjónað bænd- um og hestamönnum. Brúin þótti á sinni tíð talsvert mannvirki og mikil samgöngubót þegar hún var reist á milli stríða. Sjá nánar um vatnavexti bls. 2 -JI DV-MYND HARI Hættuleg búö! Vegfarendur í Bankastrætinu hafa að undanförnu orðið varir við að búðareigandi einn hefur séð sig tilneyddan að vara við versiun sinni vegna vörutegundarinnar sem þar er á boðstólum. Maðurinn á myndinni virðist hins vegar ekki hafa látið skittið hafa nein áhrif á sig og keypt sér varning í búðinni hættulegu. Kristinn H. Gunnarsson vill róttækar breytingar: Byggðakvótinn verði ekki ókeypis - heldur seldur hæstbjóöanda „Það er mín skoðun að ekki gangi upp til lengdar að úthluta ókeypis kvóta. Þess vegna verður að afnema þetta kerfi að úthluta völd- um aðilum ókeypis kvóta," segir Kristinn H. Gunnars- son, formaður stjórnar Byggðastofnunar, um það fyrirkomulag sem er á varð- andi byggðakvóta sem færð- ur er útgerðum í byggðar- lögum sem standa höllum fæti. Víða um land standa harðar deilur vegna byggðakvótans. Átök eru í Vest- urbyggð, þcir sem bæjarfulltrúi er bor- inn þeim sökum að hygla eigin út- gerð. Sömu sögu er að segja á Fá- skrúðsfirði, þar sem heiftarlegar deil- ur eru innan sveitarstjórnar og vara- oddvitinn var kærður til lögreglu fyr- ir að brjótast inn í gám þar sem hann var, að sögn, að kanna hvort byggða- kvóti væri misnotaður. Samkeppnis- yflrvöld hafa til meðferðar kæru aðila í ísafjarðarbæ sem kært hafa úthlutun til Þingeyrar. Kristinn segir ljóst að breytingar verði að koma til. „Um þetta standa endalaus- ar deilur þar sem verið er að gefa mönnum verðmæti. Þetta veldur deilum milli þeirra sem þurfa að borga kvótann og hinna sem fá hann án endur- gjalds. Klögumál eru 1 gangi vfðar en í Vesturbyggð og á Fá- skrúðsfirði. Þar nefni ég fsa- fjörð þar sem kæra er í gangi vegna úthlutunarinnar til Fjölnis á Þingeyri. Það gæti orðið athyglisvert ef Samkeppnis- stofmm kæmist að þeirri niðurstöðu að óheimilt væri að úthluta ókeypis byggðakvóta. Þá er ég smeykur um að sama niðurstaða ætti við í sjálfu kvótakerfinu," segir hann. Kristinn, sem lagt hefur tO að farin verði svokölluð fymingarleið í kvóta- kerfinu, segir að deilur um byggða- kvótann séu af sömu rót og þær sem valda ólgunni um sjálft sjávarútvegs- kerfið, þar sem fyrirtækjum sé einnig mismunað. „Almennt finnst fólki það ósann- gjarnt að gefa verðmæti sem eru í eigu þjóöarinnar til fárra útvalinna. Sumir útgerðarmenn stunda útgerð í dag með veiðiheimildir sem þeir þurftu ekki að greiða fyrir en aðrir hafa þurft að kaupa eða leigja sínar veiðiheimildir," segir hann. Hann segir að jákvæði þátturinn við byggðakvótann sé sá að tekist hafi að leggja ákveðnum stöðum til veiði- heimildir og þar með atvinnu og halda verði áfram á þeirri braut. „Hluti veiðiheimilda verði vistaður á ákveðnum stöðum. Sennilega væri best að bjóða byggðakvótann út á ákveðnum svæðum og tryggja þannig atvinnu. Það má hugsa sér að kvótinn verði boðinn út til nokkurra ára í senn með þeim skilyrðum að landað yrði á viðkomandi svæði," segir Krist- inn. Aðspurður um það hvort hann telji möguleika á að vinna hugmyndum sínum brautargengi innan Framsókn- arflokksins segist hann telja svo vera. „Ég hef meirihiutastuðning fyrir breytingum í flokknum," segir Krist- inn. Sjá fréttaljós: „Bölvun byggða- kvótans", á bls. 6. -rt Kristinn H. Gunnarsson. DV-MYND JUUA IMSLAND Gaf sig Það sem einu sinni þótti samgöngubótin besta er nú hrunið. Rafport fyrir fagmenn og fyrirtæki, heimili og skóla, fgrir röð og reglu, mig og þig. Dýbgtauegi 14 • sfmi SS4 4443 • if.is/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.