Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2002, Page 6
24
Innkaup
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002
DV
Rápað í Smáratind
Takkaskór
Takkaskór
seljast
grimmt fyrir
stráka og stelp-
ur enda bæði kynin á fullu í fót-
boltanum. Þessir Adidas-skór
fást í Útilífi og kosta 3.990 krón-
ur. Þar fást skór í bama- og img-
lingastærðum sem kosta allt að
11.490 krónur.
^^^^^Toppur
Hr Blúndur, rykk-
gjf ingar og dúllerí set-
HHH ur svip sinn á sum-
HHH|| artískuna. í Miss
Selfridge er að
finna þennan örþunna topp með
fínlegu mynstri sem kostar 2.790
krónur.
Calvin Klein
^ » Úrval sól-
W Sleraugna er
mikið og fjöl-
breytt þar
sem ægir
saman alls kyns hönnun og mis-
munandi lituðum glerjum. Þessi
sólgleraugu frá Calvin Klein fást
í Otpical Studo Sól. Glerin eru
handslípuð með vöm gegn
úfjólubláum geislum. Verðið er
13.200 krónur.
Nike-götuskór
Gott er að vera vel skóaður í
körfubolta. Þessir götuskór
frá Nike fást í Intersport
og vel á skóla-
^^lóðum og annars
staðar úti við. Þeir
kosta 6.890 krónur. Þeir fást
lika í bama- og unglingastærð-
um og kosta þá 4.480 krónur.
Fyrir fullorðna
Fullorðnir geta líka haft gam-
an af litfógr-
um sokkum
eins og fást í
SockShop.
Þessir em reynd-
ar á grínaktugum
nótum og kosta 690 krónur
parið.
Barbieskór
^ j Ungar stúlkur
* “■ •* virðast aUtaf jafn
hrifnar af Barbie-dúkkum og
aUs kyns Barbie-vörum. í skó-
verslun Steinars Waage var okk-
ur tjáð að Barbie-skómir seldust
eins og heitar lummur. Parið er
á 2.995 krónur og fæst í stærð-
unum 22-32.
Matur 2002
Sýningar á palli
Þeim sem ætla sér á sýninguna
Matur 2002 nú um helgina er bent á
að dagskrá er á tveimur pöllum nær
allan tímann. Á palli 1 fer fram
keppni í matvælaiðnaði, svo sem
nemakeppni, keppni um kjötiðnað-
armann ársins, framreiðslumann
ársins, eggjakökukeppni og kál-
hausinn, sem er grænmetiskeppni.
Á palli 2 verða annars konar sýn-
ingar og er dagskráin eftirfarandi:
Föstudaeur
Kl. 18.00 Opnun brúðkaup.is
Tískusýning
Tónlist
Laugardaeur
Kl. 9.30-14.30 íslandsmeistara-
keppni í blómaskreytingum
Kl. 14.30 Tískusýning
Kl. 15.00 Brúðhjón ársins 2002 val-
in
Kl. 16.00 Verðlaunaafhending í ís-
landsmeistarakeppni í blómaskreyt-
ingum
Kl. 16.30 Tískusýning
Sunnudagur
Kl. 11.30-14.30 íslandsmót kaffi-
barþjóna
Kl. 15.00 Tískusýning
Kl. 16.00 Undirfatasýning
Kl. 16.30 Tískusýning
Dagmar Haraldsdóttir og Jónas Páll Björnsson bera hitann og þungann af skipulagningu Matar 2002:
Starfsgleði og metnaður
skín úr hverju andliti
DV-MYND HARI
Allt á fullu við undirbúning
Dagmar Haraldsdóttir og Jónas Páll Björnsson á fullu viö undirbúning sýningarinnar Matur 2002 sem
fram fer í nýja fjölnota íþróttahúsi í Kópavogi um helgina.
Matur 2002
„Það er gríðarlegur undirbúningur fyrir svona
sýningu enda mikið í lagt og allir reyna að gera
sýninguna sem glæsilegasta. Það er ótrúlega gam-
an að fylgjast með undirbúningnum á lokasprett-
inum því starfsgleðin og metnaðurinn skín úr
hverju andliti. Við höfum séð ótrúlega hluti ger-
ast hér á hverjum degi,“ segja þau Dagmar Har-
aldsdóttir, sölu- og markaðsstjóri sýningarinnar
Matur 2002, og Jónas Páll Björnsson, fram-
kvæmdastjóri sýningarinnar, í samtali við DV-
Innkaup.
Matur 2002 er 6. matvælasýningin sem haldin
er í Smáranum í Kópavogi en sýningin hefur ver-
ið haldin annað hvert ár síðan 1992. Helstu
sýnendur eru fyrirtæki sem tengjast mat eða mat-
argerð á einn eða annan hátt. Vinsældir sýning-
arinnar hafa aukist ár frá ári og einnig umfang.
Síðast var sýningin haldin í Tennishöllinni í
Kópavogi þar sem sýnendur voru á annað hund-
rað og gestir yfir 17.000. Sýningin verður nú í enn
stærra húsnæði, splunkunýrri ijölnotahöll í
Smáranum, Knatthúsi Kópavogsbæjar. Það er
9000 fermetrar og hiö glæsilegasta í alla staöi.
Að sýningunni standa Matvís, regnhlifarsam-
tök fyrir öll félög í matvælaiðnaðinum, Fróði og
Kópavogsbær en að henni kemur einnig fjöldi
styrktaraðila.
Matur um mat
„Svona sýning er nauðsynleg í okkar þjóðfélagi
þar sem matarmenning blómstrar og mikill al-
mennur áhugi er á mat og öllu sem viðkemur
mat. Tilgangurinn er að fá alla þá sem starfa í
þessum greinum á einn stað þannig að gestir fái
yfirsýn og greinargóöar upplýsingar um allt það
nýjasta sem er að gerast og geri sér einnig grein
fyrir hve framarlega við stöndum þegar matur er
annars vegar,“ segja Dagmar og Jónas Páll.
Matur 2002 er þríþætt sýning, þ.e. keppni í
ýmsum greinum matargerðar, kaupstefna og eig-
inleg sýning sýnenda sem eru fjölmargir. Þá er
ótalin brúðkaupssýning sem verður mjög um-
fangsmikil og glæsileg.
Dagmar og Jónas segja fyrirmyndina fengna
erlendis frá þar sem fyrirtæki, stofnanir og ráðu-
neyti hafa sameinast um sýningar á einum stað
þar sem nýjungar í tækjum, tólum og mat eru
kynntar. „Þetta er t.d. kjörinn vettvangur fyrir
innkaupastjóra fyrirtækja sem geta kynnt sér
ýmsar nýjungar og einnig almenning sem getur
kynnt sér vörumar sem hann sér daglega en veit
kannski ekki mikið um. Á sýningunni verða full-
trúar fyrirtækja fyrir svömm og geta gefið ítar-
legar og greinargóðar upplýsingar um þær vömr
sem fyrirtæki þeirra er að kynna.“
Snillingar keppa
Fimmtudaginn 18. apríl og fyrri hluta föstu-
dags 19. apríl verður sýningin opin fyrir boðs-
gesti. Boðsgestir em þeir sem sýnendur vilja
bjóða og fólk í matvælageiranum. Sýnendum er
heimilt að selja vöm meðan á sýningu stendur.
Með þessu móti hefur verið hægt að kynna vömr
á áhrifaríkan hátt með hagstæðum tilboðum sem
gestir hafa kunnað vel að meta.
Sýningin verður siðan opin almenningi frá kl.
16.00 föstudaginn 19. apríl til kl. 19.00 sunnudag-
inn 21. apríl. Aðgangur fyrir fullorðna er 800
krónur, 400 krónur fyirir 6-14 ára og ellilífeyris-
þega en ekkert er greitt fyrir yngri en 6 ára. Böm
fá þó ekki aðgang að sýningunni nema í fylgd
með fullorðnum.
Dagmar og Jónas Páll vilja leggja sérstaka
áherslu á íslandsmeistaramót fjölmargra hópa
sem starfa í þessum geira og gerð er grein fyrir
hér til hliðar. Verðlaunin verða afhent á sýning-
unni og á skjá fyrir ofan sýningarsvæðið geta
gestir fylgst með tilburðum keppenda í návígi.
„Við eigum afburða fagfólk í hvers kyns matar-
gerð, fólk sem er sannarlega á heimsmælikvarða
í sínu fagi.“
Verði alþjóðleg
Dagmar og Jónas Páll hafa verið í fullu starfi
við undirbúning sýningarinnar frá þvi í ágúst og
ekki veitt af tímanum enda í mörg hom að líta.
Hildur Jónsdóttir bættist síðan í hópinn um ára-
mótin. Þau segja spennuna hafa verið að hlaðast
upp. „En þetta verður kannski svolítið skrýtið
eftir á. Við höfum unnið að sýningunni allan
þennan tíma en svo kemur ein helgi og allt er
búið,“ segja þau. En því fer fjarri að taka beri þau
orð bókstaflega. Þegar er byrjað að leggja drög að
næstu sýningu, árið 2004. Stefnan er að gera mat-
arsýninguna að alþjóðlegri sýningu.
„Það fylgjast mjög margir erlendir aðilar með
þessari sýningu og við fáum umtalsverða umfjöll-
un í erlendum fjölmiðlum. Erlendis er fólk forvit-
ið vegna þeirrar grósku sem er hér í matarmenn-
ingu almennt og við höfum orðið vör við vilja er-
lendra aðila að fá að vera með.“ -hlh
Sérstök brúðkaupssýning innan sýningarinnar Matur 2002:
Brúðkaup skipa stóran sess
Matur 2002
Á sýningunni Matur 2002 í Smáranum um
helgina munu um 50 fyrirtæki sýna og kynna allt
sem varðar brúðkaup og brúðkaupshald. Margt
forvitnilegt og skemmtilegt verður á staðnum og
leggja einstök fyrirtæki mikið i sinn hluta. Sem
dæmi má nefna að Hótel Selfoss mun koma með
á staðinn brúðarsvítu í 18. aldar stíl sem í fram-
tíðinni verður í nýju hóteli sem verið er að reisa
á Selfossi.
Á brúðkaupssýningarsvæðinu verður reist 40
fermetra brúökaupstjald þar sem I gangi verður
ein samfelld brúðkaupsveisla með tónlist, klaka-
skurði og mat. Eins verður svæði þar sem útstill-
ingahönnuður mun setja upp mismunandi út-
færslur eða sýnishorn af brúðkaupshaldi og
verða notaðar vörur frá sýnendum sem verða á
svæðinu. Þar gefst gestum kostur á að sjá vörurn-
ar í sínu rétta umhverfi og notkunarmöguleika
þeirra.
I tengslum við brúðkaupssýninguna verða í
gangi tískusýningar þar sem Debenhams, Brúðar-
kjólaleiga Dóru og Undirfataverslunin Ynja í
Kópavogi sýna brúðarkjóla, samkvæmisfatnað og
undirföt. Einnig verða nokkrar hárgreiðslustofur
og fórðunarfræðingar að störfum alla helgina og
sýna brúðargreiöslur og nýjustu linumar í fórð-
un og naglastofa kynnir þjónustu sína. Bakarar
munu og baka og skreyta tertur svo úr verði
hreinustu listaverk, gullsmiðir kynna fram-
leiðslu sína og ljósmyndari mun kynna brúðar-
myndatökur, svo fátt eitt sé nefht.
Rómantísk stemning
Valgeröur Magnúsdóttir, starfskona Völusteins, var í óöaönn aö ieggja lokahönd á bás fýrirtækisins en í
honum veröa kynntar fallegar vörur sem væntanlega prýöa einhver brúökaup í sumar.
Að lokum má geta þess að vefurinn brud-
kaup.is verður opnaður formlega á fóstudag,
klukkan 18.00, en í framtíðinni er honum ætlað
að vera gagnvirkur miðill um allt sem viðkemur
brúðkaupum. í dag má fmna á þessum vef allt
sem viðkemur brúðkaupssýningunni. -ÓSB