Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2002, Page 7
wv/
c
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2002
DV
_______25
Innkaup
Matur 2002
Fyrirlestrar - námskeið
Á sýningunni Matur 2002 í
Smáranum um helgina verða á
dagskrá margir forvitnilegir fyr-
irlestrar, kyruiingar og nám-
skeið sem ætluð eru almenningi.
Á sumum þeirra er boðið upp á
smökkun. Greiða þarf 500-1500
kr. inn á sum þeirra.
Krydd á æðra plani
Sigfrið Þóris-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
Pottagaldra, fjall-
ar um þróunar-
sögu kryddsins,
virkni þess í matargerð og til
lækninga:
föstudag kl. 15-16, laugardag
kl. 14-15 og sunnudag kl. 15-16.
Espresso, saga og uppruni
Saga kaffis og espresso. Fyxir-
lestur og smökkim, stjómað af
skólastjóra eina alþjóðlega kaffi-
skólans, Lavazza Training Cent-
er, á Ítalíu. Fer fram á ensku:
fostudag kl. 16-17.
Vinningsvín Slow Food
Viðurkenningar Slow Food &
Gambero Rosso, „Þrjú glös“, em
ein af eftirsóttustu verðlaunum
sem vin getur hlotið. Þorri
Hringsson fjallar um þessi verð-
laun og stjómar smökkun á
þeim vinum sem fáanleg em á
íslandi: fostudag kl. 18-19.
ítalskir ostar og eðalvín
*Haraldur Halldórsson
frá veitingahúsinu
Sommelier nýtm- aðstoð-
ar Albertos Mericos, eins
fremsta vínþjóns ítaliu
og sérfræðings Ostabúð-
arinnar við Skólavörðu-
stig, við smökkun. Fyrir-
lesturinn fer að hluta til
fram á ensku:
laugardag kl. 13-14 og sunnu-
dag kl. 17-18.
Mývatnsreyking
í Mývatnssveit em viðhafðar
aldagamlar hefðir við reykingu
á siiungi úr Mývatni. Jón Stef-
ánsson og fleiri bjóða smökkun
og segja söguna á bak við gaml-
ar og góðar hefðir úr sveitinni:
laugardag kl. 15-16.
Kaffi og heimsbyggðin
í þessum fyrirlestri verða
teknar fyrir hvaða aðferðir em
notaðar við lögun kafiis í ólík-
um heimshlutum. Fyrirlestur á
ensku og smökkun í umsjón
Lavazza-kaffiskólans:
laugardag kl. 16-17.
Hið íslenska fjallalamb
Á Norðausturlandi er einstak-
ur stofn sauöfjár sem hefur
sterk gæðaleg einkenni sökum
landfræðilegrar ein-
angrunar. Garðar
Eggertsson hjá
Fjallalambi á
Kópaskeri segir frá
upprunalegri íslenskri aðferð
við vinnslu á hangikjöti og nýj-
ungum í vinnslu lambakjötsaf-
urða. Smökkun og ábendingar
inn notkunarmöguleika í klass-
ískri og alþjóðlegri matargerð:
sunnudag kl. 13-14.
Brauð og hægur bakstur
Tveir ungir íslenskir bakarar
hafa fært ferska strauma á borð
landsmanna með gæðabakstri og
nýstárlegri framsetningu rétta
þar sem brauð leikur aðalhlut-
verk. Jói Fel. og Hafliði Ragn-
arsson (Mosfellsbakari) segja frá
bakstri og brauðvenjum í hinni
viðu veröld og stýra smökkun:
sunnudag kl. 14-15.
Kálhausinn og eggjaköku-
keppni
Matur og matreiðsla
ur Gísladóttir, Kaffitári, Bankastræti. Á sunnu-
daginn kemur svo í ljós hver af þessum kaffibar-
þjónum verður íslandsmeistari og keppir á
heimsmeistaramótinu í Ósló í júní.“
Keppendur um íslandsmeistaratitilinn laga
Espresso, Cappuccino og einn frjálsan drykk. At-
riðin sem metin eru til stiga eru m.a. framkoma
kaffibarþjónsins, bragð og útlit drykkjarins og
framleiðsla hans.
Kaffibarþjónamir era búnir að ganga í gegnum
margra mánaða þjálfun áður en þeir verða svo
góðir að komast í landsliðið. Kaffibarþjónar eru
ný stétt í þjófélaginu og með störfum sínum lyfta
þeir kaffimenningunni á hærra plan. Þótt stéttin
sé ung eiga íslenskir kaffibarþjónar glæsilegan
feril. Sem dæmi má nefna að fyrsti íslandsmeist-
arinn, Erla Kristjánsdóttir, varð í öðru sæti á
heimsmeistaramótinu árið 2000 og fulltrúi ís-
lands árið eftir, Lilja Pétursdóttir, náði fjórða
sæti.
„Okkar besta veganesti er trúin á okkur sjálf
sem þjóð, hin ágæta G-mjólk frá MS, nýbrennt
kaffi og vel þjálfaðir kaffibarþjónar sem munu
koma okkur framarlega á þessu sviði. Allt þetta
ætlum við að kynna fyrir gestum sýningarinnar
Matur 2002,“ segir Sonja. -ÓSB
Blómaskreyting-
ar fyrir
brúðkaup
Blómaskreytingar
Á sýningunni Matur 2002 verður keppt í blóma-
skreytingum en sú keppni mun vera sú fyrsta
sinnar tegundar hér á landi, i a.m.k. tuttugu ár.
Uffe Balslev, blómaskreytir og formaður félags
blómaskreyta, segir að þrátt fyrir þaö séu tólf
Gissur Guðmundsson, eigandi Tveggja fiska og for-
seti klúbbs matreiðslumanna, segir að helgin verði
stórkostleg þvi mikið verði um að vera hjá íslenskum
matreiðslumönnum, sem og erlendum kollegum
þeirra.
„Á sýningunni verða sex keppnir sem tengjast mat
og matreiðslu. Fyrst ber að nefna að matreiðslumað-
ur ársins verður krýndur, væntanlega eftir harða
keppni. Undanúrslit fyrir þá keppni voru í janúar en
þá tóku 12 manns þátt. Fimm af þeim komust í úrslit
og keppa þeir um titilinn á laugardag." Keppendum-
ir eru: Ámi Þór Jónsson frá Perlunni, Einar Geirs-
son frá Tveimur flskum, Gunnar Karl Glslason frá
Sigga Hall, Lárus Gunnar Jónsson frá Apótekinu og
Ragnar Ómarsson frá Hótel Holti.
Verkefhið í þessari keppni er að elda þarf barra frá
Máka, en það er fyrirtæki sem elur þessa nýstárlegu
flsktegund hér á landi. Til að gera aðalrétt fá mat-
reiðslumennimir tvö kálfalæri og kálfalifur sem þeir
geta matreitt að vild og í eftirréttinn á að nota Val-
hrona súkkulaði.
Dómarar frá Norðurlöndunum, Kanada og
Englandi dæma og er dæmt eftir Norðurlandareglum
í matreiðslu.
Á sunnudeginum er svo keppt um titilinn mat-
reiðslumaður Norðurlanda en þar taka þátt keppend-
ur frá öllum Norðurlöndunum. Fulltrúi íslands í
þeirri keppni er Elmar Kristjánsson frá Perlunni en
hann var matreiðslumaður íslands á síðasta ári.
„Svo erum við með skemmtilega eggjakökukeppni
þar sem flmm fræknir alþingismenn keppa um hver
þeirra gerir bestu eggjakökuna. Kálhausinn kallast
síðan grænmetiskeppnin þar sem helstu grænmetis-
staðimir í bænum keppa í gerð bestu réttanna úr því
hráefni. Einu skilyrðin þar er að uppistaða hráefhis-
ins sé íslenskt grænmeti," segir Gissur.
Nemendur úr Hótel- og matvælaskólanum munu
einnig keppa sín í milli um helgina, m.a. í súpugerð
og i Barilla-keppni Sláturfélags Suðurland en þar
þurfa nemamir að nota pasta og annað hráefni sem
SS annaðhvort framleiðir eða flytur inn. Að auki er
nemakeppni þar sem valinn verður fuUtrúi íslahds í
norrænu nemakeppnina i matreiðsln að ári.
Gissur segir að matreiðslumenn frá Norðurlönd-
unum standi framarlega í sínu fagi, t.a.m. sigri þeir
oft í keppni eða séu ofarlega. „Ég tel að mikil sam-
vinna milli matreiðslumanna frá þessum löndum
skili sér í þessum góða árangri. Við hittumst tvisvar
á ári og á fóstudag verður haldinn stjómarfundur hjá
Norðurlandasamtökum matreiðslumanna hér á landi
og eru um 30 erlendir gestir komnir hingað til að
sækja hann,“ segir Gissur að lokum.
Sonja Grant, framkvæmdastjóri Kaffitárs og
landsliðsþjálfari kaffibarþjóna, segir að á sýning-
unni verði landslið okkar i þessari grein statt og
að þar verði íslandsmeistari kaffibarþjóna val-
inn.
„í samstarfi við MS verða kaffibarþjónamir í
banakaffistuði að sýna Mjólkurlist. Hjörtu, lauf-
blöð og fuglar em meðal þeirra fjölmörgu
mynstra sem landsliðið sýnir. Kaffibarþjónamir í
landsliðinu era: Ása Jelena Petterson, Kaffitári í
Gallerí Sautján, Ásgeir Sandholt, í bakaríi Sand-
holt, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Café Konditori
Copenhagen, Kristín Bjömsdóttir, Kaffibrennsl-
unni, Njáll Björgvinsson, í Te og kaffi, Ragnheið-
Uffe
Balslev
blóma-
skreytir
Hann er
formaöur
félags
blóma-
skreyta en
tólf slíkir
eru skráöir
til fystu
fagkeppn-
innar í ára-
tugi.
skráðir tU keppni, en hún er opin fyrir alla þá
sem vinna með blóm.
„Keppnin fer þannig fram að keppendur mæta
á svæðið með aUt sem tU þarf, eins og blóm, und-
irstöður og verkfæri. Blómin verða að vera heU,
ekki má eiga við þau áður en undirbúningur
hefst. Keppendur fá svo þrjá tíma í undirbúnings-
vinnu og tvo tíma í sjálfri keppninni. Að þessu
sinni er keppt i gerð brúðarvandar, barmblóms
og brúðarskarts, sem i raun getur verið hvað sem
er tengt brúðkaupi."
Spurður um hvað sé haft tU hliðsjónar þegar
blómaskreytingar eru dæmdar segir Uffe að litið
sé á hugmyndina og útfærslu hennar, litasam-
setningu og tækniútfærslu. Þrír dómarar dæma
verkin og kemur einn þeirra erlendis frá.
Blómaskreytar hafa flestir tveggja ára nám í
faginu að baki en nú stendur tU að lengja námið
í þrjú og hálft ár, eins og annað iðnnám og er Uffe
ánægður með það. „Það er svo margt sem blóma-
skreytar þurfa að læra, t.d. má nefna að innan
námsins er listasaga, litasamsetning og vörameð-
höndlun, svo fátt eitt sé nefnt."
Islendingar góðir að elda
Gissur Guömundsson, forseti Klúbbs matreiöslumanna, segir aö matreiösiumenn frá Noröurlöndunum
standi framarlega í sínu fagi, t.a.m. sigri þeir oft í keppni eöa séu ofarlega.
Sonja
Grant,
landsliðs-
þjálfari
kaffibar-
þjóna
„Okkar
besta
veganesti
er trúin á
okkur sjálf
sem þjóö,
hin ágæta
G-mjólk frá
MS, ný-
brennt
kaffi og vel
þjálfaöir
kaffibar-
þjónar. “
Verðum í
banakaffistuði
Kaffibarþjónar