Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002
Fréttir ___________ X>V
Ráðgátan um misvísandi skoðanakannanir:
Niðurstöðurnar svip-
aðar þrátt fýrir allt
- þegar tekið er tillit til skekkjumarka
Útflutningsverðlaun
Delta hf. hlaut út-
flutningsverðlaun
forseta íslands fyrir
árið 2002. Róbert
Wessman, forstjóri
Delta, veitti verð-
laununum viðtöku
á Bessastöðum i
gær. Þetta er í fjórt-
ánda sinn sem útflutningsverðlaun
forseta íslands eru afhent en þau
eru veitt í viðurkenningarskyni fyr-
ir markvert framlag til eflingar út-
flutningsverslun og gjaldeyrisöflun
íslensku þjóðarinnar.
Fylgiskannanir með skekkjumörkum
Skekkjumörk +/- 5,4% Skekkjumörk +/- 5% Skekkjumörk +/- 3%
Eflaust hafa margir furðað sig á
því hve niðurstöður skoðanakann-
ana um fylgi framboða til borgar-
stjórnar, sem birtar hafa verið und-
anfama daga, virðast misvísandi.
Þannig hefur fylgi Sjálfstæðisflokks-
ins mælst frá rúmum 39% upp i tæp
50% á skömmum tima og fylgi
Reykjavíkurlistans frá 49% upp í
ríflega 56%. í einni könnun reyndist
R-listi hafa 17% forskot en í annarri
hafði D-listi 1% forskot. Kannanirn-
ar voru gerðar á svipuðum tima og
virðast niðurstöðumar því í fljótu
bragði fela í sér annaðhvort að stór
hópur kjósenda sé sífellt að skipta
um skoðun eða að sumar kannanir
séu alls ekki marktækar.
Hins vegar er í flestum tiivikum
rétt að túlka niðurstöður kannana á
þann veg að ef fylgi reynist t.d. 50%
og skekkjumörk könnunarinnar em
3% séu 95% líkur á að raunverulegt
fylgi sé á bilinu 47-53%. Þótt 50%
fylgi sé birt sem niðurstaða könnun-
arinnar er jafnlíklegt að niðurstað-
an sé í raun 47% eða 53%.
Fróðlegt er að skoða niðurstöður
síðustu fjögurra skoðanakannana i
Reykjavik með þessum gleraugum.
Stuðst er við uppgefin skekkjumörk
þeirra sem framkvæmdu kannan-
imar, en þó verður að hafa þann
fyrirvara að skekkjan er iðulega því
meiri sem fylgið er nær 50%. Ekki
voru forsendur til að taka tillit til
þess hér en það hefur ekki mikil
áhrif á niðurstöðuna.
Við þessa athugun kemur í ljós að
niðurstöðumar sem virtust svo ólíkar
eru í raun nokkurn veginn þær sömu.
Þegar skekkjumörkin eru höfð í huga
er hægt að koma þeim öllum heim og
saman við tiltekinn „sannleika" - með
einni undantekningu.
Eins og sést á meðfylgjandi skýr-
ingarmynd samræmast állar niður-
stöðurnar því að fylgi R-lista sé í raun
á bilinu 53-54,1%. Þrjár af fjórum nið-
urstöðum samræmast þvi að fylgi D-
lista sé í raun á bilinu 40,3-42%; nið-
urstaða Talnakönnunar fellur ein
utan við þessi mörk en þó munar ekki
nema 2,5 prósentustigum.
-ÓTG
Veturinn aö gefa sig
Enda þótt enn gæti næturfrosts á íslandi og morgnarnir séu í svalara lagi er
sól kominn hátt á loft og hitar landsmenn ágætlega um miöjan dag,
mannlífiö ber þess merki aö sumariö er í nánd.
Myndin er teklin í Kóþavogslaug.
Ráðherra stefnt fyrir dóm
Áma M. Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra hefur verið birt stefna vegna
málshöfðunar Magnúsar Þórs Hafsteins-
sonar fréttamanns gegn ráðherranum.
Er það vegna ærumeiðandi og sak-
næmra ummæla sem Ámi viðhafði I
viðtali við Ómar Garðarsson í Fjölsýn
(sjónvarpsrás í Vestmannaeyjum) þann
23. nóvember 2001 um brottkast afla.
Krefst Magnús ómerkingar ummæla
ráðherra um sig og að ráðherrann verði
dæmdur til refsingar vegna þeirra um-
mæla. Þá er þess krafist að ráðherrann
verði dæmdur til að greiða stefnanda
500 þúsund krónur í miskabætur auk
dráttarvaxta og málskostnaðar. Gert er
ráð fyrir að málið verði dómtekið í Hér-
aðsdómi Reykjaness þann 8. maí nk.
I niðurlagi stefnunnar segir að við
mat á framangreindum ummælum telji
stefndi að hafa verði í huga að þau orð
eru viðhöfð af manni sem gegnir áhrifa-
og virðingarstöðu í þjóðfélaginu og sé
því tekið meira mark á en almennum
borgara. Aðdróttanir um óheiðarlega
fréttamennsku, og þá sérstaklega frétta-
fólsun, séu mjög alvarleg árás á æru
fréttamanns og til þess fallnar að rýra
álit hans í augum samborgaranna.
-HKr.
Ótrúlegustu munir á uppboði
Árlegt uppboð óskilamunadeildar
lögreglunnar í Reykjavík er í
Vöruskemmunni á morgun. Þar kenn-
ir að vanda ýmissa grasa og segir Þór-
ir Þorsteinsson, umsjónarmaður deild-
arinnar, að sífellt fleiri munir séu
boðnir upp.
Að vanda eru það reiðhjólin sem eru
fyrirferðarmest en ýmislegt annað
skemmtilegt finnst. Það sem stendur ef-
laust upp úr er kelidúkka sem böm
hafa oft í rúminu hjá sér þegar þau
sofa. Hún fannst uppáklædd úti á víða-
vangi en starfsmenn deildarinnar
klæddu hana í KR-húfu eftir á „til að
bragðbæta þetta aðeins“ eins og Þórir
orðar það. „Ætli hún fari ekki á svona
4-6 þúsund krónur ef einhver þorir að
bjóða i hana. Annars er ég ekki fag-
maður í þessum ffæðum enda er hún
ekki fyrir karlmenn," segir hann en-
fremur.
Þórir áætlar að 200-300 hjól fari á
uppboðið en aðeins eru boðin upp hjól
sem hafa verið í vörslu lögreglunnar í
eitt ár eða lengur. „Ég myndi segja að
um 1/3 af hjólunum komist aftur til
sinna réttu eigenda en hin fara þá ann-
aðhvort á uppboðið eða er hent ef þau
eru ónýt.“ Þórir telur að menn geti gert
góð kaup í hjólum og jafhvel sé hægt að
fa góð hjól fyrir 8-12 þús. krónur. -HI
Nægur snjór
Rannsakar ofbeldi gegn konum:
Dulið og stórt vandamál
Skíðavertíðin er nú að líða undir lok
og síðasta helgi hennar fram undan. Á
Suðurlandi er vertlðinni reyndar þegar
lokið og hefur skíðasvæðunum í Blá-
fjöllum, Hengli og Skálafelli verið lokað
sökum snjóleysis. Á skíðasvæðum ís-
firðinga er áætlað að hafa opið um helg-
ina ef skilyrði verða hagstæö. Ekki
verður opið á skíðasvæði Skagfirðinga.
Nægur snjór er i Eyjafirði og verður
opið í Hlíðarfjalli báða dagana frá 10-17.
Snjóalög eru góð og veðurspáin lofar
einnig góðu. Einnig er nægur snjór í
Böggvisstaðafjalli við Dalvík en þar
verður samt sem áður lokaö, sökum lít-
illar eftirspumar, að sögn starfsmanns
þar. Á Stafdal ofan Seyðisíjarðar er ætl-
unin að hafa opið og fyrirhugað innan-
félagsmót þar á sunnudag. -ÓK
Ofbeldi gagnvart konum á íslandi
er dulið vandamál. Gera má ráð fyr-
ir að það sé hugsanlega minna hér á
landi en í þeim löndum sem við ber-
um okkur helst saman við, þar sem
ofbeldið er orðin viðtekin venja.
Þetta kemur meðal annars fram í
rannsókn Sigríöar Halldórsdóttur,
prófessors við Háskólann á Akur-
eyri. Hún hefur að undanfomu ver-
ið að kynna niðurstöður sínar og
ræðir þær ítarlega í Helgarblaði
DV.
„Ofbeldið felur í sér að konan er
ekki aöeins rænd lifsgleðinni held-
ur allri mann-
legri reisn sem
leiðir að lokum
til þess að konan
er rænd lífsvilj-
anum sjálfum,"
segir Sigríður
meðal annars í
viðtalinu. Hún
segist hafa fundið
mjög fyrir því að
rannsókn sín og
kynning á henni hafi opnað um-
ræðu um þetta vandamál. Fram hafi
komið í máli margra þeirra kvenna
sem hún hafl rætt viö þær hafi 1
lengstu lög lifað í þeirri von að of-
beldinu linnti - konurnar yrðu und-
irgefnar eiginmanni sínu hversu of-
beldisfullur sem hann kynni að
vera.
„Rannsóknir sýna að konur hafa
tilhneigingu til að fara aftur til of-
beldisfulls eiginmanns mörgum
sinnum áður en þær byrja nýtt líf í
öruggu umhverfi," segir Sigríður og
bætir við að fylgifiskar ofbeldis séu
meðal annars þunglyndi og auð-
mýking.
-sbs
Sigríður
Halldórsdóttir.
Fangelsisdómur
í gær staðfesti Hæstiréttur dóm
Héraðsdóms Reykjavíkur yfir tæp-
lega fertugum manni, Ali Zerbout,
sem dæmdur var í sex ára fangelsi
10. janúar sl. vegna tilraunar til
manndráps. Hann var sakfelldur
fyrir að hafa þrisvar sinnum stung-
ið mann í háls og siðu við veitinga-
staðinn Hróa Hött í Fákafeni 6. jan-
úar í fyrra.
Nýir eigendur
Hótel Örk í Hveragerði er að
skipta um eigendur en eigandinn,
Jón Ragnarsson, hefur gert leigu- og
kaupréttarsamning við fyrirtækið
Grand-ísland ehf. sem er í eigu Stef-
áns Arnar Þórissonar og Vals
Magnússonar.
Ákærður fyrir sprengjuhótun
Ríkissaksóknari hefur ákært
rúmlega tvítugan mann fyrir að
senda sprengjuhótun í bandaríska
sendiráðið í Reykjavík 15. janúar sl.
Skv. ákæru sendi hann hótunina
með tölvupósti úr tölvupóstfanginu
bombtheembassy@hotmail.com sem
hann hafði stofnað sama dag. - Mbl.
greindi frá.
Hættur hjá X-18
Óskar Axel Óskarsson, stofnandi
íslenska skófyrirtækisins X-18, hef-
ur sagt skilið við fyrirtækið vegna
ágreinings við stjórnarformann um
rekstur og framtíðarstefnu fyrirtæk-
isins. Segir Óskar ástæðumar m.a.
vera ráðningar bráðabirgðafram-
kvæmdastjóra sem ekki hafi verið
starfi sínu vaxnir. Albert Sveinsson
framkvæmdastjóri vísar þessu á
bug. - Mbl. greindi frá.
VIII hitta Palestínumenn
Ekki er enn frá-
H háttað verður heim-
! _ X sókn Halldórs Ás-
Mj grimssonar utan-
3T ríkisráðherra til
H Æ ínu. Hann setur það
^skilyrði að fá að
hitta forystumenn heimastjórnar
Palestinumanna. - RÚV greindi frá.
-HKr.
I helgarblað
Réttarlæknirinn
■ Þóra Steffensen er
réttarmeinafræðing-
ur og annast allar
réttarkrufhingar á ís-
landi og fylgir lög-
reglunni á vettvang
morða og mann-
drápa. Hennar verk-
efhi í vinnunni er að
komast að því hvemig og hvers vegna
fólk deyr. Hún segir DV frá starfi sínu,
námi og undarlegum verkefrium.
DV ræðir við Steingrím Hermanns-
son, stjómmálamann á eftirlaunum
sem enn hefúr skoðanir og heimsækir
Eggert Haukdal á Bergþórshvoli sem
berst fyrir sakleysi sínu. DV talar við
Gunnar Marel Eggertsson, skipasmið
og ævintýramann, um eftirmál ævin-
týrisins.
DV fjallar um kynlifsfikn, heimilis-
ofbeldi og gistir í frægasta draugahúsi
landsins í Viðfirði.