Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Síða 4
Fréttir FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 DV Verkalýðsforystan vill skjót viðbrögð gegn fátækt: Tenging bóta við launaþróun í skoðun - segir ráðherra - atvinnuuppbygging affarasælust, segir Vilhjálmur Egilsson Vaxandi fátækt á íslandi var áberandi umræðuefni i hátíðarræð- um á alþjóðadegi verkalýðsins, 1. maí. Var m.a. harðlega gagnrýnt að stöðugt væri verið að hygla þeim sem betur mega sín á kostnað hins almenn launþega. Sjöfn Ingólfsdótt- ir, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkur, sagði m.a. á útifundi á Lækjartorgi að það væri ekki sæm- andi fyrir samfélagið að fólk á Is- landi gæti ekki leitað sér lækninga vegna fátæktar. Ekki nóg að gert Ögmundur Jónasson, alþingis- maður Vinstri grænna og formaður BSRB, segir að stjómvöld séu síður en svo að gera þaö sem hægt er til að vinna gegn fátækt á íslandi. Það eitt að efna þurfti til sérstakrar ráð- stefnu, sem sýndi að yfir 10 þúsund manns falla undir þá skilgreiningu að teljast fátækir hér á landi, segi sína sögu. „Þetta eru samt blákaldar stað- reyndir. Það þarf ekki mjög reikn- ingsglöggan mann til að sjá það t.d. að fólk með um eða undir 70 þúsund krónum i tekjur á mánuði getur ekki framfleytt sér. Af þessu þarf m.a. að greiða húsaleigu, fram- Ögmundur Jón Jónasson. Kristjánsson. færslu og lækniskostnað. Það sjá allir að dæmið gengur ekki upp. Það þarf skjót viðbrögð, m.a. með verulegri hækkun bóta almanna- trygginga. Það vantar samræmda alisherjaráætlun til að taka á þess- um vanda. Þjóðin mun ekki horfa upp á það aðgerðalaus að ekkert sé gert. Mál er að linni. Nú þurfa menn að snúa vöm í sókn gegn auð- valdi og í þágu jafnaðar. Þjóðin þarf að taka höndum saman og hrista af sér okið,“ segir Ögmundur Jónas- son. í stöðugri skoðun Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, segir að endurskoðun bóta almannatrygg- ingakerfisins sé verkefni sem hljóti aUtaf að vera í gangi. „Árið 2001 voru miklir fjár- munir settir inn í grunninn til þeirra sem lægst- ar hafa bætumar og við þurfum að halda áfram á þeirri braut.“ Jón segir að á ráðstefnu Búnaðarbankans um þessi mál hafi hann komið inn á að það þyrfti að vera í forgangi að bæta kjör þeirra sem eingöngu hafa bæt- ur frá Tryggingastofnun. Hann seg- ir að Þjóðhagsstofnun hafi verið falið að taka saman gögn um þessi mál og eftir þeim upplýsingum sé nú beðið. „Við höfum líka verið með það í skoðun hvort bætur geti fylgt launa- þróun og að launaskrið sé líka bætt. Við höfum kallað eftir upplýsingum um slíkt, en þetta er mál sem sam- tök öryrkja og aldraðra hafa gert kröfur um. Hins vegar liggja ekki fyrir neinar ákvarðanir um þetta, en þetta er í stöðugri skoðun,“ sagði Jón Kristjánsson. Eitt af verkefnum stjórnvalda Vilhjálmur Egilsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir þessa umræðu svo sem ekki nýja af nál- inni. Vissulega sé til fátækt fólk á íslandi. Eitt af verkefnum stjóm- valda sé m.a. að reyna að sjá til þess að kjör þeirra sem þurfa að treysta á velferðarkerfið fylgi eftir batnandi lífskjörum almennt. „Það hefur þó sýnt sig að tekjuskipting á íslandi er jafnari en i flestum löndum heimsins. Ég tel hins vegar affarasælast að byggja upp atvinnuvegina og bæta þannig lífskjör landsmanna. Þar tel ég að sú mikla uppbygging sem átt hefur sér stað á síðustu árum hafi haft mikil áhrif. Stefna stjómvalda er að reyna að skapa hér velmegun- arþjóðfélag þar sem allir geti fundið sér farveg; einnig að reyna að tryggja að við séum almennt í fremstu röð í heiminum á því sviði,“ segir Vilhjálmur Egilsson. Hann telur þó að fátækt á íslandi verði áfram tO umræðu og að hún eigi líka að vera það. Það þurfi að vera stöðugt umræðuefni hvemig áhrifaríkast sé að berjast gegn fá- tækt hér á landi. -HKr. Vilhjálmur Egilsson. Bifreið á Nató-fundi: Þolir hand- sprengjuárás B&L hafa flutt inn til landsins skot- helda BMW-bifreið vegna NATO-fundar- ins í maí. Er hann af gerðinni BMW 750 ILA og er um tveimur tonnum þyngri en grunnútgáfa sama bíls. Að sögn Guð- mundar Gíslasonar markaðsstjóra, er bíUinn með skotheldu gleri og dekkjum og gólf og toppur sérstaklega styrkt. „Þessi bíll á að geta þolað hand- sprengjuárás," segir Guðmundur, „því að með þessum styrkingum getur hann þolað það þótt tvær handsprengjur springi í einu á honum.“ Bíllinn mun verða fluttur úr landi aftur að loknum fundinum en nokkuð merkilegt er að ef hann yrði hér áfram þyrfti ekki að borga af honum vörugjöld þar sem engin slík eru á skriðdrekum og brynvörðum bifreiðum. B&L flytja inn alls 45 BMW-bifreiöir vegna NATO-fundarins, en áðumefndur bíll er sá eini sprengjuheldni. Hann verður til sýnis hjá B&L um helgina.-NG DVAIYND HILMAR ÞÓR Sinubruni í Eilífsdal Litlu mátti muna að illa færi þegar sinueldur kviknaði í Eilífsdal í Kjós skömmu eftir hádegi í gær. Að sögn varðstjóra Slökkviliðsins var eldurinn mikill og barst hratt yfir sökum vinds. Þrír sumarbústaðir voru í grennd og voru þeir taldir í hættu. Slökkviliðsmönnum tókst hins vegar að slökkva eldinn áður en hann náði að læsa sig í húsin. Eidsupptök munu þau að maöur einn var að brenna timbri í stálbaðkari þegar neisti hljóp í túnið með fyrrgreindum afleiðingum. Bleytt var I sinunni til að fyrirbyggja útbreiöstu eldsins. Átak gegn greiðslum til handrukkara: Aldrei að láta undan hótunum - eru skilaboð Vímulausrar æsku og lögreglunnar Vímulaus æska kynnti í gær í samstarfi við lögregluyfirvöld átak þar sem fólk er hvatt til að láta ekki undan þeim sem hóta ofbeldi ef fíkniefnaskuld verður ekki greidd, eða svokallaðra handrukkara. Vímulaus æska mótmælir skilaboð- um um að heppilegast sé fyrir að- standendur að greiða fíkniefna- skuld eða aðra skuld þegar hún er innheimt með hótunum um líkams- meiðingar. Hótanir um ofbeldi brjóti í bága við almenn hegningar- lög og brot við því ákvæði varði sektum eða allt að 2 ára fangelsi. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni- efnadeildar lögreglunnar, segir að það sé á engan hátt réttlætanlegt að borga. „Við það eykst ofbeldið og líkumar minnka á að það hætti. Vandamálið er hins vegar að fólk þorir varla að kæra svona mál en það kemur ekki til greina af hálfu lögreglu að slaka á í svona málum.“ DV-MYND E.ÓL. Atak gegn handrukkurum Átakið kynnt ígær. F.v.: Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögregl- unnar, Vaidimar Jóhannesson hjá Vímulausri æsku og ÓlöfÁsta Farestveit af- brotafræðingur. Fram kom á fundinum að skyn- samlegasta leiðin gegn hótununum er að afla sannana, t.d. með segul- bandsupptökmn. Vilji sé til þess hjá dómstólum að taka á slíku. Þá kom einnig fram að foreldrar séu oft undir miklum þrýstingi, ekki bara frá handrukkurunum sjálfum held- ur einnig börnum sínum sem jafn- vel hóta sjálfsvígi verði skuldin ekki greidd. Þá séu dæmi um að for- eldrar hafí orðið fyrir verulegu fjár- hagslegu tjóni vegna slíkra skulda. Það var einnig áréttað að hand- rúkkarar standi sjaldan við hótanir sínar, og þó að þeir geri það sé ábyrgðin ekki hjá þeim sem verður fyrir ofbeldinu, heldur hjá þeim sem brýtur af sér. Foreldrar bama sem verða fyrir því að börmnn þeirra er hótað of- beldi vegna fíkniefnaskuldar geta leitað aðstoðar í Foreldrasíma Vímulausrar æsku, 581-1799. -HI DV-MYND HILMAR Mynd sem mátti ekki taka Ljósmyndari DV smellti af þessari mynd i sömu mund og honum var vísað á dyr. Varaformaðurinn sést hér að baki Jöhönnu Sigurðardóttur, eins af nefndarmönnunum. Rætt um ríkisábyrgð: Varaformaður bannaði myndatökur MikiII taugatitringur virtist ríkja í upphafí fundar efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gær er tekið var til afgreiðslu mál er varð- ar ríkisábyrgð handa íslenskri erfðagreiningu. Var málinu þá óvænt vísað til nefndarinnar. Þegar ljósmyndari DV hugðist mynda fundinn í nefndinni, eins og algengt er, var honum vísað frá af varafor- manni nefndarinnar, Kristni H. Gunnarssyni. Halldór Blöndal, forseti Alþingis, sagði í samtali við blaðið að hann minntist þess ekki sem forseti þingsins að samskipti við fjölmiðla hafi ekki gengið skammlaust fyrir sig. Hann sagðist heldur ekki muna eftir neinu í starfsreglum þingsins sem bannaði beinlinis slikar myndatökur. Þetta væri því ekki gert að hans fyrirmælum. -HKr. Alþingi lýkur í dag Alþingi lýkur störfum í dag og frestar fundum til hausts. Sam- komulag tókst um það milli for- manna þingflokkanna í gærkvöld að takmarka ræðutima þingmanna þannig að ljúka mætti þingstörfum í dag. Umræður í þinginu stóðu í all- an gærdag og til klukkan fimm í morgun en þingfundur hefst klukk- an tvö í dag. Verður þá gengiö til at- kvæða um þau mál sem enn eru óaf- greidd og ekki hafa verið dregin til baka. -ÓTG DV-MYND ÓK Stórtaekur bæjarstjóri Kristján Þór Júlíusson, bæjastjóri á Akureyri, tók í gær fyrstu skóflustunguna eð nýjum nemenda- görðum við Menntaskóiann á Akur- eyri. Skammt frá stóð Tryggvi Gísia- son, skóiameistari MA, og hvatti Kristján áfram. Áættað er að bygg- ingu nemendagarðanna Ijúki næsta sumar 2003 en garðarnir eru ætlað- ir nemendum beggja framhaldsskól- anna á Akureyri, MA og Verkmennta skóians á Akureyrí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.