Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Side 6
6
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002
Fréttir DV
Kólumbískur hershöfðingi nefnir íslenska stúlku sem liðsmann IRA:
Bendluð við
hryðjuverkamenn
- lögfræðingur vinnur að lausn málsins í samstarfi við utanríkisráðuneytið
„Þaö sem skiptir mestu máli er að
leiðrétta þennan misskilning. Við
erum rétt að byrja á því, með góðri að-
stoð utanrikisþjónustunnar," segir
Ámi Páll Ámason lögfræðingur um
einstakt mál Margrétar Óskar Stein-
dórsdóttur. Hreína Halldórsdóttir, móð-
ir Margrétar, réð Áma Pál til að
tryggja hagsmuni dóttur sinnar eftir að
kólumbískur hershöfðingi bendlaði
hana við írska lýðveldisherinn, IRA, í
vitnisburði fyrir bandariskri þing-
nefnd í síðustu viku.
Handtekin í Kólumbíu
Tildrög málsins eru þau að Margrét
Ósk, sem er tuttugu og fimm ára, var
handtekin í Kólumbíu í september síð-
astliðnum, en hún var þar á ferðalagi
með dönskum unnusta sinum. Stjóm-
arherinn handtók hana eftir að hún
hafði farið um yfirráðasvæði hinna iil-
skeyttu FARC-hryðjuverkasamtaka í
suðurhluta landsins. Kólumbískum yf-
irvöldum þótti grunsamlegt aö hún
skyldi hafa sloppiö heil á húfi af svæði
hryðjuverkamannanna og drógu af því
þá ályktun að hún hlyti að vera í slag-
togi við þá. Henni var hins vegar sleppt
eftir yfirheyrslur.
Margrét sagði
frá því í Morgun-
blaðinu sl. laugar-
dag hvemig hún
slapp naumlega
undan liðsmönn-
um FARC með að-
stoð þorpsbúa,
sem foldu hana í
híbýlum sínum.
Margrét er á
mikilli heimsreisu
og núna stödd í
Sydney í Ástralíu.
DV falaðist eftir
viðtali við hana
en Hrefna móðir
hennar taldi ekki
ráðlegt fyrir hana
að ræða við fjöl-
miðla eins og mál-
um væri háttað.
Ástæðan er sú að
nafn hennar kom
óvænt upp á
Bandaríkjaþingi í síðustu viku í tengsl-
um við rannsókn þingnefhdar fulltrúa-
deildar þingsins á meintum tengslum
írska lýðveldishersins við hryðjuverka-
samtök í Kólumbíu.
IRA og FARC
Þingnefndin bandaríska sendi ný-
verið frá sér skýrslu þar sem fullyrt er
að formleg tengsl hafi verið milli FARC
í Kólumbíu og IRA a.m.k. frá árinu
1998. Helsta sönnun þess er sögð hand-
taka þriggja íra i Kólumbíu í ágúst í
fyrra, um svipað leyti og Margrét Ósk
var þar á ferð. Tveir mannanna eru
þekktir liðsmenn IRA og sá þriðji hef-
ur tengsl við Sinn Fein, stjómmálaarm
IRA. Þremenningamir hafa verið
ákærðir í Kólumbíu fyrir að aðstoða
FARC. Aðstoðin er sögð hafa falist í
leiðbeiningum um meðferð sprengiefna
og vopnaframleiðslu.
Ásakanimar gegn IRA em alvarleg-
ar, ekki síst vegna þess aö með friðar-
samkomulaginu á Norður-írlandi
skuldbatt írski lýðveldisherinn sig til
að láta vopn sin af hendi og hætta
vopnaðri baráttu. Fréttir af aðstoð liðs-
manna IRA við erlend hryðjuverka-
samtök hafa varpað skugga á friðarferl-
ið - og það í aðdraganda þingkosninga
á Norður-lrlandi. Málið er því við-
kvæmt fyrir samskipti Bandarikjanna
og Norður-írlands - og möguleikar
Sinn Fein í komandi kosningum eru
taldir hafa orðið að engu.
Haft er eftir háttsettum lögreglu-
mönnum á Norður-írlandi að þeir telji
að IRA hafi þegið hundmð milljóna
króna í greiðslur fyrir aðstoðina við
FARC og að starfsemin i Kólumbíu hafi
verið liður í fjármögnun kosningabar-
áttu Sinn Fein.
Meginniðurstaða skýrslunnar er
hins vegar að brýnt sé fyrir
Bandaríkjaþing að leyfa Kólumbíu-
stjóm að nýta hemaðaraðstoð frá
Bandaríkjamönnum til að berjast gegn
hryðjuverkamönnum. Sem stendur er
stuðningur Bandaríkjanna bundinn
við baráttu gegn fikniefnaframleiðslu
og -sölu.
Tapias hershöfðingi
í framhaldi af skýrslunni um tengsl
IRA og FARC efndi þingnefndin til op-
inberra vitnaleiðslna í síðustu viku.
Þrjú vitni vom kölluð fyrir: Asa
Hutchinson, framkvæmdastjóri banda-
ríska fíkniefnaeftirlitsins, DEA; Mark
Wong, deildarstjóri í bandaríska utan-
ríkisráðuneytinu, einn af aðalumsjón-
armönnum baráttunnar gegn hryðju-
verkum; og Femando Tapias, yfirhers-
höfðingi Kólumbíu.
Þeir Hutchinson og Wong sögðu fátt
um tengsl IRA við FARC-hryðjuverka-
samtökin. I máli þeirra kom hins veg-
ar fram að FÁRC eru stærstu hryðju-
verkasamtök í heiminum, með sextán
þúsund liðsmenn, og jafnframt líklega
þau ríkustu, enda sjá þau um fram-
leiðslu og sölu á um það bil 90% af öllu
kókaíni sem kemur til Bandaríkjanna
og 70% af öllu heróíni.
FARC ræna árlega hundmð manna
og myrða fjölmarga, m.a. erlenda rikis-
borgara. Fleiri mannrán verða í
Kólumbíu á hverju ári en samtals í öll-
um öðrum löndum! Meira en helming-
ur hryðjuverkaárása á Bandaríkin á
erlendri grund verður í Kólumbíu og
þrettán Bandaríkjamenn hafa verið
myrtir þar undanfarinn áratug. Mark
Wong sagði Ijóst að ef bandarísk stjóm-
völd fengju sannanir fyrir viðvarandi
stuðningi IRA við FARC myndi það
„vekja grundvallarspumingar um ut-
anríkisstefnu okkar“.
Tapias hershöfðingi greindi þing-
nefndinni frá tengslum hinna þriggja
handteknu íra við Irska lýðveldisher-
inn, sem era óumdeild. Hann sagði frá
vitnum sem fullyrtu að allt að fimmtán
liðsmenn IRA hefðu þjálfað liðsmenn
FARC undanfarin ár og greindi frá því
hvemig hryðjuverk FARC hefðu breyst
og orðið sífellt líkari þeim sem IRA var
þekktur fyrir.
Tapias tók fram að þótt vitni hefðu
fúllyrt að allt að fimmtán liðsmenn IRA
hefðu starfað í landinu hefðu stjóm-
völd ekki öruggar upplýsingar um
nema sjö þeirra. „Þrir voru handteknir
og hafa verið ákærðir, tveir sluppu úr
Fernando Tapias yfirhershöföingi
„... og Margrét Ósk Steindórsdóttir. ... Af þeim
upplýsingum aö dæma sem viö höfum aflaö eru þetta allt
liösmenn IRA. “ Tapias sést hér bera vitni meö túlk sér viö
hliö. Hægt er aö nálgast upptöku af vitnisburöinum á
Netinu meö því aö slá inn slóöina:
www.house.gov/international_reiations/fullhear.htm
Margrét Osk Steindórsdóttir
Bíöur þess í Sydney aö vera hreinsuö af ásökunum um tengsl viö IRA og
aöstoö viö hryöjuverkasamtökin FARC í Kóiumbíu.
CAPTURED MEHBERS Of T8E
"iRISH REPUEUCAK ARMY'
THAT WERE LEFTIH FREEDO.M BY UCK 0F PR00FS
Hryöjuverkamenn?
Nafn Margrétar á skyggnu úr
samantekt Tapiasar hershöföingja,
sem viröist viss um tengslin viö IRA.
Olafur Teitur
Guðnason
blaðamaöur
Fréttaljós
landi áður en okkur tókst að hafa hend-
ur í hári þeirra og tveimur urðum við
að sleppa vegna skorts á sönnunar-
gögnum,“ sagði hershöfðinginn. Hann
nefndi síðan Margréti Ósk Steindórs-
dóttur sem annan þessara tveggja síð-
astnefndu.
Formaður þingnefndarinnar spurði
hvort hér væri örugglega um liðsmenn
IRA að ræða. Hershöfðinginn svaraði:
„Af þeim upplýsingum að dæma sem
við höfum aflað eru þetta allt liðsmenn
IRA.“
Staða Margrétar
Magrét hefur sjálf sagt að líklega
hafi kólumbiska lögreglan ruglast á
„Iceland" og „Ireland" við
yfirheyrslumar; henni komi ekki í hug
önnur skýring fyrir því að vera nefnd
til sögimnar.
Þótt ljóst sé að það er alvarlegt fyrir
Margréti Ósk að hershöfðinginn skyldi
nefna hana sem liðsmann IRA, grunað-
an um aðstoð við FARC, fást ekki ná-
kvæmar upplýsingar um afleiðingar
þess fyrir hana.
„Það borgar sig að segja sem minnst
um það,“ segir Ámi Páll Ámason, lög-
maður móður hennar. „En hún hefur
ekki gerst sek um refsiverðan verknað
neins staðar. Orðrómur um annað er
rangur og hann þarf að leiðrétta."
Pétur Ásgeirsson, rekstrarstjóri í ut-
anríkisráðuneytinu, hefur komið að
málinu fyrir hönd ráðuneytisins. „Það
er ómögulegt að segja hve alvarlegt
þetta er,“ segir Pétur. „Við erum að
kanna þetta betur og leita leiða til að
koma þessu til betri vegar.“ Pétur seg-
ist engar upplýsingar hafa um að ferða-
frelsi Margrétar Óskar hafi verið tak-
markað. „Það er engin ástæða til að
ætla það,“ segir hann.
Hrefna Halldórsdóttir segist vera í
símasambandi við dóttur sína kvölds
og morgna. „Auðvitað hef ég áhyggjur
af henni, enda ástæða til. Hún er sjálf
svolítið stressuð, það er eðlilegt, en
ræðismaðurinn úti hefur reynst henni
vel,“ segir Hrefna.
Búist er við því að niðurstaða fáist í
mál Margrétar Óskar á næstu dögum.
En það er ekki víst að málinu sé þar
með lokið.
Eins og fyrr segir mætti skýrsla
nefndarinnar og vitnaleiðslumar í kjöl-
farið harðri andstöðu nokkurra nefnd-
armanna, demókrata úr norðaustur-
ríkjum Bandaríkjanna sem em hlið-
hoÚir málstað lýðveldissinna á Norður-
írlandi. Þeir gagnrýndu harkalega
málatilbúnaðinn allan; þeir spurðu þre-
menningana í vitnastúkunni ítrekað
um hvort einhverjar sannanir væru
fyrir því að yfirstjóm IRA hefði sent
írana til Kólumbíu eða vitað af fór
þeirra. Þremenningamir sögðu svo
ekki vera. Fastlega má gera ráð fyrir
því að upplýsingar um að hershöfðing-
inn hafi nefnt saklausan íslenskan
ferðamann til sögunnar sem einn af sjö
IRA-mönnum sem ömggar upplýsingar
væm um verði vatn á myúu þessara
efasemdamanna - það gæti jafnvel
kastað rýrð á allan vitnisburð
hershöfðingjans.
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 21.58 21.43
Sólarupprás á morgun 04.50 04.36
Síódegisflóö 21.41 16.48
Árdegisflóö á morgun 12.15 02.12
jgfMi
Þykknarupp
Hæg suðaustlæg eða breytileg átt
og víöa bjart veður fram á kvöld en
vaxandi suðaustanátt og þykknar
upp í kvöld og nótt. Hiti verður á
bilinu 3-10 stig.
Skýjað en þurrt
Suðaustan 10-15 m/s og rigning
sunnanlEmds á morgun en skýjað
og þurrt aö kalla norðan til. Hiti
víða 3 til 10 stig, hlýjast syðst.
Sunnudagur Mánudagur
Þriðjudagur
a e O
Híti 2”
Hiti 3°
6 A A
Hiti 3°
tif 7° «18° «18°
Víndur: 5—8m/s Vindur: 8-13"V* Vindur: 8-13 m/»
SA-átt og víða rígnlng. Skýjaö og þurrt noröan tu. SA-átt og rignlng eöa súld um land altt. Suðlæg átt og vætusamt en fremur mJlt veður.
*
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinnlngsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinnlngskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviöri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
Veðrið kl. 6
AKUREYRI alskýjað -2
BERGSSTAÐIR skýjað -2
BOLUNGARVÍK léttskýjaö -4
EGILSSTAÐIR skýjað -2
KIRKJUBÆJARKL alskýjað 3
KEFLAVÍK léttskýjaö 0
RAUFARHÖFN skýjaö -3
REYKJAVÍK léttskýjað -1
STÓRHÖFDI léttskýjað -1
BERGEN súld 7
HELSINKI léttskýjaö 14
KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 9
ÓSLÓ skýjað 5
STOKKHÓLMUR rigning 9
ÞÓRSHÖFN skýjaö 3
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjað 5
ALGARVE
AMSTERDAM skýjað 8
BARCELONA súld 9
BERLÍN skýjað 11
CHICAGO hálfskýjað 7
DUBUN léttskúaö 3
HAUFAX súld 4
FRANKFURT rigning 9
HAMBORG rigning 10
JAN MAYEN skafrenningur -2
LONDON heiöskírt 7
LÚXEMBORG skýjaö 7
MALLORCA rigning 13
MONTREAL 5
NARSSARSSUAQ skýjað 3
NEW YORK skýjaö 14
ORLANDO heiöskírt 24
PARÍS léttskýjaö 8
VÍN skýjaö 19
WASHINGTON léttskýjað 16
WINNIPEG heiöskírt 2
6YGGT A UfÞtYSkHOJM FRA