Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Blaðsíða 13
13 FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 PV__________________________________________________________________Útlönd ■ ** w Powell boðar til frlðarráðstefnu Colin Powell, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, boöaöi í gær til friöarráöstefnu vegna deilunnar fyrir botni Mlöjaröarhafs, eftir aö hafa fundaö meö svokölluöu fjóreyki, sem auk hans sjálfs er skipaö Igor Ivanov, utanríkisráöherra Rússlands, Kofí Annan, aöalframkvæmdastjóra SÞ, og þeim Javier Solana, utanríkismálastjóra ESB, og Josep Pique, utanríkisráöherra Spánar. Colin Powell boðar til friðarráðstefnu í sumar REUTERSMYND Skilríkin skoðuð ísraelskur hermaöur gætir aö skil- ríkjum myndatökumanns Reuters. Vont að vera blaðamaður á Vesturbakkanum Hvergi í heiminum er verra að vera blaöa- og fréttamaður en á Vesturbakkanum, að mati alþjóð- legra samtaka sem standa vörð um blaðamenn (CPJ). Samtökin birta árlega lista yfir þá staði þar sem blaðamönnum eru settar hvað mestar skorður við störf sín og þar sem þeir eru taldir vera í mestri hættu. Listinn var birtur í morgun í tilefni þess að í dag er al- þjóðlegur dagur frelsis íjölmiðla. Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, og stjóm hans sæta harðri gagnrýni fyrir að beita valdi til að koma í veg fyrir að fréttamenn geti fylgst með innrás ísraelska hersins í byggðir Palestínumanna á Vestur- bakkanum. Næstversti staðurinn fyrir blaða- menn er Kólumbía. Blll Clinton Dreymir hann um aö verða konungur kjaftaþáttanna í sjónvarpi vestra? Clinton spáir í að stjórna viðtals- þætti í sjónvarpi Sjónvarpsáhorfendur í Bandaríkj- unum mega ef til vill eiga von á því að Biil Clinton, fyrrum forseti, birt- ist á skjánum fyrr en síðar sem stjómandi viðtalsþáttar. Forsetinn fyrrverandi hitti í vik- unni hátt setta stjómendur NBC- sjónvarpsstöðvarinnar á skrifstofu vinar síns, sjónvarpsframleiðand- ans Harrys Thomasons. Einhver skoðanamunur virðist vera á því hver hafi átt frumkvæðið að fundinum. Talskona Clintons segir hann hafa hlustað á tillögur sjónvarpsmanna en hann hefði ekki farið fram á eigin þátt. Blaðið Los Angeles Times hafði hins vegar eftir innanbúðarmönn- um að Clinton hefði farið fram á tæpa fimm milljarða króna á ári fyrir að stjóma eigin kjaftaþætti og að hann vildi feta í fótspor hinnar vinsælu Opruh Winfrey. REUTERSMYND Beðlst fyrir í Hvíta húsinu George W. Bush Bandaríkjaforseti leiddi bænasamkomu í Hvíta húsinu í Washington í gær í tilefni þess aö vestra héldu menn upp á árlegan dag bænarinnar. Viö þaö tækifæri sagöi Bandaríkjaforseti aö Bandaríkin væru land trúar- innar. Um tvö hundruö manns tóku þátt í bænahaldinu með forsetahjónunum. Vill Sambands- flokkinn í stjórn Edmund Joensen, fyrrum formað- ur Sambandsflokksins og fyrrum lögmaður Færeyja, telur það vera andstætt vOja þjóðarinnar ef gamli flokkurinn hans verður ekki með í næstu landstjóm. Sambandsflokk- urinn fékk flest atkvæöi í lögþings- kosningunum á þriðjudag. í viðtali við færeyska blaðið Sosi- alurin segir Joensen að núverandi landstjóm, undir forystu Anftnns Kallsbergs úr Fólkaflokkinum, eigi að fara frá tO að hægt verði að finna annan meirihluta. Joensen telur heppOegt að Sam- bandsflokkurhin, Jafnaðarflokkur- inn og Fólkaflokkurinn myndi meirihlutastjóm. Sambandsflokkurinn og Jafnaðar- flokkurinn eru fylgjandi áframhald- andi veru í danska ríkjasam- bandinu og Joensen segir að sjálf- stæðisarmur Fólkaflokksins hafi veikst eftir kosningamar. Tugir uppreisnar- manna drepnir Herinn í Nepal feOdi aö minnsta kosti 51 skæruliða úr röðum maóista í árás á vígi uppreisnar- manna í vesturhluta landsins, að því er stjómvöld greindu frá í dag. Aðstoðarinnanríkisráðherra Nepals sagði Reuters-fréttastofunni að hermöimunum hefði verið send- ur liðsauki og að beðið væri frekari fregna af átökunum. Skæruliðar hafa barist gegn stjóm Nepals undanfarin sex ár. Colin PoweO, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tOkynnti á blaða- mannafundi í Washington í gær að friðarráðstefria vegna ástandsins fyrir botni Miðjarðarhafs væri í undirbún- ingi og lödegt aö hún yrði haldin ein- hvers staðar í Evrópu á næstu mán- uðum. PoweO beindi máli sínu tO Arafats og sagði að þetta yrði síðasta tækifærið sem hann fengi tO friðar- viðræðna og það yrði hann að nota tO að tryggja þjóð sinni öryggi og frið tO frambúðar. Nokkrum stundum síðar réðust ísraelskar hersveitir á um fimmtíu skriðdrekum inn í bæinn Nablus, að þeirra sögn tö að koma í veg fyrir hryðjuverkaárásir. Tóku þær yfir nokkrar byggingar í norður- og vest- urhluta bæjarins og féO einn palest- ínskur lögreglumaður þegar tö skot- bardaga kom í upphafi innrásarinnar, auk þess sem nokkrir meintir hryðju- verkamenn voru handteknir. Að sögn talsmanna hersins munu hersveitimar yfirgefa bæinn um leið og aðgerðum er lokið, en á undanforn- sjúkrahús í bænum, þar sem hann bað fyrir þeim sem faOið höfðu i inn- rás og aðgerðum ísraesmanna í bæn- um. Arafat var fagnað af íbúum bæj- arins og köOuðu böm sem stóðu í röð- um við götumar: „Við munum fórna lífinu fyrir þig.“ Arafat fordæmdi aðgerðir Israels- manna við Fæðingarkirkjuna í Bet- lehem í sínu fyrsta ávarpi tO þjóðar sinnar eftir að hann losnaði úr prís- undinni og ákaOaði um leið alþjóða- samfélagið tO hjálpar við lausn deO- unnar sem staðið hefur 1 fjórar vikur. T0 skotbardaga kom við kirkjuna í gær og féll þar einn Palestínumaður auk þess sem að minnsta kosti tveir særðust Ola. Ástandið í kirkjunni fer dagversn- andi, en í gær komust nokkrir með- limir erlendra friðarhópa inn í kirkj- una með matvæli handa þeim 200 manna sem enn þá hafast þar við, en þrjátiu þeirra munu eftirlýstir hryðju- verkamenn sem ísraelsmenn vöja framselda áður en tO greina komi að aflétta umsátrinu. um dögum hafa verið gerðar skyndi- innrásir í nokkra af þeim bæjum á Vesturbakkanum sem herteknir voru í aðgerðum ísraelsmanna í aprö. Yasser Arafat, sem losnaði úr um- sátri ísraelsmanna í bækistöðvum sínum í Ramaöah í gær, lét það verða eitt sitt fyrsta verk að heimsækja BALL A CHAMPION S ALLTAF DANSLEIKIR UM HELGAR: 3. & 4. MAÍ Hestmannahelgi bæði kvöldin! Hljómsveitin Léttir Sprettir leika fyrir dansi. I BEINNIA BREIÐTJOLDUM Laugardagurinn 4. maí Kl. 14.00 Arsenal - Chelsea FA. Cup Final Miðvikudagurinn 8. maí Kl. 19.00 Man.United - Arsenal Kl. 19.00 Liverpool - Blackburn ...þar sem meistarornir mœta! Stórhöfði 17 • www.champions.is • Textavarp 668 • Hádegishlaðborð virka daga GRhf^0GUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.