Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Síða 15
15 FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 X>V________________________________________________________________________________________________________________________Menning Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir silja@dv.is Vandaöur Walton Tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar Islands í gærkveldi voru feikilega vel sóttir. Ein- hver hafði orö á því aö þama væru komnir flestir þeir sem einhvem tíma heföu verið orðaðir við sellóleik. Einleik- ari kvöldsins var Erling Blöndal Bengtsson, danski en islensk-ættaði sellóleikarinn sem hefur fyrir löngu eignast hér stóran hóp aðdáenda. Auk þess að geta hlýtt á leik hans í forvitnilegu verki var svo gullmoli á dagskrá sem alltaf trekkir vel. Sjöunda sinfónía Beethovens er eitt- hvert glæsilegasta verk sinn- ar tegundar og nánast mann- réttindi að fá tækifæri til að heyra hana í lifandi flutningi öðru hvom. En tónleikamir hófust á óperuforleik og er iilskiljan- legt hvers vegna þetta verk var sett inn i þessa dagskrá. Óberonforleikurinn eftir Carl Maria von Weber er ekki ólagleg tónsmíð á köflum en vekur engan áhuga, kveikir enga neista í hugskotinu. Frábær hornleikur í upphafi vakti von um innlifun sem rættist ekki. Jafnvel grunn- Erling Blöndal Bengtsson sellóleikari hrynur var óþægilega óná- Sellóiö söng í höndum hans sem aldrei fyrr. Konsertinn eftír William Walton varð í höndum hans ein syngjandi björt lýrík - kvæmur á einstaka stað. En gegnsæ en sterk. til þess að vera alveg heiðar- legur þá verður víst að viður- kennast að flestir biðu jú með öndina í hálsin- um eftir einleikaranum. tónlist Og þeir urðu ekki fyrir vonbrigðum. Sellóið söng í höndum Erlings Blöndai sem aldrei fyrr. Konsertinn eftir William Walton varð í höndum hans ein syngjandi björt lýrík - gegn- sæ en sterk. Þetta er frábær tónsmíð og fyrsti kaflinn hrein snilid. Strengimir hafa þar róm- antískt yfirbragð en einstök blásturshljóðfæri em á köflum látin svara eða syngjast á við strengjastef í stuttum en töfrandi innskotum. Hljómsveitin lék af öryggi þrátt fyrir einstaka viðkvæm „unison“ augnablik. Annar kaflinn er aðeins kaldari og kannski tónlistarlega meira „töff ‘ en sá fyrsti, en hefur ekki alveg þetta guliskin sem er svo ómetanlegt í fyrsta kaflanum. Fögnuður gesta var mikill eftir flutninginn og gavotta eftir J.S. Bach þökkuð ákaft líka. Margir hefðu viljað heyra fleiri aukalög en sýningin verður jú að halda áfram, ekki satt! Stjómandinn á tónleikunum, Zuohuang Chen, skilaði eftir hlé til áhorfenda dálítið grófri en samt einkennilega sannfærandi sin- fóníu nr. 7 eftir Beethoven. Reyndar byrjaði þetta ekki alveg nógu vel. Pínulítil hrynræn ónákvæmni og alveg flatt ákall frá flautum og fiðlum lofaði ekki endilega góðu. Þegar við bættust sérkennileg hlutfoll í styrk milli hljóð- færa og hljóðfærahópa, eins og í lok fyrsta kafla, var skiljanlegt að tortryggni litaði inn- an hlustimar. Margt reyndist þó svo vel mót- að í öðrum kaflanum að annað gleymdist. Alltof sterkur flautuleikur á undan fúghetto- hlutanum er t.d. eitthvað sem verður að fyrir- gefast þegar á heildina er litið. Flettingar voru óvenjulega áberandi þetta kvöld og það gerðist lika í þessu verki. Þriðji kaflinn var vel leik- inn og þar mátti heyra og sjá, eins og oft áður, það vægi sem stjómandinn gaf bössunum. Persónulega áherslu sem kom vel út. Túlkun- in á siðasta kaflanum minnti á lýsingar af frakka tónskáldsins. Hann var grár og úr grófu ullarefni. Hann var síður og á honum stórir vasar sem tónskáldið notaði undir skissubækur og samtalsbækur þegar hann hafði misst heym. Frakkinn var ekki hreinn og líkari tjaidi en yflrhöfn. En svona klæddist Beethoven og dálítið groddaleg túlkunin á verki hans virkaði allt í einu eins og minning um manninn. Á þessum tónleikum vom þannig dregnar skýrar og sterklegar línur, en lika fíngerðar og ómótstæðilega ljóðrænar. Frábær blanda. Sigfríður Bjömsdóttir Slnfóníuhljómsveit íslands lék í Háskólabíói: Carl Maria von Weber: Oberon, forleikur; William Walton: Selló- konsert. Elnleikari: Erling Blöndal Bengtsson; Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 7. Hljómsveitarstjóri: Zuohuang Chen. Leiklist Hiö fullkomna jafnrétti? Björk Jakobsdóttlr í sellófanumbúöum Leikritiö er lýsing á „dæmigeröum “ degi í lífi nútímakonunnar Elínar. Björk Jakobsdóttir leik- kona var einn af stofnend- um Hafnarfjarðarleik- hússins Hermóðs og Háð- varar haustið 1995 og hef- ur starfað þar óslitið síð- an. Það kemur því varla á óvart að hún velji að sýna einþáttung sinn Sellófon í veitingasal leikhússins, enda kemur fram í leik- skrá að sýningin sé unnin í samvinnu við Hafnar- íjarðarleikhúsið. Björk á heiðurinn af textanum auk þess að leika eina hlutverkið en leikstjóri uppfærslunnar er Ágústa Skúiadóttir. í blaðakynningu á ein- leik Bjarkar var því hald- ið fram að um væri að ræða nokkurs konar kvenkyns útfærslu á Hell- isbúanum. Fyrir fram hafði ég því gert mér í hugarlund að eitt megin- þema verksins væri sam- skipti kynjanna en svo er alls ekki. Leikritið er lýsing á „dæmigerðum" degi í lífi nútímakon- unnar Elínar sem reynir að samræma heimilis- hald, bamauppeldi og starfsframa með misjöfn- um árangri. Hún er að vísu gift en eiginmaður- inn Palli er svo gjörsamlega laus við alla ábyrgð að hann gæti allt eins búið úti í bæ. Hann er far- inn í vinnuna þegar Elín ræsir bömin (of seint) og hann er ekki enn kominn heim þegar hún gef- ur þeim kvöldmatinn (ónefndan rétt úr eldhúsi framleiðenda 1944) eða kemur þeim í háttinn. Vandamálin sem Elín þarf að kljást við í sínu daglega lífi em vissulega kunnugleg og hnyttinn textinn féll í góðan jarðveg hjá frumsýningar- gestum síðastliðið þriðjudagskvöld. Þær Björk og Ágústa hafa valið þá leið að undirstrika gam- ansamari hliðar verks- ins sem er mjög skiljan- legt að teknu tilliti til textans. Ég er hins veg- ar ekki í vafa um að sýningin hefði orðið sterkari heföu þær stöllur kafað örlítið dýpra og reynt að leggja meiri áherslu á örvænt- ingu Elínar og vanmátt. í Sellófon er því ailoft haldið fram aö það eina sem jafnréttisbarátta undangenginna áratuga hafi skilað konum sé aukið vinnuálag. Það er ekki nóg með að konur þurfi að sinna heimil- inu og fullri vinnu held- ur verða þær líka að eyða drjúgum tíma í út- litið. Hvílík örlög! Hvað varð um hugtakið frjálst val? Halldóra Friðjónsdóttir P.S. Það hefði að ósekju mátt lesa leikskrána betur yfir því þar eru óþarflega margar villur. Hafnarfjaröarlelkhúsiö sýnlr Sellófon eftir Björk Jakobs- dóttur. Hlljóömynd: Arndís Steinþórsdóttir. Lýslng: Bjórn Kristjánsson. Textílhórinun: Þórunn Eva Hallsdóttir. Búnlngar: Þórey Björk Halldórsdóttir. Lelkmynd: Guörún Öyahals. Lelkstjóri: Ágústa Skúladóttir. Erling Blöndal í Salnum Þeir sem ekki komust á Sinfóníutón- leika í gær til að hlýða á sellósnilling- inn Erling Blöndal Bengtsson fá annaö tækifæri á sunnudagskvöldið því þá heldur hann einleikstónleika í Salnum í Kópavogi sem hefjast kl. 20. Á efnis- skrá eru fjögur meistarastykki tónbók- mennta heimsins fyrir selló: Sónata op. 25 nr. 3 (1923) eftir Paul Hindemith, Stef með tilbrigðum (c.1889) eftir Jean Sibelius, Svíta nr. 3 í C dúr (BWV 1009) eftir J. S. Bach og Sónata op. 8 (1915) eftir Zoltán Kodály, sem mun vera eft- irlætisverk fjölmargra tónlistarunn- enda um allan heim. Rannveig og Gerrit Rannveig Fríða Bragadóttir messósópran og Ger- rit Schuil píanóleik- ari enda Sunnudags- matinée Ýmis kl. 16 á sunnudaginn með glæsilegum tónleik- um. Á efiiisskránni eru sönglög eftir Mozart, Schubert, Mahler og de Falla, og þrjú lög eftir Pál P. Pálsson við texta eftir Wilhelm Busch verða frum- flutt á tónleikunum. Maður með kvikmyndavél í kvöld kl. 20 verður kvikmyndin Maður með kvikmyndavél (1929) eftir sovéska kvikmyndaleikstjórann Dziga Vertov sýnd í Bæjarbíói í Hafnarfirði á vegum Kvikmyndasafns íslands. Þar þvælist kvikmyndatökumaður um stórborg með myndavélina á öxlinni og myndar borgarlifið, fólkið við leik og störf, og á sama tíma fylgjumst við með því hvemig myndin sjálf verður til. Þessi sýning er hluti verkefnisins Ný tónlist - gamlar myndir þar sem ís- lenskir tónlistarmenn semja og flytja eigin tónlist við gamlar þöglar kvik- myndir, að þessu sinni nemendur í tónsmíðadeild Listaháskóla íslands, Anna S. Þorvaldsdóttir (selló), Gestur Guðnason (rafmagnsgítar) og Ólafur Björn Ólafsson (slagverk). Tónlistin er rytmísk og hrá og má helst líkja við vérksmiðjurokk, vélrænir taktar og rafmágnaður hljómur. Enda fóru tón- skáldin í helstu verksmiðjur á höfuð- borgarsvæðinu til að hlusta á vélarnar meðan þau voru að undirbúa sig. Hollendingurinn kynntur Á morgun kl. 13 kynnir Reynir Axels- son óperuna Hollend- inginn fljúgandi í Norræna húsinu á vegum Richard Wagner félagsins og Félags háskóla- kvenna. Eins og kunnugt er verður óperan sýnd í Þjóðleikhúsinu dagana 11., 13., 20., 23., og 26. maí næstkom- andi sem samvinnuverkefni Listahá- tíðar, Þjóðleikhússins, íslensku óper- unnar og Sinfóníuhljómsveitar ís- lands. Titilhlutverkið verður sungið af breska söngvaranum Matthew Best. Magnea Tómasdóttir mun syngja hlut- verk Sentu á fyrstu, fjórðu og fimmtu sýningu, en Antje Janssen á annarri og þriðju sýningu. Viðar Gunnarsson syngur Daland, Kolbeinn Ketilsson Erik, Snorri Wium stýrimanninn og Anna Sigríður Helgadóttir Mary. Enn er hægt að fá miða á sýningar. í Norræna húsinu verður einnig sýnd upptaka óperunnar frá Bayer- ische Staatsoper í Múnchen árið 1991. Enskur skjátexti. Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Opna galleríið Við minnum myndlistarmenn og áhugamenn um myndlist á að á morg- un verður í annað sinn staðið að „Opna galleriinu", nú að Þingholts- stræti 5. Það verður í einn dag opið öll- um starfandi myndlistarmönnum sem þar vilja sýna, sem og gestum og gang- andi sem það vilja skoða. Aðstandandi er félagið Viðhöfn, Laugavegi 25, sem hefur það að marki að sameina lista- menn um að vekja athygli á íslenskri samtímamyndlist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.