Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Page 18
< 18 FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 Tilvera dv lífið Söngur í Reykjanesbæ Landsmót kvennakóra verður haldið í dag í Reykjanesbæ. Alls munu 13 kórar taka þátt en gamanið mun fara fram í Keflavíkurkirkju í kvöld þar sem heljarinnar tónleikar verða haldnir. Alls taka um 400 konur þátt í hátíðarhöldunum. > ónleikar ■ DJ Óli Palli á Vídal.n Útvarpsmaöurinn landskunni Ólafur Páll Gunnarsson bregöur sér í gerfi DJ Óla Palla og þeytir skífur á Vídalin í kvöld. Þar mun hann leika bæöi nýja og gamla slagara þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað viö sitt hæfi. ■ Hliómar á Kaffi Revkiavík Keflvíska ofurbandið Hljómar verða með dúndurskemmtun á Kaffi Reykja- vík í kvöld. Hljómar vel, ekki satt? ■ Lúdó og Stofán á Catalinu -» Á Café Catallnu t kvöld veröa hinir mögnuðu Lúdó og Stefán og munu þeir skemmta langt fram á nótt. ■ Mennakprn á Kringlukránni Hin kunna og fornfræga hljómsveit Mannakorn veröur á Krlnglukránni í kvöld og munu standa fyrir heljarinnar tónlistarskemmtun eins og þeim einum er lagið. • K 1 a s s í k ■ Vortónloikar Þrastar Vortónleikar Karlakórsins Þrasta kl. 20.30 í Hafnarborg I Hafnarfirði. Dag- skrá vortónleikanna er fjölbreytt, en hún er nokkuö þjóðleg aö þessu sinni þar sem karlakórinn ferí tónleikaferð til Tékklands, Ungverjalands og Austurrík- ^ is í ágústmánuöi nk. og er dagskrá vor- tónleika uppistaöa þess sem kórinn mun flytja í Evrópu. Stjórnandi Karla- kórsins Þrasta er Jón Kristinn Cortez. •Leikhús ■ Stromoleikurinn I kvöid kl. 20 sýnir Þjóðleikhúsið leikrit- iö Strompleikurinn eftir Halldór Lax- ness. Verkið fjallar um mæögur sem reyna að koma undir sig fótunum á sér- stæðan hátt I Reykjavíkurborg. Verkið er sérlega fyndið og hefur hlotiö góða gagnrýni I gegnum árin og I dag hefur enginn breyting orðiö þar á. Miða er hægt að nálgast hjá Þjóðleikhúsinu T síma 551 1200. ■ Gesturinn í kvöld sýnir Borgarleikhúslð verkiö ** Gesturlnn á litla sviðinu. Á þessari vit- firrtu en alvarlegu nóttu reynir Freud að átta sig á hinum furðulega gesti. Leik- stjórni er Þór Tulinius en miöapantanir fara fram í síma 568 800. •Fyrirlestrar ■ Fiölmiðlar og hrvðiuverk Málþing um fjölmiðla og hryðjuverk veröur milli kl. 16 til 18 í sal 101 í Odda, Háskóla íslands við Suöurgötu. Það er íslenska UNESCO-nefndin sem heldur málþingiö. Tilefniö eru atburöirn- ir í Bandaríkjunum 11. september sl.; en 3. mat er tileinkaöurfjölmiðlafrelsi á alþjóöavísu á vegum UNESCO ár hvert. '*■ Meðal frummælenda veröa: Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, Bogi Ágústsson, fréttastjóri Sjónvarps- ins, Kári Jónasson fréttastjóri Útvarps, og Sigmundur Ernir Rúnarsson, ritstjóri DV. Umræöum stjórnar Elín Hirst, vara- fréttastjóri Sjónvarpsins. » Glitter rekinn frá Kambódíu Gamla rokkstjaman Gary Glitter, sem árið 1999 var fangelsaður eftir að hafa orðið uppvís að því að geyma barnaklám í tölvu sinni heima í Englandi, á nú yfir höfði sér brott- rekstur frá Kambódíu, eftir að ljós- myndari breska slúðurblaðsins Sun myndaði hann með barnungu stúlku- barni á leið inn í íbúð sína i höfuð- borginni Phnom Penh. Glitter, eða Paui Francis Gadd eins og hann heit- ir réttu nafni, hefur búið í Phnom Penh síðasta háifa árið eftir að hafa verið vísað frá Kúbu, en þangað flutti hann eftir að hafa afþlánað sex mán- uði af tólf mánaða dómi. Að sögn talsmanns útlendingaeftir- litsins í Phnom Penh, er aðeins beðið ákvörðunar dómsmálaráðuneytisins sem rannsakar málið í góðri sam- vinnu við breska sendiráðið. Spears spjöllud? Þá virðist það loks- ins komið á hreint að söngpían Britney Spears er ekki hrein mey, eins og hún hef- ur alltaf haldið fram, eða svo segir alla vega fyrrum kærasti hennar, Justin Timberlake sem þykist vita betur. Spears hefur alltaf lagt á það áherslu að hún ætlaði að halda í meydóminn þar til eftir giftingu, en hún er baptista-trúar og hefur stöðugt haldið því fram að hún hafi aldrei haft mök við fyrrum kærasta sína. En nú hefur Timberlake kjaftað frá og segist manna best vita það að hún missti meydóminn fyrir nokkru síð- an, en þau hafa verið saman af og tO allt frá tólf ára aldri. Britney sagði sjálf nýlega í viðtali að hún sæi eftir því að hafa sagt opin- berlega frá þessum ásetningi sínum en lét jafnvel í það skína að hún hafi ein- hvern tima prófað skemmtilegheitin. Undirbúningur fyrir landsmót skáta: Elduðu tyggjó-grjónagraut Undirbúa sig fyrir Landsmót Þaö voru hressir krakkar sem voru aö æfa sig í eldamennsku. Skátaflokkar um allt land eru nú að búa sig undir landsmót skáta sem verður haldið að Hömrum við Akur- eyri dagana 16.-23. júlí. Flokkamir taka meðal annars þátt í flokkakeppn- inni Búkoliu, sem er blanda af sögu, fróðleik og skemmtilegum verkefnum. Skátaflokkamir Strumpar og Eldfugl- ar í skátafélaginu Garðbúum í Reykja- vík fóru í útilegu fyrir stuttu síðan til að leysa sjötta verkefnið í leiknum; að elda grjónagraut á opnum eldi. „Eldamennskan tókst mjög vel,“ segja krakkarnir stoltir. „Það vár að vísu þykk svört brunarúst neðst í pottunum sem var ekkert sérlega gaman að þrífa. Grauturinn bragðað- ist samt mjög vel. Hann var svolítið eins og tyggjó, maður gat snúið disk- unum við án þess að grautinn rynni af þeim.“ Skátarnir voru sammála um að þó grauturinn hefði verið mjög finn með kanilsykri væri hann „ekki eins góð- ur og hjá mömmu“, enda hefðu að- stæður verið aðrar en í eldhúsinu heima. „Við elduðum á hlóðum, á stjörnueldi. Þá er steinum raðað í kross og spýtur settar á milli fyrir bál- ið. Við vorum með hreinan eld, enga olíu og eiginlega engan pappa. Þetta var rosalega gaman og nú ætlum við alltaf að elda grjónagraut á eldi í úti- legum til að sýna kunnáttu okkar," Grauturinn góði Grauturinn var að vísu ekki alveg eins og mamma gerir hann, en góöur samt. segja krakkamir og hlæja. Meðal annarra verkefna í flokka- keppninni fyrir landsmótið var stutt- myndagerð og veðurlýsing. „Önnur stuttmyndin okkar var um þrjá menn sem villtust í eyðimörk og þurftu að nota hár úr hala Búkollu til að fá pitsu og óskarstilnefhingu. Svo höfum við skrifað bréf til vinaflokka, gert vandaða veðurlýsingu og margt fleira.“ Krakkamir segjast öll ætla á Lands- mót. „Garðbúar munu auðvitað standa sig best og vinna allar keppn- imar. Annars ætlum við bara að skemmta okkur vel, fara í sólarhrings „hike“, klífa kletta, fara í bátsferðir, og kynnast öðrum skátum. Það væri til dæmis gaman að kynnast skosku skátunum sem spila á sekkjapípur og Japönum. Kannski hittum við súmó- glímumann! Það væri æðislegt," segja þessir hressu skátar að lokum. Bio^a/'nryní Lítil saga í stórum búningi Sambíóin - The Affair of the Neckiace: Sif Gunnarsdóttir skrifar gagnrýni um kvikmyndir. The Affair of the Necklace eða „Hálsmensvesenið" gerist í Frakk- landi á 18. öld rétt fyrir byltingu. Hil- ary Swank leikur Jeanne St Remy de Valois, unga konu sem vill gera hvað sem er til að vinna aftur ættaróðal sitt og virðingu fyrir fjölskyldunafninu Valois en hvort tveggja missti hún þegar faðir hennar lenti í útistöðum við konunginn þegar hún var barn. Með því að giftast aðalsmanni kemst hún að við hirðina, en þegar óteljandi tilraunir hennar til að ná sambandi við Maríu Antoinettu drottningu (Richardson) bera ekki ár- angur ákveður hún að ná sínu fram með öðrum leiðum. Með hjálp friðils síns (Baker) og eiginmanns (Brody) ákveður hún að leika á drottninguna, Rohan kardinála og konunglegu gull- smiðina og koma höndum yfir mikið hálsmen sem er skreytt ótrúlega mörg- um demöntum - því það á að fjár- magna kaup á ættaróðalinu. En það er ekki auðvelt að plata kardinálann og helsti ráðgjafi drottningar, Breteuil barón (Cox), er fullur grunsemda. Búningamir í myndinni nálgast það að vera guðdómlegir, sérstaklega efnismiklar skikkjumar sem aðalper- sónurnar klæðast gjaman þegar þær vinna sin myrkraverk. Leikmyndin er líka einkar glæsileg enda erum við mikið til í sölum og görðum Versala. Þetta tvennt stendur tvímælalaust upp úr í The Affair of the Necklace. Að vísu em margir leikarar í auka- hlutverkum sannfærandi. Jonathan Pryce á ekki í vandræðum með að sýna okkur gráðugan og lostafullan kardinála, eins er Brian Cox valds- mannslegur sem ráðgjafinn, Joely Richardson er skemmtilega hrokafull og heimskuleg drottning og Christopher Walken frábær að vanda í hlutverki spámanns sem Valois fær í lið með sér til að plata kardinálann. Hilary Swank sem fékk óskarsverð- launin 1999 fyrir aðalhlutverkið í Boys don’t cry er hér á afar hálum ís. Hún nær engan veginn utan um per- sónu Valois, þótt hún sé ávallt óvið- jafnanlega klædd, og helstu meðleik- arar hennar, Simon Baker í hlutverki kærastans og Adrien Brody sem eigin- maðurinn eru frekar litlausir og vandræðalegir með henni. Þótt ég sé viss um að sterkari leikkona hefði get- að lyft myndinni töluvert þá liggur sökin fyrst og fremst hjá leikstjóran- um Charles Shyer sem veit ekki alveg hvaða sögu hann er að segja. Hann vill að við sjáum aðgerðir Valois sem hetjudáðir. Við eigum að hrífast af svikum hennar lygum og prettum sem hún iðkar einungis í eigin þágu - en það gengur ekki, okkur er sama um afdrif hennar. Ef hún hefði verið hreint og beint vond og gráðug þá hefði hún ef til vill verið áhugaverðari. Shyer hef- ur áður getið sér gott orð sem gaman- myndaleikari, t.d. hefur hann leik- stýrt Steve Martin í Father of the Bride 1 & 2 svo að sennilega hefði hann bara átt að snúa græðgisplotti Valois upp í grin, þá hefði maður ef til vill farið kátari heim. Lelkstjórl: Charles Shyer. Handrit: John Sweet. Kvlkmyndataka: Ashley Rowe. Tónllst: David Newman. Aöalleikarar: Hil- ary Swank, Simon Baker, Adrien Brody, Joely Richardson, Jonathan Pryce, Brian Cox og Christopher Walken.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.