Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2002, Page 27
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 2002 27 pv_____________________________________________________________________________Sport Lokaúrslitapunktar Valsmenn hafa tekiö upp á því í úrslitakeppninni aö hafa til- komumikla kynningu á leik- mönnum sinum að bandarískri fyrirmynd. Ljósin eru slökkt í húsinu og ljóskastari er notaður og reykur liðast um gðlfið þegar þeir hlaupa inn á völlinn og skapar þetta skemmtilega stemningu. í fyrri leiknum á móti Aftureld- ingu í undanúrslitunum um dag- inn fór þó brunakerfí hússins í gang en ekkert slíkt gerðist nú. Tónlistin sem spiluó var í Vals- heimilinu í gærkvöldi var ekki beint ný af nálinni og halda hefði mátt aö gömlum Tranz dans/Reif í fótinn disk frá vel- mektarárum Valsmanna, 1993-96, hefði verið skellt í. Kannski er í þessu fólgin von um aðra eins tíð og þá var og þetta sé meðvituð sköpun and- rúmslofts liðins tima, hver veit? Það er gaman að fylgjast með Jónatan Magnússyni, leik- manni KA, í leik. Hann hvetur sína leikmenn óspart og barátt- an er til fyrirmyndar þótt bráð- lætið sé á talsvert. Það liggur við að mann svimi og stundum er eins og maður sé að horfa á hraðspólaða bíómynd. Það er gaman að svona leikmönnum. Gamla brýnið Geir Sveinsson, þjáifari og leikmaður Vals, tók fram skóna að nýju í vetur en hann spilar aðallega f vörninni og er henni mikill styrkur. Það tók harðjaxlinn ekki nema átta- tíu sekúndur aö næla sér í gult spjald i leiknum í gær. -SMS 13 sigrar í röö á Hlíðarenda Valsmenn unnu í gær sinn þrettánda heimaleik í röð í úrslitakeppninni og þar af hefur liðið unnið 12 siðustu heimaleiki sína á Hlíðarenda. Alls hafa Valsmenn leikið 33 heimaleiki í úrslitakeppni og unnið 31 þeirra. Valsmenn hafa ekki tapað heimaleik í úrslitakeppni síðan Afturelding vann í fyrsta leik liðanna í undanúr- slitaeinvígi, 19. mars 1996. Síðan þá hefur Valur unnið 13 heimaleiki í röð, tólf á Hlíðarenda og einn i Höliinni í lokaúrslitum vorið 1996. -ÓÓJ Valsvörnin var geysisterk í gær, eins og sjá má vel á þessari mynd Einars Olasonar. Hér reynir Halldór Sigfússon aö brjóta sér leiö í gegn en kemst lítiö áleiöis gegn þeim Snorra Steini Guöjónssyni og Sigfúsi Sigurössyni. Fyrir aftan er síðan Roland Eradze viö öllu búinn í markinu. DV-mynd E.ÓI. Þrjátíu skot - KA-manna enduðu á Roland Eradze í markinu eða á Valsvörninni Þórir til Hauka Þórir Ólafsson, örvhentur hornamaður, gerði í gær samn- ing við deildar- og bikarmeistara Hauka um að leika með liðinu í handboltanum næstu vetur. Þórir er 23 ára og er uppalinn hjá Selfossi og á að baki einn landsleik undir stjórn Þorbjöms Jenssonar. Þórir skoraði 95 mörk fyrir Selfoss í vetur og nýtti 57,2% skota sinna en 27 markanna gerði hann úr hraða- upphlaupum. Haukar ætla Þóri það hlutverki að minnka álagið á Einari Emi Jónssyni en svo gæti þó líka farið að Einar Öm leiki erlendis næsta vetur. -ÓÓJ Taka Ragn- ar og Andr- és viö Vík- ingi? Það lítur allt út fyrir það að Andrés Gunnlaugsson og Ragnar Hermannsson taki saman við kvennaliði Víkings í Essó-deild- inni. Samkvæmt heimildum DV- Sports er vilji hjá báðum aðilum, þar er að segja þeim Andrési og Ragnari annars vegar og stjóm handknattleiksdeildar Víkings hins vegar. Aðeins eigi eftir að setjast niður og ganga frá samn- ingi. -Ben 15 tillögur fyrir árs- þing KKÍ 42. ársþing KKÍ verður haldið á Sauðárkróki um helgina. Þing- setning veröur kl. 10 á morgun og gert er ráð fyrir að þingstörfum ljúki upp úr hádegi á sunnudag. í dag verða almennar umræöur, þar sem áleitin mál verða tekin til umfjöllunar. Alls liggja 15 tillögur fyrir þing- inu og vekja nokkrar mikla at- hygli. Þar má nefna tillögu um fækkun liða í úrvalsdeild, tvær breytingartillögur um fyrirtækja- bikar KKÍ (nýtt fyrirkomulag og nýjan leiktíma), tillaga um launa- þak á greiðslur tO innlendra leik- manna og leikmanna frá Evrópu, tillaga um tímamörk á ráðningar „nýrra“ erlendra leikmanna og tillögur um nýja leiktíma á leikj- um, það er að færa leiki til kl. 19.00 eða 19.15. Þaö má því búast við spennandi ársþingi. -ÓÓJ Stærsta stund Guðjóns Guðjón Þórðarson, knatt- spyrnustjóri Stoke, var harla sátt- ur við lífið þegar staðarblaðið í Stoke-on-Trent, The Sentinel, ræddi við hann eftir sigur Stoke á Cardiff á Ninian Park í undanúr- slitum umspils um sæti í 1. deild á miðvikudagskvöldið. „Þetta er stærsta stund mín sem knattspyrnustjóri. Við sigruðum mjög sterkt lið á úti- velli og ekki skemmir fyrir að lið- ið sem ég stillti upp í leiknum kostar jafnmikið og önnur löppin á Kav,“ sagði Guöjón Þórðarson og vísaði til sölu stjórnar Stoke á miðjumanninum Graham Kavanagh til Cardiff fyrir 150 milljónir siðastliöið haust. -ósk Valsmenn tóku 1-0 forustu í lokaúr- slitum EssodeOdar karla í handbolta þegar þeir unnu framlengdan leik gegn KA, 26-22, á heimaveOi sínum á Hlíðarenda í gær. Spenna og skemmt- un þessa leiks bendir tO að handbolta- áhugamenn eigi í vændum æsispenn- andi og stórskemmtOegt einvígi en næsti leikur er á Akureyri á morgun, laugardag, og hefst klukkan 16.00. Hvorugt liðanna hafði leik í úrslita- keppninni í ár og þegar KA-menn unnu upp þriggja marka forskot Vals- manna á lokakafla leiksins og tryggðu sér framlengingu benti margt tO þess að þeir væru aö endurtaka leOdnn frá því í átta liða og undanúrslitum þegar þeir unnu fyrsta leik á útiveli í fram- lengingu. En svo varð þó ekki raunin, þökk sé Valsvöminni og markverði liðsins, Roland Eradze sem vörðu affs 30 skot frá KA-mönnum. Roland varði 16 skot og Valsvömin tók önnur 14. Eradze fann sig ekki fyrir hlé og varði aðeins þrjú skot í fyrri hálfleik en varði 13 skot eftir hlé, þar af þrjú víti og sex af 8 skotum KA-manna í fram- lengingu. Það má segja að uppkoma Eradze í seinni hálfleik hafi verið síðasta púslið i hina geysisterku Valsvörn en í hálfleik höföu varnarmenn liðsins varið fjögur fleiri skot en Roland í markinu og höfðu betur aOt þar tfl í framlengingunni er Roland lokaði. KA-menn byrjuðu leikinn betur og höfðu frumkvæðið í fyrri hálfleik ekki síst fyrir góðan leik HaOdórs Sigfús- sonar en misstu niður tveggja marka forskot sitt á frekar klaufalegan hátt á síðustu tveimur mínútum fyrri hálf- leiks. Valsmönnum gekk betur gegn 3:3 vöm KA-manna eftir hlé og náðu mest fjögurra marka forskoti, 19-15, um miðjan hálfleOcinn. KA-menn voru þó ekki á því að gef- ast upp og náðu að jafna leikinn og það að Egidijus Petkevicius varði víti frá Valsmönnum hálfri mínútu fyrir leikslok gaf þeim tækifæri á að tryggja sér sigurinn í síðustu sókn- inni sem tókst þó ekki. Petkevicius varði mjög vel í venju- legum leiktíma, aOs 19 skot, en átti ekkert svar við hnitmiðuðum skotum Valsmanna í framlengingunni. Auk Rolands voru þeir Sigfús Sig- urðsson og Geir Sveinsson sterkir í vörninni, Freyr Brynjarsson og Bjarki Sigurðsson voru lykOmenn í að leysa framliggjandi vörn noröan- manna og Markús Máni Michaelsson kom sterkur upp eftir hlé er hann gerði 5 mörk með glæsOegum lang- skotum og það úr aðeins sjö skotum. Hjá KA var Petkevicius góður í markinu og vörnin gekk lengstum mjög vel en í sókninni var það ein- ungis Halldór Sigfússon sem fann sína ' ' fiöl. Aðrir voru nokkuð frá sínu besta eða komust bara lítið aleiðis gegn Valsvörninni að þessu sinni. -ÓÓJ Veit ekki hvað gerðist hjá okkur ,-,Er ekki í lagi að ég fái mér sæti?“ segir Heiðmar Felixson, leikmaður KA, og dæsir þegar blaðamaður DV nær tali af honum eftir leikinn. Hann var eins og gefur að skOja ekki sáttur með úrslitin né eigin spflamennsku og telur að bæði hann og liðið í hefld eigi mikið inni. „Ég veit ekki alveg hvað gerðist í kvöld hjá okkur en við gáfumst þó aldrei upp frekar en venjulega en þó var lítið eftir af pústinu í framlengingunni og spuming hvort hungrið hafi verið nógu mikið hjá okkur. Þetta er þó langt frá því að vera búið enda eru þessi tvö lið mjög áþekk að styrkleika og spfla bæði hraðan og skemmtflegan bolta og það er varla hægt að fá betri eða skemmtflegri úrslitaleUú," sagði Heiðmar Felixson. -SMS Eins og leikir eiga að vera „Þetta var eins og leikir eiga að vera, dramatík, læti, góð stemning og bara frábær handbolti og ég held að enginn verði svikinn af þessum leikjum,“ sagði Geir Sveinsson, leikmaður og þjálfari Vals, að leik loknum og bætti við: „Því miður þurfti annað liðið að tapa hér í kvöld en svona er þetta og nú er það bara Akureyrin. Við ætlum að hafa gaman af þessu og njóta þessara leikja og að sjálfsögðu væri ekki verra að hampa þeim stóra og þessi leOcur var stórt skref í áttina að því. Stemningin í hópnum er virkUega góð og ég held að við eigum talsvert inni og við höfum sýnt geysflegan styrk í þeim tveimur framlengingum sem við höfum lent í hingað tU og ég hef svo sannarlega trú á þessu liði,“ sagði Geir Sveinsson. -SMS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.