Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Side 10
10 MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2002 Útlönd H>"V REUTERSMYND Áin Meghna í Bangladesh Óveöur tefur viö björgun. Ferjuslysið í Bangladesh: 44 lík fundin Talið er að um 300 manns hafi farist þegar ferja sökk á Meghna- ánni í Bangladesh á fostudagskvöld í miklu óveðri. 500 manns voru um borð og var um 100 bjargað en nokkrir gátu komið sér úr hættu upp á eigin spýtur. í gær fundu björgunarmenn 42 lík og er þá fjöldi látinna kominn upp í 44 en ólíklegt verður að teljast að margir, ef einhver, finnist á lífi úr þessu. Enn er óveður á þessum slóðum og var leitinni hætt í lok dags og var haldið áfram i morgun þegar tók að birta. Mörg líkanna sem fundust voru á floti á ánni. Stórsigur Jaques Chiracs í forsetakosningum í Frakklandi: Vandræðalegur sigur sem gæti kostað sitt Þúsundir Frakka flykktust út á götur borga landsins þegar ljóst var að franska þjóðin hafði hafhað svo um munaði hægri öfgamanninnum Jean- Marie Le Pen sem ásamt núverandi forseta, Jaques Chirac, fékk flest atkvæði í fyrstu umferð kosninganna og þar með sæti i síðari umferð. Hún fór fram í gær og bentu fyrstu tölur tfl þess að Chirac hefði hlotið um 80% atkvæða og Le Pen um 18%. Le Pen var fljótur að viðurkenna ósigur og Chirac lýsti því yfir að með sigri sínum hefðu Frakkar staðfest ást sína á lýðræðinu en engu að síður verður það að teljast afar slæmt að Le Pen skyldi á annað borð komast jafh langt og hann gerði. Vinstrimenn sáu sér ekki annað fært en kjósa Chirac þar sem hann varð að teljast skárri kostur af tveim- ur slæmum að þeirra mati og gengu REUTERSMYND Jear>-Marie Le Pen Hægri öfgamaöurinn sem slysaöist inn í 2. umferö forsetakosninganna. margir þeirra til kosninga með klemmu um nefið vegna „hægrifnyks- ins“. Þrátt fyrir að stjómmálaferill sós- íalistans Lionel Jospin, forsætisráð- herra Frakklands, hafi dáið i fyrstu umferð forsetakosninganna, þar sem hann beið afhroð, verða sósíalistar að teljast sigurstranglegir í þingkosning- unum sem eru fram undan von bráðar í kjölfar þessara afar vandræðalegu kosninga um æðsta embætti Frakka. Eftir að hægri öfgamaðurinn Jörg Haider í Austurríki hafði margsinnis bankað á dymar í austurrískum stjómmálum hlaut hans flokkur „loks- ins“ góða kosningu árið 1999. Með það að fordæmi ættu Frakkar að varast það að gera litið úr áhrifúm Le Pens í frönskum stjómmálum og grípa strax tfl aðgerða sé vilji tfl þess að afstýra því í framtíðinni að hann komist jafh nálægt völdum og raun bar vitni nú. ) VIVALA PARISIVIKU -Rómantískasta höfuöborg Evrópu Frá 47 i200kr. > á mann m.v. tvíbýli á C.l. Sacré Coeur i júlí eða ágúst. ' Innifalið: Flug, gisting i 6 nætur og föst aukagjöld FLUG OG BILL -Spennandi sumarfrí á einstöku verði Frá 28.775kr. á mann m.v. tvo fullorðna og 2 börn í viku Frá 36.000kr. á mann m.v. tvo í bíl. Innifalið: Flug, bíll B-fl. og föst aukagjöld PARÍS-flugsæti Frá 23.950kr. á mann m.v. tvo fullorðna og2böm 2-11 ára Frá 26.800kr. flugsæti fyrir fullorðna Föst aukagjöld innifalin mm M TERRA vUv NOVA isói -SPENNANDI VALKOSTUR- Stangarhyl 3A 110 Reykjavik Simi: 591 9000 terranova.is REUTERSMYND Páskadagur Alexiy annar, biskup rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, ávarpar söfnuö dóm- kirkjunnar í Moskvu, en í gær var páskasunnudegi fagnaö samkvæmt júlíönsku dagatali sem kirkjan styöst viö. Trek Sport800 dömu/herra Litin BláttAilfur, rautt/hvrtl, svart Verð kr. 32.132,- ÖRNINNP* STOFNAÐ 1925 TrekTrailer Tengihjól f.böm frá 5-8ára Verðfrákr. 26.247, Trek Navigator dömu/herra Litin Rautt svartísilfur Verð kr. 47.581,- Skeifunni 11. Sími 588 9890 Söluaöilan Hjóliö, Seltjamamesi - Músík og sport, Hafnarfiröi Útisport, Kefiavík - Hjólabær, Seifossi - Sportver, Akureyri Byggingavöruversl.Sauöárkr. - Olíufélag útvegsmanna, ísafiröi Eðalsport, Vestmannaeyjum - Pípó, Akranesi Opið laugard. 10-16 www.orninn.is Shuttleworth aftur á jörðu Intemet-miIIj óna- mæringnrinn suð- ur-afríski, Mark Shuttleworth, lenti heill á húfi á jörðu aftur, nánar tiltekið í Kazakstan, í fyrrinótt eftir 10 daga ferð í geimn- um sem ferðalangur með rússneska geimfarinu Soyuz. Sögusagnir eru um að ferðin hafi kostað þennan 28 ára mann um 135 þúsund krónur á mínútuna. Roca laus úr fangelsi Andófsmaðurinn Vladimiro Roca, alrómaðasti pólitfski fanginn á Kúbu, var um helgina látinn laus úr fangelsi, 10 vikum á undan áætlun. Gerist þetta fimm dögum fyrir heimsókn Jimmys Carters, fyrrum Bandaríkjaforseta, til Kúbu. Roca fékk ásamt fleirum úr sínum hópi dóm fyrir að reyna að grafa undan núverandi valdhöfum á Kúbu. Flugslys í Ástralíu Taliö er að fjögurra manna fjöl- skylda, hjón með tvö böm, hafi farist í slysi í Sydney í Ástralíu þeg- ar tvær litlar flugvélar skuflu sam- an rétt hjá smáflugvélaflugvelli í einu úthverfa borgarinnar. Píramídi númer 110 Fomleifafræðingar hafa í fyrsta sinn í fjögur ár fundið nýjan píramída og er sá númer 110 í Egyptalandi. Talið er að hann sé 4500 ára gamall og hann geymi graf- hýsi egypskrar drottningar. Hugo Banzer látinn Hugo Banzer, fyrrum forseti Bólivíu, lést í gær, en hann greindist með lungna- og lifrarkrabbamein síðastliðið sumar. Hann varð fyrst for- seti 1971, þá sem leiðtogi herstjómar, og aftur 1997 en þá lýðræðislega kjörinn. Varaforseti hans, Jorge Quiroga, tók við völd- um þegar veikindin komu upp. Eldur í vopnabúri Eldur kom upp í hermannaskál- um í höfuðborg Gíneu í gær og skapaði mikinn skarkala meðal íbúa borgarinnar. Háværar spreng- ingar ómuðu um borgina klukku- stundum saman og óttuðust margir að uppreisnarmenn væm að búa sig undir að hrifsa til sín völd eins og gerðist árið 1984. Svo var þó ekki. Aung San Suu Kyi sleppt? Búist er við því að leiðtoga NLD- flokksins í Burma, hinni 56 ára Aung San Suu Kyi, friöar- verðlaunahafa Nóbels, veröi sleppt úr því stofufangelsi sem hún hefur setið í síðustu 19 mánuðina. Flokk- ur hennar vann þingkosningar í landinu fyrir 12 árum en herinn, sem er við völd i landinu, hefur neitað að viðurkenna úrslit kosn- inganna. írakar hætta mótmælum Frá og með 8. maí næstkomandi munu írakar hefja aftur útflutning á olíu en fyrir um mánuði var út- flutningi hætt í mótmælaskyni við hernað Israela gagnvart Palesttnu- mönnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.