Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 22
34 MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2002 Islendingaþættir DV Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 90 ára Ragna R. Sigurösson, Espigeröi 2, Reykjavík. Valgeröur Guömundsdóttir, Lundi, Grindavík. 75 ára Hreinn Þórhallsson, Ljósavatni, S-Þingeyjarsýslu. 70 ára Soffía Ingadóttir, Sóltúni 9, Reykjavík. Elísabet Agnarsdóttir, Hafraholti 50, ísafirði. 60 ára Halldór S. Guðmundsson, Bakkastööum 73, Reykjavík. Gunnhildur A. Gunnarsdóttir, Dyrhömrum 20, Reykjavík. Hinrika Halldórsdóttir, Miðvangi 143, Hafnarfiröi. Ingunn Gyða Hjelm, Miðvangi 2, Hafnarfirði. Edda Bolladóttir, Kotárgerði 21, Akureyri. Gerður Jónsdóttir, Miðtúni, Dalvík. Svavar Sveinsson, Gilbrún, Selfossi. 50 ára Krlstinn Gunnarsson, Klapparstíg 1, Reykjavík. Jeffrey Mikael Cosser, Æsufelli 6, Reykjavík. Ingibjörg Halldóra Jakobsdóttir, Fannafold 162, Reykjavík. Áskell Vilhjálmsson, Gnlpuheiöi 15, Kópavogi. Leonard Czeslaw Cimoszko, Hafnarfirði. Anna Björg Jónsdóttir, Lækjarhvammi 29, Hafnarfiröi. Þorsteinn Júlíusson, Laugarbæ, Borgarf. Páll Ragnar Sveinsson, Sunnuvegi 3, Selfossi. 40 ára Guðlaug Jónsdóttir, Mjóuhllð 10, Reykjavík. Sigurlaug J. Sigurðardóttir, Skipholti 47, Reykjavík. Bára Hafsteinsdóttir, Flúðaseli 42, Reykjavík. Ingibjörg Jóhanna Eiríksdóttlr, Tungubakka 32, Reykjavík. Svandís Sigurðardóttir, Krummahólum 4, Reykjavík. Þórlaug Inga Þorvarðardóttir, Furugrund 68, Kópavogi. Rodrigo Tolo Jumapao, Þverbrekku 4, Kópavogi. Rósa Karlsdóttir, Brúnási 18, Garðabæ. Ingibjörg B.K. Hjartardóttir, Suðurhvammi 11, Hafnarfirði. Jónína Guðrún Færseth, Baugholti 13, Keflavík. Hilmar Guðstelnsson, Skólavegi 16, Keflavlk. Jón Bjarni Andrésson, Háarifi 13, Rifi. Hulda Birna Frímannsdóttir, Brekkubyggð 19, Blönduósi. Jóhann Ottesen, Hvanneyrarbraut 54, Siglufirði. Guðrún Björg Víkingsdóttir. Sæbakka 7, Neskaupstað. Hilmar Sigurðsson, Þiljuvöllum 26, Neskaupstað. Jón Þröstur Ólafsson, Heiðmörk lla, Hverageröi. Helgi Þór Gunnarsson, Áshamri 58, Vestmannaeyjum. Þórlaug Steingrímsdóttir, Búhamri 26, Vestmannaeyjum. Andlát og jarðarfa Ríkharður Axel Sigurðsson lyfjafræðingur, Birkihlíð 5, lést á Landspítalanum við Hringbraut 1. maí. Aðalheiður Magnúsdóttir, Efstasundi 80, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítala, Landakoti, 1. maí. Jón Einar Samúelsson múrarameistari, Kaplaskjólsvegi 59, Reykjavík lést á Landspítalanum viö Hringbraut 1. maí. Slgurður Þ. Tómasson, Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík verður jarðsunginn frá Bústaðarkirkju þriðjudaginn 7. maí kl. 13.30. Guðjón Júníusson múrari, Smyrilshólum 4, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju þriðjudaginn 7. maí kl, 13.30. Fólk í fréttum Anna Palma Arnadóttir söngkona Anna Pálína Ámadóttir, söng- kona og dagskrárgerðarmaður, hefur gefið út nýjan disk sem hún nefnir Guð og gamlar konur. Starfsferill Anna Pálina fæddist 9. mars 1963. Hún gekk í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði og gerðist strax söng- kraftur með kór skólans. Eftir það lá leiðin í Flensborg og þaðan útskrifaðist hún sem stúdent 1983. Hún lauk námi frá Kennarahá- skólanum 1988 og hefur stundað nám við Tónlistarskóla FÍH, auk þess sem hún hefur numið söng hjá einkakennurum, innlendum og erlendum. Anna Pálína hefur lagt sig fram um að syngja vísnatónlist og „draga fram ljóðið í lögunum". Hún starfaði mikið með Vísnavin- um og hefur haldið söngskemmt- anir um allt land, auk þess sem hún hefur komið fram á öllum Norðurlöndunum og Grænlandi, sem fulltrúi Islands á hinum ýmsu tónlistarhátíðum og á tón- leikaferðum með eigin hljómsveit. Á efnisskrá hennar er að finna allt frá hefðbundinni norrænni vísnatónlist yfir í íslensk sönglög, þjóðlög, barnatónlist, sálma og jasstónlist. Guð og gamlar konur er sjö- unda plata Önnu Pálínu, útgefin af útgáfufyrirtækinu Dimmu sem hún og maður hennar eiga. Anna Pálína hefur verið dag- skrárgerðarmaður í útvarpinu í rúm 11 ár. Meðal þátta hennar þar eru: Saltfiskur með sultu (bama- Tilvera og fjölskylduþáttur), Pálína með prikið (þáttaröð um vísna- tónlist), Brestir og brak (þáttaröð um íslenska leikhústón- list), Já, einmitt! og Sperrið eyrun! Þá var hún einn af hug- myndasmiðum Vit- ans, barnavefs og bamatíma. Fjölskylda Anna Pálína er gift Aðalsteini Ás- berg Sigurðssyni, rithöfundi og tón- listarmanni, f. 22.7. 1955. Foreldrar hans eru Þorgerð- ur Kristjana Aðalsteinsdóttir, f. 6. 11.1931, og Árni G. Jónsson, bóndi á Öndólfsstöðum i Reykjadal, f. 10.11. 1933. Böm þeirra Önnu Pálínu og Að- alsteins Ásbergs: Aron og ísak, f. 5.2. 1986, d. sama dag. Ámi Húni, f. 11.8. 1988, Þorgerður Ása, f. 7.6. 1990, og Álfgrímur, f. 18.3. 1997. Systkini Önnu Pálínu: Ásgeir kennari, f. 10.3.1940, kvæntur Sig- ríði Jóhannesdóttur alþingis- manni. Þeirra böm eru Jóhannes, Þóra Kristín, Ester og Aldís; Páll framleiðslustjóri, f. 30.7. 1944, kvæntur Bryndísi Skúladóttur sérkennara. Þeirra böm eru Ámi, Gyða og Svanur; Kristín hjúkrun- arfræðingur, f. 11. 10. 1945, gift Einari Sindrasyni yfirlækni. Þeirra böm eru Sindri, Árni Páll og Ingigerður; Björgúlfur Kláus, f. 15.3. 1947, nú látinn, hann var Shaolin-munkarnir á leið til landsins Næstkomandi laugardag verður i Laugardalshöll sýningin Wheel of Life sem byggð er á blöndu fúllkominnar íhugunar og iðkunar Kung Fu-sjálfs- vamarlistarinnar. Um er að ræða merkilega sýningu sem hefúr farið sig- urför um heiminn og verið sýnd í mörgum löndum. Það eru tuttugu og fimm munkar frá hinu helga kín- verska musteri sem segja sögu af bar- áttu Shaolin-munkanna fyrir tilveru sinni og vöm musterisins. Ber sýning- in gífurlegum likamlegum styrk munkanna glöggt vitni. Það em tutt- ugu og fimm munkar sem taka þátt í sýningunni, þar af tíu á aldrinum 10-12 ára. Munu þeir koma til með að sýna hér ótrúlega líkamsfimi, jafnframt því sem þeir segja sögu sína, hvemig þeir þróuðu bardagalistina Kung Fu þegar þeir máttu ekki nota vopn í baráttu sinni við hin veraldlegu öfl. Sýningin er síðan blönduð nútíma-rokktónlist sem gerir það að verkum að nútíminn og gamlar heföir blandast á áhrifamik- inn hátt. Shaolin-munkarnir búa í Henan- héraði í Kína, þar sem þeir hafa hald- ið til í yfir 1500 ár. Þeir em Zen- búddistar og hafa ávallt verið friðsam- ir. Fyrstu munkarnir af þessari reglu þróuðu sjálfsvamarlistina Kung Fu sem öflugt vamarvopn í baráttunni við ættflokka sem létu ófriðlega og herstjóra sem vildu eyðileggja trú kvæntur Anne Dabney Ámason. Þeirra böm eru Páll og Ásgeir; Hólmfríður, talmeinafræðingur, f. 22. 5.1948, var gift Friðriki Rúnari Guðmundssyni, talmeinafræðingi. Þeirra böm eru Frosti, Herdís og Friðrik Snær. Foreldrar Önnu Pálínu: Ester Kláusdóttir f. 30.4. 1922, starfsmað- ur í Hafnarborg í Hafnarfirði, og Árni Gíslason framkvæmdastjóri, f. 15. 11. 1920. Hann lést árið 1987. Ætt Ester var dóttir Pálínu Björg- úlfsdóttur frá Eyrarbakka og Kláusar Hannessonar frá Blika- stöðum í Mosfellssveit. Árni var sonur Gísla Ásgeirs- sonar og Kristínar Kristjánsdótt- ur frá Bíldudal við Amarfjörð. Mikill styrkur Munkarnir búa yfir miklum styrk sem gerir þeim kleift að þola mikið líkam- legt álag. þeirra og ná yfirráðum yfir hinu stór- brotna musteri reglunnar. -HK Munkar á öllum aldri Munkarnir sem koma fram á sýningunni í Laugardalshöll eru frá ellefu ára aldri. George Clooney 41 árs George Clooney á afinæli i i dag. Clooney varð þekktur íyrir að leika einn lækninn í sjónvarpsseríunni Bráða- vaktinni. Hann hefur fest sig í sessi í kvikmyndum og er ein vinsælasta kvik- myndastjaman í dag. Clooney virðist kunna að njóta lífsins og kemur alltaf fyrir sem vel afslappaður maður og lætm það ekki hafa áhrif á sig þótt slúðurpressan sé að bendla hann við hina og þessa glæsipíuna. í fjöl- skyldu Clooneys er mikið um fólk í skemmt- anabransanum. Faðir hans, Nick, var leik- ari og sjónvarpsþáttastjómandi, frænka hans er söngkonan Rosemary Clooney og leikarinn Jose Ferrer var frændi hans. Glldir fyrir þriðjudaginn 7. maí Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.r : i| Gerðu þér grein fyrir r því að allir eiga við ' | sín vandamál að stríða, ekki bara þú. Þér hættir til að loka þig af í eigin heimi. Fiskarnir (19. fehr.-?0. marsi: Gerðu ráð fyrir að þú verðir fyrir tmflunum sfðari hluta dags. Þér finnst lífsbaráttan hörð en hagur þinn fer batnandi. Happatölur þínar era 9, 18 og 25. Hrúturlnn (21. mars-19. anríli: Eitthvað verður til að minna þig á löngu liðna tíð og þér finnst eins og allt hafi verið betra þá. Mundu að þú lifir í nútíðinni en ekki fortíðinni. Nautlð (20. april-20. maíl: Það borgar sig að gefa öðram hlutdeild í hugsunum sínum. Þeir geta áreiðanlega gefið góð ráð varðandi erfitt mál sem er að angra þig. Tvíburarnlr (21. maí-21. iúnii: V Undarleg staða kemur y^^upp í vinahópnum og / sýnist sem mál geti orðið ansi flókin þó að tilefnið virðist ekki mikið. Happatölur þínar era 5, 24 og 27. Krabbinn (22. iúni-22. iúií): Þú gerðir réttast í því að blanda þér ekki í deilur annarra heldur sinna eigin málum. Enginn vill þiggja ráð frá þér í dag. Kvöldið verður ánægjulegt. Llðnið (23. iúli- 22. ágústl: Þú ert ekki einn á báti í vandamáli sem þú stendur frammi fyrir. Vinir þínir era fullir velvilja og þú þarft aðeins að leyfa þeim að komast að. Mevlan (23. áeúst-22. sept.i: Gerðu þér grein fyrir þvi að ekki snýst allt \\\um þig eða það sem þú ~ f ert að fást við. Það er þreytandi að hlusta á fólk sem talar eingöngu um sjálft sig. Vogin (23. sept-23. okt.l: J Þú tekur til hendinni á heimilinu og sýnist \ f ekki vanþörf á því. Svo r f virðist sem eitthvað mikið standi til í fjölskyldunni. Happatölur þinar eru 7,18 og 25. Sporðdrekl (24. okt.-2i. nóv.i: Ejní Þú stendiu í stórræð- , um á viðskiptasviðinu. m % Vj^Svo virðist sem WkM- fasteignakaup eða eitthvað slíkt sé á döfinni. Þú ert í essinu þínu. Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.i: •Láttu smámuni ekki draga úr þér kjarkinn varðandi ákvörðun ■. sem þú þarft að taka varðandi framtíð þína. Þú getur það sem þú vilt. Steingeltln (22. des.-!9. ian.i: ^ ~ Þú stendur á krossgöt- 1^7 111111 vissum skilningi. Það er upplagt að reyna eitthvað nýtt í stað þess að hjakka sífellt í sama farinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.