Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.2002, Blaðsíða 24
36 MÁNUDAGUR 6. MAÍ 2002 Tilvera DV Búlgörsk list í Hinu húsinu Elica Georgieva er 21 árs búlgörsk listakona sem sýnir verk sín inn þessar mundir í Gallerí Tukt, Hinu húsinu. Um er að ræða níu olíumálverk og tvær myndir unnar með blandaðri tækni. Elica er útskrifuð frá búlgörskum listaháskóla en hefur verið dvaiist hér á landi í sjö mánuði þar sem hún starfar sem au-pair- stúlka í Breiðholtinu. Sýningin hennar stendur til 12. maí. •Sveitin ■ KK á flusturlandi Hinn göðkunni tónlistarmaöur KK veröur meö tönleika í Félagshelmilinu á Borgarfiröi eystri í kvöld. • Bíó ■ Filmundur Qg Wooriv Allen Nýjasta mynd snillingsins Woody Allen, The Curse of the Jade Scorplon, verður loksins, loksins, sýnd á islandi enda er óhemjulangt síð- an hún var sýnd vestra. Það eru Ijúfmennin í Rl- mundi sem færa okkur hana áður hún fer I al- menna sýningu og má sjá myndina í Háskóla- bíói í kvöld kl. 22.30. • Sport ■ Toflt HPP á matarúttekt Taflfélagið Helllr heldur atkvöld í kvöld og hefst mótið kl. 20. Fyrst eru tefldar 3 hraðskákir þar sem hvor keppandi hefur 5 mínútur til að Ijúka skákinni og síðan þrjár atskákir, með tuttugu mínútna umhugsun. Sigurvegarinn fær verð- laun, mat fýrir tvo frá Domino's pizzum. Þá er einnig einn keppandi dreginn út af handahófi, sem einnig fær máltið fyrir tvo hjá Domino's pizzum. Þar eiga allirjafna möguleika, án tillits tii árangurs á mótinu. Þátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri). • Síöustu forvöö ■ 3 wwwwWf H«lmál«« Nú fer hver að verða síðastur að sjá verk þriggja spænskra listamanna i Galleri Revkjavik en sýningu þelrra lýkur á míðvikudag. Listmálararnir heita Carmelo Hldalgo, Marijo Murillo og Rocio Gallardo og eru þeir allir búsettir i Reykjavík og starfa hérlendis að list sinni. Verk þeirra fjalla um upplifanir af íslensku mannlifi og menningu, samhliða sterkum áhrifum af stórbrotnu landslagi, fjölbreyttu veðurfari og tærleika litanna sem þau skynja sterklega í náttúrunni og haft hefur djúp áhrif á verk þeirra. Galleríið er opið frá kl. 12 til 18 virka daga og laugardaga frá 11 til 16. Færeysk stemning í Gallerí Fold Á laugardaginn voru tvær sýn- ingar opnaðar í Gallerí Fold við Rauðarárstíg. Annars vegar var um að ræða sýningu á vefmyndum eftir Vigdisi Kristjánsdóttur heitna og hins vegar sýninguna „Úr frænd- garði" þar sem tveir Færeyingar, þeir Olivur við Neyst og Anker Mortensen, sýna verk sin. Við opn- unina voru bæði íslendingar og Færeyingar til að berja hina fær- eysku list augum. í góðu tómi Siggeir Pálsson og Ingunn Midjörd leituöu skjóls frá rigningunni í Galleríi Fold. Bíógagnrýni Iflgígjgjjgp Góóur er sopinn, gæskan Franseska Jónsson og Bryndís Ingadóttir dreyptu á veigum eins og siöur er við opnanir og virtu fyrir sér verkin í leiöinni. Háskólabíó - You Can Count on Me: ★ ★ ★ Ööruvísi fólk í litlu Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Tveir táningar Jakob og Guðjón Ani voru hressir enda varta annaö hægt innan um hin litríku listaverk. Hálfa leiö til Færeyja Ásta Eiríksdóttir og Katrín Ólafsdóttir kíktu við í Galleríi Fold á laugardaginn til þess aö viröa iistaverk frænda okkar í Fær- eyjum fyrir sér og leist bara nokkuö vel á. bæjarfélagi Kenneth Lonergan er nafn sem vert er að fylgjast með í framtíðinni. Hann hafði áður en hann sendi frá sér You Can Count on Me, skrifað handritið að Analyze This auk þess sem eftir hann liggja nokkur leikrit. Það leynir sér ekki leikhúsbak- grunnurinn i You Can Count on Me. Myndin hefur einstaklega inni- haldsríkan texta, dramatískan sam- fara því að búa yfir góðum húmor sem stundum gægist upp á yfirborð- iö. Myndin er einnig sérlega áhuga- verð lýsing á lífi í smábæ þar sem varla leyfist að vera öðruvísi en aðr- ir. Lonergan var tilnefndur til ósk- arsverðlauna fyrir handrit sitt og er vel að þeim heiðri kominn. Aðalpersónumar eru systkinin Sammy (Laura Linney) og Terry (Mark Ruffalo). Sammy lifir skipu- lögðu lífi, er einstæð móðir með einn son og vinnur í banka. Þrennt gerir það að verkum að líf hennar kollvarpast. Bróðir hennar, dæmi- gerður vandræðagripur sem hvergi festir rætur, boðar heimkomu sína, hún fær nýjan yfirmann, sem gerir öllum lífið í bankanum óþolandi og gamall kærasti skýtur upp kollinum og biður hennar. Sammy, sem er nú ekki jafn smáborgaraleg og í fyrstu má halda, lendir nú í hverri hremmingunni á fætur annarri. Sonur hennar dýrkar Terry sem Frændur ræöa málln Mark Ruffalo og Rory Culkin í hlutverkum sínum. gerir allt með drengnum sem Sam- my bannar, meðal annars að fræða hann um föður hans. Og meðan hún er að hugleiða hvort hún eigi að giftast vini sínum lendir hún í ást- arævintýri með hinum óþolandi yf- irmanni sínum sem henni frnnst meira spennandi en sá sem er á bið- ilsbuxunum. Svo það er engin furða þótt Sammy flnnist líf sitt vera í ólgusjó. Sagan er síðan framreidd á áhugaverðan hátt þar sem utan um aðalpersónumar er sniðinn stakkur sem ekki fellur beint í fábrotið smá- bæjarlíflð þar sem atburðimir ger- ast. Myndin hefur góða stigandi og persónur em lifandi og sterkar. Það sem síðan er hjarta myndarinnar er sambandið á milli Sammy og Terrys, samband sem hefur fengið aukinn styrk í æsku þegar foreldrar þeirra fómst í bílslysi. Sammy flnnst hún bera ábyrgð á Terry sem og syni sínum en þó á ólíkan hátt. Hún getur ekki séð son sinn alast upp með Terry sem er lítið fyrir boð og bönn og vill hann burt. Um leið vill Sammy fylgjast vel með Terry, vera flarlæg móðir hans. Þama nær myndin háum hæðum og Lonergan stýrir persónum sínum í gegnum mikil tilfmningaátök af skynsem og lagni. Það sem síðan setur punktinn yfir i-ið em leikaramir. Laura Linney hefur ekki fengið tækifæri áður til að sýna hvað í henni býr, hefur yfirleitt verið til hliðar við stórsfjömur í myndum á borð við The Truman Show, Absolute Power og Primal Fear. Hér blómstrar hún og sýnir frábæran leik í hlutverki konu sem þarf að taka á erfiðum hlutum og gera þá upp. Mark Ruffalo er einnig mjög góður í hlut- verki bróöurins, nær vel að sýna rótlausan einstakling sem hefur góða kosti sem yfirleitt nýtast hon- um ekki. Þá er vert að geta nýjasta framlags Culkin-fiölskyldunnar til kvikmyndanna, hinn unga Rory Culkin, sem stimdum líkist stóra bróður, Maculay Culkin, óþægilega mikið. Drengurinn sýnir afbrags- leik eins og raunar allir sem eitt- hvað koma við sögu. Hilmar Karlsson. Kenneth Lonnergan. Kvikmyndataka: Steven Kazmierski. Tónlist: Lesley Bar- bar. Aðalleikarar: Lauara Linney, Matt- hew Broderick, Mark Ruffalo, Rory Culkin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.