Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Qupperneq 2
2
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002
DV
Hnjúkalistinn
var tilbúinn
13. mars sl.
Framboðslisti Bæjarmálafélagsins
Hnjúka á Blönduósi, sem barst yfir-
kjörstjóm á Blönduósi 12 mínútum of
seint á laugardagskvöld, var samþykkt-
ur og frágenginn 13. mars sl. og hann
var búið aö kynna bæjarbúum með
kynningarbæklingi í öll hús í sveitarfé-
laginu, en það er nú stærra en fyrir 4
árum vegna sameiningar Blönduóss og
Engihlíðarhrepps. Þórdís Hjálmars-
dóttir, sem leiðir lista Hnjúka, segir að
ekki hafi verið búið að slíta kjörfúndi
þegar listinn barst þangað og kjör-
stjóm veitt honum viðtöku með fyrir-
vara. Tveir af þremur kjörstjómar-
mönnum hafi síðan hafnaði lögmæti
framlagningar hans. Þórdis segist ekki
bjartsýn á að félagsmálaráðuneytið
samþykki lögmæti framlagningar list-
ans, en svars er að vænta í dag.
Ágúst Þór Bragason mun leiða lista
Sjálfstæðisflokksins við sveitarstjóm-
arkosningamar. Hann er á þeirri skoð-
un að listinn ætti að fá að bjóða fram,
allir hafi reiknað með því, og hann seg-
ir það afar miður, raunar harmi það ef
hann verði ekki. En lögin séu skýr.
Hnjúkalistinn fékk 196 atkvæði og 2
bæjarfúlltrúa við síðustu kosningar,
eða um 33% greiddra atkvæða. -GG
Hnattvæðingarnefnd utanríkisráðherra fjallar um ESB-aðild:
Vextir gætu
lækkað til muna
*
- Island gæti jafnvel haldið stjórn fiskimiðanna áfram
Verði evran tekin upp sem gjald-
miðill íslendinga gæti það lækkað
vaxtakostnað hérlendis um allt að
15 milljarða króna á ári. Enda
myndu vextir lækka um 1,5 til 2,0%.
Þetta er meðal helstu niðurstaðna í
skýrslu nefndar á vegum utanríkis-
ráöherra sem fjallaði um stöðu ís-
lands í ljósi hnattvæöingar og hugs-
anlega þróun þeirra mála á næsta
áratugnum.
Nefndin skilaði niðurstöðum sín-
um í gær og voru niðurstöður henn-
ar þá kynntar á blaðamannafundi.
Nefndarmenn, sem voru tíu talsins
og komu úr flestum geirum samfé-
lagsins, telja nauðsynlegt að kanna
kosti og galla aðildar íslands að
ESB. Benda þeir á að í augnsýn séu
breytingar sem geri inngöngu væn-
legri kost fyrir íslendinga en er ná-
kvæmlega nú um stundir. Segir
jafnframt að ríkjandi sjávarútvegs-
stefna ESB og hagsveiflur í Evrópu
sem séu ekki í sama takti og hér-
lendis hafi þótt helsti meinbugurinn
á aðild íslands að bandalaginu. Tel-
Allt aö 27 ríki meö sameiginlegan
gjaldmiöil í Evrópu.
ur nefndin að þetta þurfi þó ekki al-
farið að útiloka aðild. „Undanfarið
hefur verið bent á að hugsanlega
gætum við sagt okkur undir hina
sjávarútvegsstefnu Evrópusam-
bandsins án þess að missa stjórnina
á aðgangi að fiskimiðunum i kring-
um landið. Brýnt er að kanna til
hlítar hvort hægt sé að ryðja úr vegi
helstu hindrunum þess að íslend-
ingum geti hugnast aðild að Evr-
ópusambandinu," segir orðrétt.
í skýrslu nefndarinnar segir að
þótt EES-samningurinn sé um
margt ágætur sé óvíst að svo verði
til lengri tíma. Komi þar til að ólík-
legt sé aö gagnkvæmur áhugi sé á
reglubundinni endurnýjun samn-
ings. Jafnframt kunni að vera erfið-
ara fyrir íslendinga að taka upp til-
skipanir ESB án þess að geta lagt
orð í belg um efni þeirra.
Ennfremur segir að við blasi að
eftir nokkur ár hafi aðildarríkjum
Evrópusambandsins fjölgað úr
fimmtán í allt að tuttugu og sjö og
að flest þeirra - ef ekki öll - hafi gert
evruna að gjaldmiðli sínum. „Það er
því nauðsynlegt að stöðugt sé unnið
að mati á stöðu íslands gagnvart
Evrópu-sambandinu, þar meö talið
hugsanlegri aðild íslands að því,“
segir í skýrslu nefndarinnar. -sbs
- Sjá vlðbrögð á baksíðu
Nýr gjaldmiðill
SEina leiðin til að
ná fram stöðugleika
í gengi er að taka
upp annan gjaldmið-
il en íslensku krón-
una. Þetta er mat
Þórðar Friðjónsson-
ar, forstjóra Vl, en
hann telur að sveifla
krónunnar síðustu mánuði hafi verið
mjög óæskileg. Óvissa er slæm fyrir
öll viðskipti og þróun efnhagsstarf-
seminnar að mati Þórðar. RÚV
greindi frá.
Vinningshafi ófundinn
Sá eða sú sem vann rúmar 80 millj-
ónir í Lottói fyrir rúmri viku hefur
enn ekki gefið sig fram við íslenska
getspá. Vinningsmiðinn var keyptur í
SkaÚa í Hafnarfirði og hefur vinnings-
upphæðin ekki í aðra tíð verið jafnhá
og í þetta sinn.
Pl?*-'•*'»’**
itiiiiiniM iilt fiiiMsrr
auíuJMI
Glósueigandi fundinn
Nemandinn sem skildi glósur eftir
á kvennasalemi í Odda skömmu áður
en próf um rétíarfar hófst sl.' föstudag
hefur gefið sig fram. Ekki er talið að
nemandinn hafi haft not af glósunum
eftir að prófið hófst.
Flóklnn undirbúnlngur
Fjóra vörubíla meö tengivagna þurfti til aö flytja húsin í nótt.
Stórviðburðir og daglegt líf fólks á 20. öld
VEGLEG TÆKIFÆRiSGJÖF
„Lifandi blaðamennska
eins oq hún aeríst best“
Inoa Huld Hókonardóttir
„Ómissandi bók fyrir alla
sem unna sögu lands og þjóðar. “
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjórí Reykjavíkur
Hér er sagt frá stjórnmálum,
slysförinn og helstu stórviðburðum,
atburðum úr lífi fólksins í landinu
- náttúruhamförum, veðurfari, skemmtanalífi
og sakamálum. Aðalhöfundurinn Illugi Jökulsson
nýtur aðstoðar ýmissa virtra sérfræðinga
um hönnun, listir, tónhst, atvtnnirmál,
sjávarútvegsmál og efnahagsmál. JPV útgáfa
Bræíraborgarstíqur 7 • Síml 575 5600
„Miklll fróðleikur
... einstaklega
vel heppnuð."
Jón Þ. Þór/Mbl
Undirbúningur NATO-fundarins:
Þrjú hús og sal-
erni flutt í nótt
- frá Keflavík til Reykjavíkur
Miklir húsaflutningar áttu sér
stað á Reykjanesbraut í nótt. Þar
voru að verki starfsmenn ís-
lenskra aðalverktaka sem fluttu
þrjú hús og salernisaðstöðu til
Reykjavíkur. Húsunum var komið
fyrir á bak við Hótel Sögu, en þar
verða þau notuð fyrir erlenda
blaðamenn meðan á NATO-fundin-
um stendur, 14. og 15. maí. Verða
m.a. tengdar fjölmargar símalínur
við húsin þar sem blaðamennimir
munu hafa vinnuaðstöðu sína.
Að sögn Oddgeirs Björnssonar
hjá lAV þurfti fjóra vörubíla með
tengivagna til að flytja húsin. Lagt
var af stað á miðnætti. Farmurinn
var nær sjö metrar á hæð og sjö
metrar á breidd, þar sem hann var
breiðastur. Mikinn viðbúnað þurfti
fyrir flutninginn. Meðal annars
þurfti að taka niður götuvita.
Oddgeir sagði að heppilegast
hefði verið talið að aka yfir Breið-
holtsbrúna, upp fyrir Byko og sið-
an vinstra megin, þ.e. öfugum meg-
in eftir Reykjanesbrautinni aö Bú-
staðavegi. Nauðsynlegt hefði
reynst að haga ferðinni þannig
vegna hæðar farmsins, þar sem
brýr og skfiti væm víða byggð yfir
göturnar. Öflug lögreglufylgd var
með þessum gríðarmikla farmi.
Síðar í vikunni er svo fyrirhug-
að að flytja fiórar gámaeiningar frá
Keflavík að Hagaskóla í Reykjavík.
Byggður verður tengigangur milli
þeirra og íþróttahússins. Öryggis-
verðir sem hér verða staddir vegna
NATO-fundarins munu verða með
aðstöðu í gámunum meðan á fund-
inum stendur. -JSS
Alcoa sýnir mikinn áhuga á Reyðaráli:
Stórkostlegt ef norski
tímaramminn heldur
- segir Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra
„Það er ekkert launungarmál að
Alcoa-fyrirtækið sýnir mikinn
áhuga á að kaupa Reyðarál og yfir-
taka starfsemina fyrir austan. Það
yrði langfljótlegasta aðferð-
in. E.t.v. væri hægt að
vinna eftir tímaáætlun
Norsk Hydro og því yrði
stórkostlegt ef þetta gengi i
gegn,“ segir Valgerður
Sverrisdóttir iðnaðarráð-
herra.
Alcoa-menn hafa algjöran
forgang á önnur álfyrirtæki
út þennan mánuð varðandi
álverið fyrir austan, að
sögn Valgerðar og er ljóst að yfir-
völd era bjartsýn eftir fiölda sendi-
ferða frá fyrirtækinu og mikinn
áhuga Alcoa undanfarið. í Norsk
Hydro-áætluninni var gert ráð fyr-
ir að mikil vinna hæfist þegar i
júní hjá Landsvirkjun sem metin
er á um 800 milljónir króna. Talið
var nauðsynlegt að byrja svo
snemma til að hægt yrði aö af-
henda raforku fyrir álverið árið
2006.
Atlantsál er einnig að
huga að álveri fyrir aust-
an og Norsk Hydro er
ekki endanlega úr leik að
sögn ráðherra. „Norsk
Hydro er komið út á kant-
inn en þeir eru ekki
komnir alveg út úr mynd-
inni. Við erum ekki að
svíkja þá neitt,“ sagði Val-
gerður á fundi um at-
vinnumál á Akureyri sl.
fóstudag.
Nokkuð hefur verið tekist á um
hvort nýtt álfyrirtæki myndi þurfa
nýtt umhverfismat vegna mismun-
andi tækni á milli álfélaganna.
Samkvæmt upplýsingum frá iðnað-
arráðuneytinu em nánast engar
líkur á að sú staða komi upp. -BÞ
Valgerður
Sverrisdóttlr.
Hert landamæraeftirlit
Landamæraeftirlit
var hert á innri
landamærum ís-
lands að Schengen-
ríkjunum á miðnætti
í nótt. Þetta mun
gert í öryggisskyni
vegna fyrirhugaös
fundar utanríkisráð-
herra NATO-rikjanna sem haldinn
verður hérlendis í næstu viku. Lög-
reglan á Keflavíkurflugvelli ber hit-
ann og þungann af hinu aukna eftir-
liti og sagði Jóhann R. Benediktsson í
samtali við mbl.is að farþega- og far-
angurseftirlit yrði hert til muna.
Sjálfkjöriö á sjö stöðum
Sjálfkjörið verður i sjö sveitarfélög-
um í kosningunum þann 25. maí nk.
þar sem aðeins einn framboðslisti var
lagður fram. Sjálfkjörið verður í Aðal-
dælahreppi, Borgarfiarðarhreppi,
Breiðdalshreppi, Höfðahreppi, Hörg-
árbyggð, Raufarhafiiarhreppi og Tjör-
neshreppi.
200 án vinnu
Um tvö hundruð háskólamenntaðir
einstaklingar eru atvinnulausir um
þessar mundir og hafa skráð sig á at-
vinnuleysisskrá Vinnumiðlunar höf-
uðborgarsvæðisins. Atvinnuleysi á
höfuðborgarsvæðinu var 2,8% i mars-
mánuði en jafngildir þvi að 2500
manns hafi verið atvinnulausir að
meðaltali. Aukning milli mánaða var
10,27%. Frá þessu var greint á mbl.is.
Brot á EES-samningi
Utanríkisráðherra, Halldór Ás-
grímsson, telur Evrópusambandiö
brjóta gegn ákvæðum EES-samningis
Hfrá ríkjum sem eru
utan Scunbandsins.
VemdartoOar á stál
hafa ekki mikil áhrif
Norðmenn geti misst
vinnuna vegna þeirra. RÚV sagði frá.
Fleiri leita ráðgjafar
Um 667 fiölskyldur nutu þjónustu
Ráðgjafarþjónustu um fiármál heimil-
anna á liðnu ári. Fjölgun ungra um-
sækjenda og lífeyrisþega var áberandi
en meðalumsækjandi síðasta árs
skuldaði tæpar átta milljónir og var
þar af með rúmlega 1,5 milljón í van-
skilum. Þriðjungur umsælfienda sl.
tvö ár eru undir þrítugu en fyrir fiór-
um árum var sami hópur aðeins um 8
prósent þeirra sem leituðu aðstoðar.
-aþ