Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Side 5
5 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002_________________________ I>V Fréttir ©^2^ Hunl's. Landsins forni fjandi: í sjónmáli frá Straumnesi Haflsinn á Grænlandssundi, lands- ins forni fjandi, er nú næst landi um 50 sjómílur frá Straumnesi eða í sjón- máli við sæmileg skilyrði. í ískönnun- arflugi Landhelgisgæslunnar sl. fostu- dag reyndist þéttleiki ísbrúnarinnar víðast vera um 7-9/10 suðvestan til og 10/10 austan 26. gráðu. Víða voru ís- dreifar allt að 10 sjómílur út frá meg- inísjaðrinum. Þór Jakobsson, veðurfræðingur á hafsísdefld Veðurstofunnar, segir að hafisinn sé nú minni en í meðallagi á þessum árstíma og nálægt miðlínu, svo ekkert sé að óttast. Auk þess séu engar spumir af borgarís á þessu svæði. Þór segir vinda hagstæða á þessu svæði en á fóstudag rikti þar suðaustanátt, 5-10 hnútar. Reikna megi þó með einhverri aukningu á hafís fram til júníbyrjunar en þá eru venjulega vetrarlok á þessu svæði og hafls í hámarki. -GG Túnfiskveiðar aukast Allar líkur eru til þess að íslending- ar muni í auknum mæli stunda tún- fiskveiðar í nánustu framtið. Nýlega kom nýtt túnfiskveiðiskip tfl landsins sem smíðað var í Kína, Stígandi VE, og ekki er ólíklegt að þeim eigi eftir að fjölga enn frekar. En þar sem tún- fiskur er mikil fartegimd er ljóst að al- þjóðlegt samstarf er nauðsynlegt til að stjórna veiðunum. ICCAT, Atlantshafstúnfiskráðið, hefur til þessa ekki verið talinn fýsi- legur kostur fyrir Islendinga þar sem reglur ráðsins hafa verið með þeim hætti að algjörlega hefur verið horft ffam hjá rétti strandríkja. En vinnu- hópur um úthlutunarreglur innan ICCAT hefur lagt til að við endurút- hlutun verði m.a. tekið tillit til sér- stöðu strandríkja og ríkja sem mjög eru háð sjávarútvegi. í sjávarútvegs- ráðuneytinu er nú kannað hvort rétt sé að kanna aðild að ICCAT, það gæti verið sterkara þegar endurúthlutunin fer fram heldur en að bíða og vona að aðildarríkin úthluti Islendingum þeim skerfi sem íslendingar telja að þeir eigi sanngjarna kröfu tfl. -GG Norskir laxeldis- menn vilja í ESB Steyptundan veiðibjöllunni Þórir Jónsson frá Vík sýnir hér egg veiðibjöllunnar, sem líka geng- ur undir nafninu svartbakur. Það tíðkast að fara og steypa undan fugl- inum. Tflgangurinn er tvíþættur - í fyrsta lagi er þetta vöm gegn vexti og viðgangi stofnsins, og í öðru lagi er það til að verða sér úti um ágæta máltíð, því mörgum þykja svart- bakseggin bragðgóð, jafnvel hrein- asti herramannsmatur. Bændur á Sólheimabæjunum fimm vestast í Mýrdal hafa sumir stundað þessa eggjatöku í mörg ár. Þeir ræna veiðibjölluna eggjum sínum en hún verpir í aurunum með fram Hólsá og Jökulsá á Sólheimasandi. Norskir fiskeldismenn vilja að Noregur gangi í ESB eins fljótt og unnt er. Norðmenn sem eru fremsta laxeldisþjóð heims eiga í erfiðleik- um með að fá markaðsaðgang fyrir eldisafurðimar, sérstaklega laxinn. Á síðasta landsmóti Landssamtaka um sjávarútveg og sjávarfiskeldi í Noregi var ákveðið að vinna að inn- göngu Noregs í ESB. Jan Petersen utanríkisráðherra telur norska fiskeldismenn gjalda þess að Noregur er ekki aðili að ESB. Fiskur er næststærsta útflutn- ingsafurð Noregs á eftir olíu og gasi. Útflutningsverðmæti fisks er um 20 mflljarðar norskra króna árlega. En EES-samningurinn heftir vaxta- möguleika á þessu sviði þar sem Noregur má samkvæmt samningn- um ekki auka framleiðslu sína um meira en tíu prósent á ári. Sam- keppnisríkin eins og Irland, Skotland og Chile geta hins vegar aukið framleiðslu að vild. Góðar að- stæður í Noregi til fiskeldis, ásamt rannsóknum á sviðinu, gerir Norð- mönnum kleift að auka framleiðsl- una verulega og lækka framleiðslu- verðið. En það er einmitt þar sem hagsmunir Noregs falla ekki að EES-samningnum. Fiskeldismenn telja að eini möguleikinn fyrir Nor- eg sé nú að ganga 1 ESB, ef ekki Grillti/boð Olís S^C^ÖQ 1 Char-Broil 6000 gasgrill næst að koma fiskeldi inn á innri markaðinn í gegnum EES-samning- inn. Hingað til hefur ESB ekki sýnt áhuga á því. Við stækkun ESB í austur mætir norskur fiskútflutningur nýjum áskorunum. Noregur hefur haft frjálsaii markaðsaðgang að Eystra- saltsríkjunum, til Tékklands, Pól- lands og Ungverjalands. En eftir að þessi ríki ganga í ESB munu þau einnig setja tolla á norskan lax. -GG Við sendum það heim til þín, tengjum gaskútinn, kennum þér á það og tökum gamla grillið! Með grillinu fylgir! 1 kippa 2 Itr. Coca-Cola 1 kippa 0,5 Itr. Carlsberg léttöl Hunts Original BBQ grillsósa 4 tegundir Knorr grillkrydd 2 x 200 g Pringles Hot and Spicy Tilboð gildir á þjónustustöðvum Olís og I verslun Ellingsen. ELLINGSEN VERSLUN ATHAFNAMANNSINS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.