Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Síða 12
12 Útlönd ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 DV REUTERS-MYND Nýr forsætisráöherra í París Jean-Pierre Raffarin, 53 ára gamall landsbyggðarmaöur, verður forsætis- ráðherra Frakklands næstu 6 vikur. Nýr forsætisráð- herra í Frakkandi Nýskipaður forsætisráðherra Frakklands, Jean-Pierre Raffarin, skipar nýja stjóm landsins í dag sem ætlað er að sitja við völd fram að þingkosningunum eftir sex vik- ur. Lionel Jospin, fráfarandi forsæt- isráðherra, sagði af sér í gær, eins og hann hafði lofað í kjölfar ófar- anna í fyrri umferð forsetakosning- anna í apríl þegar hann var sleginn út af Jean-Marie Le Pen. Raffarin er landsbyggðarmaður og tiltölulega lítt þekktur meðal al- mennings í Frakklandi. Hann fær nú það erfiða verki að reyna að end- urheimta traust kjósenda á stjórn- málamönnum eftir velgengni hægri öfgamannsins Le Pens i forseta- kosningunum og um leið að tryggja að mið- og hægriflokkarnir fái meirihluta í þingkosningunum. Talið er að Chirac forseti hafi skipað Raffarin vegna hæfileika hans til að sætta menn. Fórnarlömb ferjuslyss grafin Tugir grátandi kvenna teygðu hendur sinar til himins í leit að guð- dómlegri blessun þegar siðustu lik fómarlamba ferjuslyssins í Bangla- dess í síðustu viku voru jarðsett í dag. Björgunarmönnum hafði fyrr um daginn tekist að ná síðustu nitján líkunum úr flaki ferjunnar í Meg- hna-ánni. Á fjórða hundrað manna drukknaði í slysinu og tuga er enn saknað. Slysið er hið næstmesta í sögu Bangladess. Likin nítján voru sett í fjöldagröf eftir bænastund á árbakkanum sem um 150 karlar sóttu. Konurnar fylgdust með álengdar og grétu. Lík- in voru svo illa rotnuö að ekki var hægt að flytja þau lengra. Eymd í Afganistan. Ekki staðið við gefin loforð Amin Fahang, ráðherra uppbygg- ingarmála í Afganistan, kvartaði yfir því í gær að þær þjóðir sem lofað hefðu fjármagni til uppbyggingar- starfsins í landinu hefðu ekki staðið við gefm loforð nema að hluta til. Á ráðstefnu sem haldin var í Tokyo í janúar var Afgönum lofað 4,5 milljörð- um dollara til næstu fimm ára, þar af 1,8 milljörðum í ár, og sagði Fahang að aðeins helmingur þess fjármagns heföi skilað sér þó árið væru nú nær hálfnað. Fahang hyggst ræöa málið við Gerhard Schröder, kanslara Þýskaiands, þegar hann kemur til Kabúl á fímmtudaginn. Ariel Sharon hittir Bush Bandaríkjaforseta á fundi í dag: Stefnir í samkomulag um umsátrið í Betlehem Rúmlega fimm vikna löngu umsátri ísraelsmanna um Fæðingarkirkjuna i Betlehem er loksins lokið eftir að samkomulag náðist í gær eftir næst- um tveggja sólarhringa langan samn- ingafund sem haldinn var að tilstuðl- an Bandaríkjamanna og Evrópusam- bandsins. Krafa ísraelsmanna hefur til þessa verið að fá framselda um þrjátiu meinta hryðjuverkamenn sem flúðu ásamt um tvö hundruð óbreyttum borgurum til kirkjunnar í upphafi innrásar ísraelsmanna í bæinn og mun samkomulag hafa náðst um að þrettán þeirra veröi fluttir í gæslu- varðhald til Ítalíu í gegnum Egypta- land og aðrir 26 til Gazasvæðisins. Tveir samningamenn Palestínu- manna héldu til fundar við meinta hryðjuverkamenn í kirkjunni í morg- un og var búist við að brottflutningur þeirra hæfist strax í dag ef samkomu- lag næðist. Fulltrúar hafa einnig verið sendir til Ítalíu og Egyptalands til að undir- búa flutninginn og fá samþykki Beðist vægðar í Betlehem Palestínsk kona, móöir eins meintra hryðjuverkamanna sem dvalið hafa síðustu fimm vikurnar í Fæðingar- kirkjunni, biöur syni sínum vægðar. ítalskra stjómvalda fyrir móttöku og gæslu mannanna. Engar fréttir höfðu í morgun borist af brottflutningi Isra- elsmanna af svæðinu og heldur ekki ljóst hvenær óbreyttir borgarar fá að yfirgefa kirkjuna. Samkomulagið milli deiluaðila náð- ist nokkrum stundum áður en Ariel Sharon, forsætisráðherra Israels, gengur á fund Bush Bandaríkjaforseta í Washington í dag en í gær hitti hann þá Colin Poweli utanríkisráðherra og Donald Rumsfeld varnarmálaráð- herra þar sem hann jafnaði aðgerðir ísraelsmanna á Vesturbakkanum við aðgerðir Bandaríkjamanna eftir hryðjuverkaárásimar þann 11. sept- ember sl. Á sama tima héldu ísraelskar her- sveitir áfram aðgerðum í bænum Tulkarm á Vesturbakkanum, að þeirra sögn til að leita uppi hryðju- verkamenn. Þá voru tveir palestínsk- ir byssumenn skotnir tfl bana í gær í nágrenni bæjarins Kissufun í suður- hluta ísraels eftir að þeim hafði tekist að læðast yfir landamærin. REUTERSMYND Páfa svarin hollusta Nýr liðsmaður Hfvaröarsveitar vatíkansins í Róm sver páfa hér hollustu sína við hátíðlega athöfn eins og venja hefur verið í þau tæplega fímm hundruð ár sem lífvarðarsveitin hefur starfað. Hún er eingöngu skipuð einhleypum svissneskum mönnum, sem verða að vera aö minnsta kosti 174 sentímetrar á hæð og skegglausir. Frelsi Aung San Suu Kyi í Burma fagnað víða um heim: Efast um lýðræðisvilja herforingjastjórnarinnar Baráttukonan Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Burma, hitti erlenda stjómarerind- reka á heimili sínu í Rangoon í morgun. Sólarhringur var þá liðinn frá því herforingjastjómin í Burma lét hana lausa úr stofufangelsi þar sem henn hafði verið haldið í hálft annað ár. Síðar hitti Suu Kyi félaga sína í Lýðræðisfylkingunni. Fram undan er löng og ströng barátta fyrir því að endurreisa lýð- ræði í landinu og innleiða pólitísk- ar umbætur. Leiðtogar þjóða heims fognuðu mjög frelsi Suu Kyi sem fékk friðar- verðlaun Nóbels árið 1991 en sögðu jafnframt að frelsi hennar væri að- eins fyrsta skrefið í átt til endur- reisnar lýðræðisins. Margir stjómmálaskýrendur hafa ekki látið sannfærast um að herfor- REUTERSMYND Umkringd velunnurum Baráttukonan Aung San Suu Kyi var umkringd stuöningsmönnum sínum þegar hún heimsótti höfuðstöðvar Lýðræöisfylkingarinnar á fyrsta degi nýfengins frelsis í gær. ingjastjórnin ætli sér af alvöru að innleiða lýðræði í Burma. Stjómar- erindrekar sögðu að almennt væri litið á lausn baráttukonunnar sem tilraun herforingjanna til að fá aflétt refsiaðgerðum sem Burma hefur verið beitt undanfarin ár. Herinn hefur farið með stjóm í Burma í fjóra áratugi og stjómend- ur hans segja að landið, þar sem fjölmargir þjóðflokkar búa, kunni að liðast í sundur verði lýðræði komið á í of mikium flýti. Suu Kyi segist ætla að nota ný- fengið frelsi til að ferðast vítt og breitt um landið til að ræða við aðra baráttumenn fyrir lýðræði og tfl að renna styrkari stoðum undir fylgi við flokk sinn. Við kvöldsetur í gær heimsótti hún Shwedagon Paya, helgasta stað Búddatrúarmanna í landinu. Koizumi iofar aðgerðum Bforsætisráðherra Jap- ans, hét því í morgun gegn hneykslismálum sem hafa grafið und- til þess að margir em famir að efast um umbótavilja hans. Níðingsprestur fyrir rétt Bandaríski presturinn Paul Sh- anley, sem hefur verið ákærður fyr- ir að nauðga ungum dreng marg- sinnis, verður færður fyrir dómara í dag. Shanley er prestur kaþólsku kirkjunnar. Rörasprengjur í pósti Tvær rörasprengjur fundust í póstkössum í Nebraska og Kólóradó í gær tfl viðbótar sprengjum sem þegar höfðu fundist. Talið er að óvinir ríkisvaldsins hafi komið sprengjunum fyrir. Nýr réttur fyrir drottningu Kokkar hennar hátignar Elísabet- ar Englandsdrottningar hafa búið til nýjan gómsætan kjúklingarétt i tilefni 50 ára krýningarafmælis drottningarinnar og er honum ætl- að að leysa af hólmi gamlan rétt sem vinsæll er í lautarferðum og var gerður þegar drottning var krýnd árið 1952. Leitað að talibönum Kanadískir hermenn hafa undan- fama þrjá daga leitað að talibönum og vígamönnum al-Qaeda í austur- hluta Afganistans. Hertar reglur um byssur Bl'lifi'’**' "’ii iM Gerhard Schröder ■P^fl Þýskalandskanslari j|r| og sextán leiðtogar fylkjanna urðu sam- i mála um það í gær ^ að herða enn frekar eign. Er það gert til að koma í veg fyrir að harmleikurinn í Erfurt, þar sem sautján létu lífið í árás í menntaskóla, endurtaki sig. Rekin fyrir brandara Ann Winterton, þingmaður breska íhaldsflokksins, var rekin úr skuggaráðuneyti flokksins fyrir að segja brandara sem byggðist á kyn- þáttafordómum í veislu með rúgbý- liöi á dögunum. íhaldið ætlar ekki að liða slíkt framferði. Lofar skattalækkun Edmund Stoiber, kanslaraefni þýskra íhaldsmanna í kosn- ingunum í haust, lofaði i gær skatta- lækkunum og bein- greiðslum til fiöl- skyldna til að laða að sér enn fleiri kjósendur. Samkvæmt könmmum hafa íhaldsflokkamir forskot á jafn- aðarmenn Schröders kanslara. Leitað á rusiahaugi Lögregla í San Diego i Kalifomíu og bandarískir landgönguliðar leit- uðu í gær í um fimm þúsund tonn- um af sorpi að vísbendingum um tveggja ára gamlan dreng sem hvarf fyrir tólf dögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.