Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Page 13
13 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002__________________________________________________________________________________________________ Útlönd virka da alla kl. 03:00 ffðstu- og laugai til kl. 01:00 sunnudaga Kok forsætisráðherra sagði morðið ekki aðeins harmleik heldur væri það tilræði við lýðræðið í Hollandi og bað hann fólk að halda ró sinni. Til óeirða kom við þinghúsið i Haag strax í gærkvöldi þar sem nokk- ur hundruð reiðir stuðningsmenn Fortuyns mótmæltu morðinu og var flöskum og grjóti kastað að óeirðalög- reglunni. Talið er að morðið geti haft ófyrir- sjáanlegar afleiðingar um alla Evrópu og hafa stjómmálaleiðtogar víða um heim fordæmt verknaðinn. Sagði Gay Verhofstadt, forsætisráðherra Belgíu, það með ólíkindum að svona nokkuð gæti gerst á 21. öldinni. Bresk og bandarísk stjómvöld em meðal þeirra sem fordæmt hafa morð- ið og varaði Tony Blair, forsætisráð- herra Bretlands, við hugsanlegum af- leiðingum þess. Sjálfur hafði Fortuyn í síðustu viku lýst áhyggjum sínum yfir því að á hann kynni að verða ráðist og sagðist hafa fengið fjölda hótana. Bandaríkin saka fleiri lönd um að reyna að smíða gjöreyðingarvopn Bandarísk stjórnvöld sökuðu í gær þrjú ríki til viðbótar um að reyna að koma sér upp gjöreyðing- arvopnum og vöruðu við því að tryggt yrði að þau létu þau ekki i hendur hryðjuverkamönnum. Ríkin þrjú sem hér um ræðir eru Líbýa, Sýrland og Kúba. Það var John Bolton aðstoðarutanríkisráð- herra sem nafngreindi þau i ræðu sem hann kallaði „Handan öxul- velda hins illa“. Þar vísaði hann í fleyg orð Georges W. Bush forseta sem í vetur kaflaði írak, íran og Norður-Kóreu „öxulveldi hins illa“. „Bandaríkin eru staðráðin í að koma í veg fyrir næstu öldu hryðju- verka,“ sagði Bolton aðstoðarutan- ríkisráðherra í ræðu sem hann flutti hjá Heritage Foundation, íhaldssamri rannsóknarstofnun. Bolton sagði engan vafa leika á þvi að Líbýumenn héldu áfram að reyna að koma sér upp kjarnorku- vopnum, svo og bæði efna- og sýkla- vopnum. Þá sagði hann að of lítið væri gert úr ógninni sem öryggi Bandaríkjanna stafaði af Kúbu. REUTERSMYND Vill ekki vera meö George W. Bush Bandaríkjaforseti hafnar þátttöku í föstum alþjóðleg- um stríösglæpadómstól. Bush hafnar al- þjóðlegum stríðs- glæpadómstól George W. Bush Bandaríkjafor- seti og stjóm hans hafá kosið að hunsa ráð helstu bandamanna sinna og hafna því að vera með í stofmm alþjóðlegs stríðsglæpadóm- stóls, mannréttindasamtökum til mikiflar armæðu. Bandaríkjamenn vilja ekki að dómstóllinn verði mis- notaður til að ofsækja bandaríska embættismenn og hermenn. Bandarísk stjórnvöld hafa til- kynnt afstöðu sína formlega með bréfl til Sameinuðu þjóðanna. Sú ákvörðun þýðir að Bandaríkjamenn áskilja sér rétt til að virða að vettugi fyrirskipanir dómstólsins, fyrsta fasta dómstóls sinnar tegund- ar sem ætlað er að sækja menn til saka fyrir stríðsglæpi, þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu. Stjómvöld í Kanada og ríkjum Evrópusambandsins lýstu í gær vonbrigðum sínum með afstöðu stjórnar Bush. Stjórn Bills Clintons, fyrrum Bandaríkjaforseta, undurritaði samninginn árið 2000 til að Banda- ríkin gætu verið með í undirbún- inginum. Barni rænt af fæðingardeild Tveggja daga gömlu stúlkubarni var rænt af fæðingardeild í Stour- bridge á Englandi á sunnudag á meðan móðir þess svaf. Barnið fannst síðan heilt á húfi aðeins nokkrum klukkustundum síðar, að því er lögregla greindi frá í gær. Litla stúlkan fannst í húsi í ná- grenni bæjarins Dudley eftir að ábendingu hafði verið komið til lög- reglunnar. Tvær konur og karlmað- ur voru handtekin i húsinu. Tvær grunsamlegar konur höfðu sést á fæðingardeildinni skömmu áður en litla stúlkan hvarf. Þingkosningarnar í Hollandi í uppnámi: Leiðtogi hægri öfgamanna skotinn til bana í gær REUTERSMYND Norsku konungshjónin í Kanada Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning hans eru nú í opinberri heimsókn í Kanada og sjást hér í opnum hestvagni í fylgd kanadísku riddaralögreglunnar á leiö til Rideau-hallar í Ottawa þar sem þau hittu kanadíska ráöamenn. Enn ríkir óvissa eftir kosningarnar í Færeyjum: Stjórnarmyndunarviðræður Kallsbergs sigldar í strand Anfinn Kallsberg, lögmaður Fær- eyja, viðurkenndi seint í gærkvöld að tilraunir hans til að mynda nýja landstjóm væru sigldar i strand. „Það er ekki gerlegt að mynda breiða samsteypustjóm nú,“ sagði Kallsberg í viðtali við færeyska blaðið Sosialurin skömmu eftir mið- nætti í nótt. Vika er nú síðan Færeyingar gengu að kjörborðinu og kusu nýtt lögþing. Úrslit kosninganna voru á þann veg að fylkingar stjómar og stjómarandstæðinga fengu jafn- marga þingmenn, sextán hvor. Sam- bandsflokkurinn, sem hefur verið í stjórnarandstöðu og er andvígur sjálfstæðisáformum Kallsbergs og félaga, var hins vegar sigurvegari kosninganna. Hvorki hefur gengið né rekið í þreifingum Kallsbergs frá því á föstudag þegar stjórnarflokkamir þrír, Fólkaflokkurinn, sem Kalls- Anfinn Kallsberg Lögmanni Færeyja hefur lítiö orðiö ágengt í tilraunum til stjórnarmynd- unar eftir lögþingskosningarnar. berg veitir forystu, Þjóðveldisflokk- ur Hogna Hoydals og Sjálfstýris- flokkurinn, ákváðu að standa sam- an að myndun nýrrar stjómar. Um tima var útlit fyrir að Jafnað- arflokkurinn myndi taka þátt í stjómarsamstarfinu en eftir að Fólkaflokkurinn og Sjálfstýrisflokk- urinn ákváðu að mynda bandalag saman drógu jafnaðarmenn sig út úr viðræðunum. Joannes Eidesgaard, leiðtogi jafn- aðarmanna, sagði að hann vildi ekki vera eins konur björgunarfleki fyrir sitjandi landstjóm. Stjórnarandstæðingar krefjast þess að Kallsberg hætti stjómar- myndunartilraunum sínum. Þeir vilja að formenn allra flokka verði boðaðir til fundar við forseta lög- þingsins og að hann feli síðan þeim manni stjómarmyndun sem líkleg- astur þykir til að takast að ljúka verkinu og mynda stjóm. Pim Fortuyn, leiðtogi hægri öfga- manna í Hollandi, var skotinn til bana á bflastæði í bænum Hflversum í miðhluta Hollands í gærdag þegar hann var að koma út úr útvarpshúsi í bænum þar sem hann hafði verið í viðtali vegna þingkosninganna sem fyrirhugaðar eru í Hollandi þann 15. maí nk. Tilræðismaðurinn, 33 ára gamall Hollendingur, hvítur á hörund, var að sögn sjónarvotta einn að verki og skaut hann Fortuyn sex skotum í höf- uð, háls og brjóst þar sem hann var á leið inn í eðalvagn sinn sem beið á bflastæði utan útvarpshússins. Að sögn lögreglunnar var tilræðis- maðurinn handtekinn strax eftir verknaðinn eftir að sjónarvottar og lögregla höfðu yfirbugað hann á bíla- stæðinu en þar var fjöldi fólks saman- kominn og varð vitni að morðinu. Wim Kok, forsætisráðherra Hol- lands, kallaði rikisstjóm sína og for- ystumenn hægri öfgaflokks;Fortuyns þegar saman til fundar í morgim, þar Moröinu á Fortuyn mótmælt Tugir stuöningsmanna hægri öfgamannsins Pims Fortuyns, sem skotinn var til bana í gær, mótmæltu í gærkvöldi og kom til óeiröa viö þinghúsiö í Haag. sem ákvörðunar var að vænta um það verið spáð mikilli velgengni í kosn- hvort þingkosningunum yrði frestað í ingunum og mældist með um 15% kjölfar morðsins en flokknum hafði fylgi í nýlegri skoðanakönnun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.