Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Page 17
16 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 17 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvœmdastjórí: Hjalti Jónsson Aöalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Slgmundur Ernir Rúnarsson Aðstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Fréttastjóri: Birgir Guðmundsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlið 24,105 Rvik, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Grœn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Ritsfjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim. Jarðvegur fyrir öfgaöfl Flestir Frakkar telja þjóð sína hafa sloppið með skrekk- inn eftir afgerandi sigur Jacques Chirac Frakklandsfor- seta á þjóðernisöfgamanninum Jean-Marie Le Pen í síðari umferð forsetakosninganna á sunnudag. Forsetinn fékk um 82 prósent atkvæða en Le Pen 18. Chirac tókst þannig að sameina að baki sér hægri- jafht sem vinstrimenn og lýsti þvi yfir að kosningaúrslitin sýndu að Frakkar hefðu staðfest trú á lýðræðið. Mikill meirihluti Frakka, með ólikar stjórnmálaskoðanir, sameinaðist að baki forsetan- um til þess að koma í veg fyrir framgang Le Pens, sem flestum að óvörum komst áfram í siðari umferð forseta- kosninganna á kostnað Lionels Jospins, frambjóðanda sós- íalista. Þau úrslit voru óvænt, raunar slys i lýðræðisrík- inu Frakklandi en atburður sem verður að taka mjög al- varlega. Niðurstaðan sýndi að grunnt er á öfgum og of- stæki í Frakklandi eins og fleiri Evrópurikjum. Þjóðhöfðingjar annarra rikja hafa fagnað úrslitunum og kallað þau sigur lýðræðisins. Hið sama hafa franskir fjöl- miðlar gert enda mikið i húfi. Þar er þó staldrað við. Le Figaro segir að sönnu að forsetinn hafi unnið mikinn sig- ur en engu að síður sé sameining þjóðarinnar veik og óvissa um framtiðina. Þvi má ekki gleyma að þrátt fyrir að helstu öfl franskra stjórnmála, jafnt til hægri og vinstri, hafi snúið bökum saman til stuðnings við Chirac kusu nær 6 milljónir Frakka þjóðernisöfgamanninn Le Pen og háskalega stefnu hans. Le Pen fékk rúmlega millj- ón fleiri atkvæði i seinni umferð forsetakosninganna en þeirri fyrri. Hlutfallsleg þátttaka var að visu meiri í siðari umferðinni en atkvæðaaukningin er umhugsunarverð. Ekki var nóg með að Chirac héti á kjósendur að hafna þjóðernisöfgastefnu Le Pens heldur gerði Lionel Jospin hið sama, sem og leiðtogar kommúnista. Gaullistar, sósí- alistar og kommúnistar, auk annarra, sameinuðust þannig gegn Le Pen og stefnu hans. Le Pen spilar á kynþáttafordóma sem þekkjast meðal Frakka ekki síður en annarra Evrópuþjóða. Milljónir manna hafa sest að i Frakklandi, einkum fólk frá fátæk- um Afrikulöndum. Sums staðar hefur myndast spenna milli innflytjendanna og innfæddra Frakka og hafa sumir þeirra viljað kenna innflytjendunum meðal annars um háa glæpatiðni i nokkrum stærstu borgum Frakklands. Hin fráleita og ógeðfellda lausn Le Pens á vandanum er að reka innflytjendur úr landi. Aukið atvinnuleysi, einkum meðal ungs fólks, og andstaða við Evrópusambandið er einnig vatn á myllu Le Pens. Með málflutningi sínum hef- ur hann valdið ótta margra en um leið höfðar hann til annarra sem hafa misst trú á aðferðir hefðbundinna stjórnmálamanna. Þjóðarfylking hans, hatursflokkur út- lendinga, er til dæmis orðinn einna öflugastur flokka með- al verkamanna. Úrslit beggja umferða frönsku forsetakosninganna sýna, þrátt fyrir sigur Chiracs, að jarðvegur er i Frakk- landi fyrir öfgaskoðanir Jean-Marie Le Pens og Þjóðar- fylkingar hans. Sá jarðvegur er i fleiri löndum og er skemmst að minnast kosningasigurs flokks öfgamannsins Jörg Haiders í Austurríki árið 1999. Aðeins fimm vikur eru til þingkosninga i Frakklandi. Óljóst er hver staða for- setans og stuðningsmanna hans verður eftir þær. Því hef- ur jafnvel verið spáð að Þjóðarfylking Le Pens geti orðið næststærsti flokkurinn á þingi. Líti Frakkar til þess sem gerðist í Austurríki hljóta þeir að átta sig á þvi að ekki má vanmeta Le Pen en um leið verða lýðræðissinnar að gripa til allra ráða til þess að koma í veg fyrir frekari áhrif háskastefnu hans og Þjóðar- fylkingarinnar. Jónas Haraldsson DV Davíð, Kári og tímavélin Kjallarí Bryndís Isfold Hlöðversdóttir stjórnmálafræöinemi, formaöur Ungra jafnaö- armanna í Reykjavík A sama tíma og mörg íslensk fyr- irtæki róa lífróð- ur á hörðum sam- keppnismarkaði er eitt fyrirtæki sem virðist engar áhyggjur þurfa að hafa: íslensk erfðagreining. Fram til þessa hefur Sjálfstæðis- flokkurinn mælt gegn ríkisafskipt- um á frjálsum markaði en boðar nú að hvert islenskt mannsbarn skuli gangast í ábyrgð á 69.862 krón- um fyrir islenska erfðagreiningu (miðað við mannfjöldatölur frá Hag- stofu íslands). Kemur þessi ábyrgð til viðbótar gjafar ríkisstjómarinnar til íslenskrar erfðagreiningar á heilsufarsupplýsingum allrar þjóðar- innar. íslensk erfðagreining hyggst nota lánsféð sem ríkið ætlar að gangast i ábyrgö fyrir til þess að hefja lyfjaþró- un. Fyrirtæki sem eru í lyfjaþróun eru í áhættumiklum rekstri. Þróun nýrra lyfja tekur jafnan áraraðir án Omar R. Vaidimarsson fjölmiölafræöingur, í stjórn Ungra jafnaöar- manna í Reykjavík þess þó að nokk- ur geti ábyrgst að þau hafi er- indi sem erfíði. Fyrir Alþingi lá ekki áhættumat vegna ríkis- ábyrgðarinnar né aðgangur að viðskiptaáætlun ÍE. Er rétt að sfjómvöld taki íslenska skatt- greiðendur kverkataki og geri þeim að taka blindandi ábyrgð á láni einstakra fyrirtækja úti í bæ? Við segjum nei! Með jafnræði skal land byggja Hvað sem allri áhættu líður teljum við að þaö sé ekki í verkahring ríkis- stjómarinnar að seilast inn á frjálsa markaðinn. Við teljum ekki rétt að einu fyrirtæki sé hampað á meðan önnur þurfa að herða sultarólina og biðja til guðs um líf og til lánastofn- ana um hagstæð lán til þess að geta ráðist í nýjan rekstur. Hlutverk stjómmálamanna er ekki að skipta sér af viðskiptum á „Hlutverk stjómmálamanna er ekki að skipta sér af viðskiptum á frjálsum markaði, heldur að skapa skil- yrði til framþróunar og nýjunga. Þegar til stendur að setja lög sem hampa öðru fyrirtœki öðrum fremur - lög sem munu skaða samkeppnisstöðu annarra íslenskra fyrirtækja - er varla verið að skapa slík skilyrði. “ frjálsum markaði, heldur að skapa skilyrði til framþróunar og nýjunga. Með setningu laganna á fostudaginn; laga sem hampa öðru fyrirtæki öðr- um fremur - lög sem skaða sam- keppnisstöðu annarra íslenskra fyr- irtækja - er ekki verið að skapa slík skilyrði. Með þessu móti geta stjórnvöld tak- markað samkeppni á lyfjaþróunar- markaðinum en 5. grein samkeppn- islaga nr. 8/1993, sbr. lög nr. 107/2000, kveður á um að gæta skuli þess að að- gerðir opinberra aðila takmarki ekki samkeppni. Hvað er verið að gera annað en að takmarka samkeppni með setningu þessara laga? Þjóðarskútunni sökkt Frá því að ísland gerðist aðili að Evrópska efnahagssvæðinu 1993 hef- ur íslenskt atvinnulíf styrkst til muna og hagur neytenda vænkast. Samlögun íslenska markaðarins að evrópska hagkerfmu hefur fært ungu fólki von um að nú fari í hönd nýir tímar. Ótti forsætisráðherra við að sett sé ofan í við hann af boðber- um frjálsræðis i Brussel brýst fram í valdhroka; valdhroka sem kemur bersýnilega fram í sérhagsmuna- gæslu hans fyrir fáa útvalda aðila. Á meðan íslensk fyrirtæki róa lífróður siglir forsætisráðherra þjóðarskút- unni til liðinna tíma. Bryndís ísfold Hlöðversdóttir Ómar R. Valdimarsson Samningur án hækkunar D-listinn er nú farinn að senda okkur Reykvíkingum samning sem á heldur betur að bæta kjörin. Fyrir hverjar kosningar á allt að gera fyr- ir okkur kjósendur, eldri sem yngri. Það vantar samt í samninginn að það eigi að hækka skattleysismörk og lífeyri fyrir þá sem verst eru sett- ir. Fréttir berast um að sjaldnast hafi fleiri leitað á náðir kirkjunnar og Mæðrastyrksnefndar. Fólk bíður í biðröðum strax eftir miðjan mánuð til þess að fá mjólkurmiða. Um 200 manns fengu úrlausn, bara í apríl- mánuði. Það er þó fjári gott í samn- ingnum að stórlækka eigi fasteigna- gjöld hjá eldri borgurum og öryrkj- um. Af hverju í veröldinni var ekki búið að því? Hefur D-listinn ekki ver- ið í stjóm nógu lengi til þess að létta þessar byrðar? Étið steinsteypu Álögumar eru orðnar svo miklar á öldraðum að Búnaðarbankinn sá ástæðu til þess að boða til ráðstefnu á Hótel Sögu til þess að sýna fram á hvemig hægt væri að drýgja tekj- umar. Svo mikill var áhuginn aö meira en 400 manns mættu. Og hvað var boðið upp á? Jú. Það er hægt að fara að éta steinsteypu. Það kom skýrt fram að það er miklu hagkvæmara heldur en að fara að vinna sér inn einhverja aura, sem bæði færa í skattinn eða yrði til lækkunar á útborgun hjá Tryggingastofnun. Boðið hjá Búnaðar- bankanum er gott. Ekki nema tæp 14% í vexti og ekkert að borga fyrr en Hefur stjómin ekki haft nóg tækifæri til þess að lagfæra þetta? Ekki má gleyma eilífu tali um menningu, sem enginn get- ur skilgreint í hverju er fólgin. Nóg er í boði. Alls konar uppá- komur, með rándýrum að- göngumiðum. Hvað era það mörg % af þjóðinni sem hefur ráð á þessu? Það er sí og æ klifað á þvi að Ema V, við séum ein af ríkustu þjóð- Ingólfsdóttir um i heimi, en við getum ekki _________________ hjúkrunarfræöingur, boðið upp á 100 þúsund króna húseign yrði seld. ^'TstanTÍReykjaTk F' niánaðarlaun-lífeyri, skatt- Ekki væri hægt að ................—frjálsan svo að fólk geti lifað. „Ekki vantar montið. Okkur munar ekkert um að veita deCODE 20 milljarða ríkisábyrgð, sem eru ekki nema 70 þúsund á hvert mannsbam ef illa fer. í staðinn verðum við þjóð á meðal þjóða. “ Höfuðstöðvar ÍE í Reykjavík. veðsetja nema 50% af eigninni. Svo að ef maður er 70 ára í dag og selur eftir 10 ár þá á maður alltaf 50% af steinsteypu eftir. Miðað viö fyrri ár gerir þetta ekkert til því að á 10 árum hækkar 10 milljóna íbúð upp í 20 milljónir, sagði einhver. Hann gleymdi að geta þess að það myndi líka kosta meira að kaupa brauðið og súpuna. Þetta er auðvitað gott og blessað fyrir þá sem eiga íbúð, sem eru um 90% af eldri borg- urum. En hvað með hin 10%? Þeir sem eru á leigumarkaði og hafa vart í sig og á? Einir í aðhlynningu? D-lista samningurinn hljóðar einnig upp á það að eyða biðlistum eftir hjúkrunarrým- um fyrir eldri borgara. Ætlar Björn bara að hygla Reykvik- ingum? Ég sem hélt í fáfræði minni að allir landsmenn þyrftu á aöhlynningu að halda. Þjóð meðal þjóða Ekki vantar montið. Okkur munar ekkert um að veita deCODE 20 millj- arða ríkisábyrgð, sem eru ekki nema 70 þúsund á hvert mannsbarn ef illa fer. 1 staðinn verðum við þjóð á með- al þjóða. Fáum til landsins alla há- menntaða íslendingana, sem nú eru í útlegð úti í heimi. Þeir koma til með að greiða svo háa skatta hér að við verðum öll á grænni grein. Það er dálítið fyndið, ef það væri ekki bara svona grátlegt, að sorp frá fyrirtækjum hefur minnkað um 46% á síðustu 3 mánuöum þessa árs mið- að við i fyrra. Þetta er ekki út af góð- æri nema síður sé, heldur eru versl- anir og þjónusta að bregðast við samdrætti ásamt því að segja upp fólki. Atvinnuleysi er nú orðið yflr 3% og nemendur í skólum fá ekki sumarvinnu. - D-listinn ætti heldur strax að taka í taumana á aðsteðj- andi hættum en að gera samning við okkur Reykvíkinga. Ema V. Ingólfsdóttir Samtakamáttarins þörf „Það er afar mikil- vægt að sveitarstjómar- menn hafi ákveðnar skoðanir á framvindu þeirra málefna sem með einum eða öðrum hætti munu hafa áhrif á þróun byggðamála og sveitarstjóm- arstigsins í landinu ... Sveitarfélögin þurfa á öllum sínum samtakamætti að halda til að standast þær kröfur sem til þeirra era gerðar. Um leið og sveitarstjórnarmenn verða að standa traustan vörð um velferð og hags- muni síns sveitarfélags verða þeir einnig að lita til heildarinnar og taka afstöðu til þess á hvem hátt framtíð og hagsmunir sveitarstjórnarstigsins í landinu verði best tryggð og hlut- verk og ábyrgð þess efld.“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson í Sveitarstjórnarmálum. Tákn vináttu og kærleika „Kveðjan okkar þegar við heilsumst og kveðj- umst á ekki að vera hæ og bæ þó vissulega sé hún það oft á tíðum. En það sem öllu máli skipt- ir er að hún sé sögð af heilum huga. Hún sé tákn þeirrar vin- áttu og kærleika sem okkur fmnst svo gott að þiggja og ættum að eiga svo auðvelt með að gefa og veita. Við get- um öll talað inn í dapran huga sem aldrei biður neins en þiggur og þakk- ar það allt sem gefið er og veitt. Og nú ætla ég að biðja þig þeirrar bónar að byrja nýjan dag, strax í fyrramálið, með því að nota kveðjuna þína. Nota það sem Guð hefur gefið þér, nota það jafnvel gagnvart þeim sem þú hefur hingað til látið þér nægja aö horfa á, og jafhvel dæma í eigin huga.“ Pálmi Matthíasson á vef Bústaöakirkju. Spurt og svarað Hvað finnst þér um veiðigjaldið? jgggljPÉÍjj Svanfríður Jónasdóttir, þingmadur Samfylkingarinnar: Sátt við LÍÚ en ekki þjóðina „Þetta er tilraun stjómvalda til að reyna að segja fólkinu í landinu að útgerðin eigi nú að fara að borga fyrir aðgang að auðlindinni sem er eitt af stóru réttlætismálunum í dag, enda átti slik ráðstöfun að leiða til sátta um fiskveiði- stjómkerfið. Staðreyndin er hins vegar sú að á móti veiðigjaldi ríkisstjómarinnar verða felld niður önnur gjöld sem útgerðin greiðir í dag þannig að líklegast er að flest árin muni útgerð- in ekki láta af hendi hærri upphæð en hún greiðir þegar. í þessu felst einungis sátt við LÍÚ en ríkisstjómin klúðraði sáttinni við þjóðina." FriðrikJ. Arngrímsson, formaður LÍÚ: Hrein tímaskekkja „Að mínu viti er það arðbær- ara fyrir þjóðina að hafa fjár- munina áfram hjá fyrirtækjun- um. Við það skapast fleiri störf og þegar til lengri tíma er litið myndi ríkið fá meira inn af skatttekjum frá sjávarútvegsfyrirtækjunum heldur en það fær af veiðigjöldunum. Þetta er því alger tímaskekkja að mínu mati auk þess sem enn er verið að höggva á landsbyggðina en sjávarútvegsfyrirtækin þar eru einmitt þau fyr- irtæki sem stuðla að hvað mestri framþróun. Svo er gjaldið óþarflega hátt, sérstaklega ef litið er á hagnað þessara fyrirtækja. Þetta er þvi hrein tímaskekkja að mínu mati.“ Bjami Harðarson, ritstjóri Sunnlenska: Gagnslaust „Mér flnnst þetta veiðileyfa- gjald vera gagnslaust í þeirri umræðu sem hefur verið um óréttlæti kvótakerfisins. Það er nokkuð Ijóst að fyrr eða síðar neyðast stjómvöld til þess að stokka upp í þessu kvótakerfl en breytingar sem þessar hafa ekkert að segja.“ Sœvar Gunnarsson, fprmaður Sjómannasambands íslands: Út úr kú „Mér flnnast þessi veiðigjöld alveg út úr kú og ég hafna því alfarið að stjórnvöld skuli setja slíkt gjald á eina atvinnugrein en ekki aðrar. Ég held því síður að þetta stofni til sáttar um fiskveiðistjómkerfið eins og ætlun- in var að gera með þessu gjaldi og ég harma það að stjómvöld skuli ekki geta séð sér fært að breyta þessu fyrirkomulagi eins og þeim var margoft bent á í vetur.“ Alþingi var frestað á föstudag og voru fjölmörg mál samþykkt á lokasprettinum. Meöal þess sem var samþykkt voru lög um sérstakt veiðigjald á sjávarútvegsfyrirtæki. Skoðun Svamlað og leikiö sér í Sundlaug Kópavogs. Orkupælingar og buddan Mannkynið hefur oft legið marflatt fyrir spádómum af öllu tagi, allt frá heimstortímingu til ríkis Guðs á jörðu og endurkomu frelsar- ans. Nú mótmæla dekurböm gnægt- arlandanna markaðsvæðingu og al- heimsviðskiptum sem er fundið allt til foráttu. Aðrir fylla ráðstefnusali úti um heim og fjalla um útblástur koltvísýrings og takmarkanir hans, en grunnurinn fyrir því öllu er mjög veikur. Stærstu útblásturslöndin taka ekki þátt í þessum „samning- um“ sem kallast Kyoto-bókun, en þau era USA, Kína, Indland og Jap- an svo og flest vanþróuð lönd, en íbúar þessara landa eru meira en helmingur allra. Samningurinn byggist á ákvæðum sem era skraddarasniðin fyrir hvert land og miðast við að rúmast innan pólitisks valdaferils hvers stjórn- málamanns sem að stendur. íslenska ákvæðið er svo vendilega sniðið við áform um virkjanir og áliðnað á komandi árum að einsýnt er að stjómmálamenn sem siðar koma telja sig tæpast bundna. Eldsneyti fyrir farartæki Hérlendis verður mönnum alltaf tíðrætt um útblástur frá farar- tækjum en heildamotkun á jarðefnaeldsneyti er um 700 þ.t á ári. Það sem fram undan er varðandi bíla er mjög spenn- andi, en þegar er farið að bjóða rafdrifna smábíla sem nota 5 kwst. á 100 km, en rafmagnið kostar 38 krónur á smásölu- verði í Reykjavík. Orkan sam- svarar hálfum lítra af bensíni - hlaða verður geyma eftir 70 km en stöðug þróun er. Mest spenn- andi era svokallaðir tvinnbílar (hybrid) en þeir hafa tvö orku- kerfi, rafvél ásamt litlum raf- geymi svo og litla dísilvél. Þegar mikillar orku er þörf vinna kerfin saman, en þegar farið er niður brekkur eða hemlað verður rafvélin að rafala og hleður rafgeyminn. Með þessu verður mikill orku- spamaður en slíkir bílar eru í boði frá Toyota og Honda og hafa töluvert afl en nota aðeins 2,7 lítra af eldsneyti á 100 km þrátt fyrir lúxus og 5 sæti. er talið að hún muni endast í 45-50 ár og kolabirgðir í nokkur hundruð ár, en þeim má umbreyta í fljót- andi eldsneyti eins og Þjóð- veijar gerðu. Margir telja að vetni muni verða notað í framtíðinni, en sumir hafa látið heillast af fagnaðar- boðskapnum um mengun- arlaust útstreymi frá vélum og vetnisrafala. Vissulega er líklegt að vetni verði notað eftir áratugi og sér- staklega til að mæta staðbundnum þörfum eins og borgum og iðnaði með fostum rörlagnakerfum; það er ekki nýtt því borgargas áður fyrr var aðallega vetni, líka hér í Reykjavík. Þegar rætt er um notkun vetnis í farartækjum lítur málið ööruvísi út því vetni hefur hörmulega geymslu- eiginleika því geyma verður það undir mjög miklum þrýstingi (2-300 kg) en þá getur skapast mikil hætta í bilunum og slysum. Jafnvel þótt einhverjir vetnisbílar verði í notkun eftir áratugi verður vetni i því skyni ekki framleitt á íslandi heldur flutt inn, en framleiðsla þess með raf- magni er 3-4 sinnum dýrari en með Jórtas Bjarnason efnaverkfræöingur gasi (metan) en birgðir þess verða til um langa framtíð. Orkunýting í vetnisknún- um farartækjum er ekki sérlega góð og bera verður kostnað og útblástur saman við hagkvæma kosti eins og tvinnbíla og rafbíla. Nýlega var fjallað nokkuð ítarlega um orkumálin og notkun vetnis í Newsweek, en þar er haft eftir F. Panik hjá Daimler að gangi það á ís- landi, þá gengur það líka annars staðar (sic). Ef menn geta sigrast á tæknilögmálum hér þá get- ur það einnig gerst annars staðar, en aðrar leiðir til orkuspamaðar mega þá ekkert þróast á meðan til að spilla ekki samkeppnisstöðunni. Fyrir utan pælingar um notkun vetnis á bíla og kostnað reksturs má benda á, að þegar er unnt að kaupa bindingu á koltvísýringi með samn- ingi við Brasilíu sem getur plantað út trjám, eða stöövað skógareyðingu, til að binda koltvísýring, en kostnað- ur af bindingu útstreymis hvers litra eldsneytis er 4 kr.; þetta er heillandi sýn. Jónas Bjamason Orkuframtíð Fyrir 30 árum töldu menn að olían myndi endast í 30 ár, enn „Nú mótmæla dekurböm gnœgtarlandanna markaðsvæð- ingu og alheimsviðskiptum sem erfundið allt til foráttu. Aðrir fylla ráðstefnusali úti um heim ogfjalla um útblástur koltvísýrings og takmarkanir hans, en grunnurinn fyrir því öllu er mjög veikur.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.