Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Blaðsíða 18
18 ÞRIDJUDAGUR 7. MAÍ 2002 Tilvera I>V * Leiðsögn um listina Sérfræðingurinn Harpa Þórsdóttir mun í dag milli klukkan 12.10 og 12.40 leiðbeina þeim sem vilja um sýninguna Hina nýja sýn í Listasafni íslands. • Sport I Sta&ametmót i Hinu húsinu HQ er stafiarnetamót sem haldiö veröur alla þriöjudaga milli kl. 14 og 24 í Hinu húsinu.Ald- urstakmark er 16 ár. 100 MB switch net mun sjá málaliöum fyrir hraða. Verðskrá er eftirfar- andi: Aukatólva=500 kr., Aukaspilari=500 kr. Það verður spilað nánast allt sem spilurum dettur í hug, nema tetris, pacman og aðrir leik- ir sem ekki er gaman að spila á Netinu. Kjörinn staður til að koma með klanið sitt og spreyta sig gegn öðrum spilurum. Skjávarpi og dúndur- græjur búa til stemninguna og ef klanið þitt hef- ur myndband með afrekum sínum þá verður hægt að sýna það. • Klassík ■ Fóstbræður í Langholtskirkiu Vortónleikar Fóstbræðra verða haldnir annað kvöld kl. 20 í Langholtskirkju. Fóstbræðrum til halds og trausts á vortónleikum að þessu sinni eru þrir frábærir listamenn. Fyrst skal fræga telja Sigrúnu Hjálmtýsdóttur sópran- söngkonu, Diddú, sem varla þarf að kynna fyr- ir tónleikagestum, svo rækilega hefur hún sungið sig inn að hjartarótum þjóðarinnar und- anfarna áratugi. Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari er þjóðinni löngu kunn, en hún mun sjá um píanóleik á tónleikunum. Þriðji tónlistarmaðurinn sem kemur nú til liðs við kórinn er slagverksleikarinn Steef van Ooster- hout sem slær á pákur í tveimur verkum. ■ SqIIq pg píanó í Salnum í kvöld verða haldnir tónleikar í Tónlistarhusi Kópavogs, Salnum. Þar koma fram þau Nicole Vala Cariglia og Ámi Heimir Ingólfsson en þau leika verk eftir Johann Sebastian Bach, Schubert og Shostakovich. Tónleikarnir hegast kl. 20 í kvöld og að sjálfsögöu eru allir velkomnir. Miðasala fer fram í húskynnum Salarins. • Sýningar Árnastofnun Stofnun Árna Magnússonar í Árnagaröi viö Suðurgötu er opin í dag kl. 14-16. Þar er margt skemmtilegt að sjá - meöal annars eru handritin margfrægu þar til sýnis. • Leikhús ■ Veisla í Þióðleikhúsinu Annað kvöld sýnir Þjóöleikhúsið leikgerð af Veislunni eftir Bo hr. Hanssen. Með aðal hlut- verk fara Rúnar Freyr Gíslason, Arnar Jóns- son, Tinna Gunnlaugsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Elva Ósk Ólafsdóttir, Erlingur Gísla- son og Kjartan Guðjónsson. Leikstjóri er Stef- án Baldursson en sýnt er á Smíðaverkstæðinu í kvöld kl. 20. • Krár ■ Lóttir snrettir í Grafarvoginum Hljómsveitin Léttir sprettir veröur með dans- leik á Champion's Café annaö kvöld og er óhætt að lofa góðri skemmtun við Gullin- brúna. Þar leikur hún alla gömlu góðu slagarana sem allir þekkja þannig að það verður söngstemning sem aldrei fyrr. Bíógagnrýni Sex listamenn sýna í Nýló: Krassandi kóngulóarmaður ‘*S Sambíóin/Laugarásbló/Regnboginn - Spider-Man: ★ ★ ★ DV-MYNDIR HARI Hluti hópsins Gunnhildur, Sirra Sigrún, Steingrímur og Magnús. Ásmund og Gabríelu vantar. hildur segir hann aðeins einn úr hópnum. Steingrimur á röð myndverka und- ir heitinu Post-Americanizaton 2002. Þau eru samtal hans og amerísks kunningja hans sem hér hefur búið í nokkur ár og undrast hvað íslending- ar gleypa margt hrátt sem kemur er- lendis frá. Annað verk eftir Steingrím er The Wild Bunch. Það samanstend- ur af tuskuskrípum sem hanga úr loft- inu, halda á penslum og heita nöfnum þekktra amerískra listamanna. Á veggjunum er afrakstur þeirra. Að sögn Steingrims er verkið tákn um eftiröpun íslenskra listamanna. Snjallt, hugsar maður, og snýr sér að þvi næsta. Þar er Ásmundur fyrir og verkin hans þrjú, Pepsí-áskorun, verkfærakistan og Hann Dieter. Af þeim er pepsí-áskorunin hvað skiljan- legust því þar gefst kostur á að smakka drykki úr tveimur tunnum og síðan átti að merkja við í viðeigandi Joshua Verk eftir Magnús Siguröarson. reit hvor drykkurinn væri bragðbetri og meira frískandi. Rithöfundarstífla Sirra Sigrún á þrjú verk, Indvelt, Búrsúr og Sér úr sjálfum sér. Búrsúr er súrt fiskabúr með engum fiskum. „Þetta er landið okkar, segir Sirra, frekar sorgbitin. Hin tvö verkin sýna manneskjuna í vissri einangrun. „Þó ekki endilega einangrun sem hún er ósátt við,“ segir hún og lyftir auga- brúnunum. Gabríela er ekki á svæðinu til að ljá sínum verkum mál en við blasa rammbyggður stóll með statífi fyrir flösku og öskubakka, karfa, skammt frá fullt af samanböggluðum hand- skrifuðum örkum og einhver óskapn- aður á gólfrnu við fötuna. Verkið heit- ir Morris eftir bandaríska rithöfund- inum og óskapnaðurinn er „rithöf- undarstííla". Liggur í augum uppi þegar viðstaddir hafa útskýrt það. Eyðimörkin er Magnúsi hugleikin og birtist það bæði í þrívíðu verki á gólfmu, málverki og ljósmyndum. „ís- lendingar kunna vel við sig í eyði- mörk, því þar hafa þeir útsýni til allra átta,“ segir hann sannfærandi og held- ur áfram. „Þetta táknar líka líf ís- lenskra listamanna. Þeir eru þjálfaðir í að lifa á litlu og sjúga upp þá tak- mörkuðu næringu sem í eyðimörk- inni býr.“ -Gun. Sex frísklegir listamenn sýna í Nýló um þessar mundir. Þetta eru þau Ásmundur Ásmundsson, Gunnhildur Hauksdóttir, Gabríela Friðriksdóttir, Sirra Sigrún Sigurðardóttir, Magnús Sigurðarson og Steingrímur Eyfjörð. Allir i bátana heitir sýningin og er mjög í anda Nýló og öllum liggur lista- mönnunum mikið á hjarta. „Sýningin er dálítið pólitísk,“ viðurkennir Gunnhildur. „Hún snýst um stöðu ís- lendinga i stærra samhengi, um stöðu listamanna í þessu landi og stöðu ein- staklingsins sem syndir um innan ákveðins ramma og kemst ekki út fyr- ir hann." Satt og logið En titillinn „Allir í hátana“, skyldi hann vera hvatning hóps- ins um að best sé hreinlega að flýja land? Mynd af Smyrli á hraðri sigl- ingu utan á sýning- arskránni gæti bent til þess. „Já, við göngum svo langt að hvetja alla sem eitt- hvað hafa til brunns að bera til að yfirgefa skerið," segir Gunn- hildur. „Hér á landi er margt sem þarf skoðunar við. Sýn- ingin er vonandi smáinnlegg í þá um- ræðu,“ bætir Magn- ús við. „Ádeila er samt ekki rétta orð- ið yfir þessa sýningu, hún er miklu meira á tilfinningalegum nótum en svo. Við erum samt að reyna að greina kjamann frá hisminu, finna út hvað í kringum okkur er ekta og hvað ekki, hvað satt og hvað logið,“ er inn- legg Steingríms í umræðuna. Snautiheim Stór eftirlíking af réttlætisgyðjunni Sýnishorn af listinni Réttlætisgyöja Gunnhildar og Post-Americanizaton 2002 eftir Steingrím. stendur á miðju gólfi en sú er ekki með vog á fingrinum heldur ljósker sem hangir í keðju. Gunnhildur er höfundur verksins og kemur með út- skýringu. „Þetta er réttlætisgyðja sem tekur bara eina afstöðu. Þó heldur hún á ljóstíru svo það gefur smávon ..." Annað verk eftir hana er eftirlík- ing af dauðum ketti, afvelta, með nafnið sitt skrifað á bringuna. Snauti- heim hét hann, vesalingurinn. Gunn- Hvetja alla til að yfirgefa skerið Súperman, Batman og Spiderman; þetta eru þær ofurhetjur teikni- myndasagnanna sem ég hef séð á hvíta tjaldinu. Súperman var ég aldrei neitt sérstaklega hrifin af, hann var svo gegnum heill og góður að hann var eiginlega ekkert spennandi. Svo kom Batman og hann var af allt öðru sauðahúsi. Svartklæddur töffari með grímu. Svolítið þunglyndur og hæð- inn. Og nú Spiderman, stráklingur sem dreymir um að bjarga heiminum - frábært! Peter Parker er nörd eins og sést á gleraugunum. Hann er of klár, er strítt af töffurunum og sæta stelpan, Mary Jane, tekur ekkert eftir honum. En þegar bekkurinn hans heimsækir rannsóknarstofu þar sem erfðabreytt- ar kóngulær eru búnar til, sleppur ein þeirra og bítur Peter. Eftir erfiða nótt vaknar hann næsta morgun sem nýr maður. Hann sér í gegnum holt og hæðir gleraugnalaust, getur gengið upp veggi, heyrt saumnál detta á rokktónleikum og barið mann og ann- an. Hann er kominn með myndarlega vöðva og einkennilega kirtla á úlnlið- ina sem gera honum kleift að spýta út mögnuðum og ótrúlega sterkum vefj- um - sem eru til margs nytsamlegir. Peter veit að með svona ofurhæfileik- um kemur mikil ábyrgð og hann er svo vel hugsandi og vænn strákur að hann notar ekki hæfileikana í eigin þágu heldur fyrst og fremst tU að gera heiminn að betri og öruggari stað fyr- ir okkur hin. Fyrri hluti Spiderman, þegar Peter er að uppgötva þessar nýju hliöar á sjálfum sér, er æðislegur. Hann berst við skólafantinn, þreytir glímu og þeytist húsa á miUi með ógnvekjandi hoppum og hlaupum sem verða ágæt rússíbanaferð fyrir áhorfandann. Seinni hlutinn, þegar hann tekst á við erkióvininn The Green Goblin, er spennumyndalegri og ekki eins fynd- inn, en þar eru nokkur mögnuð atriði, enda bæði áhættusamt og vandmeð- farið að bjarga heiminum. Tobey Maguire gerir ekkert rangt í hlutverki Peters kóngulóarmanns. Út- litslega er hann fullkominn í hlut- verkið og hann er svo góður leikari að hann getur fengið hvaða vitleysissetn- ingu tU að hljóma vel. Eftir verulega dramatísk hlutverk í myndum eins og Wonder Boys og Cider House Rules sýnir hann hér alveg nýja hlið á sér en tekst á við hlutverkið af sömu al- vöru og hin. Hann er ekkert að slá af hæfileikunum, meira að segja í sokka- buxum upp fyrir haus svo hvergi sést i bert kemur hann tilfinningum tU skUa. Kirsten Dunst leikur ástina hans Mary Jane. Hún fær ósköp lítið að gera annað en að láta bjarga sér en gerir það ágætlega. Þau eru auösjáan- lega skotin hvort í öðru og kossinn í rigningunni þar sem kóngulóarmað- urinn er á hvolfi hangandi niður úr húsþaki var afar rómantískur fyrir okkur sem ekki hentum poppi og búú- uðum á meðan. Ég vara ykkur nefni- lega við, strákar á aldrinum 5-11 ára, það er töluvert kysst í þessari mynd! WUlem Dafoe leikur erkifjandann og ofleikur mátulega mikið. Einnig má hafa verulega gaman af J.K. Simmons i hlutverki öskrandi ergi- legs ritstjóra. Sam Raimi (EvU Dead, Darkman) er kjörinn leikstjóri fyrir teiknimyndaofurhetju þótt dálæti hans á litríku ofbeldi liti myndina. Spiderman er hröð, fyndin og spenn- andi og þegar Peter þýtur mUli húsa sveiflumst við með honum í níðsterk- um vefjunum þannig að maður fær aðeins í hnén. Það er sáraeinfalt að hrífast með stráknum i rauða og bláa búningnum og maður ætti bara að láta það eftir sér. Ég vU sérstakiega hvetja foreldra tU að fara með börnunum sinum á þessa mynd en ekki senda þau ein og eftir- litslaus svo að þau eyði timanum í að horfa á myndina í stað þess að æpa hvert á annað og henda sælgæti stans- laust yfir nærstadda. Leikstjóri: Sam Raimi. Handrit: David Koepp, byggt á teiknimyndasögum Stan Lee og Steve Ditko. Kvikmyndataka: Don Burgess. Tónlist: Danny Elfman. Aöal- lelkarar: Tobey Maguire, Willem Dafoe, Kirsten Dunst, James Franco, J.K. Simm- ons, Rosemary Harris, Cliff Robertson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.