Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Síða 19
19 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 DV Tilvera Myndgátan Myndgátan hér til hliðar lýsir orðasambandi. Lausn á gátu nr. 3296: Menn þverskallast Krossgáta Lárétt: 1 gimd, 4 arð, 7 mildri, 8 ástarguð, 10 kvæði, 12 vatnagróð- ur, 13 skógur, 14 sál, 15 hita, 16 falskur, 18 bjarti, 21 bikar, 22 harma, 23 truflun. Lóðrétt: 1 feyskju, 2 þannig, 3 bolur, 4 lundi, 5 aðstoð, 6 hópur, 9 snjór, 11 furða, 16 andlit, 17 elska, 19 hrópa, 20 kvendýr. Lausn neðst á síðunni. Skák Hvítur á leik! Indverjinn Anand stóð uppi sem sig- urvegari á atskákmótinu mikla í Prag. Reyndar tefldu Karpov og hann venju- legar kappskákir í lokaeinvíginu sem var óvenjuleg ráðstöfun, af hverju að hafa ekki allar skákimar í atskák- formi fyrst þeir vora að þessu á annað borð? En við fengum alla vega 2 „al- vöra“ skákir, Anand vann hina fyrri með pressu og tilþrifum á laugardag- inn og síöastliðinn sunnudag komst Karpov ekkert áleiðis gegn Indverjan- um snjalla og jafntefli varð niðurstað- an. Anand náði að tefla af nokkurri lipurð. Þessar atskákir era reyndar varasamari en venjulegar kappskákir, það má ekki mikið út af bera. Karpov var lagður með stöðubaráttu i fyrri skákinni sem við skoðum í dag. Hann var að leika 30. - DfB betra var 30. - Dg7 en honum hefur líklega verið illa við 31. Dbl b6 32. Db5! Þá kom einfald- ur en atorkumikill hnykkur. Hvitt: Vishy Anand (2752) Svart: Anatoly Karpov (2690) Rússnesk vöm. Euru-símamótið í Prag 4.5. 2002. 1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Rc6 7. O- 0 Be7 8. c4 Rb4 9. Be2 0-0 10. Rc3 Bf5 11. a3 Rxc3 12. bxc3 Rc6 13. Hel He8 14. Bf4 dxc4 15. Bxc4 Bd6 16. Hxe8+ Dxe8 17. Rg5 Bg6 18. Bxd6 cxd6 19. h4 De7 20. Dg4 h6 21. Rh3 Df6 22. Hel Bf5 23. Df3 Kf8 24. Rf4 Bd7 25. g3 He8 26. Hxe8+ Bxe8 27. De4 g5 28. hxg5 Dxg5 29. Bd5 Bd7 30. Dh7 Df6 (Stöðumyndin) 31. Bxf7! Re7 [Ef 31. - Dxf7 þá mátar hvítur með 32. Rg6+ Ke8 33. Dh8+] 32. Bb3 Bf5 33. Rh5 Bxh7 34. Rxf6 Bg6 35. Rg4 Kg7 36. Re3 Be4 37. g4 Kf6 38. Kh2 b6 39. Kg3 Kg5 40. Bf7 Kf6 41. Bc4 Kg5 42. Bb3 Kf6 43. f3 Bg6 44. f4 Be4 45. Bc4 Bc6 46. Bd3 Bb7 47. Kh4 Bf3 48. Rc4 Rd5 49. Kg3 Bdl 50. Rxd6 Rxc3 51. RÍ5 Kg6 52. d5 Ba4 53. d6 Bd7 54. Kh4 a5 55. Re3+ Kf7 56. Kh5 b5 57. Kxh6 Ke6 58. g5 Kxd6 59. g6. 1- 0. Bridge Umsjón: ísak Öm Slgurösson í þessu spili úr Cap Gemini boðs- mótinu hollenska, sem fram fór á dögunum, mátti líta ansi misjafnar niðurstöður. AV fengu í mörgum til- fellum að spila lokasamninginn, allt frá 4 spöðum ódobluðum og upp í 6 spaða doblaða. Bandarikjamennirnir Gamer og Weistein spiluðu 4 spaða * 8763 •+ Á86 •+ DG743 £ * K * AKG1Ó5 •+754 + ■ * ÁDG96 * - «0 KG109 + ÁK1098 * 10854 Á hinum endanum vora þeir sem fengu að spila tígulsamning í NS. Brasilíumennimir Chagas og Brenner spiluðu 3 tígla, fengu 11 slagi en því ódoblaða gegn Sabinu Auken og Klaus Reps sem láku einn niður og fengu fyrir það 12 impa í plús. Pól- verjamir Gawrys og Jassem börðust upp í 6 spaða doblaða yfir 6 tfglum gegn Brogeland og Sælensminde og fóra 1100 niður. Það gaf AV 8 impa í plús. Norður gjafari og NS á hættu: miður fyrir þá, 12 impa í mínus. Kanadamennimir Gitelman og Stans- by spiluð 5 tigla, slétt unna, en fengu 5 impa í mínus. Aðeins eitt par náði þvi að segja og vinna 6 tígla, en þaö vora Hollend- ingamir Muller og De Wijs. Sagnhafi hitti rétt í hjartað og stóð þannig spilið. Það var mikils virði, 12 impar í plús í stað þess aö fá 14 impa í minús ef slemm- an hefði farið niður. Andstæðingar þeirra i spilinu vora Zia Mahmood og Andrew Robson. •31} 08 ‘Bdæ 61 ‘}sb L\ 'saj gj ‘onpun n ‘flQta 6 ‘J3h 9 ‘0TI S ‘JnjSBjojd f ‘BjJÁSjSjæu g ‘oas z ‘enj 1 ijjajQoq ‘>]SBJ gz ‘Bjns ZZ ‘dnBjs \z ‘jjæi 81 ‘J?B 91 ‘siÁ gj ‘tpuB H ‘ijjoui gi ‘jas zi ‘JnQO oi ‘Jouiy 8 ‘iJ§æA l ‘8ojd f ‘usAj \ íjjajnq Dagfari Haukur Lárus Hauksson blaðamaöur Skjólveggur á hjólum Ég var í Leifsstöð á sunnudag, í hópi fjölda farþega sem var að koma frá Evrópu. Sú reynsla gefur ekki beinlínis tilefni til já- kvæðra skrifa. í komusalnum mætti manni þessi venjulega martröð þar sem farþegar úr mörgum vélum, sem auðvitað lenda allar um svipað leyti, reyndu að troðast að færiband- inu og síðan að græna hliðinu. Úti um allt í troðningnum var fólk að segja afsakiö. „Skemmti- legar móttökur,“ hugsaði ég þar sem ég dró hjólatöskuna yflr tærnar á rosknum Þjóðverja og stamaði „untschuldigung". Frammi í móttökusalnum tók ekki betra við. Eftir troðning og pústra komst ég að útganginum. Nokkrir útlendingar störðu agn- dofa út. Suðaustan rok og lárétt úrhelli. Veðurguðirnir voru 1 séríslensku skapi. Allir voru heldur óþreyjufullir að komast inn í rútuna þegar hún kom og hópuðust að framdyrunum. En urðu heldur hissa þegar bílstjór- inn opnaði ekki dyrnar heldur gerði sig líklegan til að aka inn undir anddyrið. Kom í ljós að hann var einfaldlega að búa til skjól fyrir rokinu og rigning- unni svo hægt væri að koma töskunum og farþegunum klakk- laust um borð. Það er merkilegt að í þessari aðalflugstöð íslend- inga skuli engin tilraun gerð til að skýla komufarþegum fyrir suðaustanrigningargeðvonsku veðurguðanna. Að það skuli undir umhyggju- og útsjónar- sömum rútubílstjórum komið að farþegar komist klakklaust í rútuna er makalaust. Ég tek ofan fyrir bílstjórum flugrút- anna en verð ekki hissa ef út- lendir farþegar, sem eru öðrum og betri móttökum vanir, gefi þeim sem bera ábyrgð á þessari vitleysu langt nef. Sandkorn__________________________J Umsjón: Höröur Kristjánsson • Netfang: sandkorn@dv.is Eins Og kunnugt er á útgáfuforlag- ið Edda í miklum rekstrarerfileikum og búist er við miklum aðhaldsaðgerðum þar á bæ. Einn liður í þeim áætlunum mun vera að leggja nið- ur Tímarit Máls og menningar. Tímaritið fékk andlitslyftingu ekki alls fyrir löngu með nýjum ritstjóra, Brynhildi Þórarins- dóttur, og breytti um leið um nafn og er nú kallað Timarit um menningu og mannlif. Breytingin hefur ekki dugað til að laða að nýja áskrifendur og tíma- ritið stendur ekki undir sér. Edda mun ekki lengur vilja borga með timaritinu og dauði þess blasir við. Hinir bráðskemmtilegu og stórgáf- uðu tvíburar Sverrir og Ármann Jak- obssynir skrifa reglulega á vefsíðuna Múrinn. Sverrir er í mikium ham þessa dagana og beinir spjótum sínum að Stef- áni Jóni Hafstein sem skipar þriðja sæti R-listans. Sverrir, sem er stuðnings- maður Vinstri grænna, virðist hund- óánægður með veru Stef- áns Jóns á listanum og segir: „Skv. DV er Stefán Jón Hafstein „vinsæl- asti“ frambjóðandi R- listans. Ég dreg það mjög i efa. Hins vegar er hann sá frambjóðandi sem lætur mest á sér bera, á meðan aðrir eru aö spila sem heild. Er það tilviljun að R-listinn fer að tapa fylgi í könnunum um leið og Stefán Jón byijar að troða sér í fjölmiðla? Ég held ekki.“ Meira um Stefán Jón frá Sverri: „Síðan fór ég til Stefáns (Páls- sonar) og þegar upp var staðið voru orð- in til 700 R-listamerki. í morgun heyrði ég í Stefáni Jóni í útvarpinu og vissi um leið að öll sú vinna er unnin fyrir gýg. Hvaö varð um hið góða slagorð (og stefnumál): FOF (Felum okkar fífl)!“ Heyrst hefur að sjáifstæðismenn séu síður en svo ánægðir með frammi- stöðu Kristjáns Kristjánssonar í Kast- ljósþætti þar sem þau sátu fyrir svörum Hanna Bima Kristjánsdóttir, Stefán Jón Hafstein og Margrét Sverrisdóttir. Sjálfstæðismenn kvarta undan því að Kristján hafi gengið mjög hart að Hönnu Birnu en hlíft Stefáni Jóni og Margréti við óþægilegum spurningum. Meðal þeirra sem eru á þessari skoðun er odd- viti sjálfstæðismanna i borginni, Björn Bjarnason, sem segir á heimasíðu sinni um frammistöðu Kristjáns í þættinum: „Gekk Kristján Kristjánsson þar fram gagnvart Hönnu Bimu eins og hann væri málsvari R-listans í staö þess að leggja spumingar fyrir með hlutlægum hætti.“ Ljóst er að mikil viðkvæmni er í gangi þegar kemur aö þátta- stjórnun og ekki aðeins hjá D-lista því athygli vakti í sjónvarpsumræð- um frá Ráðhúsinu að Ingibjörg Sólrún brást illa við þegar henni fannst Bjöm Bjamason tala of lengi og krafðist þess að stjórnendur sæju til þess að hún fengi að tala nákvæmlega jafn- lengi og hann. í bókaverslunum Eymunds sonar hafa verið sett upp borð með myndum af oddvitum D- og R-lista, þeim Bimi Bjamasyni og Ingibjörgu Sólrúnu, og þeim bókum sem þau eru að lesa þessa dagana. Reyndar er grun- samlegt hversu mikinn tíma oddvit- arnir virðast hafa í bóklestur því þama er að finna þykka doðranta. Bókavalið endurspeglar karakter fram- bjóðendanna. Ingibjörg Sólrún gætir þess að hafa bækur eftir tvær konur á sínum lista, þær Amy Tan og Guð- rúnu Evu Mínervudóttur. Húman- isma sinn sýnir hún í vali á Veröld sem var eftir Stefán Zweig og andúð á hemaðarbrölti og fas- isma með vali á Gerplu | Laxness og Mefistó eftir Klaus Mann. Bók- menntasmekkur Björns I Bjarnasonar er ■ kannski þyngri en ansi traustur. Hann er með bækur eftir tvo nóbelsverðlaunahafa, Blikktrommuna eftir Gunter Grass, og bók eftir V.S. Naipaul. Hinn friðsami náttúruunn- andi sem býr i Birni velur Þingvalla- bókina og íslenskar eldstöðvar. Bjöm á síðan óvæntan og snjallan leik þegar hann velur bók um Megas með þeim ummælum að fátt hafi vakið meiri at- hygli og deilur í menntamálaráðherra- tíð hans og það þegar Megas hlaut verðlaun á degi íslenskrar tungu. Myndasögur_____________________

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.