Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 7. MAl 2002
27
Tölfræði úrslitanna
Valur 2
Mörk/víti: (skot/viti)
Bjarki Sigurðsson .........16 (28)
Freyr Brynjarsson .........14 (18)
Sigfús Sigurösson .........13 (18)
Snorri Steinn Guðjónsson . 13/3 (31/4)
Markús Máni Michaelsson 11/2 (33/3)
Ásbjöm Stefánsson............3 (5)
Geir Sveinsson...............3 (5)
Einar Gunnarsson ............3 (5)
Skotnýting: .......... 53*A'
Skipting markskota: (nýting)
Langskot .... 63 skot/18 mörk (29%)
Gegnumbrot .............14/9 (64%)
Hom .................. 20/15 (75%)
Lína..................21/14 (67%)
Hraðaupplúaup .........18/15 (83%)
Vítaskot ................7/5 (71%)
Varin skot/viti: (Skot á sig/viti)
Roland Eradze........ 53/4 (127/19)
Pálmar Pétursson.............0 (2)
Markvarsla:.................41%.
Skipting markvörslu (hlutfall)
Langskot ... 46 skot/29 varin (63%)
Gegnumbrot............ 22/10 (45%)
Hom..........................13/4 (31%)
Lina ...................12/2 (17%)
Hraðaupphlaup................17/4 (24%)
Vítaskot......................19/4 (21%)
Stoösendingar: (inn á línu)
Markús Máni 13 (5), Bjarki 13 (4),
Snorri Steinn 12 (3), Freyr 7 (1), Ein-
ar 3 (2), Sigfús 3, Geir 2, Eradze 1.
Fiskuö víti:
Bjarki 2, Snorri Steinn 2, Freyr, Ás-
bjöm, Sigfús.
Sendingar sem gáfu viti:
Freyr 2, Bjarki 1, Markús Máni 1.
Fiskaöir brottrekstrar:
Bjarki 3, Snorri Steinn 2, Freyr 2, Sig-
fús 2, Geir i, Einar 1.
Boltum náö:
Bjarki 6, Markús Máni 3, Sigfús 3,
Freyr 3, Snorri Steinn 3, Ásbjöm 1.
Varin skot i vörru
Sigfús 13, Geir 11, Markús Máni 2.
Hraðaupphlaupsmörk...........15
(Freyr 5, Sigfús 4, Snorri 3, Bjarki 2,
Geir).
Tapaðir boltar...............29
KÁ 1
Halldór Sigfússon 29/15 (42/17)
Andrius Stebnokas ... 16 (20)
Heiðmar Felixson .... 8 (32/1)
Heimir Öm Ámason . . 6 (24)
Sævar Ámason 5 (8)
Jónatan Þór Magnússon .... 5 (13/1)
Einar Logi Friðjónsson . 3 (5)
Baldvin Þorsteinsson . . 2 (3)
Jóhann Gunnar Jóhannsson ... 2 (6)
Ingólfur Axelsson 0 (1)
Skotnýting: 49%.
Skipting markskota: (nýting)
Langskot .... 76 skot/17 mörk (22%)
Gegnumbrot . 16/12 (75%)
Hom . . 16/9 (56%)
Lína . 12/10 (83%)
Hraðaupphlaup . 15/13 (87%)
Vítaskot . 19/15 (79%)
Varin skot/viti: (Skot á sig/viti)
Egidijus Petkevicius .. . 48/2 (122/6)
Hans Hreinsson 0(2/1)
Markvarsla: 39%.
Skipting markvörslu: (hlutfall)
Langskot ... 47 skot/29 varin (62%)
Gegnumbrot . . 15/6 (40%)
Hom . . 19/4 (21%)
Lfna . . 19/5 (26%)
Hraðaupphlaup . . 17/2 (12%)
Vítaskot: . . 7/2 (29%)
Stoösendingar: (inn á linu)
Jónatan 10 (3), Heiðmar 8, Halldór 6
(1), Heimir 6 (1), Sævar 5 (4), Einar
Logi 1, Hreinn 1 (1), Jóhann 1, Pet-
kevicius 1, Stelmokas 1.
Fiskuö viti:
Heimir 6, Halldór 3, Jónatan 2,
Stelmokas 3, Jóhann 3, Einar Logi,
Hreinn.
Sendingar sem gáfu víti:
Heiömar 6, Halldór 5, Jónatan 1.
Fiskaóir brottrekstrar:
Stelmokas 3, Heimir 2, Sævar 2, Hall-
dór, Heiðmar.
Boltum náö:
Stelmokas 3, Heimir 3, Jónatan 3,
Heiðmar 2, Sævar 2, Jóhann, Halldór.
Varin skot i vörru
Heimir 5, Stelmokas 4, Hreinn.
Hraðaupphlaupsmörk..........13
(Stelmokas 8, Heiðmar 2, Sævar 1,
Jónatan 1, Heimir 1).
Tapaðir boltar..............27
'
Sport
Sex leikja siguri
úrslitakeppninni
KA-maourinn Halldor Johann
Sigfusson skorar hér eitt 11 marka
sinna á Hliðarenda i gær en Halldor
hefur skoraö 29 mörk og nytt 69%
skota sinna í einvíginu til þessa.
DV-mynd Pjetur
Lokaúrslitapunktar
Hinn frábæri leikmaður Vals Markús
Máni Michaelsson hefur verið liði sínu
mikilvægur í úrslitakeppninni og hann
á vísa bjarta framtíð í handboltanum.
Markús gerir þó íleira en að spila hand-
bolta, hann hefur talsvert fengist við
módelstörf og leikur meðal annars í aug-
lýsingu þar sem verið er að kynna orku-
drykk auk annarra auglýsinga annars
eðlis. Greinilega fjölhæfur piltur þar á
ferð.
Björn Bjarnason, fyrrverandi mennta-
málaráðherra og borgarstjóraefni Sjálf-
stæðisflokksins, var mættur á leikinn í
gærkvöldi. Hann sat á fremsta bekk KA-
megin, umvafmn Akureyringum, og
virkaði hálf einmana. í síðari hálfleik
settist Guölaugur Þór Þóröarson,
borgarfulltrúi og samflokksmaður
Bjöms við hlið hans og veitti honum
líklega einhveija huggun því væntan-
lega heldur Bjöm með Val, þó hér skuli
ekkert fuliyrt.
Það lá við að upp úr syði á milli Heiö-
mars Felixsonar og Geirs Sveinsson-
ar þegar rétt rúmar þrjár mínútur voru
eftir. Heiðmar var ekki sáttur með þá
meðferð sem sá gamli veitti honum en
gengið var á milli og þeir kældir niður.
i gœrkvöldi var nokkrum sinnum spii-
að lagið, I'm a survivor, með hljóm-
sveitinni Destiny's Child, en óhætt er að
segja að lagið hafi átt miklu betur við
gestina sem vom komnir upp að vegg
fyrir leikinn, enda fór svo að þeir þrauk-
uðu. -SMS
Sigurviliinn
færði KA fjórða leikinn og stöðvaði sigurgöngu Valsmanna
- Ekki sjálfgefið að vinna fyrir norðan, segir Atli Hilmarsson
„Ég verð að bíða og sjá hvemig
mannskapurinn verður á morgun, ég
held að menn hafi gefiö allt það sem
þeir áttu í dag og vonandi getum við
komið mönnum í stand fyrir miðviku-
daginn því við erum ákveðnir í að
selja okkur dýrt - við skulduðum
áhorfendum okkar að tapa ekki 3-0,“
sagði Atli Hilmarsson, sigurreifur
þjálfari KA, eftir sigurinn á Val í gær.
KA-menn skoruðu fyrstu tvö mörk
leiksins og leyfðu Valsmönnum aldrei
að taka forystuna í leiknum. Greini-
legt var aö þeir voru komnir í höfuð-
staðinn til að berjast íyrir fjóröa
leiknum og leyfa Valsmönnum ekki
að vinna einvígið svo glatt. KA-menn
stiiltu upp í 6:0 vöm og áttu Valsmenn
í miklum erfiðleikum að brjóta hana á
bak aftur. Taugar leikmanna voru þó
greinilega þandar í botn og tók það þá
nokkrar mínútur að finna almenni-
lega taktinn. Gestimir vom þó fyrri
til og fylgdu eftir góðum vamarleik
sínum með skæðum sóknum.
Um miðbik fyrri hálfleiks kom lík-
lega besti leikkafli Vals í leiknum þeg-
ar þrjú mörk komu á skömmum tíma
og tókst þeim að jafna leikinn í stöð-
unni 6-6. Gestimir létu þó ekki slá sig
út af laginu og fór þar fremstur í
flokki Halldór Sigfússon, sem fann all-
ar smugur á Valsvörninni, og kom
Roland Eradze markvörður engum
vömum við. Þegar Snorri Steinn Guð-
jónsson var farinn að láta til sín taka
í sókninni tókst Valsmönnum að
halda í við andstæðinga sína en alltaf
náðu KA-menn að svara jafnóðum.
Þegar hins vegar 10 mínútur voru
eftir færðist aftur líf í leikinn þegar
heimamönnum tókst að minnka mun-
inn í tvö mörk og tóku stuðnings-
menn Valsara afar vel við sér þá en
frábær stemning var á Hliðarenda í
gær enda troðfullt hús. Norðanmenn
vom hins vegar ekkert á því að
hleypa þeim nær og það var vel að
Halldór skoraði síðasta mark þeirra
með góðu gegnumbroti.
Lið KA lék frábærlega í gær og
voru þar þrír menn í fararbroddi.
Halldór var afar skæður í sókninni,
Heimir Öm Ámason var sem kiettur
í vöminni og Egidijus Petkevicius var
mjög góður í markinu. Hjá Val var
fyrirliðinn, Snorri Steinn, góður og
lék sinn besta leik það sem af er þess-
ari úrslitarimmu og þá áttu homa-
mennimir Bjarki Sigurðsson og Freyr
Brynjarsson einnig góðan leik. Vöm-
in hefur oft verið sterkari og þegar
menn eins og Markús Máni Mikaels-
son ná sér alls ekki á strik eins og
raunin var í gær má muna um minna.
Þurfum tvo toppleiki
„Við þurfum að ná tveimur topp-
leikjum í viðbót til að vinna þetta ein-
vígi og það er alls ekkert sjálfgefið að
vinna heima, við töpuðum jú þar síð-
ast og við þurfum á öllu okkar að
halda til að ná sigri á miðvikudaginn.
Fyrstu tveir leikimir hefðu getað
farið á hvorn veginn sem var, við vor-
um í framlengingu í báðum leikjum
og það var oft spuming um hvort það
var stöngin inn eða stöngin út sem
réð úrslitum leiksins. Leikurinn í
kvöld vannst samt með góðum mun
og það var jafiit hugarfarsbreyting
strákanna og taktísk breyting á leik
okkar sem réð því. Við stilltum upp í
6:0 vöm sem þeir áttu í miklum erfiö-
leikum með héma fyrr í vetur þegar
við unnum héma á Hlíðarenda í deild-
inni. En þetta var auðvitað mikið hug-
arfarið líka. Valsmenn voru famir að
fagna og biða eftir titlinum hér í
kvöld og við ætluðum alls ekki að láta
það gerast. Við vomm mjög einbeittir,
léttir og kátir og það reyndist vel í
kvöld,“ sagði Atli að lokum. -esá
Lokaúrslitapunktar
Sigfús Sigurösson hefúr oft átt betri
leik en að þessu sinni og kannski má
rekja slakan leik hans til þess að eftir
aðeins fjórar mínútur og þrettán sek-
úndur var hann bæði kominn með
gult spjald og brottvikningu og segja
má að hann hafi aldrei komist al-
mennilega í gang eftir það.
Áhorfendastœöi á Hlíðarenda voru
strax oröin full kl. 19.30 í gær, um 45
mínútum fyrir leikinn og voru áhorf-
endur beðnir margsinnis að þjappa
sér saman svo fleiri gætu komist að.
Rúmum stundarfjórðungi fyrir leik
var svo farið að vísa fólki frá, það var
einfaldlega orðið uppselt á leikinn.
Valsmenn heiöruðu fyrir leik Jón
Karlsson, fyrrum formann hand-
knattleiksdeildar Vals, fyrir óeigin-
gjamt starf í þágu félagsins.
Þegar 20 mínútur voru liðnar af leikn-
um stöðvaði Gunnar Viðarsson, ann-
ar dómara leiksins, leikinn þar sem
einn áhorfenda leiksins var með eigin
flautu til að slá leikmenn út af laginu.
Var sá beðinn að hætta því samstund-
is og virtist hann sinna því.
Valsmenn hötðu unnið sex leiki og 13
heimaleiki í röð í úrslitakeppninni
tyrir tapið á Hlíðarenda í gær. KA-
menn urðu fyrsta liðið í sex ár til að
vinna leik í úrslitakeppni á Hlíðar-
enda og þetta var aðeins þriðja
heimatap Valsmanna í keppninni frá
upphafl. -SMS/esá/ÓÓJ
Við viljum meira
Halldór Jóhann Sigfússon spilaöi eins og engill í gærkvöldi og þessi
leikur er örugglega einn af hans bestu hingað til á ferlinum: „Ég er
búinn að finna mig vel í þessum leikjum á móti Val og sérstaklega þá í
þessum en það sem skipti öllu fyrir okkur var aö við vorum að spila vel
saman og liðsheildin var alveg frábær en það hrjáði okkur í tveimur
fyrstu leikjunum að hún var ekki eins góö. Við gátum ekki hugsað okkur
að verða fyrsta liðið til þess að tapa 3-0 í lokaúrslitum og það gaf okkur
auðvitað aukakraft og við sýndum mikinn styrk í leiknum auk þess sem
breytingin á vöminni gekk vel upp. Nú höfum við sýnt virkilega hvað í
okkur býr og við viljum meira og höfum fulla trú á því aö við getum
meira,“ sagöi Halldór Jóhann Sigfússon, besti leikmaður KA í leiknum
í gærkvöldi. Halldór hefur nú skorað 29 mörk úr 48 skotum í leikjunum
þremur til þessa sem gerir 9,7 mörk að meðaltali og frábæra 69%
skotnýtingu. Þar af hefur Halldór nýtt 88% víta sinna. _SMo
Bara til að breyta
Heimir Örn Ámason var frábær í vöm KA-liðsins. Athygli vakti að
hann lék í treyju númer átján aö þessu sinni en hann er vanur að vera
númer þrettán. Aðspurður hvemig á þessu stæði sagði hann:
„Þetta var nú bara til aö breyta eitthvað til því það er búið að ganga
frekar illa í sókninni hjá mér en það gekk nú ekkert betur i dag
reyndar,“ sagði Heimir og hló.
„Þó vannst sigur og það er fyrir öllu og dálítið gaman af því að það
skyldi gerast þegar viö spiluöum þessa 6-0 vörn sem margir hafa talið
vera okkar sístu vöm. Við ætluðum svo sannarlega ekki að verða fyrsta
liðið til þess að tapa 3-0, fjándinn hafi það, sérstaklega líka ef það er haft
í huga hversu áþekk þessi tvö lið era að styrkleika. Það er allt hægt í
þessu og við ætlum okkur ekki aö tapa öðrum leik fyrir norðan, það er
á hreinu,” sagði Heimir Öm Áraason sem varði þrjú skot Valsmanna og
stal tveimur boltum.