Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.2002, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 2002 Sport Úrslitakeppni NBA í fullum gangi: Dallas jafnaði - eftir sigur í Sacramento í nótt Ólgan heldur áfram innan Alþjóða knattspyrnusambandsins: Það er ekki laust við að skórinn :reppi að hinum umdeilda forseta tlþjóða knattspyrnusambandsins, ivisslendingnum Sepp Blatter. Reglulega hefur mátt lesa um ný ig ný hneykslis- og spillingarmál em Blatter hefur verið viðriöinn og ná ljóst vera að hann hefur verið ipptekinn við eitthvað allt annað en ið stjórna stærsta íþróttasérsam- landi veraldar þau fjögur ár sem lann hefur verið forseti Alþjóöa mattspymusambandsins. i/lútur og keypt atkvæöi Blatter hefur verið ásakaður um ið hafa keypt sér atkvæði fyrir pen- nga sambandsins þegar hann var ;jörinn forseti fyrir íjórum árrnn. iann hefur ausið ótæpilega úr sjóð- im sambandsins í vini sína og vel- mnara eftir því sem fram kemur í kýrslu sem aðalritari sambandsins, dichael Zen-Ruffínen, birti á dögun- un og mútaði mönnum vinstri og lægri út um aUan heim tU að styrkja töðu sína sem forseti sambandsins. Blatter finnst lítið tU ásakana Zen tufílnen koma og segir þær hlægi- egar. „Það getur vel verið að ég hafi gert nokkur mistök á valdaferli mínum. Það gera aUir mistök en þau eru ekki nærri því eins alvarleg og fram kemur í skýrslu Zen Ruffinen. Hann ætti frekar að reyna að vinna sína vinnu almennUega í stað þess að vera í leynilögregluleik," sagði Blatt- er í viðtali við svissneskt dagblað á sunnudaginn. Hefur fengiö nóg Svíinn Lennart Johannsson, sem er forseti Knattspyrnusambands Evrópu og sá sem tapaði fyrir Blatt- er í kosningunum fyrir fjórum árum, hefur fengið nóg. Hann er svarinn óvinur Blatters og notar hvert tæki- færi sem gefst tU að koma óorði á Svisslendinginn. Johannsson segir nú að Blatter verði að segja af sér tU að hægt sé að endurreisa orðstír Al- þjóða knattspyrnusambandsins sem sé rústir einar eftir að upp komst um vafasamar aögerðir Blatters úti um aUan heim. „Það er ljóst að hinn góöi orðstír Alþjóða knattspyrnusambandsins verður ekki endurreistur á meðan Blatter er við völd. Miðað við það sem hefur komið í ljós undanfarið væri forseti hvaða samtaka sem væru í heiminum, sem eru svipuð að stærð og Alþjóða knattspyrnusam- bandið, búinn að segja af sér. Það er það eina rétta i stöðunni fyrir Blatt- er,“ sagði Johannsson í gær. Gefst ekki upp Sepp Blatter er þó ekki á þeim buxunum að gefast upp. Hann er þess fiUlviss um að hann muni standa uppi sem sigurvegari þegar gengið verður tU kosninga um for- setastöðuna þann 29. þessa mánuðar á þingi Alþjóða knattspyrnusam- bandsins í Seoul. Andstæðingur hans er Kamerúninn Issa Hayatou, sem er forseti Knattspyrnusambands Afriku og einn af sjö varaforsetum Alþjóða knattspyrnusambandsins. Hann þykir vera heiðarlegur og hef- ur stuöning hins valdamikla Jo- hannssons sem ræður því sem hann viU ráða á meðal forráðamanna knattspyrnumála í Evrópu. Blatter hefur þó litlar áhyggjur af Haytou og hans framboði og segir að það eina sem geti komið í veg fyrir að hann verði áfram forseti Alþjóða knattspyrnusambandsins sé að hann farist í jarðskjálfta eða öðrum nátt- úruhamforum. -ósk Dallas Mavericks gerði sér lítið fyrir og lagði hið sterka lið Sacra- mento Kings á útiveUi, 110-102, i nótt og jafnaði þar með metin, 1-1, í einvígi liðanna í undanúrslitum vpsturdeUdarinnar. Sacramento byrjaði leikinn af miklum krafti og hafði 13 stiga for- ystu eftir fyrsta leikhluta. Leik- menn DaUas minnkuðu þó muninn strax í öðrum leikhluta, tóku síðan völdin í síðasta leikhlutanum og sigu fram úr. Steve Nash var stiga- hæstur hjá DaUas með 30 stig og gaf jafnframt 8 stoðsendingar, Þjóðverj- inn frábæri Dirk Nowitzki skoraði 22 stig og tók 15 fráköst, Nick Van Exel skoraði 19 stig og Raef LaFrentz skoraði 14 stig, tók 10 frá- köst og varði 5 skot. Chíris Webber skoraði 22 stig og tók 12 fráköst fyr- ir Sacramento, Mike Bibby skoraði einnig 22 stig og þeir Hidayet Tur- koglu og Vlade Divac skoruðu 15 stig hvor. Lakers komiö yfir Los Angeles Lakers er komið yfir, 1-0, í einvíginu gegn San Antonio Spurs í undanúrslitum vesturdeUd- arinnar í NBA eftir sigur, 86-80, í miklum baráttuleik í Los Angeles. Tvær helstu stjömur liðsins, mið- herjinn ShaquiUe O’Neal og Kobe Bryant gengu ekki heUir tU skógar í leiknum en það kom ekki sök. Þeir voru samt sem áður stigahæstir í liði Lakers. O’Neal skoraði 23 stig og tók 17 fráköst og Bryant skoraði 20 stig. O’Neal var sérstaklega mik- Uvægur i síðasta leikhlutanum en þá skoraði hann 13 stig og sá tU þess að fjögurra stiga forysta San Anton- io eftir þriðja leikhlutann hyrfi eins og dögg fyrir sólu. Tim Duncan skoraði 26 stig og tók 21 frákast fyr- ir San Antonio en hann hitti aðeins úr 9 af 30 skotum sínum í leiknum. Steve Smith skoraði 16 stig og Tony Parker skoraði 11 stig fyrir San Ant- onio sem lék án miðherja síns, Dav- ids Robinsons. Kidd kláraði dæmið Jason Kidd, leikstjómandi New Jersey Nets, leiddi sína menn tU sig- urs gegn Charlotte Hornets, 99-93, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum austurdeUdarinnar. Kidd skoraði flórar síðustu körfur New Jersey ut- an af veUi í leiknum og sagði eftir leikinn að hann hefði orðið að gera eitthvað því að hann hefði verið áhorfandi lengst af leiknum. Kidd skoraði 21 stig, tók 7 fráköst og gaf 7 stoðsendingar í liði New Jersey Nets. Todd MacCuUoch skoraði 14 stig og varði 5 skot og Kerry Kittles skoraði 12 stig. Baron Davis skoraði 23 stig og stal 7 boltum í liði Charlotte Homets og Elden Camp- beU skoraði 22 stig. Vörnin geröi gæfumuninn Vamarleikur Detroit Pistons gerði gæfumuninn þegar liðið lagði Boston Celtics, 95-84, í fyrsta leik liðanna i undanúrslitum austur- deUdarinnar. Leikmenn Detroit náðu að halda stigahæsta manni Boston, Paul Pierce, í aðeins 17 stig- um og skotnýting Boston var aðeins 37,5%. Clifford Robinson var stiga- hæstur hjá Detroit með 30 stig og Jerry Stackhouse skoraði 26 stig. Antoine Walker skoraði 20 stig fyr- ir Boston og þeir Paul Pierce og Kenny Anderson skoruðu 17 stig hvor. -ósk Miöherji Los Angeles Lakers, Shaquille O’Neal, treður hér með tilþrifum án þess að Tim Duncan hjá San Antonio Spurs komi vörnum við. Reuters Duncan bestur í NBA Tim Duncan, framherji San Antonio Spurs, hefur verið valinn besti leikmaður NBA-deUdarinnar á nýafstöðnu keppnistimabUi. Duncan hafði betur eftir harða baráttu við Jason Kidd, leikstjórnanda New Jers- ey Nets, og mun fá verðlaunin afhent fyrir þriðja leik San Antonio Spurs og Los Angeles Lakers á fóstudaginn. Duncan átti frábært tímabU með San Antonio Spurs og varð fimmti stigahæsti leikmaður deUdarinnar með 25,5 stig að meðaltali, annar í fráköstum með 12,7 fráköst og þriðji í vörðum skotum með 2,48 varin skot að meðaltali. -ósk Kreppir að Sepp Blatter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.