Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Blaðsíða 6
6 MIÐVKUDAGUR 8. MAÍ 2002 Fréttir -y-^'ur Forsætisráðherra sakar áköfustu talsmenn ESB-aðildar um óheiðarleika: Davíð blæs til sókn ar í Evrópumálum - segir nýja könnun sýna að ESB-aðild yrði felld með meira en 80% Davíö Oddsson forsætisráðherra blés til sóknar í Evrópumálum á að- alfundi Samtaka atvinnulífsins í gær þegar hann kynnti óvænt nið- urstöður nýrrar skoðanakönnunar um viðhorf landsmanna til aðildar aö Evrópusambandinu. Félagsvís- indastofnun gerði könnunina að ósk forsætisráðuneytisins. Spurt var um viðhorf til aðildar með hliðsjón af ýmsum göllum sem henni fylgja og sagði Davíð þetta vera í fyrsta sinn sem slíkar spurn- ingar væru lagðar fyrir almenning í landinu. „Svörin við þessum spumingum komu mér mjög á óvart,“ sagði Dav- ið og sagði niðurstöðuna til marks um að sá stuðningur sem mælst hefði hjá þjóðinni við aðild að Evr- ópusambandinu hvíldi á „afar veik- um grunni, svo ekki sé nú meira sagt“. Mikil andstaöa Eins og sést á meðfylgjandi skífu- ritum reyndist mikill meirihluti að- spurðra vera „frekar“ eða „mjög“ andvígur aðild að ESB með hliðsjón af göllunum sem spurt var um í hvert sinn. Spurningarnar sem skífuritin vísa til voru svohljóðandi: „Aðild íslands að Evrópusam- bandinu myndi leiða til þess að ýmsar ákvarðanir um stjómun fisk- veiða á íslandsmiðum, þar á meðal ákvörðun um heildarafla, yrði í höndum Evrópusambandsins. Ert þú, í því ljósi, hlynnt(ur) eða and- víg(ur) aðild íslands að Evrópusam- bandinu?" „Ef þróun Evrópusambandsins stefndi í þá átt að völd stærri þjóöa í sambandinu myndu aukast á kostnað minni þjóða, værir þú þá hlynnt(ur) eða andvíg(ur) aðild ís- lands að Evrópusambandinu?“ „Ef beinar greiðslur íslendinga til Evrópusambandsins vegna aðildar yrðu margir milljarðar króna á ári, værir þú þá hlynnt(ur) eða and- víg(ur) aðild íslands að Evrópusam- bandinu?" Hlutfall þeirra sem sögðust „mjög andvígir" aðild i ljósi þessara ágalla var frá 47 til 55%. Ef þeim sem sögð- ust „frekar andvigir" er bætt við þann hóp hækkar hlutfallið i 79 til 87%. Hlutfall þeirra sem sögðust „mjög hlynntir" aðild var 1,4 til 3,6%. Athygli vekur að 7,1% sögðust „mjög hlynnt" því að evran yrði gerð að gjaldmiðli íslands, jafnvel þótt í spurningu um það efni væri bent á að það gæti leitt til meira at- vinnuleysis en ella. Stuðningsmenn evrunnar reyndust alls rúm 19% ef Blásið tll sóknar Davíö Oddsson dró hvergi af sér í gagnrýni á ESB-abild og áköfustu stuöningsmenn hennar í gær. þeim sem sögðust „frekar hlynntir" henni er bætt við þá sem tóku ein- dregna afstöðu með henni. Öfgafullir óheilindamenn Davíð sagði að þeir ágallar á aðild sem nefndir væru í spumingunum væru óumdeildir, „ef undan eru skilin sjónarmið fáeinna öfgafullra talsmanna Evrópusambandsaðild- ar“. Hann gagnrýndi þessa ónefndu talsmenn mjög harkalega; sagðist hlynntur mikilli og öflugri umræðu um málið en hún yrði að vera upp- lýst til þess að öfgafullir talsmenn aðildar kæmust ekki upp með að villa vísvitandi um fyrir fólki. „Þá verður ekki lengur hægt að tala gegn betri vitund og láta eins og hægt sé að semja sig frá öllum ókostunum," sagði Davíð og bætti Afstaða til aðildar að ESB með tilllti til sjávarútvegsstefnu: Afstaða til aðildar aö ESB með tilliti til kostnaöar: Afstaöa til aðildar að ESB með tillltl til aukinna valda stórþjóöa: 1.4% 8.1% 3.5% Mjög hlynnt(ur) Frekar hlynnt(ur) Hlutlaus Frekar andvíg(ur) Mjög andvíg(ur) við að það væri „bæði óheiðarlegt og villandi að gefa til kynna að hægt sé að semja sig frá þeim annmörk- um, þótt fyrir liggi að það sé óger- legt ef frá er talin tímabundin aðlög- un. Evrópusambandið sjálft hefur verið miklu ærlegra í þessum efn- um en áköfustu talsmenn aðildar hér á landi“. Um niðurstöðu könnunarinnar sagði Davíð hana benda til þess að það hefði verið varfærin ágiskun hjá sér á sínum tíma að samningur um aðild íslands að ESB - þar sem menn stæðu frammi fyrir því svart á hvítu að ekki væri hægt að semja sig frá óþægindunum - yrði felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu með 75 til 80% atkvæða. Ríkisábyrgð og ESB í máli Davíðs komu fram nýir út- reikningar á því hver yrði nettó- kostnaður íslendinga af ESB-aðOd eftir stækkun sambandsins. Sagði hann að kostnaðurinn yrði að lág- marki 10-12 milljarðar króna á ári. Lægri tölur væru byggðar á ósk- hyggju, ekki upplýsingum. Hann bar þessa tölu saman við umdeilda ríkisábyrgð á lánum deCODE og sagði að öll sú umdeilda ríkisábyrgð, sem vissulega væri mikil fjárhæð, væri sama fjárhæð og íslendingar myndu greiða fyrir að fá að vera í 18 mánuði í Evrópu- sambandinu - án þess að fá krónu á móti. „Á 7 ára ábyrgðartíma lánsins myndum við greiða um og yfir 80 milljarða - 80 milljarða - til ESB, umfram það sem við fengjum það- an, til að fá að hafa áhrif á þróun mála þar á bæ, eins og það er orðað. Það er ekki um ólíklega eða hugsan- lega 80 milljarða króna að ræða heldur er þetta fyrirliggjandi, þekkt stærð. Þetta eru allt mjög athyglis- verðar tölur, góðir fundarmenn," sagði Davíð að lokum. -ÓTG Skiptar skoðanir innan LÍÚ varðandi afstöðu til ESB: Auglýsi eftir öfga lausri umræðu - segir Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri ÚA Skoðanir virðast skiptar innan Landssambands íslenskra útvegs- manna varðandi viðhorf til Evr- ópusambandsins. Guðbrandur Sig- urðsson, forstjóri Útgerðarfélags Toyota Carína S/D, 03/96 ssk., rafdr. rúður, samlæsingar, krókur. Verð 690.000 - allt að 100% lán. Til sölu á JR Bílasölu, Bíldshöfða 3, sími 567-0333 Verð 690.000 * J. R. BÍLASALAN www.jrbilar.is Visa/Euro raðgreiðslur Akureyringa, var einn höfunda skýrslunnar um áhrif hnattvæðingar á efnahagslífið á íslandi og segist hann sannarlega skrifa undir að ýmsir kostir gætu fylgt aðild að ESB og upptöku evru fyrir íslendinga. Guðbrandur segist ekki vilja meta hvort þama kveði við nýj- an tón innan sjávarútvegs- geirans en aðspurður hvort hann telji jafnjákvæða afstöðu vera fyrir hendi hjá forystu LÍU segir hann að komið hafi greinilega fram í máli forystumanna LlÚ að þeir séu gegn aðild að ESB vegna þess að þeir telji ólíklegt að íslendingar fái að stjórna eigin fiskveiðum. „Hins vegar tel ég nauðsynlegt að meta kosti og galla aðildar til að menn geti tekið rökræna afstöðu til málsins. Ég er fyrst og fremst að skrifa upp á að menn séu vakandi fyrir mnræðunni og möguleikum framtíðarinnar. Ég vonast til að sjá öfgalausa umræðu um þessi mál- efni á næstu misserum," segir Guðbrandur. Skýrsluhöfundar nefna að háir vextir og óstöðugt géiigi séu fylgifískir sjálf- stæðrar efnahagsstefnu ís- íendinga og segir Guð,- brandur gengissveiflur slæmar fyrir atvinnuveg- inn. „Ef við horfum til áhuga erlendra fjárfesta á Guðbrandur fjárfestingum innanlands Sigurðsson. þá er mun hagkvæmara í augum þeirra að gjaldmið- illinn sé stöðugur en auðvitað er líka Ijóst að ef menn fórna krón- unni eiga menn sveiflur á hættu sem kalla á atvinnuleysi. Ef sterk- ur gjaldmiðill fer saman við litla fiskveiði og lélegt markaðsástand gætum við séð fram á fjöldaat- vinnuleysi og það vill enginn. Ef við erum með Islenska krónu dreg- ur hins vegar úr þessum sveifliun en við erum á köflum að borga dá- lítið mikið með innflutningum. Á móti gætum við einnig spurt okk- ur hvort það sé ekki hluti af inn- anlandspólitík hvaða vaxtastig ríkir í landinu," segir Guðbrand- ur. -BÞ Eimwm ?'-ýlílVU/.riJJ REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 22.14 21.59 Sólarupprás á morgun 04.33 04.18 Síðdegisflóð 16.38 23.11 Árdegisflóð á morgun 04.51 09.24 Suðvestan og síðar sunnan 8-13 metrar á sekúndu og smáskúrir á vestanverðu landinu en yfirleitt hægari og léttskýjað austan til. Fer að rigna vestanlands seint í kvöld. Hiti 6-13 stig að deginum, hlýjast austan til. Víöa rigning Þykknar upp austan til, hæg breytileg átt og víða rigning síðdegis en vestan til verður fremur hæg vestlæg átt og rigning eða slydda með köflum. Föstudagur Laugardagur Sunnudagur Hit» 4° Hiti 4° Hiti 7° m 8° til 8° til 12° Vindur 4-8n>/s Vindur; 4—6m/® Vindun Noröanátt og léttskýjaö sunnan- og vestanlands en smáskúrlr eöa slydduél austanlands. Noröanátt og léttskýjaö sunnarv og vestanlands en smáskúrir eöa slydduél austanlands. Hæg breytileg átt, bjartviöri og hlýnar heldur f dag. 4 4 4- Logn Andvari Kul Gola Stinningsgola Kaldi Stinningskaldi Allhvasst Hvassvlðil Stormur Rok Ofsaveöur Fárviðri m/s 0-0,2 0,3-1,5 1,6-3,3 3.4- 5,4 5.5- 7,9 8,0-10,7 10.8- 13,8 13.9- 17,1 17,2-20,7 20,8-24,4 24.5- 28,4 28.5- 32,6 >= 32,7 AKUREYRI alskýjaö 6 BERGSSTAÐIR alskýjaö 5 B0LUNGARVÍK úrkoma í grennd 4 EGILSSTAÐIR léttskýjaö 3 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 3 KEFLAVÍK úrkoma í grennd 5 RAUFARHÖFN léttskýjað 2 REYKJAVÍK þokumóöa 5 STÓRHÖFÐI alskýjaö 6 BERGEN skýjaö 8 HELSINKI léttskýjaö 13 KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 9 ÓSLÓ léttskýjaö 13 STOKKHÖLMUR 12 ÞÓRSHÖFN léttskýjað 9 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 8 ALGARVE léttskýjaö 11 AMSTERDAM þokuruöningur 10 BARCELONA rigning 13 BERLÍN þoka á síö. klst.10 CHICAG0 DUBLIN þoka 9 HALIFAX súld 9 FRANKFURT skýjaö 13 HAMB0RG súld á síð. klst. 9 JAN MAYEN skýjaö -2 L0ND0N mistur 8 LÚXEMBORG léttskýjað 11 MALLORCA rigning 15 MONTREAL alskýjað 7 NARSSARSSUAQ alskýjaö 1 NEW YORK ORLANDO PARÍS skýjaö 12 VÍN skýjaö 14 WASHINGTON WINNIPEG heiöskírt 5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.