Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Blaðsíða 18
18 _____________MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2002 Tilvera DV lí f iö Veisla í Þjóðleikhúsinu I kvöld sýnir Þjóðleikhúsið leik- gerð af Veislunni eftir Bo hr. Hanssen. Míeð aðal hlutverk fara Rúnar Freyr Gíslason, Arnar Jóns- son, Tinna Gunnlaugsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Elva Ósk Ólafs- dóttir, Erlingur Gíslason og Kjart- an Guðjónsson. Leikstjóri er Stef- án Baldursson en sýnt er á Smíða- verkstæðinu í kvöld kl. 20. Klubbar__________________________ ■ Teknókvöld á Oauknum Eftir mjög vel heppnað opnunarkvöld heldur El- ektroLux klúbburlnn áfram göngu sinni. Næsti gestur klúbbsins er ítalska teknó-bomb- an Misstress Barbara. Þótt hún sé þekkt sem grjótharður teknó-snúður segist hún eiga sér fleiri hliðar. Heima hjá sér hlustar hún t.d. mest á djass, bossanova og aðra suðurameriska tónlist. Við eigum s.s. von á góðu og unnendur góðrar danstóniistar geta ekki látið þá ítölsku fram hjá sér fara. Herleg- heitin fara fram í dag á Gauki á Stöng en það eru félagarnir Grétar G. og Bjössi brunahani sem hita upp. Krár_____________________________ ■ Léttir eprettir í Grafarvoginum Hljómsveitin Léttir sprettir verður með dans- leik á Champion's Café í kvöld og er óhætt að lofa góðri skemmtun við Guilinbrúna. ■ MIÐNES Á VÍDALÍN Það er heldur betur boðið upp á veislu á Vídalín í kvöld þegar eöalrokkbandið Miðnes sér um að halda uppi stemningunni. Staðurinn er opinn til 3 og má búast við góðu stuði. ■ Buttercup í Kópavogi Hin svakalega og kynþokkafulla sveit Butt- ercup verður með dansleik á Players í Kópa- vogi í kvöld. Gaman, gaman. ■ Ufandi tónlist á Kaffi Revkiavík Björgvln, Sigga, Grétar og öll hin verða með skemmtun á Kaffi Reykjavík í kvöld. Það verö- ur rosalegt. Klassík__________________________ ■ Fóstbraður í Langholtskirkiu Vortónlelkar Fóstbræðra verða haldnir i kvöld kl. 20 í Langholtskirkju. Fóstbræðrum til halds og trausts á vortónleikum að þessu sinni eru þrir frábærir listamenn. Fyrst skal fræga telja Sigrúnu Hjálmtýsdóttur sópransöngkonu, Diddú, sem varla þarf að kynna fýrir tónleika- gestum, svo rækilega hefur hún sungið sig inn að hjartarótum þjóðarinnar undanfarna áratugi. Steinunn Birna Ragnarsdóttir þíanóleikari er þjóöinni löngu kunn, en hún mun sjá um píanó- leik á tónleikunum. Þriðji tónlistarmaðurinn sem kemur nú til liðs við kórinn er slagverks- leikarinn Steef van Oosterhout sem slær á pák- ur í tveimur verkum. ■ TÓNLEIKAR j AKUREYRARKIRKJQ Kór Menntaskólans á Akureyri heldur tónleika I Akureyrarkirkju í kvöld klukkan 20. Á efnisskrá kórsins eru íslensk þjóö- og dægurlög. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson og aðgangseyrir er 1.000 krónur en ókeypis er fyrir skólafólk og börn. Bíó ■ ÞÝSK KVIKMVND j GÖCTHE-ZENTRUM Þýska kvikmyndin Im Jull verður sýnd í Gothe- Zentrum, Laugavegi 18, í kvöld klukkan 20.30. Myndin er í senn rómantísk gamanmynd og vegamynd. Hér segir frá sómakærum kennara sem eltir ókunnuga konu til Istanbúl en er sjálfur eltur þangað af konu sem er ástfangin af honum á laun. Á leiðinni lendir hann I fyrstu alvöruævintýrum lífs síns. Sýningar ________ ■ INNSETNINGÍGALLERÍNEMAHVAO Krlstín Helga Káradóttir, nemandi í Listaháskóla íslands, verður með innsetningu í Gallerí Nema Hvað, Skólavörðustíg 22c, í dag frá 17-21. Innsetningin samanstendur af vídeó- skjámynd, hljóði og texta. Hún verður endurtekin á morgun kl. 14-18. ■ HANDRITASÝNING í ÁRNAGARÐI Handritasýningln er enn opin í Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarðl við Suðurgötu. Opiö er frá 14-16 þriðjudaga til föstudaga fram til 15. maí en frá 1. júni kl. 11-16 daglega fram til 31. ágúst. s Bíógagnrýni Islandsmet í hópkeyrslu Sam-bíóin - Bubbie Boy ýý Ánægöur í sinni kúlu Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. DV-MYND G. ZEBITZ Hersingin á leiö vestur Miklubrautina Hópurinn náði frá göngubrúnni upp mestalla Ár- túnsbrekkuna. Bifhjólasamtök lýð- veldisins, Sniglar, halda alltaf 1. maí há- tíðlegan á þann hátt að aka í hópkeyrslu um bæinn og var dag- urinn í ár engin und- antekning. Að þessu sinni söfnuðust um 180 mótorhjól saman, sem er íslandsmet í hópakstri á mótor- hjólum. Að sögn Dag- rúnar Jónsdóttur, varaoddvita Snigla, er þessi hópkeyrsla farin til að minna ökumenn í umferð- inni á að mótorhjólin séu komin á götuna. „Við höfum einnig hafið auglýsingaher- ferð sem sjá má aftan á strætisvögnum og á síðum blaðanna til að minna á það sama,“ segir Dagrún. Á eftir var grillað í sólskini og blíðu við nýtt fé- lagsheimili Snigla í Skerjafirði þar sem olíustöð Shell var áður. Dagrún vildi einnig koma á fram- færi þökkum til um- ferðardeildar lögregl- unnar sem stjómaði hópkeyrslunni af myndarskap. -NG DV-MYND ÞORSTEINN G. KRISTJANSSON Létt og lipurt Áheyrendur sem komu og hlýddu á Léttsveitina voru sammála um ágæti sveitarinnar, hún er iétt og lipur og gleður eyrun. Maraþon hjá Léttsveitinni: Spiluðu í sex klukkutíma Léttsveit Tónlistarskóla Reykja- nesbæjar hélt maraþontónleika 1. maí á sal skólans til fjáröflunar en sveitin er á leiðinni til Spánar í tón- leikaferðalag og hefur söfnun áheita gengið vel og fyrirtækin á svæðinu tekið vel á móti unga listafólkinu, enda eru íbúar Reykjanesbæjar mjög stoltir af Léttsveitinni. Það er Karen Sturlaugsson, tón- listarkennari og aðstoðarskólastjóri, sem stjórnar sveitinni en hún hefur haft veg og vanda af Léttsveitinni sem hún stofnaði 1988. Nú er þriðja kynslóðin undir hennar stjóm að leika og er Karen sérstaklega ánægð með þann hóp en það em krakkar á mjög líkum aldri, eða frá 15 til 19 ára, og ná mjög vel saman. Léttsveitin hefur haft í nógu að snúast í vetur og komið fram við margvísleg tækifæri. Nú nýverið lék sveitin í Ráðhúsi Reykjavíkur i boði Stórsveitar Reykjavíkur og um hvítasunnuhelgina tekur Léttsveit- in svo þátt í árlegri djasshátíð í Vestmannaeyjum en til Spánar verður haldið 18. júní. Maraþontónleikarnir stóðu frá kl. 13-19 og spilaði Léttsveitin mjög fjölbreytta tónlist. Margir komu við og nutu tónleikanna og fengu sér í svanginn því boðið var upp á köku- hlaðborð sem var að sjálfsögðu einnig til að safna í ferðasjóðinn. -ÞGK Ekki er öll vitleysan eins, segir máltækið og þessi setning passar vel við Bubble Boy. Aðalpersóna myndarinnar er ungur maður sem lifir í plastkúlu. Að gera kvikmynd um mann i plastkúlu er vandmeð- farið, en annað eins hefur nú verið gert. Hér er fáránleikahugmyndin færð í farsastil og eins og oft hefur sannast þá er ófyndinn farsi eitt- hvert það leiðinlegasta afbrigði skemmtunar sem til er og slíkur farsi er Bubble Boy. Eiginlega geri ég mér ekki grein fyrir hvort nokkurn tímann hefði verið hægt að gera fyndna mynd úr efhiviðn- um. Það er helst ef Farrelly-bræður hefðu farið höndum um söguna að útkoman hefði kannski verið skemmti- legri en raunin er. Leik- stjórinn Blair Hayes, sem kemur úr auglýsinga- bransanum, hefur færst of mikið í fang og nær alls ekki að nýta sér þau fáu atriði sem gefa tilefni til góðs farsa. Aðalpersónan er Jimmy Livingston (Jake Gyllen- haal) sem fæðist án þess að vera með neitt ónæmis- kerfl. Hann er til fjögurra ára aldurs á sjúkrahúsi og Plastkúlan hreinsuð Jimmy (Jale Gyllenhaal) nýtur verndar móður sinnar (Swoosie Kurtz) sem meðal annars sér um að halda kúl- unni hreinni. i i/i/n i n I beinni í kvöld kl.19.00 Man. UTD - Arsenal og Liverpool - Blackbum fer síðan til sins heima þar sem móðir hans, trú- uð kona, tekur við stjóm- inni og elur hann upp samkvæmt sínu höfði. Jimmy fær sem skiljan- legt er enga tilsögn t neinu öðm en því sem móðir hans telur rétt og þar vantar mikið upp á fræðslu um mannleg sam- skipti. Það verður því mikill vandræðagangur á heimilinu þegar Jimmy flnnur fyrir ástarfiðringn- um. Það er nefnilega sæt stelpa, Chloe, í næsta húsi. Samskipti þeirra, þegar þau kynnast, eru eðlilega platónsk og þegar Chloe tilkynnir Jimmy að hún ætli að gifta sig við Niagara-fossana er honum öllum lokið. Hann er þó ekki á því að gef- ast upp og smíðar sér „ferðaplast- kúlu“ og fer i fyrsta sinn út fyrir dymar á heimili sínu ... Það er voðalega fátt sem hægt er að hrósa í Bubble Boy. Myndin er mjög yfirborðsleg þegar kemur að plastkúlustráknum og í eitt skiptið þegar mótorhjólatöffari spyr hvern- ig hann fari að að kúka í kúlunni þá er honum ekki einu sinni svarað, en það eru einmitt spumingar á þessa vegu sem koma upp hjá okkur sem erum að horfa á myndina. Það segir okkur aðeins eitt, farsinn er mis- heppnaður. Ef um vel heppnaðan farsa væri að ræða þá væm ekki slíkar hugsanir í gangi. Það má þó segja myndinni til hróss að hún er aldrei ósmekkleg á kostnað þeirra sem mega sín lítils. Bubble Boy er einfaldlega hlutlaus á alla kanta, hefur ekkert við sig sem hrífur. Leikstjóri: Blair Hayes. Handrit: Cinco Paul og Ken Daurio. Kvikmyndataka: Jerzy Zielinski. Tónlist: John Ottman. A5- alleikarar: Jake Gyllenhaal, Swoozie Kurtz, Marley Shelton og Danny Trejo.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.