Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.2002, Síða 1
* * * * * / * i i * / * * * * * Vélmenni var notað í viðbúnaðaraðgerðum lögreglu og sprengjusérfræðinga í gærkvöld þegar ferðataska var sprengd upp í Öskjuhlíð. IVIálið er í rannsókn en fatnaður reyndist vera í töskunni. Baksíða DV-myndir KO - ' ' ’ 11 gtmgm Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs: Verðbólga undir rauða strik- inu og samningar standa Vísitala neysluverðs í maí reyndist undir „rauða strikinu" sem verðlags- forsendur kjarasamninga eru miðaðar við. Hagstofan birti vísitöluna í morg- un; hún stendur í 221,8 stigum og lækkaði því um 0,04% frá fyrra mán- uði. Rauða strikið, sem Alþýðusam- band íslands og Samtök atvinnulífsins sömdu um í desember, var dregið við 222,5 stig. Þetta þýðir að verðlagsforsenda síð- ustu kjarasamninga telst hafa staðist. Launaliður samninganna er því ekki uppsegjanlegur eins og ella hefði orð- ið. „Þessi mæling er mikil og góð tíð- indi fyrir okkar fólk og aila lands- menn, því það er engin launung á því að verkalýðshreyfmgin hefur lagt mikið undir á siðustu mánuðum," segir Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ. „Tilefni þeirrar vegferðar sem við hófum með samkomulaginu frá í des- ember, var að forða kaupmáttarhruni. Það hefur tekist og nú er búið að tryggja aðstæður sem gefa færi á því að byggja ofan á. Það er ekkert tilefni til annars en ætla að næstu misseri verði tímabil lágrar verðbólgu og stöðugleika," segir Grétar. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir niðurstöðuna sýna að tiltrú samningsaðila á íslenskt efnahagslíf hafi verið á rökum reist. „Viðsemj- endur okkar, forysta ASÍ, hefúr sýnt lofsvert framtak í því að skapa al- mennan stuðning við þessi markmið, sem skipta höfuðmáli fyrir bæði fólk og fyrirtæki. Fjölmörg fyrirtæki hafa tekið á sig kostnað til að forða því að við festumst í verðbólgunarhugsunar- hætti og víxlhækkunum launa og verðlags. Með þessari niðurstöðu er það stað- fest að friður muni rikja á vinnu- markaði út næsta ár hið minnsta og að launabreytingar á almennum vinnumarkaði á síðari hluta samn- ingstímans geti orðið í takt við það sem gerist í viðskiptalöndum okkar. Þannig verður kaupmátturinn best festur í sessi,“ segir Ari Edwald. I frétt Hagstofunnar kemur fram að verð á nýjum bilum lækkaði um 2,3% frá fyrra mánuði og verð á mat og drykkjarvörum um 1,4%. Siðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,9%. Undanfama þrjá mánuði hef- ur hún hækkað um 0,4%, sem jafn- gildir 1,6% verðbólgu á ári. -ÓTG ■ NÁNARI UMFJÖLLUN Á BAKSÍÐU í DAG SPAIN FYRIR SÍMADEILDINA: f' FHspáð í fjórða • sætinu EINLEIKUR í HAFNAR- FJARÐARLEIKHÚSINU: Skáld leitar harms 14 ) u / ooo / C _D / Á ooo A / Aðeins eitt símtal! 8001111 • punktur>nn Íslandssími islandssimi.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.