Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Blaðsíða 11
11
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002
DV Útlönd
Arafat boðar kosningar í ávarpi í palestínska þjóðþinginu:
Sammála Ariel Sharon um
að uppstokkunar sé þörf
Colin Powell vill
verulega stækkun
REUTERSMYND
Sveittir ferðamenn í Aþenu
Heitt hefur verið í veðri í Aþenu, höfuðborg Grikklands, síðustu daga. Hitinn
fór í 26 gráður í gær og á eftir að hækka næstu daga. Ferðamenn hafa því
þurft aö skýla sér fyrir heitum sólargeislunum eftir mætti, eins og þessi
kona sem var á vappi á Akrópólishæð, með slæðu um höfuðið.
Colin Powell, utanríkisráöherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að
stjómvöld í Washington vildu all-
verulega stækkun NATO, eins og
hann orðaöi það á fundi í Reykjavík
með utanríkisráðherrum tíu landa
sem hafa óskað eftir inngöngu.
Reiknað er með að sjö ríkjum
verði boðin innganga í NATO á
fundi þess sem haldinn verður í
Prag í Tékklandi í haust.
„Hann sagði okkur að stækkunin
ætti að vera allveruleg, án þess þó
að segja hvað það þýddi í tölum,“
sagði austur-evrópskur stjómarer-
indreki við fréttamann Reuters á
NATO-fundinum. „En skilaboðin
voru skýr.“
ígor ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði á þriðjudag að
Rússar væra enn andvigir stækkun
NATO. Að öðra leyti fór vel á með
honum og ráðherrum NATO.
DVWYND ÞÖK
Colin Powell
Bandaríski utanríkisréðherrann ræddi
viö austur-evrópska kollega í gær.
Indverjar íhuga að svara
fyrir stórárásina í Kasmír
Æðstu embættismenn öryggis-
mála á Indlandi komu saman til
fundar í morgun til að ræða áform
um að svara fyrir mannskæða árás
í Kasmír á dögunum þar sem 34
féllu, aðallega eiginkonur og böm
hermanna. Indversk stjórnvöld hafa
kennt íslömskum harðlínumönnum,
með aðsetur í Pakistan, um árásina.
Innanríkisráðherra Indlands og
landvamaráðherra voru í forsæti
fundarins sem ber upp á sama tíma
og Bandaríkjamenn þrýsta mjög á
Indverja og Pakistana að reyna að
komast hjá allsherjarstríði. Löndin
ráða bæði yfir kjamorkuvopnum.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti hringdi í Atal Behari Vajpayee,
forsætisráðherra Indlands, í gær og
fordæmdi árásina á þriðjudag. Colin
Powell utanríkisráðherra hringdi
aftur á móti í Pervez Musharraf,
forseta Pakistans, til að reyna að
draga úr spennu milli landanna.
Spáð í trúlofun
Friðriks krónprins
Hávær orðrómur er um það í
Danmörku um þessar mundir að
Friðrik krónprins muni innan
skamms opinbera trúlofun sína með
þrítugri ástralskri stúlku, Mary
Donaldson. Dönsku blöðin birtu
mörg hver í morgun mynd af skötu-
hjúunum í jeppa prinsins og mun
það vera fyrsta myndin af þeim
saman á danskri grandu.
síml: 533 1334 fax: 5GB 0499
ísraelskar skriðdrekasveitir réðust
í morgun tO atlögu í tveimur hverfum
í bænum Ramallah á Vesturbakkan-
um, að eigin sögn til þess að hafa
hendur í hári meintra hryðjuverka-
manna. Að sögn palestínskra stjóm-
valda i Ramallah, var einn palestínsk-
ur öryggisvörður skotinn til bana í
innrásinni, auk þess sem að minnsta
kosti fjórir voru handteknir.
Þá bárust fréttir af innrás í þorpið
Tallousa í nágrenni Nablus og munu
ísraelskar hersveitir hafa gengið þar
hús úr húsi í leit að meintum hryðju-
verkamönnum. Að sögn sjónarvotta
munu að minnsta kosti tólf liðsmenn
palestínskra öfgasamtaka hafa verið
handteknir í þorpinu.
Að sögn talsmanna hersins verður
slíkum skyndiaðgerðum haldið áfram
á meðan minnsti grunur er á hugsan-
legum hryðjuverkum.
Ariel Sharon, sem varð undir í at-
kvæðagreiðu á miðstjómarfundi
Likud-bandalagsins um helgina, þar
sem meirihluti miðstjórnarinnar
greiddi atvæði gegn stofnun palest-
ínsks ríkis, sagði í sjónvarpsviðtali í
gær að hann væri nokkuð viss um að
stofnun Palestínuríkis yrði að veru-
leika. Hann sagði þó ekki rétta tím-
ann til að ræða það nánar og bætti við
að fyrst yrði ofbeldinu að linna og
gagnger uppstokkun að fara fram hjá
palestínskum stjómvöldum.
Sjálfur hefur Arafat, leiðtogi Paest-
ínumanna, viðurkennt að uppstokk-
unar sé þörf og lofað að boðað verði til
kosninga fyrr en seinna. Þetta kom
fram í ávarpi Arafats í palestínska
þinginu í Ramallah í gær, en þá
ávarpaði hann þingið í fyrsta skipti
síðan hann varð laus úr gíslingu ísra-
lesmanna.
Arafat sem verið hefur undir auk-
inni pressu bæði heimafyrir og er-
lendis sagði einnig að algjör aðskiln-
aður dóms- og framkvæmdavalds
væri í bígerð, en sagði að sú aðgerð
tæki tíma.
REUTERSMYND
David Duncan
Vitnar gegn gamla fyrirtækinu sínu,
Arthur Andersen, og fær vægari
dóm fyrir vikiö.
Höfuðvitni játaði
sekt sína vegna
ótta og þrýstings
David Duncan, höfuðvitni ákæru-
valdsins, í réttarhöldunum yfir end-
urskoðunarfyrirtækinu Arthur
Andersen vegna hindrana á fram-
gangi réttvísinnar, sagði fyrir rétti í
gær að þrýstingur, ótti við rann-
sókn og túlkun yfirvalda á lögum
hefðu valdið því að hann játaði á sig
glæp.
David Duncan var háttsettur inn-
an endurskoðunarfyrirtækisins sem
fór yfir reikninga orkusölufyrirtæk-
isins Enron sem varð gjaldþrota í
desember sl. Duncan var rekinn frá
Arthur Andersen eftir að upp komst
ólöglegt athæfl fyrirtækisins. Fyrir
vitnisburð sinn fær Duncan vægari
dóm en hann hefði ella fengið.
Arafat ávarpar þjóöþingiö
Arafat ávarpaði palestínska þjóðþingið í gær, í fyrsta skiþti síðan hann varð
laus úr fimm mánaöa gísiingu ísraelsmanna í Ramallah.