Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Síða 11
11 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 DV Útlönd Arafat boðar kosningar í ávarpi í palestínska þjóðþinginu: Sammála Ariel Sharon um að uppstokkunar sé þörf Colin Powell vill verulega stækkun REUTERSMYND Sveittir ferðamenn í Aþenu Heitt hefur verið í veðri í Aþenu, höfuðborg Grikklands, síðustu daga. Hitinn fór í 26 gráður í gær og á eftir að hækka næstu daga. Ferðamenn hafa því þurft aö skýla sér fyrir heitum sólargeislunum eftir mætti, eins og þessi kona sem var á vappi á Akrópólishæð, með slæðu um höfuðið. Colin Powell, utanríkisráöherra Bandaríkjanna, sagði í gær að stjómvöld í Washington vildu all- verulega stækkun NATO, eins og hann orðaöi það á fundi í Reykjavík með utanríkisráðherrum tíu landa sem hafa óskað eftir inngöngu. Reiknað er með að sjö ríkjum verði boðin innganga í NATO á fundi þess sem haldinn verður í Prag í Tékklandi í haust. „Hann sagði okkur að stækkunin ætti að vera allveruleg, án þess þó að segja hvað það þýddi í tölum,“ sagði austur-evrópskur stjómarer- indreki við fréttamann Reuters á NATO-fundinum. „En skilaboðin voru skýr.“ ígor ívanov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði á þriðjudag að Rússar væra enn andvigir stækkun NATO. Að öðra leyti fór vel á með honum og ráðherrum NATO. DVWYND ÞÖK Colin Powell Bandaríski utanríkisréðherrann ræddi viö austur-evrópska kollega í gær. Indverjar íhuga að svara fyrir stórárásina í Kasmír Æðstu embættismenn öryggis- mála á Indlandi komu saman til fundar í morgun til að ræða áform um að svara fyrir mannskæða árás í Kasmír á dögunum þar sem 34 féllu, aðallega eiginkonur og böm hermanna. Indversk stjórnvöld hafa kennt íslömskum harðlínumönnum, með aðsetur í Pakistan, um árásina. Innanríkisráðherra Indlands og landvamaráðherra voru í forsæti fundarins sem ber upp á sama tíma og Bandaríkjamenn þrýsta mjög á Indverja og Pakistana að reyna að komast hjá allsherjarstríði. Löndin ráða bæði yfir kjamorkuvopnum. George W. Bush Bandaríkjafor- seti hringdi í Atal Behari Vajpayee, forsætisráðherra Indlands, í gær og fordæmdi árásina á þriðjudag. Colin Powell utanríkisráðherra hringdi aftur á móti í Pervez Musharraf, forseta Pakistans, til að reyna að draga úr spennu milli landanna. Spáð í trúlofun Friðriks krónprins Hávær orðrómur er um það í Danmörku um þessar mundir að Friðrik krónprins muni innan skamms opinbera trúlofun sína með þrítugri ástralskri stúlku, Mary Donaldson. Dönsku blöðin birtu mörg hver í morgun mynd af skötu- hjúunum í jeppa prinsins og mun það vera fyrsta myndin af þeim saman á danskri grandu. síml: 533 1334 fax: 5GB 0499 ísraelskar skriðdrekasveitir réðust í morgun tO atlögu í tveimur hverfum í bænum Ramallah á Vesturbakkan- um, að eigin sögn til þess að hafa hendur í hári meintra hryðjuverka- manna. Að sögn palestínskra stjóm- valda i Ramallah, var einn palestínsk- ur öryggisvörður skotinn til bana í innrásinni, auk þess sem að minnsta kosti fjórir voru handteknir. Þá bárust fréttir af innrás í þorpið Tallousa í nágrenni Nablus og munu ísraelskar hersveitir hafa gengið þar hús úr húsi í leit að meintum hryðju- verkamönnum. Að sögn sjónarvotta munu að minnsta kosti tólf liðsmenn palestínskra öfgasamtaka hafa verið handteknir í þorpinu. Að sögn talsmanna hersins verður slíkum skyndiaðgerðum haldið áfram á meðan minnsti grunur er á hugsan- legum hryðjuverkum. Ariel Sharon, sem varð undir í at- kvæðagreiðu á miðstjómarfundi Likud-bandalagsins um helgina, þar sem meirihluti miðstjórnarinnar greiddi atvæði gegn stofnun palest- ínsks ríkis, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að hann væri nokkuð viss um að stofnun Palestínuríkis yrði að veru- leika. Hann sagði þó ekki rétta tím- ann til að ræða það nánar og bætti við að fyrst yrði ofbeldinu að linna og gagnger uppstokkun að fara fram hjá palestínskum stjómvöldum. Sjálfur hefur Arafat, leiðtogi Paest- ínumanna, viðurkennt að uppstokk- unar sé þörf og lofað að boðað verði til kosninga fyrr en seinna. Þetta kom fram í ávarpi Arafats í palestínska þinginu í Ramallah í gær, en þá ávarpaði hann þingið í fyrsta skipti síðan hann varð laus úr gíslingu ísra- lesmanna. Arafat sem verið hefur undir auk- inni pressu bæði heimafyrir og er- lendis sagði einnig að algjör aðskiln- aður dóms- og framkvæmdavalds væri í bígerð, en sagði að sú aðgerð tæki tíma. REUTERSMYND David Duncan Vitnar gegn gamla fyrirtækinu sínu, Arthur Andersen, og fær vægari dóm fyrir vikiö. Höfuðvitni játaði sekt sína vegna ótta og þrýstings David Duncan, höfuðvitni ákæru- valdsins, í réttarhöldunum yfir end- urskoðunarfyrirtækinu Arthur Andersen vegna hindrana á fram- gangi réttvísinnar, sagði fyrir rétti í gær að þrýstingur, ótti við rann- sókn og túlkun yfirvalda á lögum hefðu valdið því að hann játaði á sig glæp. David Duncan var háttsettur inn- an endurskoðunarfyrirtækisins sem fór yfir reikninga orkusölufyrirtæk- isins Enron sem varð gjaldþrota í desember sl. Duncan var rekinn frá Arthur Andersen eftir að upp komst ólöglegt athæfl fyrirtækisins. Fyrir vitnisburð sinn fær Duncan vægari dóm en hann hefði ella fengið. Arafat ávarpar þjóöþingiö Arafat ávarpaði palestínska þjóðþingið í gær, í fyrsta skiþti síðan hann varð laus úr fimm mánaöa gísiingu ísraelsmanna í Ramallah.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.