Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Side 26
26 Rafpostur: dvsport@dv.is - keppni í hverju orði FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2002 New Jersey í úrslit Austurdeildar New Jersey Nets sigraði í nótt Charlotte Hornets, 103-95, í fhnmta leik liðanna í einvíginu um sæti í úrslitakeppni austurdeildar NBA og þar með 4-1 sigur í heildina. Jason Kidd var stigahæstur í liði Nets meö 23 stig og átti 13 stoð- sendingar og 7 fráköst. Van Horn var næstur með 18 stig. Hjá Hornets voru þeir Magloire og Nailon stiga- hæstir með 14 stig hvor, auk þess sem Magloire tók 10 fráköst. Peja ekki með í fyrstu tveimur leikjunum Peja Stojakovic, framherji Sacra- mento Kings, mun að minnsta kosti missa af tveimur fyrstu leikjum úrslitaeinvígisins í vesturdeildinni gegn LA Lakers. Stojakovic er meiddur á ökkla og meiddist í þriðja leiknum gegn Dallas en Sacramento vann einvígið 4-1. -EK/ósk/ÓÓJ Kvennalandslið- ið í handbolta: Jenný og Árný með í fyrsta sinn Stefán Arnarson, landsliðs- þjálfari kvenna í handknattleik, tilkynnti í gær landsliðshóp sinn fyrir alþjóðlegt mót á Kanaríeyj- um í næstu viku en fyrir mótið hefur hann valið fimmtán leik- menn. Flestir leikmenn koma frá Haukum eða fjórir en þaðan kemur einnig annar tveggja ný- liðanna í liðinu, Jenný Ás- mundsdóttir markvörður. Auk Jennýjar fær Árný ísberg úr Val einnig þama sitt fyrsta tækifæri með landsliðinu. íslenska liðið mætir Spáni, Svíþjóð og Portúgal á mótinu og leikur auk þess æfingaleik við Svía og annan gegn BM Ro’Casa sem er félagslið á Kanaríeyjum. Hópurinn er þannig skipaður en landsleikjaíjöldi er innan sviga: Markverðir: Helga Torfadóttir, Vík- ingi (40) og Jenný Ásmundsdóttir, Haukum (0). Aðrir leikmenn: Ágústa Bjömsdótt- ir, Gróttu/KR (14), Helga Bima Brynjólfsdóttir, Víkingi (4), Kristín Guðmundsdóttir, Virum (9), Hafdís Hinriksdóttir, FH (4), Hafrún Krist- jánsdóttir, Val (4), Harpa Melsted, Haukum (24), Dagný Skúladóttir, ÍBV (16), Drifa Skúladóttir, Val (7), Hrafn- hildur Skúladóttir, Val (33), Hanna Stefánsdóttir, Haukum (7), Inga Fríða Tryggvadóttir, Haukum (36), Heiða Valgeirsdóttir, Gróttu/KR (4) og Árný ísberg, Val (0). Koma vel út í mælingum á þoli og styrk Við sama tilefni og Stefán Amarson tilkynnti landsliðshóp kvenna greindi hann, ásamt að- stoðarþjálfara sínum, Erni Ólafs- syni, frá niðurstöðum rann- sókna þeirra á likamlegu þoli, styrk og sprengikrafti íslensku landsliðsstelpnanna i samaburði við stallsystur þeirra í Noregi. Fyrstu niðurstöður sýna að ís- lensku stelpumar standi jafnfæt- is norsku stelpunum en ætlunin er að prófa íslensku landsliðs- konurnar þrisvar á ári næstu þrjú árin og fylgjast náið með þróuninni hjá hverjum leik- manni. -ÓÓJ Fyrirliðar liöanna í úrvalsdeild kvenna, frá vinstri: Rósa Júlía Steinþórsdóttir, Val, Sigríður Ása Friöriksdóttir, ÍBV, Margrét Pétursdóttir, Grindavík, Póra Pétursdótt- ir, Pór/KA/KS, Heiða Sigurbergsdóttir, Stjörnunni, Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki, Silja Þórðardóttir, FH, og Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, KR. DV-mynd E.ÓI. KR-konur í sérílokki í spá fyrir Úrvalsdeild kvenna: Verður ekki auðvelt - segir Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálfari KR, um sumarið Þjálfarar, fyrirliðar og forráða- menn hittust í gær á árlegum kynn- ingarfundi Úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu og spáðu þar í spilin fyrir komandi sumar. Það kemur sennOega fáum á óvart að KR-stúlkum er spáð titlin- um í ár með nokkrum yfírburðum. Þær hafa styrkst mjög frá því fyrra og fengið systumar Þóru og Ást- hildi Helgadætur til liðs við sig. Að auki hefur Vanda Sigurgeirsdóttir tekið við liðinu á ný en síðast þegar hún var í vesturbænum, árið 1999, vann liðið bæði íslands- og bikar- meistaratitOinn. KR-ingar unnu Val, sem spáð er öðru sætinu, auðveldlega í úrslitum deOdabikarsins, 4-0, fyrir skömmu og undirstrikuðu með því styrk sinn. Veröur ekki auðvelt Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálfari KR, sagði að það skipti engu máli hvemig spáð væri. „Við þurfum að vinna okkar vinnu úti á veOinum og þetta verð- ur ekki auðvelt. Það era mörg lið sem ætla sér titOinn og við verðum að hafa fyrir hverjum einasta leik,“ sagði Vanda. Vanda sagði jafnframt að þessi spá setti ekki meiri pressu á sínar stelpur. „Ég trúi því að stelpumar setji það mikla pressu á sig að þessi spá breyti engu um það. Ég trúi að pressa sem myndast innan liðsins sé best,“ sagði Vanda Sigurgeirs- Spáin hjá stelpunum 1. KR.....................186 stig 2. Valur.......................154 3. Breiðablik .................151 4. ÍBV ........................117 5. Stjarnan....................104 6. FH...........................71 7. Þór/KA/KS ...................45 8. Grindavík ...................36 Spána gerðu fyrirliðar, þjálfarar og forráðamenn knattspyrnudeiida fé- laganna. dóttir, þjálfari KR. Þurfum aö ná stöðugleika Helena Ólafsdóttir, þjálfari Vals, sem hefur aldrei áður þjálfað í efstu deOd kvenna, sagði að henni kæmi ekki á óvart að KR væri spáð titlin- um. „Fyrir fram er KR með sterkasta liðið. Ég lék lengi í vesturbænum og veit hvað býr í því liði. Við erum hins vegar með ungt og efnOegt lið og okkar markmið er að ná fram stöðugleika í liðinu. Liðið hefur ver- ið mjög óstöðugt í leik sinum í vor og það verður okkar meginverkefni. Ef við náum því þá getur aOt gerst,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þjálfari Vals, við DV-Sport í gær. -ósk Breytingar fram undan hjá íslendingaliðinu Stoke: Guöjón ekki endurráðinn - stjórn Stoke leitar að nýjum manni í brúna Stjórn Stoke ákvað á fundi í gærkvöld að endurráða Guðjón Þórðarson ekki sem knatt- spyrnustjóra Stoke þrátt fyrir að hann hafi komið liðinu upp í l. deOd um síð- ustu helgi. í opinberri yfirlýsingu frá stjóm- inni, sem birtist á opin- heimasíðu Stoke í gærkvöld, segir Gunnar Gíslason, stjómarformaður félags- ins, að þrátt fyrir að stjómin sé meðvituð um framlag Guðjóns tO þess að Stoke komst upp í 1. deOd þá telji hún að það þjóni langtíma- hagsmunum félagsins betur að nýr knattspymustjóri verði ráð- inn tO starfa. Vinnusambandið á mOli stjórnarinnar og knatt- spyrnustjórans er óviðunandi. Knattspymustjórinn hefur ekki aOtaf verið sáttur við þann íjár- hagslega ramma sem hann hefur þurft að vinna eftir og það er skoðun stjómarinnar að það breytist ekki, sérstaklega í ljósi óvissunar um tekjur af sjón- varpsrétti í framtíðinni." „Stjómin vO nota tækifærið tO að þakka Guðjóni fyrir að hafa fært fjárfestana saman og komið þessari hugmynd af stað og fram- lag hans tO Stoke. Stjómin óskar honum velfamaðar í framtíð- inni.“ Jafnframt segir stjómin að hún sé að gera lista yfir hugsanlega eftirmenn Guðjóns og muni reyna að vinna hann sem fyrst. Gunnar Gíslason, stjómarfor- maður Stoke, sagði i samtali við DV-Sport í gærkvöld að hann hefði engu að bæta við yfírlýsing- una. „Hún segir aUt sem segja þarf,“ sagði Gunnar. Ekki náðist i Guðjón Þórðarson í gærkvöld þrátt fyrri ítrekaðar tilraunir. -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.