Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.2002, Qupperneq 32
0» ijJii ÁrídJj'já £1 JjJdjjJ] Ríkið áhugalaust um kaup á Hrauni í Öxnadal: Óðal Jónasar til sölu á 12-17 milljónir króna Hraun í Öxnadal hefur verið tU sölu í nokkur misseri án þess að kaupandi hafi fengist. Landeigend- ur buðu nýverið sveitarfélaginu Hörgárbyggð jörðina tU kaups en fram tU þess tíma höfðu þeir lagt höfuðáherslu á að ríkiö keypti jörð- ina. Sveitarstjórn Hörgárbyggðar kom saman í gærkvöld tU að ræða málið en hafnaði kaupunum. Oddur Gunnarsson, oddviti Hörgárbyggð- ar, segir að hreppurinn hafi varla bolmagn tU að kaupa en sveitar- stjóm hafi hins vegar lagt tU að eig- endur sendu erindi tU Héraðsnefnd- ar Eyjafjarðar og fleiri aðUa sem gætu sinnt erindinu sameiginlega. HaUur Jónasson, einn landeig- enda, segir að jörðin hafi ekki verið auglýst opinberlega tU sölu vegna þeirrar hugsjónar eigenda að al- menningur geti sótt Hraun heim sem safn og menningarsetur í fram- tíðinni. Hann segir söluverð ekki fastmótað en talað hafi verið um 12-17 miUjónir fyrir jörðina. HaUur telur heppUegast að ríkið kaupi en reksturinn verði í höndum heima- manna. Bjami Guðleifsson náttúrufræð- ingur er sammála HaUi um að æski- legast væri ef ríkið keypti Hraun. Bjami telur brýnt aö koma upp menningarsetri tU að heiðra Jónas HáUgrímsson þjóðskáld, bæði vegna skrifta hans og náttúruvísinda skáldsins. HaUur hefur talað við ýmsa ráðherra vegna málsins en lýsir vonbrigðum með undirtektim- ar. „Ég hef fengið geysUega jákvæð viðbrögð hjá almenningi en afskap- lega dauf viðbrögð frá ráðamönn- um. Það væri skelfUegt ef einhver einstakiingur myndi kaupa Hraun og misnota þessa jörð,“ segir Bjami. Helgarveðrið: Léttskýjuð hvítasunna Næsta sólarhringinn spáir Veðurstofan fremur hægri austlægri eða breyti- legri átt og víða léttskýjuðu veðri á landinu. Skýjaö verður að mestu við austurströndina í dag. Litið eitt hvassari átt af austri viö suður- ströndina á morgun og skýjað með köflum. Hlýnandi veður og hiti 6 tU 16 stig á morgun og hæst stígur hit- inn í innsveitum norðan heiða. Þeg- ar litið er svo tU veðurspár helgar- innar er gert ráð fyrir fremur hægri austlægri átt og víða bjartviðri á laugardag og sunnudag og nokkuð hlýju veðri. Heldur mun svo kólna eftir helgina og þá fer jafnframt að rigna. -sbs STYRKJUM SYGGÐIRNAR! Hann telur að um eitthvert álitleg- asta útivistarsvæðið við Eyjafjörð sé að ræða. Þá séu miklir möguleik- ar fólgnir í því fyrir erlenda ferða- menn að nú hafi Jónas verið þýdd- ur mestaUur á enska tungu. Bjami segir auðvelt að bera sam- an Hraun í Öxnadal og Gljúfrastein í MosfeUsbæ en eins og kunnugt er eignaðist ríkið hús nóbelsskáldsins fyrir skömmu. Þá töldu ýmsir að sögulegt slys væri í uppsiglingu þeg- ar erlendur auðkýfmgur bauð í Val- höU en Jónas er einmitt jarðsettur í þjóðargrafreitnum á ÞingvöUum. Á náttúruvemdarþingi árið 2000 var samþykkt að skora á umhverfis- ráðherra að gangast fyrir friðlýs- ingu á Hrauni en síðan hefur ekkert þokast. Þrjú ráðuneyti hafa með málið að gera eftir því sem DV kemst næst. Þetta eru menntamála- ráðuneytið, umhverfisráðuneytið og landbúnaðarráðuneytið. DV reyndi að ná tali af Tómasi Inga Olrich menntamálaráðherra en án árangurs. -BÞ DV-MYND HILMAR ÞÓR ’ Slade komnir! Fjórmenningarnir i Slade eru komnir til landsins og halda tónleika á Broadway i kvöld. Þeir hafa engu gleymt þótt liðin ( séu þrjátíu ár frá því þeir slógu í gegn og tuttugu síðan þeir létu síðast að sér kveða á vinsaeldalistum. Sjálfsagt veröa á tónleikunum margir þeirra sem sáu Slade þegar þeir komu síðast til landsins fyrir aldarfjórðungi. Þeir sem fæddust um þaö leyti ólust svo upp við ógleymanlega slagara á borð við „Run Runaway“ og „My Oh My.“ Deilt um launamál hjá Byggðastofnun á síðasta ári: Stjórnarformaður fékk 38% launahækkun - og aukaþóknun vegna álags við flutning stofnunarinnar Þrátt fyrir að ekki hafi reynst imnt að leysa deUur um kjaramál forstjóra Byggðastofnunar á síðasta ári þá tókst samkvæmt heimUd- um DV farsæUega að bæta kjör stjómar- formanns og ann- arra stjórnarmanna stofnunarinnar um Theodór Agnar Bjarnason. Kristinn H. Gunnarsson. 38%. Formaður er með tvöföld laun óbreytts stjómarmanns og eftir launa- hækkun fær hann 138.000 krónur á mánuði, eða 1.656.000 krónur á ári. Auk þess fékk stjómarformaöur sér- staka þóknun vegna álags við flutning á stofnuninni tU Sauðárkróks á síð- asta ári. Harðar deUur yfirmanna Byggða- stofnunar hafa verið mjög i sviösljós- inu síðustu daga og hefur Kristinn H. Gunnarsson nefnt það sem hluta af ágreiningi hans við Theodór Arnar Bjarnason forstjóra vera deUur við þann síðarnefnda um launakjör. Þar er m.a. átt við kaup stofnunarinnar á húsi fyrir forstjórann á Sauðárkróki og 5% þátttökuhlutdeUd hans í kaup- unum sem stofnunin hafi innt af hendi. Vitnað er tU afskipta viðskiptaráðherra af málinu og athuga- semda Rikisendur- skoðunar. Bendir Kristinn á að for- stjórinn hafi verið áminntur um að halda aðskUdum eig- in fjárhag og fjárhag stofnunarinnar. Þessu hefur forstjór- inn mótmælt á þeim forsendum að gengið hafi verið frá því að fyrirhug- uð launaleiðrétting gengi upp í 5% hlut hans í húsakaupunum, auk þess sem hann ætti inni óuppgeröa kostn- aðarreikninga. Stjórnarformaðurinn hafi átt að ganga í að leysa þau mál en ekki gert. Athyglisvert er í þessu sambandi að skoða launakjör stjórnarmanna stofnunarinnar á sama tíma og for- stjórinn segist ekki fá það sem honum ber. Samkvæmt heimUdum sem DV telur áreiðanlegar nema laun stjóm- arformanns Byggðastofhunar nú 138.000 krónum á mánuði. Er það eft- ir að gengið var frá launahækkun á síðasta ári upp á 38%. Miðast launa- kjör við laun bankaráðsmanna í Landsbanka íslands. Laun stjómar- formanns eru tvöfóld laun óbreytts stjómarmanns sem fær þá 69 þúsund krónur á mánuði. Þó stjómarsetu í Byggðastofnun fylgi eflaust töluverð vinna, þá em stjómarfundir hins vegar ekki mjög tíðir. Sem dæmi um fundahöld síð- ustu sex mánuðina að maí meðtöldum þá var haldinn einn stjómarfundur 21. desember 2001. Næsti fundur var haldinn 22. febrúar á þessu ári. Þá var stjómarfundur 12. apríl sl. og síðan 7. maí. Sem sagt fjórir fundir á sex mán- uðum sem stjómarformaður fær 828 þúsund krónur í laun fyrir að sitja auk vinnu milli funda. Aðrir stjórnar- menn fá 414 þúsund hver fyrir sama hiut. Vegna meints álags sem tengt er flutningi stofnunarinnar til Sauðár- króks fékk Kristinn H. Gunnarsson einnig greidda sérstaka þóknun, sam- þykkta af iðnaðar- og viðskiptaráð- herra á síðasta ári. Nam sú greiðsla samtals 344.000 krónum og tekur reyndar til fyrstu sex mánaða síðasta árs. -HKr. Skoðanakönnun DV: Gott veganesti „Þetta er mjög gott veganesti fýrir okkur i lokaviku kosningabaráttunn- ar og sýnir að málstaður okkar og já- kvæð kosningabarátta hafa fengið hljómgrunn meðal Reykvíkinga. Við munum halda áfram að hitta seml flesta kjósendur og kynna stefnuskrá okkar, allt fram á kjördag þann 25. maí næstkomandi," sagði Björn { Bjamason, oddviti D-listans, um nið- urstöður skoðanakönnunar DV sem gerð var í gærkvöld og sýnir að mun-1 ur á milli D-lista og R-list er ekki leng-1 ur marktækur. „Þessi munur er of lítill fyrir minn, smekk. Nú verður allt okkar fólk að j einhenda sér í baráttuna til að koma í veg fyrir að borgarbúar vakni upp 26. maí við að Sjálfstæðisflokkurinn fari j með landstjómina og stjómi borginni, stærstu fjölmiðlunum og stærstu fyr- irtækjum landsins. Það væri óholltl fyrir lýðræðið í landinu," sagði Ingi-' björg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og oddviti R-listans. „Við höfum flmdið fyrir stöðugri| fylgisaukningu og nú vantar aðeins dálítinn herslumun til að ná inn, manni og komast í oddaaðstööu. Það væri fengur fyrir Reykvíkinga aö fá óspiUt afl í borgarstjóm sem gæti veitt stóru fylkingunum tveimur I nauðsynlegt aðhald. Ég hvet Reykvik- ’ inga eindregið til að nýta þetta tæki- færi,“ sagði Ólafur F. Magnússon, I oddviti F-listans, um niðurstöðurl könnunarinnar. Sjá bls. 2 -aþ/HI/hlh ( Pólitíkusar á Akureyri neituðu að fara til Reykjavíkur í Kastljósþátt: Mótmæli skiluðu árangri Mótmæli tveggja oddvita stjóm- málaflokka á Akureyri hafa orðið til þess að allar líkur eru á að Sjónvarp- ið muni hætta við að taka upp Kast- ljósþátt í Reykjavík en komi þess í stað norður og taki upp þáttinn þar. Bjarni Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Sjónvarps, sagði í samtali við DV í morgun að enn ætti eftir að kanna ákveðna praktíska þætti slíkr- ar tilhögunar en mjög líklega yrði af þessu. Ákvörðunin væri ekki bara tekin vegna mótmælanna heldur væri Sjónvarpið með þessu að sýna í verki að Akureyri væri mótvægi höfuðborg- arsvæðisins. Sjónvarpið hafði áður boðaö leið- toga stjómmálaaflanna fimm á Akur- eyri tfl Reykjavíkur fimmtudaginn 23. maí nk. en frambjóðendunum þótti það slæm tímasetning til ferðalaga svo skömmu fyrir kosningar. Oddur Helgi Halldórsson, bæjarfulltrúi á Ak- ureyri og efsti maður L-listans, ritaði þáttastjómendum bréf þar sem hann afþakkaði boðið og Kristján Þór Júlí- usson, bæjarstjóri og oddviti sjálf- stæðismanna, ákvað einnig að mæta ekki. í yfirlýsingu sem Oddur Helgi óskaði eftir að lesin yrði upp í þættin- um kemur fram að honum finnist óá- sættanlegt að sjónvarp allra lands- manna skuli ætlast til að akureyrskir frambjóðendur komi tfl Reykjavíkur á lokaspretti kosningabaráttunnar. Sárt sé aö trúa því að þjónusta sjónvarps- ins við Akureyringa sé ekki betri en svo en hins vegar bjóði hann Kastljós- fólkið velkomið norður og muni taka vel á móti því. Vel sé gerlegt að taka upp þáttinn þar. Þegar DV bar Oddi Helga þau tíð- indi í morgun að aOar líkur væm á að Sjónvarpið kæmi norður sagðist hann fagna því mjög. Með slíkri ákvörðun sýndi stofnunin að hún væri sjónvarp allra landsmanna. -BÞ FRETTASKOTIÐ SÍMIIM SEM ALDREI SEEUR I Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, I hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert I fréttaskot, sem birtist eöa er notaö f DV, I greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö 1 í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar I er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan I sólarhringinn. 550 5555

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.