Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Page 1
DAGBLAÐIÐ VISIR 111. TBL. - 92. ARG. - FOSTUDAGUR 17. MAI 2002 VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK Mættur fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaöur, er hér mættur fyrir Héraösdómi Reykjavíkur í morgun þar sem hann geröi grein fyrir tæplega 30 ákæruatriöum á hendur sér. Árni var mjög yfirvegaöur í réttinum, ýmist játaöi eöa neitaöi sakargiftum. Nánar á baksíöu. m FÓKUS - AFM/ÉLISGJÖF HANDA FORSETANUM Viðbúnaður á Austfjörðum í stóru sakamáli tengdu símhlerunum á Ibiza 1998: Sátu fyrir skútu með hundruð kg af hassi Fíkniefnalögreglumenn úr Reykjavík komu sér fyrir á ýmsum stöðum við strandlengju Austfjarða þegar von var á 'skútu að næturlagi sem víst var talið að flytti hundruð kílóa af hassi til landsins seinni hluta sumars árið 1998. Fylgst hafði verið með skútunni sem lagði af stað frá spænsku eyjunni Ibiza og íslendingum sem þangað fóru og höfðu frumkvæði að siglingunni, samkvæmt símhlerunum. Skútunni var siglt áleiðis til íslands en á móts við norðanverðar Bret- landseyjar veiktist skipstjórinn, að því er fram kom í hlerunum ís- lensku lögreglunnar. Talið var að skútan hefði farið með skipstjór- ann í land í Skotlandi en nákvæm- ur komustaður skútunnar var ekki kunnur. Breskum yfirvöldum var því ekki gert viðvart. Erlendir eigendur hassins eru taldir hafa ætlað sér að markaðssetja það hér á landi en ekki er talið útilokað að það hafi farið í land á Bret- landseyjum vegna veikinda skip- stjórans. Þessar upplýsingar komu m.a. fram fyrir dómi í gær þegar réttað var í svokölluðu hurðamáli þar sem ákært er fyrir tilraun til að flytja 32 kíló af hassi í hurð sem senda átti frá Barcelona um meg- inland Evrópu til íslands haustið 1999. Þrir sakbomingar þar tengd- ust skútumálinu, ekki síst höfuð- paurinn. Sækjandinn í hurðamál- inu spilaði í gær símaupptöku þar sem maðurinn segist hafa verið búinn að komast í samband við mann sem „sé svo stór“ að Clinton væri „bara smákarl". Fíkniefna- lögreglan hleraði sima hans i rúmt ár. -Ótt ■ NÁNARI UMFJÖLLUN Á BLS. 4 Gísli Marteinn hefur komið mest á óvart Kjósendum í Reykjavik þykir Gísli Marteinn Baldursson, frambjóöandi D-listans, hafa komið þægilegast á óvart í kosningabaráttunni samkvæmt skoðanakönnun DV. Dagur B. Eggertsson er sá frambjóðenda utan borgarstjóraefnanna sem nefndur var næstoftast í könn- un DV. -hlh ■ NÁNARI UMFJÖLLUN Á BLS. 6 SPÁ DV-SPORTS UM ÚRSLIT í ÚRVALSDEILDINNI: Grindavík spáð meist- aratitli 28-29 VIÐBRÖGÐ VIÐ SKÝRSLU CIA UM FLUGRÁN: Cheney varar við alvarlegri hryðjuverkum n Aðeins eitt sfmtal! 8001111 punktuNnn Íslandssími islandssimi.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.