Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Blaðsíða 6
6 Fréttir FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 DV Þessir frambjóðendur hafa komið kjósendum í Reykjavík þœgiiegast á óvart 30% 25% 20% 15% 10% 5% 0% Gísll Martelnn Dagur B. Stefán Jón Guðrún Ebba Ólafur F. Inga Jóna Helgl Guðlaugur Hanna Blrna Steinun Valdís Baldursson Eggertsson Hafstein Ólafsdóttir Magnússon Þórðardóttir Hjörvar Þ. Þórðarson Kristjánsdóttir Óskarsdóttir DV kannar hvaða frambjóðandi utan borgarstjóraefna hefur komið mest á óvart: Gísli Marteinn hefur komið langmest á óvart - Dagur B. Eggertsson nefndur næstoftast „Þetta er mjög ánægjulegt og ég er mjög þakklátur. Ef þetta verður til þess að hjálpa D-listanum að sigra í kosningunum eftir rúma viku er til- ganginum náð af minni hálfu,“ sagði Gísli Marteinn Baldursson, D-lista, í samtali við DV. Hann er sá frambjóð- andi tO borgarstjórnar, utan borgar- stjóraefnanna, sem hefur komið kjós- endum í Reykjavík þægilegast á óvart samkvæmt skoðanakönnun DV sem gerð var á miðvikudags- kvöld. Gísli Marteinn ber höfuð og herðar yfir aðra „fótgönguliða" framboðslistanna í Reykjavík þar sem 31 prósent nefnir hann. Næstur á eftir Gísla Marteini á þessum lista er Dagur B. Eggertsson, R-lista, en 16,6 prósent nefna hann. Þá kemur Stefán Jón Hafstein, R-lista, en 14,1 prósent nefnir hann. Spurt var: Hvaða frambjóðandi til borgarstjórnar, fyrir utan borgar- stjóraefnin, hefur komið þér þægileg- ast á óvart? Úrtakið var 600 kjósend- ur í Reykjavík, jafnt skipt á miili kynja. 53,2 prósent aðspurðra tóku af- stöðu í könnuninni. Fleiri konur en karlar voru óákveðnar eða svöruðu ekki spurningunni. Alls komust 29 frambjóðendur á blað í könnuninni. Gísli Marteinn er sér á parti í þessum efnum en þremenningarnir sem nefndir eru hér að ofan eru nefndir langoftast. DV kannaði 21. apríl hvaða fram- bjóðanda til borgarstjómar, fyrir utan borgarstjóraefnin, kjósendur höfðu mest álit á. Þá voru Stefán Jón og Gísli Marteinn efstir á lista, 18,2 prósent nefndu Stefán Jón og 16,9 prósent Gísla Martein. Dagur var þá í þriðja sæti en 12,6 prósent nefndu hann og Inga Jóna Þórðar- dóttir, D-lista, í fjórða sæti en 12,3 prósent nefndu hana. Þótt spurning- arnar séu ekki fullkomlega sam- bærilegar vekur engu að síður at- hygli að Stefán Jón hefur misst flug- ið, einnig Inga Jóna. Aörir meðal 10 efstu I fjórða sæti listans nú er Guðrún Ebba Ólafsdóttir, D-lista, en 5,3 pró- sent nefndu hana. 4,7 prósent nefndu Ólaf F. Magnússon, F-lista, 4,1 prósent Ingu Jónu Þórðardóttur, D-lista, 3,1 prósent Guðlaug Þór Þórðarson, D-lista, og Helga Hjörv- ar, R-lista, og 2,8 prósent Hönnu Bimu Kristjánsdóttur, D-lista, og Steinunni V. Óskarsdóttur, R-lista. Aðrir sem nefndir voru 8 atkvæði Jóna Hrönn Bolladóttir, R-lista. 5 atkvæði Margrét K. Sverrisdóttir, F-lista. 3 atkvæði Friðrik Þór Friðriksson, R-lista, og Gísli Helgason, F-lista. 2 atkvæði Árni Þór Sigurðsson, R-lista, Ás- dís Sigurðardóttir, F-lista, Björn G. Jónsson, F-lista, Júlíus Vífill Ingv- arsson, ekki i framboði, Kjartan Magnússon, D-lista, og Snorri Ás- mundsson, Æ-lista. 1 atkvæði Alda Sigurðardóttir, D-lista, Elva Dögg Melsted, D-lista, Gísli Rúnar (?), Guðjón Þór Erlendsson, A-lista, Hrönn Sveinsdóttir, F-lista, Katrín Jakobsdóttir, R-lista, Met- úsalem Þórisson, H-lista, Vilhjálm- ur Þ. Vilhjálmsson, D-lista, og Örn Sigurðsson, A-lista. -hlh Aukin þjónusta í smáauglýsingum DV: Meiri fjölbreytni fyrir viðskiptavini - segir Jónína Ósk Lárusdóttir á smáauglýsingadeild DV „Við erum alltaf að leitast við að bjóða viðskiptavinum upp á meiri og betri þjónustu svo auglýsingar þeirra verði bæði markvissari og fullnægi óskum þeirra betur. Sú ný- breytni að bjóða litmyndir í bilaaug- lýsingum hefur t.d. mælst mjög vel fyrir meðal viðskiptavina. Litmynd- ir lífga auk þess upp á smáauglýs- ingasíðurnar," segir Jónína Ósk Lárusdóttir, verkstjóri á smáauglýs- ingadeild DV. Ýmsar nýjungar era að líta dags- ins ljós á smáauglýsingasíðum DV, markaðstorgi þjóðarinnar í mörg ár. Viðskiptavinir sem vilja selja bíla geta fengið birtar litmyndir af bílunum sínum gegn 1400 króna aukagjaldi. Heildarverð auglýsingar verður þá 4.900 krónur. Stöðluð hæð smáauglýsinga hefur verið 12 millimetrar eða 4 línur. Nú munu þær hækka i 15 millímetra og 5 línur án nokkurs aukagjalds þar sem boðið verður upp á skáletraðar fyrirsagnir á hverri auglýsingu. Fá viðskiptavinir þvi flmm línur á verði íjögurra. Ársfundur Eftirlaunasjóðs starfsmanna íslandsbanka Ársfundur Eftirlauna- sjóðs starfsmanna íslandsbanka verður haldinn 4. júní nk. kl. 17.15 á 5. hæð (Hólum), Kirkjusandi. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Ársreikningar kynntir. 3. Skýrsla um trygginga- fræðilega úttekt kynnt. 4. Fjárfestingastefna kynnt. 5. Önnur mál. Stjórn Eftirlaunasjóðs starfsmanna íslandsbanka Auk þessa verður viðskiptavin- um boðið upp á að hafa allan texta smáauglýsingar feitletraðan gegn 500 króna aukagjaldi. Einnig verður boðið upp á staðlaðan ramma utan um auglýsinguna sem einnig kostar 500 krónur aukalega. Nýlega var opnaður smáauglýs- ingavefur DV á slóðinni www.dv.is en þar er hægt að bóka og panta auglýsingar og leita í gagnagrunni smáauglýsingadeildar DV. Hver auglýsing sem birt er í DV birtist síðan i eina viku á smáauglýsinga- vefnum án endurgjalds. Hér er aðeins fátt eitt nefnt af nýj- ungum fyrir viðskiptavini smáaug- lýsingadeildar DV. Næstu vikur og mánuði verða fleirir nýjungar kynntar sem miða allar að því að auka þjónustu við viðskiptavini og skila þeim enn betri árangri þegar þeir auglýsa í DV. Eftir sem áður er afar auðvelt að auglýsa í smáauglýs- ingum: Þú hringir, við birtum og það ber árangur eða: Þú pantar á smáauglýsingavefnum, við birtum og það ber árangur. -hlh Aukin þjónusta í smáauglýsingum Jónína Ósk Lárusdóttir, verkstjóri smáauglýsingadeildar DV, segir litmyndir af bílum til sölu hafa mælst mjög vel fyrir meöal viöskiptavina. íjfjvjj/ÍiJJ REYKJAVIK AKUREYRl Sólarlag í kvöld 22.44 22.29 Sólarupprás á morgun 04.04 03.50 Sí&degisflóð 21.54 14.02 Árdegisflóð á morgun 09.29 02.37 Austan 5-10 m/s við suður- ströndina en annars fremur hæg austlæg eða breytileg átt. Yflrleitt léttskýjað, en skýjað með köflum og sums staðar þokuloft við suður- og austurströndina. Austlæg eða suðaustlæg átt. Léttskýjað víðast hvar en skýjað með köflum sums staðar. Hiti 8 til 16 stig að deginum, hlýjast inn til landsins. Hiti 6" Hiti 4® Hiti 2° til 16° tii 12" tii 9' Vindur: 5-10">/s Vindun 5-10'"/« Vindur: 5-13 "Vs Hæg SA-læg eöa breytileg átt. Skýjað að mestu og fremur hlýtt. NA-iæg átt og víöa rigning. Heldur kólnandi veöur. NAogAætt meö vætu, einkum N-og A- lands. * * m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stlnningsgola 5,5-7,9 Kaldi 8,0-10,7 Stinningskaldi 10,8-13,8 Ailhvasst 13,9-17,1 Hvassviðri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveður 28,5-32,6 Fárviðri >= 32,7 j- J^usXu Jll, 'ó AKUREYRI heiðskírt 0 BERGSSTAÐIR heiðskírt 1 BOLUNGARVÍK heiðskírt 3 EGILSSTAÐIR heiðskírt 1 KIRKJUBÆJARKL. skýjað 2 KEFLAVÍK þokumóöa 6 RAUFARHÖFN heiðskírt 2 REYKJAVÍK skýjað 5 STÓRHÖFÐI skýjað 3 BERGEN skýjað 8 HELSINKI skýjað 10 KAUPMANNAHÖFN skýjað 10 ÓSLÓ léttskýjað 13 STOKKHÓLMUR 10 ÞÓRSHÖFN alskýjað 7 ÞRÁNDHEIMUR úrkoma 7 ALGARVE skýjað 16 AMSTERDAM þokumóöa 14 BARCELONA skýjað 15 BERLÍN skýjaö 16 CHICAGO DUBLIN rigning 14 HALJFAX skýjað 8 frankfurt léttskýjað 15 HAMB0RG súld 11 JAN MAYEN léttskýjaö 2 LONDON skýjað 15 LÚXEMB0RG léttskýjaö 16 MALLORCA hálfskýjaö 19 MONTREAL NARSSARSSUAQ skýjað 5 NEW YORK ORLANDO PARÍS skýjað 16 VÍN léttskýjaö 15 WASHINGTON WINNIPEG heiöskírt -1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.