Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 Skoðun DV Tekurðu vítamín? Erik Qvick tónlistarmaöur: Já, ég tek týsi. Linda Pálsdóttir nemi: Já, ég tek lýsi, C-vítamín og fjötvítamín. Dögg Hjaltalín nemi: Nei, ég fæ svo mikiö af vítamínum úr fæöunni, ég boröa svo hollan mat. Guölaug Pálsdóttir markaðsfulitrúl: Já, ég tek inn Futura, fyrir hár og neglur. Gísli Marteinn Baldursson Hanna Birna Kristjánsdóttir Dagur B. Eggertsson „Gefa baráttunni mestan lit í borgarstjórnarkosningunum“. Þverpólitískar borgar st j órnarkosningar Friörik Jónsson skrífar: Manni sýnist að þeim sé orðið vernlega heitt í hamsi, forsvars- mönnum stærstu fylkinganna sem berjast um að ná meirihluta í borg- arstjóminni í Reykjavík. Ekki er svo sem algjör samstaða um þessar tvær fylkingar því í heildina eru í boði sex framboðslistar. Þótt hliðar- framboðin fjögur vegi ekki þungt í heildina þá er þarna um að ræða at- kvæði sem skila sér ekki til sjálf- stæðismanna eða R-listans. Og það sem meira er: Nú er greinilega um að ræða þverpólitískar borgar- stjórnarkosningar, það sér maður og heyrir á mörgum sem segja að nú kjósi þeir ekki sama lista og síðast - og á það bæði við um lista sjálfstæð- ismanna og R-listann. Manni sýnist þó þessa dagana að atkvæðin muni fremur renna til sjálfstæðismanna, enda hefur slag- síðan R-lista-megin aukist talsvert við þann málflutning sem haldið „Nú er greinilega um ad rœða þverpólitískar borgarstjómar- kosningar, það sér maður og heyrir á mörgum sem segja að nú kjósi þeir ekki sama lista og síðast. - Og það á bæði við um lista sjálfstæðismanna og R-listann.“ hefur verið á lofti af hálfu D-lista- manna. Ég man t.d. eftir sjónvarps- viðtölum fyrir stuttu þar sem nýr, frambærilegur og einkar málefna- legur frambjóðandi sjálfstæðis- manna, Hanna Bima Kristjánsdótt- ir, atti kappi við m.a. Stefán Jón Hafstein á R-lista og endaði með því að hann varð að lúta í lægra haldi. Sl. sunnudag komu svo þeir Gísli Marteinn Baldursson og Dagur B. Eggertsson í Silfur Egils-þáttinn, og þar bókstaflega brilleraði Gísli Marteinn svo af bar meö því aö hrekja framburð Dags um ótak- markað peningaflæði í kosningabar- áttu sjálfstæðismanna. Sagði Gisli (sem líklega verður að telja rétt) að þama sé um að ræða svokallaða „maður-á-mann“-baráttu frekar en nokkuð annað. Sú aðferð hefur líka oft gagnast vel í kosningabaráttu sem hér um ræðir - að ógleymdum sannfærarandi málflutningi efsta manns listans, fyrrverandi mennta- málaráðherra, Bjöms Bjamasonar, og öðrum frambjóðendum sem leggja listanum lið með snörpum innskotum í formi blaðagreina og viðtala víðs vegar um borgina. Án þess að ég ætli að spá nokkru um úrslit kosninganna finnst mér þrenningin Gísli Marteinn Baldurs- son, Hanna Bima Kristjánsdóttir og Dagur B. Eggertsson vera þau sem gefa baráttunni í borgarstjórn- arpólitíkinni mestan lit þessa dag- ana. Og það mun áreiðanlega vega þungt að umræðan og skoðanir fólks eru þverpólitískari nú en oft- ast áður. Stuðandi stöðumælavarsla íbúi í Garðabæ hríngdi: Camille Marmie neml: Já, ég tek C-, D- og K-vítamín. Charlotte nemi: Já, ég tek multi vítamín. „Stöðumælaverðir eru í mínum augum eins og álfar og aðrar huldar vættir þessa lands. Þeir bókstaflega spretta upp úr jörðinni þegar minnst varir - eða kannski koma þeir af himnum ofan til að geta komið sektarmiða á bílana í mið- borg Reykjavikur. Það er engu lík- ara en að þeir liggi í launsátri og bíöi eftir að stöðumælirinn detti. Um daginn átti ég örsnöggt erindi inn á skrifstofu við Tjamargötu. Viti menn, þegar út var komið sá ég í afturendann á hróðugum stöðu- mælaverði, sem var nýbúinn að skrifa mig upp, nákvæmlega þegar rann út af mælinum. Jæja, það var ekkert viö þessu að gera. Daginn eft- „Eg vil að félagsmálaráðu- neytið fjalli um stöðuverði og valdsvið þeirra. Hnjúka- listinn á Blönduósi fékk ell- efu mínútumar felldar nið- ur eins og kunnugt er. Ég vil að ökumenn fái smáveg- is ráðrúm til að verjast stöðumœlavörðunum. “ ir er ég á Skólavörðustíg, man eftir sektarmiðanum, og fer inn í Spari- sjóðinn til að borga sektina. Þar var einhver bið - en þegar ég kem út er stöðumælavörður mættur og búinn að setja sektarmiða á bílinn. Ég varð satt að segja bálillur. Það er sárt að eyða peningunum í þessa vitleysu. Mér sýnist að stöðumælavarsla sé nánast að ganga af gömlu miðborg- inni dauðri. Svo rosaleg er þessi varsla að stöðumælaverðimir eru mættir á stundinni þegar rauða spjaldið kemur upp á mælinum. Liðlegheit eru ekki framarlega í orðabókinni hjá þessu fólki, aldrei er hægt aö semja um eitt eða neitt við það. Ég vil að félagsmálaráðuneytið fjalli um stöðuverði og valdsvið þeirra. Hnjúkalistinn á Blönduósi fékk ellefu mínútumar felldar niður eins og kunnugt er. Ég vil að öku- menn fái smávegis ráðrúm til að verjast stöðumælavörðunum. Hugleiðing um norskan bónda Garra bárust nýverið þær fréttir úr norskum blöðum í gegnum málgagn samtaka íslenskra bænda, að Evrópusambandið sé með í smíðum reglugerð sem bannar að bændum að aka drátt- arvél lengur en í 7 klukkustundir á dag. Norskir bændur em sagðir uggandi um sinn hag, enda ekki unnið samkvæmt stimpilklukku við árstíða- bundin verk sem vinna þarf á skömmum tíma; plægingu, sáningu, áburðardreifingu og slátt og hirðingu. Þau verða m.ö.o. þung sporin sem norski bóndinn gengur af akrinum frá ókláruðu verki, þegar sjöunda klukkustundin rennur sitt skeið á enda. Spuming er hvort reglugerð Evrópusam- bandsins geri ráð fyrir að honum verði leyft að aka i bæinn til að lyfta sér upp. Góðu áformin Ekki þarf að efast um góðan vilja embættis- mannsins sem átti hugmyndina að nýju regl- unni. Kannski var hann með hugann við slysin sem verða við vinnuvélar til sveita. „Þeim verð- ur að fækka,“ hefur hann líklega hugsað með sér. Stjómmálamenn - og embættismenn - em uppfullir af góðum vilja. Þeir eru svo ofsalega góðhjartaðir og vel meinandi að bannlistinn lengist og lengist. „Leiöin til ánauðar er vörðuö góðum áformum," sagði austurriski hagfræðing- urinn og nóbelsverðlaunahafinn F.A. Hayek. Reglurnar Reglur kalla á fleiri reglur. Hljótum við til dæmis ekki að leyfa þeim norska að taka fjórar tveggja tíma tamir í dráttarvélinni með góðum hléum á milli? Hvað ef hann sest ekki upp í vél- ina fyrr en um kvöldiö? Kemst hann fram hjá reglunni með því að færa fimm klukkustundir til bókar á mánudagskvöldi og þrjár til viðbótar að- faranótt þriöjudags? Breytist kvótinn ef um næt- urvinnu er að ræða eða í hlutfalli við hvíld bóndans næstu nótt á undan? Gilda sömu mörk um einfóld verk og flókin? Fleiri reglur kalla á hert eftirlit. Garra er ekki kunnugt um hvernig löggæslumálum er háttað í norskum sveitum. í þeirri sveit sem hann þekkir eru lögreglumenn sjaldséðir. TU þess að fylgja eftir góðum áformum embættismannsins í Brus- sel þyrfti því sennUega að beita öðrum ráðum. Ánauðin Hugmyndin að pappalöggum á að vísu rætur sínar í sveitum og kallast þar fuglahræður. Bændahræður myndu hins vegar ekki duga á þá allra vinnuglöðustu. SennUega væri því best að setja upp eftirlits- myndavélar í dráttarvélum. Eða setja einhvers konar búnað i þær sem slekkur á vélinni ef sami maður ekur henni lengur en í sjö klukkustundir. Slíkum búnaði þyrfti að fylgja annar búnaður, sem greinir norska bóndann frá syni hans. Fingrafaralesari eöa eitthvað slikt. Án eftirlits af þessu tagi er reglan marklaus. Og hið góða starf embættismannsins unnið fyrir gýg. Góðu áformin verða að ná fram að ganga. Það er öUum fyrir bestu. Norski bóndinn mun örugglega skUja það þegar hann verður eldri. Cs/Xff i Þyria lendir við Landspltalann í Fossvogi Flugvöllur ekki í myndinni. Án flugvalla Þyrluflugma&ur skrifar: Talsvert er rætt í yfirstandandi kosningabaráttu um staðsetningu ReykjavíkurflugvaUar og ýmislegt tínt tU sem þykir styðja ýmist veru hans eða brotthvarf. Þar er m.a. talað um sjúkraflug og fuUyrt að UugvöUur- inn verði að vera í nágrenni sjúkra- húss. Þetta er af og frá. í dag eru flest sjúkraflug sem slíku naíhi má netna, framkvæmd með þyrlum. Aðeins sjúklingar sem ekki þarfhast bráðrar umönnunar eru fluttir með áætlunar- flugi eða flugi sem pantað er sérstak- lega. Sem betur fer eru þyrlur æ meira nýttar tU sjúkraflugs þegar mikið liggur við og þær lenda svo tU við dyr sjúkrahúsanna. Sjúkraflug sem slíkt er því ekki endUega tengt nálægð flugvaUar, þótt það skaði ekki að þannig hagi tU. Frábært útspil forsætisráðherra Kristinn Slgurðsson skrifar: Nýleg skoðanakönnun sem forsæt- isráðherra lét gera sýnir að ef fólk er upplýst um kosti og gaUa Evrópuað- Udar eru það 70-80% sem hafna aðUd. Furðulegt er að GaUup skuli aUs ekki tala um eða vUja ræða kosti og gaUa aðUdar að bandalaginu, því þá kemur vUji fólks best í ljós þegar spurt er. Ég er líka gáttaður á því að Satnfylkingin skuli haUast að aðUd. Dæmi um „mik- U“ áhrif smáþjóða var að danski fuU- trúinn í sjávarútvegsnefnd vUdi minnka veiðar í Norðursjó. Daninn var rekinn úr nefndinni að kröfu Spánar og ekki var hlustað á mómæli dönsku stjómarinnar. Fleiri sendiráð óþörf Björn Magnússon skrifar: Það er furðu- legt að það skuli oftast vera ein- hverjir í opin- bera geiranum sem koma með tiUögur um meiri eyðslu, viðameiri opin- berar fram- kvæmdir og útþenslu á bákninu. Nú síðast kom lektor einn í stjómmála- fræði við Háskólann með þá tiUögu að sendiráðum Islands í Evrópu yrði fjölgað verulega. Þetta lagði hann tU íslandi tU handa í tUefni Evrópudags- ins 9. maí sl. Og nefndi tU sögunnar bæði PóUand og Ungverjaland. Einnig Spán og Portúgal. EinkennUegt með opinbera starfsmenn, þeir halda að hægt sé að taka endalaust úr sameig- UUegum sjóði okkar, bæði með beinni eyðslu og óbeinni, þ.m.t. sjálftöku sumra í launaauka, eins og nú er ofar- lega í fréttum Leiðarljós heimsins Vilhjálmur Alfreðsson skrifar: Að undanfómu hefur mikið verið rætt um Evrópumálin. Aðallega um hvemig staða íslands verði á næstu árum og áratugum gagnvart Evrópu og Ameríku. Það er greinUegt að Evr- ópa og Ameríka (les: Bandaríki Norð- ur-Ameríku) em að fjarlægjast, jafnvel slíta sundur hin nánu tengsl sem hald- ist hafa fram að þessu. Hvemig væri að ísland gerðist eins konar mUliliður eða tengiliður mUli heimsálfanna tveggja, og þá með það fyrir augum að græða þau sár sem myndast hafa. ís- land gæti svo sannarlega orðið leiðar- Ijós heimsins í þessum skUningi. Sendiráöshúsiö í Ósló Ekki fleiri sendiráö. BE Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangiö: gra@dv.is Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV, Skaftahlíö 24, 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.