Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2002, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2002 Skoðun Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jönsson Aðalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aðstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifmg@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viömælendum fyrir viötöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Hótun borgarfutttrúans Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi meirihlutans í Reykjavík og stjórnarformaður Linu.Nets, hótaði DV þegar blaðamaður þess leitaði upplýsinga hjá honum um misræmi sem hafði komið fram í fréttum af viðræðum Línu.Nets og Columbia Ventures Corporation, fyrirtækis Kenneth Petersons. Um leið dró hann í efa hlutleysi blaðsins í fréttaflutningi af málinu. Vegna þessa er rétt að ítreka að vinnubrögð DV voru eðlileg og fagleg. Fram hafði komið í sjónvarpsviðtali við Alfreð Þorsteinsson að Kenneth Peterson hefði fyrir hönd fyrirtækis síns haft samband við Linu.Net að fyrra bragði um aðkomu og hugsanleg kaup i Línu.Neti. Vegna fréttaflutnings af málinu birti Kenneth Peterson yfirlýs- ingu þar sem fram kom að fyrirtækið hefði sem fyrr áhuga á að fjárfesta á íslandi, fýrst og fremst í áliðnaði en einnig í öðrum greinum. Síðar í yfrrlýsingunni sagði: „Lína.Net og móðurfyrirtæki þess buðust að fyrra bragði til að láta okkur í té vissar upplýsingar um það fyrirtæki fyrir meira en mánuði. Ekki hefur komið til neinna al- varlegra samningaviðræðna á þessari stundu. Aðeins er um að ræða eitt af mörgum tilboðum sem við höfum fengið um að kanna upplýsingar um íslensk fyrirtæki sem gætu haft áhuga á fjárfestingum af hálfu CVC. Vilja okkar til að kanna slíkar upplýsingar ætti ekki að skilja sem endanlega vísbendingu um að við munum ákveða að fjárfesta.“ Upplýsingarnar voru misvísandi og því eðlilegt að DV kannaði málið. Verulegu máli getur skipt um framgang málsins og áhuga CVC á Línu.Neti hvor hafði frumkvæð- ið. Til þess að fá skýringar á misræminu hafði blaðið samband við Alfreð Þorsteinsson. Hann taldi misræmið ekki skipta meginmáli heldur þá staðreynd að óformleg- ar viðræður hefðu átt sér stað. Þegar gengið var eftir svörum spurði Alfreð hvort DV ætlaði að láta pólitísk sjónarmið ráða for í fréttaflutningi, blaðið réði því vitan- lega sjálft hvernig það héldi á málum, en bætti við: „Þið verðið að lifa af eftir þessar kosningar eins og við.“ Fjölmiðlar fá stundum hótanir við fréttaöflun. Sá sem hótar hefur yfirleitt vondan málstað að verja og reynir með hótun sinni að hafa áhrif á blaðamanninn og koma þannig í veg fyrir birtingu fréttar. Blaðamenn verjast þessu. í tilviki Alfreðs, og vegna stöðu hans sem borgar- fulltrúa Reykjavíkur, stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur og stjórnarformanns Línu.Nets, þótti DV rétt að birta hótunina. Hann hótar blaðinu ekki sem ein- staklingur heldur í krafti embætta sinna sem kjörinn fulltrúi Reykjavíkurborgar og valdamikill í stjómum fyrrgreindra fyrirtækja á vegum borgarinnar. Borgarfulltrúinn og stjórnarformaðurinn segir blaðið verða að lifa, sem sagt hafa tekjur. Tekjur dagblaðs verða í meginatriðum til með sölu þess og sölu auglýsinga. Hót- un Alfreðs verður ekki skilin á annan veg en þann að hann ætli sér, i krafti embættanna, að beita sér gegn DV og þá með þeim hætti að blaðið fái ekki eðlilegan skerf borgar og borgarfyrirtækja í auglýsingum. Alfreð Þorsteinssyni, borgarfulltrúa og stjórnarmanni í borgarfyrirtækjum, er treyst fyrir ábyrgð. Hann er kjör- inn fulltrúi Reykvíkinga og fer með fé skattborgaranna. Hann hótar fjölmiðli mismunun í krafti þessa valds vegna þess að honum mislíkar upplýsingaöflun miðils- ins. Það er óliðandi þegar fjölmiðillinn er að sinna sínu hlutverki á fullkomlega faglegum nótum. Þess vegna greindi DV frá hótun hins kjörna fulltrúa. Jónas Haraldsson DV Miðbærinn er dauður, lengi lifi miðbærinn Á uppstigningardag mátti fyrst greina alvöruvor í lofti í Reykjavík. Seinna en vænta mátti, en samt. Það var vor. Sjálfstæðis- flokkurinn hefur lýst mið- bæinn dauðan og jarðað með blessunarorðum um „vonda lykt“. Það kom í Ijós þennan dag að fregn- ir af andláti miðbæjarins voru stórlega ýktar. Allir Reykvíkingar fá sömu hug- mynd og ég fékk klukkan fjögur þennan dag: „fara í bæinn og kaupa ís“. Hvers vegna? Vegna þess aö allt í einu skein sólin, allt í einu varö hlýtt. Og þaö er hluti af til- veru Reykvíkings nokkrum sinn- um á sumri að fara í bæinn og kaupa ís. Þaö var ekki nokkur leið að kaupa ís í miðbænum dauöa. Langar biðraöir á Ingólfstorgi. t Kolaportinu var jafn litríkt lif og alltaf er. Þaö kallast „iðandi mann- líf“ í blaðagreinum. Ég fékk hákarl að austan í staðinn fyrir ís. í nýuppgerðu Austurstræti siluð- ust bílar, fullir af ijölskyldum, „nið- ur i bæ“ til að sýna sig og sjá aðra. Ungir athafnamenn voru á þönum að gera upp veitingastað sem bráð- lega verður opnaður aftur í þessu stræti sem Tómas orti um. Á homi Póstuhússtrætis og Austurstrætis staðnæmdist ég til að fara úr gamla regnstakknum. Horfði inn á Kaffi París: Stappað. Á Austurvelli var eins og þjóöhátíð. Ös í Pennanum. Fólk streymdi fram hjá með barna- vagna og naut þess að vera til. Kunningi stoppaði mig á götunni og kveikti hugmynd að þessari grein: „Heyrðir þú pistil Illuga um miðbæinn og lygina um að hann væri dauður?“ Nei, sagði ég, hef líklega of mikið að gera. Hugsaði mig svo um: „Er þetta þessi dauði miðbær?“ spurði ég náungann og við hlógum báðir að mannmergð- inni. Á Austurvelli mátti greina þjóðskáld með fjölskyldu sinni sem kallaði glaðlega á kunnan kjaftask úr sjónvarpsþáttum: „Hvar em all- ar gleðikonumar og glæpamenn- imir?“ Bankastræti sem nýsleginn... Á Lækjartorgi sat fólk á bekkj- um, andspænis nýja Kaffíhúsinu sátu dömur og borðuðu McDon- ald’s af bakka sem þær höfðu feng- ið lánaðan út. Á ljósunum vom all- ar akreinar fullar af bónuðum bíl- um, fullum af fólki. Böm i bama- stólum og sváfu; fullorðna fólkið búið að rúlla niður rúðum og með músík í græjunum. Niður Banka- stræti liðuðust bamavagnar með ung hjón í eftirdragi. Ég stoppaöi fyrir utan Sævar Karl. Hann var sjálfur þar og hallaði sér upp aö stöðumæli — stór flutningabíll fyr- ir utan. „Er það vorsendingin, Sævar Karl?“ spurði ég. „Nei, þetta fólk er að fara að opna sýn- ingu hjá mér.“ Við spjölluðum um endurbætumar á Bankastræti og hann vonar að áfram verði haldið næsta ár. Á nýja veitingastaðnum, Kaupfélaginu, sat fólk og sötraði bjór og kjaftaði. í bókabúð Máls og menningar var kunnur þáttastjómandi mættur að ná sér í eitthvaö að lesa, erlend blöð, með barnavagninn í slagtogi. „Er þetta þessi dauði miðbær?" spurði ég. Fólkið streymdi hjá eins og á Þorláksmessu. Hann hló. Var að koma af kaffihúsi; hafði beðið um borð út á stétt. „Nú sitja 40 manns úti á stétt þama,“ sagði hann og hló eins og hann gerir þeg- ar stjórnmálamenn ærast í þættin- um hans. Og svo gekk ég upp Skóla- vörðustíg þar sem vinnuvélamar hömuðust við að betrumbæta á sjálfum uppstigningardegi og verkamenn börðust um með skófl- um. Ég gleymdi að líta eftir nýja staðn- um sem á að fara að opna, leiðbein- ingar- og þjónustusetri fyrir erlenda ferðamenn sem koma hingað unn- vörpum og vita ekki betur en mið- bær Reykjavíkur sé „the coolest place“. Er miðbærinn dauður? Að- eins í augum þeirra sem ekki sjá. Með kveðju frá frambjóðanda sem hefur ekki áhyggjur. X-R. „Ég gleymdi að líta eftir nýja staðnum sem á að fara að opna, leiðbeiningar- og þjónustusetri fyrir erlenda ferðamenn sem koma hingað unnvörpum og vita ekki betur en miðbœr Reykjavíkur sé „the coolest place“. Er miðbærinn dauður?“ Sandkorn Klár í slaginn? Mönnum þykir nú ljóst að Valgerður Sverrisdóttir ætli að láta sverfa til stáls gegn Kristni H. Gunnarssyni í formennsku Byggða- stofnunar. Hefur hún enda sagt að ekki megi lengur búa við þær erj- ur sem einkenna sam- skipti hans og Theódórs A. Bjarnasonar, formanns stofnunarinnar. Raunar er bent á að það hafi ekki síst verið fyrir tilstilli Valgerðar að Kristinn kom á sínum tíma í Framsóknarflokkinn úr Alþýðubanda- laginu. Kristinn þarf þó ekki að örvænta. Rifja má upp að Steingrímur Hermannsson hafði á sínum tíma það hlutskipti að húkka Ólaf Ragnar Grímsson inn í Framsóknarflokkinn - og reka hann úr honum aftur. Á endanum varð Ólafur forseti lýðveldisins. Hvert er þá framtíðarhlutverk Kristins? Rifist um rennibraut Verklegar framkvæmdir eru hitamál á Selfossi þessa dagtuia og það sem í flestum tilvikum teldist smáræöi hefur orðið að stórmáli. í bæjarblöðum eystra segir nú frá því að mörgum hafi orðið fóta- skortur í tröppunum við vatnsrennibraut sundlaug- arinnar þar í bæ, enda séu þær hálar. Þrýst er á um aðgerðir en Sigmundur Stefánsson sundlaugarstjóri segir að tröppumar séu í samræmi við reglugerðir. Málið verði því skoðað af lögfræðingi áður en lengra verði haldið. Sundlaugargestir skyldu því ekki láta sér bregða ef skýluklæddur maður með skjalatösku sést bogra yfir tröppunum. Austur og norður Umsóknarfrestur um starf forstöðumanns Rás- ar 2, sem sitja mun á Ak- ureyri, hefur verið fram- lengdur eins og fram hef- ur komið. Að sögn vildu menn í Efstaleiti fá aukna breidd í hóp umsækjenda, en fimm sóttu um starfið í fyrstu lotu. Þeir sem gerst til þekkja fara þó ekki í grafgötur um að hér sé fiskur undir steini. Ætl- unin sé að fá Jóhann Hauksson til þess að sækja um starfið, en hann hefur undanfarin misseri verið forstöðumaður svæðisútvarpsins á Egilsstöðum og var áður frétta- maður á Útvarpinu um langt skeið. Jóhann er einn þeirra sem sátu í nefndinni sem útfærði Akureyrar- hugmyndimar um Rás 2 og er því öllum hnútum kunnugur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.